Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1996, Blaðsíða 2
22
MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1996
íþróttir I>V
Aldrei i hættu
- öruggur sigur hjá Rúnari og Jóni í GSM-rallinu sem lauk í gær
Feðgamir Rúnar Jónsson og Jón Ragnarsson stóðu uppi sem sigurvegarar i 17
inu á íslandi, GSM-rallinu, sem lauk í gær eftir þriggja daga
keppni. Þátttakendur voru 32 en nokkrir þeirra heltust úr
lestinni.
Eftir fyrsta dag og 7 sérleiðir voru feðgarnir með
rúmlega þriggja mínútna forystu á Steingrím Inga-
son og Jóhannes Jóhannesson. Þriðju voru Norð-
mennirnir Nils Petter Gill og Einar Staff, 30
sekúndum á eftir. Guðbergur Guðbergsson, ís-
landsmeistari í rallíkrossi, varð að hætta
keppni á nýjum sérsmíðuðum Porche 911 strax
á annarri sérleiö með brotinn öxul.
Á laugardaginn vora eknar 9 sérleiðir.
Steingrímur og Jóhannes duttu þá úr keppni
með brotna spyrnu. Fyrri hluta dagsins juku
feðgarnir við forskotið en fóru þá að heyra tor-
kennileg hljóð úr gírkassanum og slökuðu að-
eins á seinni hluta dagsins, enda nokkuð örugg-
ir í fyrsta sæti með um 7 mínútna forskot á Gils
og Staff.
Á síðustu sérleið laugardagsins velti eina
kvenáhöfnin í rallinu, þær Guðný Úlfarsdóttir og
alþjóðarall- Þóra Hjartar Blöndal. Þær héldu þó áfram keppni en töpuðu um 20 mínútum á veltunni og
urðu næstsíðastar af þeim sem luku keppni.
Á laugardeginum var keppt í flokki sögufrægra bíla í fyrsta skipti á
íslandi. í þessum flokki eru eingöngu bílar frá því fyrir 1970 og óku
\þeir einungis nokkrar leiðir.
^ í gær tóku feðgamir hlutunum með ró og komu í mark sem
öruggir sigurvegarar á samanlögðum tima 3:02:11 klst.
Næstir komu Gill og Stalf á tímanum 3:05:47 og þriðju
J urðu Sigurður Bragi Guðmundsson og Rögnvaldur
Pálmason.
Hjörtur P. Jónsson og ísak Guðjónsson
urðu fyrstir í flokki N, hálfri
annarri minútu á undan næstu
keppendum, Þorsteini Sverris-
syni og Ingvari Guðmundssyni.
í jeppaflokki var sigur þeirra
Geoífreys Tunnards og Douglas
■ Landy frá Bretlandi á Mitsubis-
hi Pajero afgerandi en næstir
komu þeir Ævar S. Hjartarson og
Ari Arnórsson á Hummer á um 9
mínútum lakari tíma. -Ása Jóa
Opna Reykjavíkurmótið:
Urslit
FH-Stjaman 21-27
Afturelding-ÍR 28-17
Fylkir-Selfoss 21-29
KA-KR 36-16
Haukar-ÍBV 25-26
Grótta-Hörður 41-16
Fram-Vikingur 28-16
Haukar-Grótta 35-29
Afturelding-KA 29-26
ÍBV-Grótta 29-26
FH-Breiöablik 30-18
Fram-Fylkir 33-23
Valur-Víkingur 25-17
Fram-Selfoss 27-27
Vikingur-Fylkir 24-20
Valur-Selfoss 27-25
ÍBV-Hörður 47-17
KA-ÍR 21-29
Hörður-Haukar 19-62
Stjarnan-HK 24-24
Ekki er ósennilegt að Haukar hafl
sett fslandsmet í meistaraflokki karla
með því að skora 62 mörk á 60
mínútum.
8-liða úrslit:
ÍBV-FH 18-16
Afturelding-Fram 19-21
Haukar-Stjarnan 15-20
Valur-KA 18-21
Leikur Aftureldingar og Fram var
tvíframlengdur og einnig þurfti að
framlengja leik KA og Vals.
4-liða úrslit:
KA-Stjaman 16-18
Fram-ÍBV 16-17
Leikur um 3. sætið:
Fram-KA 28-16
Úrslit:
ÍBV-Stjaman 32-24
Ovæntur sigur
Eyjamanna
„Ég verð að segja að þetta voru óvænt úrslit enda reikn-
uðu fáir með þessu. Þetta lofar góðu fyrir veturinn en
strákarnir mega ekki ofmetnast. Strákamir fengu góða
eldskírn í fyrra, nú eru þeir árinu eldri og þeir hafa æft
vel í sumar. Eftir að hafa fylgst með mótinu sé ég lið eins
og KA, Aftureldingu og Hauka mæta sterka til leiks og
Stjarnan gæti gert góða hluti,” sagði Þorbergur Aðalsteins-
son, þjálfari ÍBV, eftir sigur á opna Reykjavíkurmótinu í
handknattleik sem lauk í Austurbergi í gærkvöldi.
Eyjamenn léku til úrslita gegn Stjörnunni og unnu ör-
uggan sigur, 32-24. Eyjamenn byrjuðu með látum, þeir
komust í 7-0 og höfðu yfir í hálfleik, 17-9. Stjörnumenn
náðu að minnka muninn niður í þrjú mörk í síðari hálf-
leik en nær komust þeir ekki.
Gunnar Berg Viktorsson var markahæstur Eyjamanna
með 9 mörk, Arnar Pétursson 6, Ingólfur Jóhannesson 5,
Zoltan Belánýi 4 og þeir Davíð Þór Hallgrímsson og Svav-
ar Vignisson voru með þrjú mörk hver. Sigmar Þröstur
Óskarsson varði mark ÍBV eins og berserkur. Hjá Stjöm-
unni voru Konráð Olavsson og Hilmar Þórlindsson með 4
mörk hvor.
í leiknum um þriðja sætið gersigraði Fram lið KA,
28-16, eftir að hafa leitt í hálfleik, 15-9. Rússinn Oleg Titov
var markahæstur Framara með 10 mörk, Sigurður Guð-
mundsson 6, Magnús Arngrímsson 4, Guðmundur Pálsson
3 og Njörður Steinarsson 2. Hjá KA var Jón Öm Þorleifs-
son með 5 mörk, Sævar Adolfsson 4, Jóhann G. Jóhanns-
son 3 en Róbert Duranona skoraði aðeins eitt mark.
Fyrir sigurinn fengu Eyjamenn 150.000 krónur, Stjarnan
100.000 og Fram 50.000 fyrir þriðja sætið. -GH
Haukarnir unnu Njarðvík
Haukar lögðu Njarðvíkinga, 85-81, í Reykjanesmótinu í
körfuknattleik í gær. Á opna Reykjavíkurmótinu voru þrír
leikir, Valur-Breiðablik 68-64, KR-Leiknir 117-71,
Leiknir-Breiðablik, 74-69. -GH
Rúnar Jónsson og Jón Ragnarsson
á fleygiferð í Öskjuhliðinni á
föstudagskvðldið. DV-mynd BG
Noregur:
Ágúst með
tvö mörk
Ágúst Gylfason
skoraði tvö mörk
fyrir Brann í
gær þegar liðið
sigraði Ströms-
godset, 6-2, í
norsku úrvals-
deildinni í knatt-
spyrnu. Það voru
tvö síðustu mörk
leiksins, það fyrra með miklum
þrumufleyg af 20 metra færi,
korteri fyrir leikslok, og það síðara
með síðustu spyrnu leiksins.
Marko Tanasic, fyrrum leikmaður
Keflvíkinga, skoraði fyrsta mark
leiksins fyrir Strömsgodset.
Birkir missti sætiö í liöi
Brann
Birkir Kristinsson var ekki í
marki Brann, hann sleppti síöasta
leik vegna landsleiksins í Tékk-
landi og það kostaði hann sætið í
liðinu.
Brann komst með sigrinum í
annað sætið í deildinni, fjórtán
stigum á eftir Rosenborg sem
tryggði sér norska meistaratitilinn
í gær meö 2-1 sigri á Start. Rosen-
borg er með 50 stig en Brann og LU-
leström 36, Tromsö 35 og Viking 34.
Fjórum umferðum er ólokið.
KVA meist-
ari í 4. deild
KVA tryggði sér meistaratitil 4. deUdarinnar í
knattspyrnu á laugardaginn með þvi að sigra
Sindra frá Homafirði, 3-1, í úrslitaleik á Reyðar-
firði. Bæði liðin leika í 3. deUd á næsta ári. Aron
Haraldsson, Dragan Stojanovic og Bjarni Krist-
jánsson skomðu fyrir KVA en Gunnar Ingi Val-
geirsson fyrir Sindra.
KVA varð þar með eina liðið á landinu sem
ekki tapaði leik á keppnistímabilinu, hvorki i
deUd né bikar. í 4. deUdinni vann liðið 16 leiki
og gerði eitt jafntefli og skoraði 72 mörk gegn 15
og í bikarkeppninni vann KVA fyrsta leikinn
sem síðan var dæmdur liðinu tapaður.
Bolungarvík vann Létti, 4-1, í leik um 3. sæt-
ið i Bolungarvík. Pétur Jónsson 2, Stefán Andr-
ésson og Hálfdán Gíslason skoruðu fyrir Bolvík-
inga en EngUbert Friðflnnsson fyrir Létti.
-VS
Sænska knattspyrnan:
Sigurður átti stór-
leik gegn Malmö
DV, Sviþjóð:
íslendingaliðin Örebrö og Örgryte unnu bæði leiki sína í
sænsku úrvalsdeUdinni í knattspymu um helgina. Örebrö
lagði Malmö á heimavehi sinum, 2-0. Sigurður Jónsson
átti stórleik á miðjunni og fékk hæstu einkunn leikmanna
Örebrö í sænsku blöðunum. Hlynur Birgisson og Amór
Guðjohnsen stóðu sig einnig vel.
Rúnar Kristinsson og félagar hans í Örgryte unnu góðan
útisigur á Halmstad, 1-3. Rúnar lék aUan leikinn og fékk Sigurður Jónsson.
ágæta dóma fyrir frammistöðu sína. Af öðrum helstu úrslit-
um má nefna að AIK, andstæðingar KR-inga í Evrópukeppninni, töpuðu á heima-
velli fyrir Trelleborg, 2-3, Gautaborg lagði Degerfors, 2-0, og Helsingborg vann 4-0
sigur á Umeá. Gautaborg er efst með 38 stig og Helsingborg 32. Örgryte er í 5. sæti
með 28 stig og Örebrö í 9. með 26 stig. -EH
Birgir Mikaelsson,
körfuknattleiksmað-
urinn gamalkunni,
hefur ákveðið að
ganga til liðs við sitt
gamla félag, KR, og
leika með þvi í úr-
valsdeildinni í vetur.
Birgir lék með nýlið-
um Breiðabliks í
deildinni síðasta vetur
en gengið var frá fé-
lagaskiptum hans yfir
i KR um helgina.
Blikarnir hafa orðið
fyrir frekari blóðtöku
því Halldór Krist-
tmannsson leikur
ekki með þeim í vet-
ur þar sem hann
verður í Bandaríkj-
unum. Þeir Birgir
og Halldór vom i að-
alhlutverkum hjá
Breiðabliki síðasta vet-
ur og voru langstiga-
hæstu leikmenn liðsins,
að Bandaríkjamannin-
um Michael Thoele und-
anskildum. Breiðablik
missti ennfremur Daða
Sigurþórsson yfir í ÍR og
það er þvi útlit fyrir erfið-
an vetur hjá Kópavogsfé-
laginu.
-VS
Birgir Mikaeisson
klæöist KR-
búningnum á ný
næsta vetur.
Graf varði tit-
ilinn í New York
Steffl Graf frá Þýskalandi sigraði Moniku
Seles frá Bandaríkjunum í úrslitaleiknum á
opna bandaríska meistaramótinu í tennis sem
fram fór í gærkvöldi, 7-5 og 6-4. Graf vann þar
með þetta mót annað árið í röð og í flmmta
skipti alls.
Bandaríkjamennirnir Pete Sampras og
Michael Chang komust í úrslit í karlaflokki.
Þegar DV fór í prentun í gærkvöldi var leikur
þeirra ekki hafinn, hann tafðist vegna mikillar
rigningar í New York.