Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1997, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1997, Page 3
MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1997 Iþróttir 23 Vaiva var Hauk- unum erfið - varði 25 skot í bikarúrslitaleiknum Vaiva Drilingaite, markvörður Vals, sló svo sannarlega í gegn í bikarúrslitaleik kvenna í hand- bolta á laugardaginn. Vaiva varði 25 skot, þar af 15 í seinni hálfleiknum, og það var frammistaða hennar sem sá til þess að leikurinn var ekki sú ein- stefha sem flestir bjuggust við. Vaiva Drilingaite er 35 ára göm- ul, fyrrum landsliðsmarkvörður Litháen. Valsmenn fengu hana til liðs við sig fyrir tímabilið þegar liðið stóð uppi markmannslaust og hún hefur heldur betur staðið fyr- ir sínu. Mjög heppnar að ná í Vaivu „Hvað segirðu, 25? Vá,” sagði Gerður Beta Jóhannsdóttir, fyrir- liði Vals, við DV þegar hún heyrði hversu mörg skot Vaiva hefði var- ið. „Markmaðurinn okkar flutti út á land í haust og við vorum mjög heppnar að ná í Vaivu. Hún er leikreynd og 60 prósent af liðinu ef hún spilar vel, eins og í dag. Hún stóð sig frábærlega,” sagði Gerður Vaiva Drilingaite frá Litháen, hinn snjalli markvöröur Vals. DV-mynd BG Beta um Vaivu sem tvimælalaust var besti leikmaður bikarúrslita- leiksins. Nánar er fjallað um hann á bls. 24. -VS Bikarúrslitin: HM-gólfið breytir miklu „HM-gólfið” fræga var sett á Laugardalshöllina fyrir bikarúr- slitaleikina í handbolta á laugar- dag. Þar með voru bara hand- boltalínur á vellinum, ekki allt hitt línukraðakið og þetta setti allt annan blæ á úrslitaleikina. Það hlýtur að vera krafa héðan í frá að HM-gólfíð sé notað á öllum meiri háttar leikjum í Höllinni, landsleikjum sem úrslitaleikj- um. Ung en leikjahæst Gerður Beta Jóhannsdóttir, fyrirliði Vals, lék sinn 150. leik fyrir félagið í bikarúrslitunum. Hún var leikjahæsti Valsmaður- inn fyrir hönd félagsins í úrslita- leiknum þó hún sé aðeins tvítug að aldri. Mikill aldursmunur Það munaði 21 ári á elsta og yngsta leikmanni Vals í kvenna- leiknum. Ágústa Siguröardóttir, sem hóf leikinn sem skytta hægra megin, er 37 ára en síðan leysti hin 16 ára gamla Eva Þórð- ardóttir hana af hólmi. Auður ekki með Auður Hermannsdóttir lands- liðskona gat ekki leikið með Haukum vegna meiðsla. Hjá Val vantaði Eivoru Pálu Blöndal fyr- irliða sem er meidd. -VS Bikarúrslitin: Palli var búinn Þegar Haukar fögnuðu bikar- sigrinum að loknum karlaleikn- um á laugardag sat liðsstjórinn, Páll Ólafsson, einn inni í bún- ingsklefa Hauka. „Ég hef ekki orku í þetta lengur, bakið er al- veg búið,” stundi þessi litríki fyrrum handboltakappi sem var á fleygiferð á bekknum hjá Haukum allan tímann. KA-menn óhressir KA-menn voru mjög óhressir með frammistöðu dómaranna undir lokin og það þurfti að halda aftur af nokkrum þeirra þegar leikurinn var flautaður af. Ámi Stefánsson, liðsstjóri KA, hafði sínar skoðanir á málinu að vanda, reifst hressilega við eftir- litsdómarann en skipti síðan um ham, þakkaði kurteislega fyrir og gekk í burtu. Skot í leikskrá Norðanmenn voru reyndar famir að hnýta í dómaraparið áður en leikurinn hófst. í leik- skrá KA var lýst yfir furðu á því að bestu dómarar landsins, Stef- án og Rögnvaldur, skyldu ekki vera látnir dæma úrslitaleikinn. Bærinn var rauður Haukar fögnuðu bikarsigmn- um að vonum hressilega og „máluðu” miðbæ Hafnarfjarðar nánast rauðan á laugardags- kvöldið. Þar voru víst ólíkleg- ustu menn mættir í rauða Haukabúningnum. -VS Njarðvík sækir sig - vann mikilvægan sigur á ÍR, 94-89 DV, Suðurnesjum: „Það er nýtt fýrir okkur að vinna tvo leiki í röð og mér finnst að leik- ur okkar sé að skána. Þetta var mjög þýðingarmikill sigur og það þarf góðan leik til að leggja ÍR. Nú erum við afla vega öruggir í úrslita- keppnina og takmarkið er að toppa þegar þangað er komið,“ sagði Frið- rik Ragnarsson, fyrirliði Njarð- víkur, eftir sigur á ÍR i gær, 94-89. Njarðvíkingar spfluðu einn sinn besta leik lengi og liðsheildin er að ná saman. ÍR náði forystunni um tíma í síðari hálfleik en þá fóru Njarðvíkingar að pressa þá framar og snem leiknum sér í hag á ný. Torrey var bestur Njarðvíkinga, Páll, Friðrik og Jóhannes voru sterkir. Atli var einná bestur hjá ÍR og skoraði 5 þriggja stiga körfur. „Við erum búnir að vera í skýjun- um frá síðasta leik og duttum bara niður og náðum ekki að spila okkar besta leik. Það vantaði neista hjá okkur og nú verðum við að halda áfram og vinna næstu tvo leiki,“ sagði ÍR-ingurinn Eiríkur Önundar- son. -ÆMK w Diqital útvarp meö RDS A tAOIOOATASrsriM RDS og 30 minnum w 450w (2 x lOOw RMS) magnari 'tr Surround hljó&kerfi w Þriggja diska geislaspilari meö 30 minnum w Handahófsspilun á geislaspilara fyrir 3 diska w Tónjafhari meö popp, rokk, jass, bgm, klassík og flat w Tímastilling og vekjari w Tvöfalt DOLBY segulband meö síspilun w Innstunga fyrir heyrnartól oghljóönema w Fullkomin fjarstýring 200w RIVIS AÐUR KR. S9.900 □□I □OLBY SURROUIMD PRO-LOGIC Þrír aukahátalorar fylgja 108w RIVIS RDS tADIODATAtYSTÍM n. ÁÐURKR w Digital utvarp meö RDS og 30 minnum w 130w+65w+65w (2x27+27+27w RMS) HEIMABÍÓ magnari w Tónjafnari meö popp, rokk, jass, bgm, klassík og flat w Fullkomiö Dolby ProLogic HEIMABÍÓ hljóökerf! w Þriggja diska geislaspilari með 30 minnum w Handahófsspilun á geislaspilara fyrir 3 diska w Tvöfalt DOLBY segulband meö síspilun w Innstunga fyrir heyrnartól og hljó&nema w Tímastilling og vekjari w Fullkomin fjarstýring 64.900 VERÐLAUNUÐ AF KADIODATASYSTEM □□I DOLBY SURROUIMD PRO-LOGIC Þrír aukahátalarar fylgja 300w RIVIS AÐUR KR. 74.900 Digital útvarp meö RDS og 30 minnum 270w+83w+83w (2xl20+30+30w RMS) HEIMABÍÓ magnari Fullkomiö Dolby ProLogic HEIMABÍÓ hljó&kerfi Þriggja diska geislaspilari meö 30 minnum Handahófsspilun ó geislaspilara fyrir 3 diska Tónjafnari meö popp, rokk, jass, bgm, klassík og flat Tvöfalt DOLBY segulband meö síspilun Innstunga fyrir heyrnartól og hljó&nema Tímastilling og vekjari Fullkomin fjarstýring ,, .,, _ _ Heyrnartol að verðmceti kr. 3.990 fylgja sem kaupbœtir í þessu tilboði! Sjónvarpsmiðstöðin SIÐUMULA 2 SIMI 568 9090 HUGVERKASMIÐjA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.