Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1997, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1997, Qupperneq 8
28 MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1997 16 ára reynsla í innleggjagerö - leiðandi á sínu sviði Mynd af fæti Duranona í raunstærð Robert Julian Duranona landsliðsmaður I handknattleik Margra ára verkur horfinn „Ég hefþjáðstafmiklum verkjum íhægra fæti vegna gamalla meiðsla í táberginu - og hefþurft að nota spelku á vinstra ökkla. íhlaupagreiningu hjá Stoðtækni sást mjög greinilega hvað var að hrjá mig - mislangir fætur og skekkja út á jarkann. Eftir að ég fékk sérsmíðuð íþróttainnlegg frá þeim eru þessir leiðindaverkir horfnir." ^síðasta ári vartekinn í notkun fullkomnasti fótagreiningarbúnaður sem völ er á frá NOVEL. Búnaðurinn er algjör bylting í að greina göngulag fólks, álagsdreifingu og stöðu fóta og auðveldar alla greiningu fyrir sérsmíðaða skó, innlegg og spelkur. Hentugt fyrir greiningu á liðagigtarsjúklingum, sykursjúkum, íbróttamönnum auk annarra sem hafa átt við fótavandamál að stríða. Tímapantanir og nánari upplýsingar í síma 551 4711. Greining kr. 2.500. Algengt verð á innleggjum fyrir fullorðna kr. 4.000 tilkr. 5000. Algengt verð á barnainnleggjum kr. 2.400. Ath. Greining er ekki innifalin í verði innleggja. STOÐTÆKNI Gísli Ferdinandsson efif Lækjargötu 4 - Reykjavik • S: 551 4711 Hafnarstræti 88 • Akureyri • S. 462 4123 íþróttir Michael Jordan, sem hér á í höggi við Latrell Sprewell hjá Golden State, skoraöi 70 stig í tveimur leikjum Chicago um helgina. Símamynd Reuter NBA-körfuboltinn um helgina: Tveir sigrar hjá Chicago Meistarar Chicago Bulls héldu sigurgöngu sinni áfram í NBA þeg- ar þeir unnu stórsigur á Golden State á heimavelli sínum aðfaranótt sunnudagsins. Þetta var 25. sigur Chicago á heimavelli í vetur en lið- ið hefur aðeins einu sinni mátt þola tap. Chicago hefur haft sérlega gott tak á Golden State sem hefur ekki tekist að leggja Chicago að velli síð- an 1991. Tony Smith var hetja Charlotte þegar hann skoraði sigurkörfima gegn Atlanta 10 sekúndum fyrir leikslok. Þetta var aðeins annað tap Atlanta á heimavelli í síðustu 24 leikjum. Charlotte virtist vera á leið með að tryggja sér öruggan sigur þegar liðið náði 16 stiga forskoti í þriðja leikhluta en Atlanta kom til baka og tókst að komast yfir þegar skammt var til leiksloka. Toronto vann sinn fyrsta sigur á Dallas frá upphafi. Það var góður leikkafli í síðasta fjórðung sem gerði gæfumuninn en þá skoraði lið- ið 14 stig í röð. Mookie Blaylock tryggði Atlanta sigur á Houston aðfaranótt laugar- dagsins þegar hann skoraði sigur- körfuna á síðustu sekúndum leiks- ins. Þetta var 8. tapleikur Houston í röð á útivelli. Portland stöðvaði sigurgöngu Mi- ami en liðið hafði unnið 11 leiki í röð. Portland hefur gott tak á Miami en af síðustu 20 leikjum liðanna hef- ur Portland unnið 18. Washington tapaði 8. leik sínum í síðustu 10 leikjum þegar liðið lá á heimavelli fyrir meistunnn Chicago Bulls. Michael Jordan og Scottie Pippen fóru fyrir liði Chicago eins og oft áður. Jordan skoraði 36 stig og Pippen var með 28 stig og tók 10 fráköst. Grant Hill var nálægt því að ná þrennunni góðu í sjötta sinn á tíma- bilinu þegar Detroit tók á móti New Jersey og vann sinn 9. leik í röð. Hill skoraði 19 stig, átti 13 stoðsend- ingar og tók 9 fráköst. -GH NBA-DEILDIN Aðfaranótt laugardags: Atlanta-Houston..........76-74 Blaylock 17, Laettner 16 - Barkley 22, Willis 13. Charlotte-LA Clippers .. . 114-96 Rice 29, Mason 22 - Wright 16, Sealy 14. Detroit-New Jersey ......96-64 Hill 19, Hunter 16 - Jackson 23, Gatling 21. Miami-Portland ........110-114 Lenard 29, Mouming 17 - Wallace 25, Robinson 18. Orlando-Denver...........99-66 Hardaway 22, Seikaly 17 - LþEllis 24, Stith 23. Minnesota-Golden State . . 101-62 Gugliotta 18, Gamett 16 - Sprewell 17, Smith 17. Washington-Chicago.......99-103 Howard 25, Strickland 23 - Jordan 36, Pippen 28. SA Spurs-Milwaukee........98-93 Herrera 24, Negro 18, Wilkins 18 - Baker 27, Robinson 21. Phoenix-Cleveland.........94-88 Person 22, Ceballos 20 - Sura 23. Mills 17. Seattle-New York..........84-64 Cummings 17, Payton 17 - Houston 11, Childs 10. LA Lakers-Vancouver .... 99-91 Campbell 23, Jones 23 - Rahim 30, Anthony 19. Aöfaranótt sunnudags: Atlanta-Charlotte.........92-93 Laettner 24, Smith 16 - Mason 25, Rice 23. Philadelphia-Portland .... 97-80 Coleman 28, Stackhouse 21 - Ander- son 20, Robinson 16. Chicago-Golden State .... 120-86 Jordan 34, Pippen 22, Kukuoc 15 - Smith 19, Sprewell 19 Dallas-Toronto............92-99 Finley 20, Ðanilovic 20 - Christie 22, Stoudamire 15. Alonzo Mourning, leikmaðurinn snjalli hjá Miami, er kominn á sjúkralistann. Hann er meiddur á fæti og veröur í gipsi næstu 6 vikum- ar. Þetta er bagalegt fyrir Miami en liöið er í harðri baráttu við New York um að sigra í Atlantshafsriðlinum. Mouming meiddist í leiknum gegn Portland og þá var ekki að sökum að spyrja, Miami tapaði eftir að hafa unnið 11 leiki í röð. New York hefur aldrei skorað jafh- fá stig i NBA-deildinni og það gerði gegn Seattle aðfaranótt laugardags- ins. New York skoraði aðeins 64 stig í leiknum og til marks um góðan vamarleik hjá Seattle skoraði New York aðeins eina körfu utan af veili í fjórða leikhluta og ekki stig nema af vítalínunni í 10 mínútur í þriðja leik- hluta. Bill Clinton, forseti Bandarikj- anna, var mæthir í höllina í Was- hington á fóstudagskvöldið til að fylgjast með sínum mönnum í Chicago Bulls. „Við reyndum að gera góða hluti fyr- ir Clinton í leiknum þar sem vissum að hann er mikill stuðningsmaður okkar. Ég held að við höfúm glatt hann með ágætum tilþrifum í leikn- um,“ sagði Scottie Pippen eftir leik- inn. Hakeem Olajuwon, miðherji Houston, og Patrick Ewing, miðherji New York, fundu ekki fjölina með lið- úm sinum aðfaranótt laugardagins. Þessir snjöllu leikmenn náðu ekki að komast yfir tuginn hvað stigaskor varðar og það er sjaldgæft þegar þess- ir kappar eiga i hlut. Olajuwon skor- aði 9 stig gegn Atlanta og Ewing að- eins 7 gegn Seattle og báðir urðu þeir að lúta i lægra haldi með liðum sín- um.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.