Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1997, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1997
Með buxurnar á
myndbönd
25
Allt frá því að Airplane! sló í gegn
hefur hver myndin rekið aðra þar
sem grín er gert að einhverri ákveð-
inni tegund mynda eða jafnvel ein-
stökum myndum. Við höfum fengið
að sjá Top Secret, Naked Gun,
National Lampoons Loaded Wea-
pon, Silence of the Hams, Hot Shots,
Don’t Be a Menace to... og þar fram
eftir götunum. Mætti halda að
skortur væri orðinn á nýjum teg-
undum mynda til að hæðast að, en
ailavega ein var eftir - njósnara-
myndir, og þá sérstaklega
myndimar um
James Bond. í
raun er furðu-
legt að þær
hafi ekki
verið tekn-
ar fyrir
fyrr þar
sem þær
virðast eig-
inlega liggja
mjög vel við
höggi sem afar
klisjukenndar for-
múlumyndir, en nú hefur
loks verið gerð mynd sem er ætlað
það hlutverk að draga njósnara
hennar hátignar sxmdur og saman í
háði og spotti, en það er Spy Hard,
sem 23. janúar kemur út á mynd-
bandi.
Leslie Nielsen VS.
Andie Griffith
Það er enginn annar en Leslie
Nielsen sem leikur aðalhlutverkið í
Spy Hard, njósnarann WD- 40, sem
réttu nafhi heitir Dick Steele. Hann
var áður besti njósnarinn í leyni-
þjónustunni, en er sestur í helgan
stein. Hann lætur þó tilleiðast að
snúa aftur til starfa þegar yfirmað-
ur leyniþjónustunnar færir honum
boð um að gamall erkióvinur hans,
handalausi mikilmennskubrjálæð-
ingurinn Rancor hershöfðingi
(Andy Griffith úr Matlock), sem all-
ir höfðu haldiö dauðan, sé kominn
aftur á kreik og stefni að heimsyfir-
byrjun - kom fram í
46 útsending-
um það
árið.
Meðal þeirra vinsælu sjónvarps-
þátta sem hann hefur komið fram í
eru The Fugitive, Kojak, Evening
Shade, Who’s the Boss og The
Golden Girls. 1954 lék hann í sinni
fyrstu kvikmynd, The Vagabond
King, en meðal annarra mynda sem
hann hefur leikið í eru Ransom!,
The Opposite Sex, The Sheepman,
Tammy and the Bachelor, Prom
Night, Creepshow, Wrong Is Right,
Nuts, Repossessed og Surf Ninjas.
Leslie Nielsen hefur mikinn áhuga
á golfi og hefur gert tvö mynd-
bönd um golfíþróttina,
Leslie Nielsen’s Bad Golf
Made Easier og Bad Golf
My Way, ásamt því að
skrifa um íþróttina bókina
Leslie Nielsen’s Stupid
Little Golf Book.
-PJ
ráðum með djöfullegum aðferðum.
Dick Steele til aðstoðar er njósnari
3.14, sem er undurfogur og dularfúll
þokkadís. Þau þurfa að lifa af
hraðakstur, dauðagildrur, mann-
ránstilraunir, sprengingar og fleira
skemmtilegt til að komast að felu-
stað Rancor og yfirbuga hann.
Leikstjóri Spy Hard er Rick
Friedberg, en saga myndarinnar
hefst með syni hans, Jason Fried-
berg og herbergisfélaga hans úr há-
skóla, Aaron Seltzer. Þeir skrifúöu
saman kvikmyndahandrit
að háðsádeilu á
njósnaramyndir
í frístundum
sinum,
föður
Jasons
leist vel á
handritið.
Hann
sýndi
Leslie Niel-
sen handritið
og kallaði síðan
til sín félaga sinn,
Dick Chudnow (sem var
einn af Kentucky Fried genginu
ásamt Jerry og David Zucker og »
Jim Abrahams), til að hjálpa
til við að fínpússa handritiö
sem að lokum var sam-
þykkt af Hollywood Pict- j
ures.
fýrstu á valdsmannslegum persón-
um, m.a. sem skipherra í Forbidden
Planet og The Poseidon Adventure,
en með hlutverki sínu sem
læknirinn í Airplane! sneri
hann við blaðinu. Frægast-
ur er hann fýrir hlutverk
sitt sem Frank Drebin í
Naked Gun myndunum
þremur, en nýlega lék
hann fyrir Mel Brooks í
Dracula: Dead and Lov-
ing It. Sjónvarpsferill
hans byrjaði árið
1950 þegar hann
kom fram í
Studio
One með
Charlton
Heston
og hann
var af-
kasta-
mikill
strax
frá
Sárfræðingur í
klunnahlut-
verkum
Leslie Nielsen hef-
ur slegið í gegn sem
grinleikari, en það er
í raun fremur nýleg
þróun á ferli hans, en
á honum hefur hann
m.a. komið rúmlega
60 sinnum fram í
kvikmyndum og
meira en þúsund sinn-
um í sjónvarpi. Hann
byggði feril sinn í
UPPÁHALDS MYNDBANDIÐ MITT
Rannveig Rist
„Ég horfi mjög sjaldan á
videó og man ekki eftir að
hafa séð neina mynd-
bandsspólu nýlega.
Þegar ég var ham
hafði ég hara gam
an af Soimd of
Music og svo-
leiðis myndum
en ég er ekki
viss um að ég
hefði gaman af
henni ef ég sæi
hana í dag. Það
er svo óskap-
lega langt
síðan ég
horfði á
hana. Ann-
ars á
ég mér
ekkert
sér-
stakt
uppá-
hald,
enga
mynd
sem
mér
finnst
gaman að horfa
reglulega á eins og sumir
eiga.
Ég fer einstaka
sinnum í bíó en
horfi lítið á mynd-
hönd, eiginlega
mjög sjaldan. Ég
hef samt ekkert
komist í kvik-
myndahús nýlega
þar sem ég hef haft
mikið að gera og hef
verið mikið á ferðinni,
m.a. mikið erlendis.
Ég er aftur á móti mjög
mikið fyrir að fara í leikhús
og hef gert mun meira af því
en að fara í bíó eða leigja spólur.
Þar er af nægu að taka en ég
var mjög hrifin þegar
ég sá Orms-
tungu í
Skemmti-
húsinu. Það
eitt
besta
verk sem
ég hef
séð
lengi.
Hollow Reed
W - -
Matural Enemy
Hollow
Reed er
dramatísk
mynd með
úrvalsleikur-
um sem feng-
ið hefur góða
dóma erlend-
is. Fjallar
hún um hjón-
in Hannah og
Martyn en
óvænt
sprengja verður í hjónabandinu þegar
Martin tilkynnir að hann sé hommi.
Hann yfirgefur eiginkonu sína og hef-
ur sambúð með elskhuga sínum sem
heitir Tom. Þetta kemur ekki aðeins
illa við Hannah heldur kemur það
harkalega niður á níu ára syni þeirra,
sérstaklega þegar forræðisdeilan
hefst. Lagalega á Martyn ekki mögu-
leika til að ná syninum frá móðurinni
en hann hefur samt baráttu fyrir rétt-
indum sínum sem faðir. Hannah hef-
ur sambúð með öðrum manni sem er
inn við beinið hrotti svo að hún á
ekki sjö dagana sæla.
í hlutverkmn hjónanna eru Martin
Donovan og Jolely Richardson. Elsk-
hugann Tom leikur Ian Hart og Jason
Flemming leikur manninn sem
Hannah fer að búa með. Leiksfjóri er
Angela Pope en hún hefur meðal ann-
ars leikstýrt Captives þar sem Tim
Roth og Julia Ormond léku aðalhlut-
verkin.
Myndform gefur út Hollow Reed
og er hún bönnuð börnum innan
12 ára. Útgáfudagur er 21. janúar.
í Natural
Enemy leikur
Donald
Sutherland
verðbréfasal-
ann Ted
Robards. Að
undanfórnu
hafa óveðurs-
ský hrannast
upp í fyrir-
tækjarekstri
hans og á
hann fullt í
fangi með að útvega peninga til að
geta staðið við launagreiðslur. Auk
þess er skatturinn á eftir honum og
seinni eiginkona hans hefur fjárfest
fram úr hófi í glæsilegu húsi þeirra
hjóna. Þá hefúr verið eytt vænum
fúlgum í fijósemisaðgerðir því það er
eiginkonunnar heitasta þrá að eignast
bam. Eina úrræði Teds til að koma
fjármálunum í lag er að ná að ljúka
samningi við öflugt fyrirtæki. Til þess
þarf hann á aðstoð ungs verðbréfa-
sala, Jeremys, að halda. Hinn ungi
verðbréfasali lætur undan þrýsting
Teds en það sem Ted veit ekki er að
Jeremy hefur allt annað í huga.
Auk Donalds Sutherlands leika í
myndinni William McNamara og
Lesley Ann Warren. Leikstjóri er
Douglas Jackson.
Bergvík gefur út Natural Enemy
og er hún bönnuð börnum innan
16 ára. Útgáfudagur er 21. janúar.
The Truth about
Cats and Dogs
The Truth ^ f*»V»\«
about Cats
and Dogs er
kvikmynd
sem naut
talsverðra
vinsælda á
síðasta ári.
Segir þar á
gamansaman
hátt frá ástar-
þrihymingi Q|
og miklum — —
misskilningi.
Abby er vinsæll spjallþáttasfjórnandi
í útvarpi og hefúr sérhæft sig í að gefa
gæludýraeigendum góð ráð varðandi
umhirðu dýra. Dag einn hringir í
hana ljósmyndari að nafni Brian sem
á í miklum vandræðum með bolabít á
hjólaskautum sem skilinn var eftir
hjá honum. Abby leysir úr vanda
hans og Brian býður henni út að
borða. Hún þiggur boðið en í fátinu
segir hún Brian að hún sé hávaxin,
ljóshærð og glæsileg og á þar við ná-
grannakonu sína, Noelle. Eins og
vænta má er Abby búin að koma sér í
vandræði sem ekki. verður auðveld-
lega leyst úr.
í hlutverkum þremenninganna eru
Janeane Garofalo, Uma Thurman og
Ben Chaplin. Leikstjóri er Michael
Lehman.
Skífan gefur The Truth about Cats
and Dogs út og er hún leyfð öllum
aldurshópum. Útgáfudagur er 22.
janúar.