Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1997, Page 4
24
MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1997
MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1997
25 b
Iþróttir
Haukar (9)161
Valur (6)13\
0-1, 3-1, 4-3, 5-4, 7-4, 8-5, (9-6), 9-8,
11-8, 11-11, 12-12, 13-13, 16-13.
Mörk Hauka: Hulda Bjarnadóttir
4, Judit Ezstergal 4/2, Ragnheiður
Guðmundsdóttir 3, Harpa Melsted 2,
Hanna G. Stefánsdóttir 2, Thelma
Ámadóttir 1.
Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir
11.
Mörk Vals: Sigurlaug Rúnarsdótt-
ir 7/4, Gerður Beta Jóhannsdóttir 2,
Sonja Jónsdóttir 2, Hafrún Kristjáns-
dóttir 1, Lilja Valdimarsdóttir 1.
Varin skot: Vaiva Drilingaite
Úrslitaleikurinn í kvennaflokki:
Haukar þurftu
að taka á öllu
Hvar voru Vals-
menn á laugardag?
Á meðal um það bil eitt þúsund áhorfenda
á bikarúrslitaleik kvenna í Laugardalshöll-
inni á laugardaginn, milli Hauka og Vals,
voru ekki sjáanlegir nema í kringum 30
stuðningsmennVals, eins af elstu og rótgrón-
ustu íþróttafélögum landsins.
Hvar voru Valsmenn á laugardaginn? Er
virkilega ekki meiri áhugi innan félagsins
fyrir að standa við bakið á sínu liði þegar
það kemst í bikarúrslit? Það er svo sem ekki
hægt að lá þeim að hafa ekki haft mikla trú
á að Valur stæði uppi sem bikarmeistari en
það afsakar engan veginn þetta áhuga- og
virðingarleysi sem félagsmenn i Val sýndu
stúlkunum sínum á laugardaginn. Þær stóðu
fyrir sínu og gátu gengið stoltar af velli. Flest-
ir aðrir Valsmenn mega skammast sín. -VS
Ragnheiöur Guðmundsdóttir fyririiöi og Harpa Melsted í fararbroddi Haukastúlknanna eftir bikarsigurinn
á Val. Haukar uröu þar með bikarmeistarar kvenna í fyrsta skipti t sögunni. DV-mynd BG
25/1.
Brottvlsanir: Haukar 4 mín., Val-
ur 10 mln.
Dómarar: Gísli H. Jóhannsson og
Hafsteinn Ingibergsson, ágætir.
Áhorfendur: Um 1.200.
Maður leiksins: Vaiva Driling-
aite, Val.
Gerður B. Jóhannsdóttír:
Getum gengið
sáttarfrá
þessum leik
„Þetta var jafn og spennandi
leikur og það var skemmtilegt að
spila þetta en okkur vantaði
herslumuninn. Fyrst við náðum
að standa svona vel í þeim var
auðvitað svekkjandi að tapa
þessu í lokin en það bjóst enginn
við neinu af okkur og við getum
gengið sáttar frá þessum leik,“
sagði Gerður Beta Jóhannsdótt-
ir, fyrirliði Vals, við DV eftir
bikarúrslitaleikinn.
„Haukastelpurnar þurftu að
hafa mikið fyrir þessu, umijöll-
unin fyrir leikinn þar sem eng-
inn spáði okkur neinu hafði ör-
ugglega sitt að segja og ég hugsa
að innst inni hafi þær trúað því
að þær gætu tekið þetta með
vinstri.
Við vorum staðráðnar í því að
láta ekki valta yfir okkur og
sýndum og sönnuðum að það
býr mikið meira í liðinu en við
höfum verið að sýna. Vaiva stóð
sig frábærlega í markinu og
vörnin var líka frábær.
Stemningin í Höllinni var frá-
bær og þessir fáu Valsmenn sem
mættu á leikinn stóðu sig eins
og hetjur," sagði Gerður Beta.
-VS
- unnu Val í lokin, 16-13, og eru bikarmeistarar í fyrsta sinn
Það voru flestir á því að það væri
nánast formsatriði að spila bikarúr-
slitaleik kvenna í handbolta á laug-
ardaginn. Haukum var spáð yfir-
burðasigri, enda er staða liðanna í
1. deildinni ólík og Haukar unnu 14
marka sigur i leik liðanna á dögun-
um.
En baráttuglaðar Valsstúlkumar
með hina litháísku Vaivu Dril-
ingaite í banastuði í markinu sáu til
þess að úrslitaleikurinn varö óvænt
hörkuspennandi og það var ekki
fyrr en á síðustu tveimur mínútun-
um sem Haukar tryggðu sér sinn
fyrsta bikarmeistaratitil í kvenna-
flokki með því að skora þrjú síðustu
mörkin og sigra, 16-13.
Munurinn á liðunum, handbolta-
lega séð, er mikill. Að öllu jöfnu
væri 10-12 marka sigur Hauka ekki
óeðlilegur. Valsstúlkurnar höfðu
hins vegar augljóslega fulla trú á
því að þær gætu spjarað sig gegn
hinum öflugu mótherjum sínum og
gerðu það af mikilli skynsemi. þær
spiluðu sterkan varnarleik, gáfu
aldrei tommu eftir og Vaiva gaf
þeim síðan meðbyrinn sem þurfti.
Hún veæði hvorki fleiri né færri en
25 skot í leiknum. í þrettán mínútur
í fyrri hálfleik náðu Haukar ekki að
skora mark og í seinni hálfleiknum
skoruðu Haukar tvö mörk á fyrstu
19 mínútunum, bæði á meðan Vals-
stúlkumar vom manni færri.
Sóknarlega séð var Valsliðið ekki
burðugt en seiglaðist af mætti.
Gerður Beta Jóhannsdóttir byrjaði
vel en var síðan tekin úr umferð að
mestu það sem eftir var. Sigurlaug
Rúnarsdóttir nýtti sér það og var
Haukavörninni stundum erfið.
Mótlætið fór í taugar Hauka-
stúlknanna sem náðu aldrei að spila
yfirvegaðan handbolta. Þær léku
allar undir getu en náðu upp þeirri
baráttu og stemningu undir lokin
sem til þurfti til að klára leikinn.
Haukar em bikarmeistarar
kvenna í fyrsta sinn og bera þann
titil með sæmd. En miðað við allar
forsendur gengu Valsstúlkumar
líka sem sigurvegarar af velli á
laugardaginn.
-VS
Alls ekki sáttur við okkar leik
- sýndum þó góðan karakter í lokin, sagði Magnús Teitsson, þjálfari Haukastúlkna
„Þetta var dæmigerður bikarleik-
ur og ég var alls ekki sáttur við okk-
ar leik. Stelpurnar vora ekki að
gera það sem var lagt upp fyrir leik-
inn,“ sagði Magnús Teitsson, þjálf-
ari kvennaliðs Hauka, við DV eftir
úrslitaleikinn.
„Þær klikkuðu i nálægt 30 skot-
um í leiknum og sóknarnýtingin í
fyrri hálfleik var aðeins 33 prósent.
Sóknarlega voram við að spila mjög
illa, langt fyrir neðan okkar getu, og
mörg af þessum skotum vora bara
sendingar. Svo var búið að tala um
að skjóta á annan stað á markið en
það var ekki gert. En svona era úr-
slitaleikir, það er aldrei hægt að
bóka eitt eða neitt. Valsstúlkumar
lögðu sig allar í leikinn og höfðu
greinilega mjög gaman af þessu.
Handboltalega séð er mikill munur
á þessum liðum en í svona leik er
allt hægt. Haukastúlkumar sýndu
mjög góðan karakter í lokin með
því að gefast ekki upp þrátt fyrir
mótlætið og klára dæmið,“ sagði
Magnús Teitsson.
Heildin náöi saman í lokin
„Við reiknuðum með því að þetta
yrði erfitt. Við unnum þær stórt í
síðasta leik en þá var Vaiva ekki
viö og við hjuggumst því við að
þurfa að hafa fyrir þessu,“ sagði
Ragnheiður Guðmundsdóttir, fyrir-
liði Hauka, við DV.
„Það vora allir að reyna að telja
okkur trú um aö við myndum vinna
þetta létt en það er ekkert gefið í
þessu. Þetta var fyrsti bikarúrslita-
leikurinn okkar og við vorum þess
vegna dálítið taugaóstyrkar I byrj-
un. Við voram kannski líka aðeins
stressaðar þegar leið á leikinn en
heildin náði vel saman í lokin og
það skipti öllu máli. Við höfum ver-
ið að spila illa í deildinni að undan-
fömu og vonandi erum við með
þessu að komast á rétta braut.
Það er enginn smáhópur sem
stendur í kringum þetta hjá okkur
og það var frábær stemmning í Höll-
inni,“ sagði Ragnheiður Guðmunds-
dóttir.
-VS
Siguröur Gunnarsson:
Bikarmeist-
ari í sjötta
skipti
„Þetta var mjög vel spilaður
leikur af beggja hálfu. Við vor-
um reyndar í vandræðum með
Ziza og Duranona en héldum
haus og spiluðum skynsamlega
90 prósent af leiknum," sagði
Sigurður Gunnarsson, þjálfari
Hauka, sem varð bikarmeistari í
sjötta sinn í jafnmörgum tilraun-
um á laugardag. Fjóram sinnum
sem leikmaður Víkings, einu
sinni sem þjálfari ÍBV og nú með
Haukum.
„Rúnar spilaði rosalega vel i
dag, Halldór kom inn og breytti
„strúktúrnum" í sókninni hjá
okkur og gegnumsneitt voru all-
ir að spila vel.
Þetta var bikarleikur og svo
kemur hitt seinna. Þaö er langur
vegur í úrslitakeppnina, við
munum njóta þessa leiks fram i
næstu viku og svo föram við að
einbeita okkur að þeim verkefn-
um sem framundan era,“ sagði
Sigurður. -VS
Alfreö Gíslason:
Áttum allan
séns á að
vinna
„Þetta fór endanlega þegar við
fóram illa með þrjú dauðafæri í
röð í stöðunni 21-22,“ sagði Al-
freð Gislason, þjálfari KA, við
DV.
„Ég er líka óhress með að við
skyldum ekki fá víti þarna undir
lokin, það var svo augljóst að
það var brotið á Sergei. í þeirri
stöðu áttum við ennþá mögu-
leika á að komast aftur inn í
leikinn.
En við áttum allan séns á að
vinna þennan leik. Við fóram
illa með aragrúa af dauðafærum
og þegar litið er á leikinn í heild
var einfaldlega meira í lagi hjá
Haukunum en okkur. Við hrein-
lega gáfum þeim fjögur til fimm
mörk undir lok fyrri hálfleiks og
það var okkur dýrt,“ sagði Al-
freð Gíslason. -VS
Rúnar Sigtryggsson:
í Þórs-
peysunni
innan undir
„Það hefði verið enn ljúfara ef
þetta hefði verið með Þór en það
er ekkert skemmtilegra en að
vinna KA. Ég var þó alla vega I
Þórspeysunni innan undir
Haukapeysunni í þessum leik,"
sagði Rúnai- Sigtryggsson, fyrr-
um Þórsari, sem skoraði hvað
eftir annað fyrir Hauka á
lokakaflanum gegn gamla erkió-
vininum að norðan.
„Við vorum allt of tauga-
strekktir í byrjun, sóknin var
liikandi og við skutum úr léleg-
um færam. Svo tókum við vöm-
ina og Bjarni kom inn og þá
small sóknin í kjölfarið. Þegar
við vorum komnir yfir höfðum
við trú á okkur og kláruðum
dæmið með taktískum leik,“
sagði Rúnar viö DV. -VS
I
Halldór Ingólfsson kom, sá og sigraði á laugardaginn. Halldór hefur veriö meiddur að undanförnu og óvíst var að hann gæti spilaö. Hann kom inn á í síðari hálfleik
og skoraði þrjú mikivæg mörk og hér leiöir hann Hauka í fagnaöarlátunum. Á litlu myndinni lyfta Bjarni Frostason og Gústaf Bjarnason bikarnum. DV-mynd BG
Haukar bikarmeistarar karla í fyrsta skipti í 17 ár:
Nýtt stórveldi
- markvarslan gerði útslagið þegar Haukar lögðu KA, 26-24
Haukar eru orðnir stórveldi í ís-
lenskum handbolta. Það sýndu þeir og
sönnuðu á laugardaginn með tveimur
glæsilegum bikarsigrum. Karlaliðið
stóð undir væntingum sem til þess
vora gerðar, heldur fleiri virtust hall-
ast að því að Haukar myndu leggja KA
í úrslitaleiknum og það kom á daginn.
Þeir voru sterkari á endasprettinum
og unnu sanngjaman sigur, 26-24.
Framan af leik virtist KA, bikar-
meistari tveggja síðustu ára og í sín-
um fjórða úrslitaleik í röð, vera með
undirtökin. Norðanmenn komu
greinilega afslappaðri og einbeittari
til leiks, léku góða vöm, sóknin gekk
ágætlega með Sergei Ziza í miklum
ham og markvarslan var þokkaleg, til
að byrja með.
Sá kafli sem hins vegar réð úrslit-
um var síðustu fjórar mínútur fyrri
hálfleiks og upphafsmínútur þess síð-
ari. Þá breyttu Haukar stöðunni úr
11-12 í 15-12 og sennilega var mark
Arons Kristjánssonar á lokasekúndu
fyrri hálfleiks, þegar hann kom Hauk-
um í 14r;12, eitt það mikilvægasta í
leiknum.'KA minnkaði muninn hvað
eftir annað í eitt mark í seinni hálf-
leiknum en herslumuninn vantaði.
Bjami Frostason varði ítrekað glæsi-
lega í Haukamarkinu, oft maður gegn
manni, og sá til þess að Haukar héldu
undirtökunum. Þau héngu þó oft á blá-
þræði. KA-menn vora óhressir að fá
ekki vítakast, tveimur mörkum undir,
þegar rúm mínúta var eftir en þar fór
þeirra síðasta von.
Eitt atriði öðram fremur réð úrslit-
um í leiknum þegar liðin eru borin
saman - markvarslan. Enn og aftur
var hún banabiti KA. Á meðan mark-
verðir norðanmanna vörðu aðeins
„skylduskotin" tók Bjarni þau sem
máli skiptu - dauðafærin. Það er blóð-
ugt fyrir KA að tapa ítrekað á því
sama á meðan varnar- og sóknarleik-
ur liðsins er með því besta sem gerist
í íslenskum handbolta.
Hjá KA var Ziza yfirburðamaður og
Róbert Duranona komst þokkalega í
gang þegar á leið en var þó mistækur.
Sverrir Bjömsson var í fararbroddi í
sterkum vamarleik og Leó Örn Þor-
leifsson skilaði sínu á línunni, Hinir
annars öflugu homamenn KA voru
hins vegar ekki með langtimum sam-
an og það hlýtur að vera annað
áhyggjuefni því þetta er ekki í fyrsta
skipti sem lítið kemur út úr þeim.
Þáttur Bjarna í sigri Hauka hefur
þegar verið rakinn en margt fleira
kom til. Liðsheildin var jöfn og sterk,
Rúnar Sigtryggsson var ómetanlegur í
seinni hálfleik þegar hann skoraði 5
dýrmæt mörk og þá kom Halldór Ing-
ólfsson vel inn í leikinn. Gústaf
Bjamason var drjúgur á línunni að
vanda, Aron hefur áræðið sem með
þarf á örlagastundum og Petr
Baumrak er alltaf burðarás í liðinu.
Málið er að allir leikmenn Hauka eru
virkir og ógnandi, hver um sig hefur
burði til að klára leik eins og þennan.
Haukar bera nafnbótina bikarmeistari
karla 1997 með sæmd. -VS
Það var gífurleg stemmning á meðal hátt ítvö þúsund stuðn-
ingsmanna Hauka í Höllinni á laugardaginn. Tveir úrslitaieikir
og tveir sigrar - frábær uppskera Hafnfirðinga. DV-mynd BG
Haukar (14) 26
KA (12) 24
0-2, 2-2, 2-4, 4-6, 5-7, 7-7, 7-9, 8-10,
9-11,11-11,11-12, (14-12), 15-12,16-13,
16-15, 18-16, 19-18, 21-18, 21-20, 22-21,
24-21, 25-22, 25-23, 26-23, 26-24.
Mörk Hauka: Rúnar Sigtryggsson
7, Gústaf Bjamason 5, Petr Baumruk
3, Aron Kristjánsson 3, Þorkell Magn-
ússon 3, Halldór Ingólfsson 3/1, Jón
Freyr Egilsson 2.
Varin skot: Bjami Frostason 19/1.
Mörk KA: Róbert Duranona 9/4,
Ser'gei Ziza 7/1, Leó Örn Þorleifsson
4, Jóhann G. Jóhannsson 2, Heiðmar
Felixson 1, Björgvin Björgvinsson 1.
Varin skot: Guðmundur Amar
Jónsson 11, Hermann Karlsson 1.
Brottvisanir: KA 6 mín., Haukar 6
mín.
Dómarar: Gunnar Viðarsson og
Sigurgeir Sveinsson, mistækir.
Áhorfendur: Um 2.800.
Menn leiksins: Bjami Frostason
og Rúnar Sigtryggsson, Haukum.
Lúövík Geirsson, formaður Hauka, og Ingvar Viktorsson,
bæjarstjóri Hafnarfjarðar og FH-ingur, voru kátir þegar bik-
ararnir voru í höfn. DV-mynd BG
Gústaf Bjarnason:
Stærsta
stundin
„Það var búist við hörkuleik
jafnra liða og sú varð raunin.
Eftir brösuga byrjun hristum við *,
af okkur skrekkinn, komumst
inn í leikinn og náðum tökum á
þeim. Það sem gerði útslagið var
að við erum með meiri breidd,
það voru allir að gera það gott en
hjá þeim voru Ziza og Duranona
að halda þessu uppi,“ sagði
Gústaf Bjamason, fyrirliði
Hauka.
„Þetta er stærsta stundin á
mínum ferli og ábyggilega
stærsti dagurinn í sögu Hauka.
Maður var smápolli með hor í
nös síöast þegar félagið vann
bikarinn!" sagði Gústaf. -VS
Bjarni Frostason:
Hungraði
í að spila
„Ég var ekki búinn að æfa í
eina og hálfa viku en ég var
óþreyttur og mig hungraði í að
spila. Maður fékk ágætan frið og
náði síðan upp góðri stemningu
og komst í takt við leikinn
snemma
Þegar byrjar að ganga vel og
maður nær einu eða tveimur
skotum fara þeir að verða
hræddir og maður nær að lesa
þá betur og dettur í þennan svo-
kallaða ham. Þetta var bara
meiri háttar gaman," sagði
Bjami Frostason, markvörður
Hauka, sem sendi Þorbimi Jens-
syni ákveðin skilaboð um að
hann væri tilbúinn í landsliðið
með frammistöðu sinni gegn KA.
-VS
Erlingur Kristjánsson:
Klaufaskapur
og mark-
varsla Bjarna
„Það var margt sem klikkaði
hjá okkur í þessum leik. Við átt-
um tækifæri til að vera 4-5
mörkum yfir í hálfleik en fyrir
klaufaskap og markvörslu
Bjarna vora þeir yfir í staðinn.
Við misstum taktinn í lok fyrri
hálfleiks og svo var markvarslan
hjá þeim miklu betri," sagði Er-
lingur Kristjánsson, fyrirliði KA,
við DV eftir úrslitaleikinn.
„Framan af spiluðum viö fina
vöm og fengum fullt af færum en
nýttum þau ekki nógu vel. í
seinni hálfleiknum fórum við
illa með mörg góð færi og undir
lokin áttum við að fá viti og hefð-
um getað minnkað muninn í eitt
mark og verið í góðum séns en í
staðinn skoruðu Haukar og klár-
uðu leikinn.“
Mjög óhressir með
dómaraparið
„Við KA-menn erum mjög
óhressir með að þetta dómarapar
skyldi vera sett á leikinn. Þetta
er búið að vera eitt slakasta
parið í vetur, þeir hafa dæmt
nokkra leiki hjá okkur í vetur og
verið afleitir.
Það er sárt að sjá á eftir bik-
amum en ég vona að við jöfnum
okkur á þessu og getum einbeitt
okkur að íslandsmótinu," sagði
Erlingur. -VS
r
t