Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1997, Qupperneq 7
20 írtn helgina
VEITINGASTAÐIR
flA. Hansen Vesturgötu 4, Hf., s. 565
1 1693. Opið 11.30-22.30 alla daga.
s Amigos Tryggvagötu 8, s. 551
j 1333. Op. 17.30-22.30 v.d. og sd.,
j 17.30-23.30 fd. og ld.
Argentína Barónsstíg lla, s. 551
9555. Opið 18-23.30 v.d., 18-3 um
Í helgar.
Asía Laugavegi 10, s. 562 6210. Opið
i 11.30- 22.30 v.d., 12-22.30 sd.,
11.30- 23.30 fd. ogld.
■ Askur Suðurlandsbr. 4, s. 553 8550.
S Op. 11-22 sd.-fid., 11-23.30 fd. og Id.
Austur Indía fjelagið Hverfisgötu
I 56, s. 552 1630. Opið a.d. frá kl. 18.
!; Á nœstu grösum Laugavegi 20, s.
552 8410. Opið 11.30-14 og 18-22
v.d., 18-22 sd. og lokað ld.
“■ Banthai Laugavegi 130, s. 552 2444.
j Op. 18-22 md,- fid. og 18-23 föd.-sd.
, Café Ópera Lækjargötu 2, s. 552
9499/562 4045. Opið 18-1 fd. og ld.,
11.30- 1 v.d.
Carpe Diem Rauðarárstíg 18, s. 562
j 3350. Opið 11-23 alla daga.
: Caruso Þingholtsstræti 1, s. 562
I 7335. Opið sd.-fid. 11.30-23.30. Fd.
| og ld. 12.-2.
Grænn kostur Skólavörðustíg 8b, s.
552 2028. Opið md.-ld. frá 11.30-21
j og sd. frá 16-21.
Hard Rock Café Kringlunni, s. 568
9888. Opið 11.45-23.30 md.-ld.,
;; 12-23.30 sd.
Hornið Hafnarstræti 15, s. 551
\ 3340. Opið 11-23.30 alla.daga.
Hótel Borg Pósthússtræti 11, s. 551
1440. Opið 8-23.30 alla daga.
Hótel Esja Suðurlandsbraut 2, s.
568 9509. Opið 11-22 alla daga.
Hótel Holt Bergstaðastræti 37, s.
| 552 5700. Opið 12-14.30 og 19-22.30
j v.d., 12-14.30 og 18-22 fd. og ld.
:: Hótel Loftleiðir Reykjavikurflug-
5 velli, s. 552 2322. Opið í Lóninu
1 5-23, í Blómasal 18.30-22. .
Hótel Óðinsvé v/Óðinstorg, s. 552
5 5224. Opið 12-15 og 18-23 v.d.,
I 12-15 og 18-23.30 fd. og ld.
Hótel Saga Grillið, s. 552 5033,
Súlnasalur, s. 552 0221. Skrúður, s.
| 552 9900. Grillið opið 19-22.30 a.d.,
j Súlnasalur 19-3 ld., Skrúður 12-14
og 18-22 a.d..
Humarhúsið Amtmannsstíg 1, s.
í 561 3303. Opið 10-23.30 v.d., 10-1
■ ld. og sd.
Indókína Laugavegi 19, 8. 552 2399.
Opið 11.30-22.30 alla daga, ld. frá
11.30- 23.30.
Ítalía Laugavegi 11, s. 552 4630.
Opið 11.30- 23.30 alla daga.
Jónatan Livingston Mávur
Tryggvagötu 4-6, s. 551 5520. Opið
17.30- 23 v.d., 17.30-23.30 fd. og ld.
Kínahofið Nýbýlavegi 20, s. 554
í 5022. Opið 17-21.45 vd., 17-22.45
fd., ld. og 6d.
Kína-húsið Lækjargötu 8, s. 551
í 1014. Opið 11.30-14 og 17.30-22 v.d.,
j 17.30-23 fd„ 15-23 ld., 17-22 sd.
Kínamúrinn Laugavegi 126, s. 562
2258. Opið fd„ ld„ sd. U-23,
í md.-fid. 11-22.
Kofi Tómasar frænda Laugavegi 2,
| s. 551 1855. Opið 10-01 sd.-fid. og
j 11-03 fd. og ld.
Kringlukráin Kringlunni 4, s. 568
j 0878. Opið 12-1 v.d„ 12-3 fd. og ld.
Lauga-ás Laugarásvegi 1, s. 553
■: 1620. Opið 11-22 og 11-21 um helgar.
Lækjarbrekka Bankastræti 2, s.
j 551 4430. Opið md.-mid. 11-23.30,
j fid.-sd. 11-0.30.
Madonna Rauðarárstíg 27-29, s.
} 562 1988. Opið 11.30-23.30 a.d.
: Marhaba Rauðrárstíg 37, s. 562
j 6766. Opið a.d. nema md.
17.30- 23.30.
Naustið Veaturgötu 6-8, s. 551
S 7759. Opið 12-14 og 18-01 v.d„
12-14 og 18-03 fd. og Id.
Ópera Lækjargötu 2, s. 552 9499.
j Op. 18-23.30 v.d., 18-24.30 fd. og ld.
■ Pasta Basta Klapparstíg 38, s. 561
I 3131. Opið virka daga frá 11.30 til
1.00 og um helgar til 3.00.
I Perlan Öskjuhlíð, s. 562 0200. Opið
í 18-23.30 v.d., 18-24.30 fd. og ld.
Potturinn og pannan Brautarholti
22, s. 551 1690. Opið a.d. 11.30-22.
Primavera Austurstræti, s. 588
j 8555. Op. 12-14.30,18-22 v.d„
| 18-23 fd„ 18-23.30 ld„ 18-22 sd.
Salatbarinn hjá Eika Fákafeni 9,
; s. 588 0222. Opið alla daga frá kl.
j 11.30.-20.30. nema ld. frá 11.30.-16.
I Lokað á sd.
Samurai Ingólfsstræti la, s. 551
| 7776. Opið v.d. 18-22, fd„ ld„ 18-23.
Singapore Reykjavíkurvegi 68, s.
555 4999. Opið 18-22 þd.-fid„ 18-23
fd.-sd.
Sjanghæ Laugavegi 28, s. 551 6513.
Opið 11.30-23.30 v.d„ 12-22.30 sd.
• Sjö rósir Sigtúni 38, s. 588 3550.
« Opið 7-23.30 alla daga.
' i Skólabrú Skólabrú 1, s. 562 4455.
}; Opið frá kl. 18 alla daga og í hd.
Steikhús Harðar Laugavegi 34, s.
j 551 3088. Opið 11.30-21 v.d. og sd„
I 11.30-23.30 fd. og ld.
} Tilveran Linnetsstíg 1, s. 565 5250.
Opið 11-23 alla daga.
Við Tjörnina Templarasundi 3, s.
551 8666. Opið 12-14 og 18-22.30
; md.-fd„ 18-23 ld. og sd.
Viðeyjarstofa Viðey, s. 568 1045 og
| 562 1934. Opið fid - sud„ kaffist. kl.
| 14-17. Veitingasalur kl. 18-23.30.
Vitabar Bergþórugötu 21, s. 551
j 7200. Opið 15-23.30,v.d„ 12-02 a.d.
Þrír Frakkar hjá Ulfari Baldurs-
p götu 14, s. 552 3939. Opið 11-14.30
j og 18-23.30 ld. og sd.
+
FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1997 I
UV FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1997
Leikfálag Menntaskólans við Hamrahlíð með frumsýningu:
A
- íslenskur söngleikur sem má ekki gleymast
Söngleikurinn Hárið var að verða frægur úti
í heimi fyrir meira en aldarfjóröungi en þeir
voru fáir íslendingarnir sem höfðu þá séð hann
eða heyrt. Varhluta fóru böm þessa tíma þó
ekki alveg af vinsældum Hársins og nokkrir ný-
útskrifaðir nemendur úr Leiklistarskóla Leikfé-
lags Reykjavíkur gerðu sér grein fyrir hvað fólk
vildi sjá. Þeir ákváðu þá að setja upp hressileg-
an söngleik með poppívafi. Hvaða söngleikur
það skyldi nú vera var ekki ljóst en á endanum
varð úr að í spunavinnu var samið glænýtt verk,
Poppleikurinn Óli.
Nú hefur Leikfélag Menntaskólans við
Hamrahlíð ráðist í endurflutning þessa popp-
leiks, sem naut gríðarlegra vinsælda árið 1970,
og verður nýja uppfærslan, Poppleikurinn Óli II,
frumsýnd á morgun í Tjamarbíói.
„Óðmannastíllinn" endurvakinn
Meðlimir Leikfélags MH tóku gamla Poppleik-
inn til skoðunar og fundu þar ýmislegt sem enn
á við í dag en sáu að sumt var úrelt og því var
breytinga þörf. Hópurinn vann þá í spunavinnu
senur upp úr gamla leiknum, breytti og bætti
við eftir þörfum.
Hinn góðkunni tónlistarmaður, Jón Ólafsson,
er tónlistarstjóri Poppleiksins en í sýningunni
verða flutt bæði lög úr gamla leiknum og frum-
samin lög. Öll er tónlistin í „Óðmannastíl" en
það var hljómsveitin Óðmenn sem samdi og
flutti tónlistina í gamla leiknum. Plata Óð-
manna, með lögum úr verkinu, var valin plata
ársins 1970 og nú hefur Leikfélag MH stofnað
hljómsveit sem svipar til Óðmanna.
Eiturlyf, samband bama við foreldra, neyt-
endasamfélagsáreiti, auglýsingafargan og fleira í
þeim dúr er meginihntak Poppleiksins Óla. „Það
er Ijóst að það er ýmislegt sem ungt fólk veltir
fyrir sér í dag, eins og árið 1970, þó nú sé vissu-
lega deilt á önnur atriði en þá,“ stendur í nýút-
komnum kynningarbæklingi á Poppleiknum Óla
II.
Krakkarnir í Leikfélagi MH hafa unnið hörðum höndum að nýju uppfærslunni á Poppleiknum Óla og hér má sjá mynd frá einni
æfinganna.
„Þetta var heilmikið
ævintýri og mun seint
hverfa úr minni mínu,“
segir Kristin. „Mér
finnst frábært að Leikfé-
lag MH skuli hafa ákveð-
ið að ráðast i nýja upp-
færslu á þessu verki
enda kominn tími til.
Þetta átti gríðarlegum
vinsældum að fagna
hérna um árið og sýn-
ingamar urðu miklu
fleiri en við áttum von á.
Það er líka gaman að
tveir leikarar nýju upp-
færslunnar eiga foreldra
sem tóku þátt í þeirri
gömlu. Ég er mjög
ánægö með þetta fram-
tak og ætla að sjálfsögðu
að fara í Tjarnarbíó og
sjá þetta.“
Leikstjóri Poppleiks-
ins Óla II er Kolbrún Halldórsdóttir en hún hef-
ur sett upp eftirminnilegar sýningar með fram-
haldsskólunum í Reykjavík. Má þar nefna Okla-
homa á Herranótt, Fame hjá Verslunarskólan-
um og Rocky Horror hjá Leikfélagi MH.
Það eru greinilega engir aukvisar á ferðinni
DV-mynd Pjetur
með Poppleikinn Óla II og eigi alls ólíklegt að
þetta verði hin besta skemmtan.
-ilk
Kristín Á. Ólafsdóttir
var einn ungu leikar-
anna sem sömdu og settu
upp hinn fyrsta Poppleik
Óla. Það var Litla leikfé-
lagið sem stóð að baki
sýningunni en það var
skipað nýútskrifuðum
leikurum úr Leiklistar-
skóla Leikfélags Reykja-
víkur.
Frábært að siá
verkið endurrlutt
Tímamótaviðburður
á svellinu
íslendingar hafa í gegnum tíðina
ekki átt í vandræðum með að
renna sér á svelli, hvort sem þeir
hafa haft undir iljum sér leggi af
sauðkind eða bara sokkana eina.
Þrátt fyrir aldalanga reynslu af
ýmiss konar svelli hefur þjóðin
ekki enn orðið fræg fyrir sérstaka
leikni á tækjum eins og skautum.
Landinn hefur frekar átt það til að
detta og brjóta í sér beinin þegar á
hálkublett er komið.
Nú á sér stað mikil breyting
hvað skautalist þjóðarinnar snertir
og æ fleiri eru farnir að geta hlaup-
ið um svellin af stakri list. Um
helgina verður sá tímamótavið-
burður í íslensku skautalífi að
fyrsta Reykjavlkurmótið í list-
hlaupi á skautum verður haldið á
skautasvellinu í Laugardal. Veðrið
mun að sjálfsögðu hafa nokkuð um
málið að segja en svo fremi sem
það verður ekki til leiðinda mun
ekkert koma í veg fyrir þetta mót.
Reiknað er með að um 30 kepp-
endur taki þátt í mótinu sem hald-
ið er á vegum Listhlaupsdeildar
Skautafélags Reykjavíkur. Búist er
við að margt efnilegra ungmenna
verði meðal þátttakenda.
Á þessu ári er reiknað með að
byggt verði yfir skautasvellið í
Laugardal og má því ætla að á
næstu árum aukist áhugi verulega
á listhlaupi á skautum hér á landi.
Almenningur er hvattur til að
mæta á Reykjavikurmótið og
kynna sér þessa áhugaverðu íþrótt
en ætlunin er að hefja mótið klukk-
an 9.30 árdegis á morgun.
-ilk
Jassgeggjari og
fleiri góðir gestir
Um helgina.koma til landsins
frá Finnlandi jassgeggjarinn og
söngvarinn Ami Aspelund,
leikkonan og söngkonan Annika
Hultman og pí-
anóleikarinn
Henrik
Wikström. Ami
Aspelund þarf
vart að kynna
fyrir Finnlands-
vinum. Hún er
búin að vera
viðloöandi jass-
og revíusöng í
íjölda ára og af
mörgum talin
ein sú besta í
Finnlandi.
Annika Hult-
man, sem troða
mun upp með
henni, hefur
veriö að skapa
sér nafn á sviði
söngs og leik-
listar og hefur
hlotið einróma
lof gagn-
rýnenda í Finn-
landi og annars
staðar á Norð-
urlöndum.
Listafólk
þetta hefur ætl-
að sér að vera
með tvær uppá- Aspelund og
komur um helgina í Reykjavík.
Sú fyrri verður í kvöld kl. 21.00
á efri hæð Sólons íslandusar og er
þar um að ræða tónleika sem
sannir jassunnendur ættu ekki að
láta fram hjá sér fara. Aðgangseyr-
ir er 500 krónur og verða miðar
seldir við innganginn.
Seinni uppá-
koman verður í
Norræna húsinu
á sunnudaginn en
þar verða þær
stöllur með kab-
arettdagskrá sem
þær nefna Skvall-
er. Þær leiða okk-
ur um lífið á
landsbyggðinni í
Finnlandi og inn
í reykmettað loft
kránna í
Helsinki. Tónlist-
in er fúll af galsa
og glettni og sam-
setningin þjóðleg
með jassívafi.
Miðar á kabarett-
inn verða einnig
seldir við inn-
ganginn og kosta
500 krónur.
Þetta er for-
vitnileg dagskrá
sem enginn ætti
að láta fram hjá
sér fara.
-ilk
Annika Hultman eru fullar af galsa og glettni.
Menntaskólinn í Kópavogi:
Á svið með Sauðkindinni
I Menntaskólanum í Kópavogi er
starfandi leikfélag sem heitir því þjóð-
lega nafni Sauðkindin. Meðlimir
Sauðkindarinnar hafa það sem af er
vetri verið önnum kafnir við æf-
ingar á leikriti nokkru sem
heitir Á svið! og er eftir
Rick Abbot.
I kvöld stendur til að
frumsýna þetta verk sem
er hálfgerður farsi um
lítið leikfélag sem er að
reyna að setja á svið há-
alvarlegt sakamálaverk.
„Það gengur ekki sem best
af því að höfundur verksins
er alltaf að breyta handritinu al-
veg fram aö frumsýningu. Fyrri hlut-
inn er æfing á þessu hræðilega verki
og seinni hlutinn er frumsýning þar
sem allt sem mögulega getin klikkað
klikkar," stendur í fréttatilkynningu.
Á svið! er þriðja viðfangsefni Leik-
félags Menntaskólans í Kópavogi eftir
Leikhópurinn er einkar skrautlegur og
erfitt er að setja upp leikritið.
10 ára hlé. Árið 1994 var leikritið Allt
í misgripum eftir Shakespeare sett
upp en í fýrra var sett upp leikritið
Böm mánans eftir Michael Weller.
Guðjón Ólafsson þýddi
verkið Á svið! en það er
Stefán Sturla sem er
leikstjóri. Sýnt verður
í Félagsheimili Kópa-
vogs og er áætlað að
sýningamar verði
sex talsins, þar af
þrjár um helgina, í
kvöld, annað kvöld og
á sunnudagskvöldiö.
Allar byrja sýningamar
klukkan 20 og hvetur Sauð-
kindin alla til að koma og sjá
gott og vel heppnað leikrit um annað
öllu verra.
-ilk
Súrefnisveggur í Slunkaríki
Hann heitir Haraldur Jónsson, listamaðurinn sem ætl-
ar að opna sýningu á verkum sinum í Slunkaríki á ísafirði
á morgun. Mun hann sýna þar verkið Súrefnisvegg en það
er unnið sérstaklega fyrir þennan sal með staðhætti og
nánasta umhverfi i huga.
Haraldur er fæddur í Finnlandi árið 1961. Hann lagði
stund á myndlistamám í Reykjavík og Dússeldorf á árun-
um 1984 til 1990 og hefur haldið fjölda sýninga á verkum
sínum undanfarin 10 ár.
Sýning hans í Slunkaríki verður opnuð klukkan 16.00 á
morgun og verður svo opin frá 16.00 til 18.00 fimmtudaga
til sunnudaga. Lýkur henni á kyndilmessu, þann 2. febrú-
ar.
-ilk
A vængjum
vinnunnar
- síðasta sýningarhelgi á verkum Edvards Munch
Óvænt og lítt kunn hlið á hinum
heimsþekkta listamanni, Edvard
Munch, hefur komið fram á sýning-
unni, Á vængjum vinnunnar. Sýn-
ingin hefur verið í gangi í Lista-
safni íslands frá því í byrjun nóv-
ember 1996 og hlotið fádæma góðar
viðtökur, enda hvorki um venjufeg
verk né venjulegan málara að
ræða.
Nú eru síðustu forvöð að sjá
þessa einstæðu sýningu sem er
tímamótaviðburður í norrænni
myndlist og stórviðburður í ís-
lensku listalífi. Á sýningunni em
65 verk þar sem listamaðurinn sýn-
ir sterka samkennd með verka-
mönnum og kemur róttækur
þankagangur hans fram í kröftug-
um málverkum, teikningum og
grafíkmyndum. í augum Munchs
var verkamaðurinn utangarðsmað-
ur rétt eins og hann taldi sjálfan
sig vera í myndlist sinni. „Alla tíð
sem ég hef málað hér heima (i Nor-
egi) hef ég stöðugt þurft að sýna
andstæðingum kreppta hnefana.
Þess vegna málaði ég mynd af
manni með kreppta hnefa í stóru
myndinni minni af verkafólki," er
haft eftir Munch.
Sýningunni lýkur sunnudaginn
19. janúar og verður hún ekki fram-
lengd. -ilk
fyzi
pfPjgfl |j| Júf.J ■ |v
t
A *
helgina 21
SÝNINGAR
Deiglan, Kaupvangsstræti 3,
Akureyri. Snorri Ásmundsson.
. „Lát sæng þína ganga“. 30% af
f ágóða sýningarinnar fara í fíkni-
efnaforvamir.
Gallerí Homið, Hafnar-
; stræti 15. Bandaríska listakon-
an Lulu Yee sýnir kraftaverka-
| myndir. Opið alla daga til 22.
í janúar.
Gallerí Ingólfsstræti 8. Sýn-
i ing á verkum Halldórs Ásgeirs-
j sonar. Opið fimmtud. til sunnud.
kl. 14-18 til 16. febrúar.
Gallerí Sýnirými. Þrjár sýn-
j ingar. í Galleríi Sýniboxi: Har-
| aldur Jónsson. í Galleríi Barmi:
1 Róbert Róbertsson og Ragnheið-
■ ur Ágústsdóttir. í Gallerí Hlust:
í G.R. Lúðvíksson.
Gallerf Slunkaríki, Aðal-
stræti 22, ísafirði. Haraldur
Jónsson opnar sýningu laugar-
; daginn 18. janúar kl. 16. Opið
I fimmtud. til sunnud. kl. 16-18 til
2. febrúar.
Kjarvalsstaðir. Nú standa
} yfir þrjár sýningar: yfirlitssýn-
ing á verkum eftir Hring Jó-
hannesson til 16. febrúar í vest-
j ursal, sýning á nýjum verkum
eftir Jónínu Guðnadóttur í mið-
> sal og sýning á verkum eftir Jó-
;;; hannes S. Kjarval til 11. maí í
■ austursal. Opið daglega kl. 10-18.
Listacafé, Listhúsi, Laugar-
dal. Magdalena Margrét Kjart-
ansdóttir sýnir verk sín.
Listasafn íslands. Síðasta
| sýningarhelgi á verkum Edvards
IMunch. Myndlist Eiríks Smith
1963-’68 til 2. febrúar 1997. Opið
frá 11-17 alla daga nema mánud.
Listasafn Kópavogs, Gerðar-
safn. Sögusýning Blaðamannafé-
í lags íslands og sýning á frétta-
myndum frá árinu 1996. Opið kl.
I 12-18 alla daga nema mán. til 2.
; feb.
Listasafn Sigurjóns Ólafs-
; sonar, Laugarnesi. Sýning á
| völdum verkum hans. Opið laug-
j ard. og sunnud. kl. 14 og 17.
Listhús 39, Strandgötu 39,
Hafnarfirði. Sýningin „Af
- tvennum toga“, samsýning Önnu
! Guðjónsdóttur og Erlu Sólveigar
J Óskarsdóttur. Opið virka daga
5 frá 10-18, laugard. kl. 12-18 og
| sunnud. kl. 14-18 til 26. janúar.
Listhúsið í Laugardal,
Engjateigi 17. Verk eftir Sjöfn
í Har. Opið virka daga kl. 13-18 og
: lau. kl. 11-14.
Listþjónustan, Hverfisgötu
105. Hafsteinn Austmann sýnir
: akvarellur frá ýmsum tímum til
f 2. febrúar. Opið alla daga nema
: mánud. kl. 12-18, laugard. og
;; sunnud. kl. 14-18.
Menntamálaráðuneytið,
S Sölvhólsgötu. Daði Guðbjöms-
S son sýnir olíumálverk.
Mokka, Skólavörðustíg 3a.
j Ljósmyndarinn Spessi hefur sett
upp myndaröð sína „Hetjur“.
| Sýningin stendur til 6. febrúar.
Norræna húsið. Myndlistar-
j mennirnir Gerhard Roland Zell-
é er og Þór Ludwig Stiefel sýna
| málverk. Opið daglega frá kl.
j 12-18 til 26. janúar.
Sýning á veggspjöldum eftir
| skólabörn í tengslum við nor-
rænu lestrarkeppnina Mími í
j anddyri hússins til 29. janúar.
Nýlistasafliið, Vatnsstíg 3 B.
j Sýning Svövu Bjömsdóttur er
opin daglega kl. 14-18 til 26. jan-
l úar.
Sjónarhóll, Hverfisgötu 12.
; Sýning Bjama Sigurbjömsson-
| ar. Opið fimmtud.-sunnud. kl.
í‘ 14-18 til 27. janúar.
Sparisjóður Reykjavíkur og
1 nágrennis, Álfabakka 14. Sýn-
Iing á verkum Vignis Jóhanns-
sonar til 8. apríl.
Stöðlakot, Bókhlöðustíg 6,
ReyKjavík. Olíumálverk Sigurð-
ar Hauks Lúðvíkssonar. Opið
alla daga nema mánud. kl. 14-18
til 28. janúar.
Undir Pari, Smiðjustíg 3. Til
2 25. jan. stendur yfir sýning
Frakks sem ber yfirskriftina
| Undur og hljóðmerki. Opið
I fimmtudaga til laugardaga kl.
j 20-23.