Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1997, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 7. APRÍL 1997
23
I>V
íþróttir
Stjaman (11)23
Haukar (8) 22
1-0,1-1, 4-1, 4-2, 8-5,10-7, (11-8), 11-9,
14-11, 17-12, 21-16, 21-19, 23-20, 23-22.
Mörk Stjömuiuiar: Ragnheiður
Stephensen 8/3, Ásta Sölvadóttir 6,
Inga Fríða Tryggvadóttir 4, Rut Stein-
sen 3, Herdís Sigurbergsdóttir 2.
Varin skot: Sóley Halldórsdóttir
15/1, Fanney Rúnarsdóttir 2/1.
Mörk Hauka: Andrea Atladóttir 4,
Thelma Árnadðttir 4, Auður Her-
mannsdóttir 4/1, Judit Esztergal 3/2,
Hulda Bjamadóttir 2, Hanna G. Stef-
ánsdóttir 2.
Varin skot: Vigdís Sigurðardðttir
17/1.
Brottvísanir: Stjaman 4 minútur,
Haukar 2 minútur.
Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson
og Ólafur Öm Haraldsson. Dæmdu
lengst af vel en misstu nokkuð takt-
inn siðustu 10 mínúturnar.
Áhorfendur: Um 400.
Maður leiksins: Ásta Sölvadótt-
ir, Stjömunni.
Ólafur Lárusson:
„Einvígið
galopið"
Það vakti mikla athygli þegar
Ólafur Lárusson, þjálfari Stjöm-
unnar, sagði eftir fyrsta leikinn,
þegar Stjaman tapaði á heima-
velli að stríðið væri tapað og að
Haukar myndu vinna öraggan
sigur.
„Þetta var aidrei búið. Ég
sagði þetta í léttu gríni og til að
vekja Garðbæinga upp um það
að þegar Stjömunni gengur vel
vilja Etllir eigna sér Stjörnuna en
þegar á hjátar og við þurfum á
stuðningi að halda þá sjást þeir
ekki í nógu miklu magni á leikj-
unum.
Eiga skiiiö að fá fullt af
fólki úr Garðabænum
Stelpumar eiga skilið að fá
fullt af fólki úr Garðabænum á
leikinn i Haöiarfirði á mánu-
dagskvöld (í kvöld), til að styðja
við bakið á þeim, öðravísi höf-
um við þetta ekki. Við eigum
alla möguleika í þetta. Einvígið
er galopið. Við vorum loksins að
spila í dag eins og við voram
búin að spila síðustu leiki í und-
anúrslitunum og í 8-liða úrslit-
unum. Ég sé því ekkert til fyrir-
stöðu að við siglum á næsta leik
með því hugarfari að vinna,“
sagði Ólafur B. Lárasson, þjálf-
ari Stjömunnar, við DV eftir
leikinn.
Hulda Bjamadóttir:
„Lékum
langt
undir getu“
„Ég hélt að við ætluðum ekki
að fagna þessu of snemma en þaö
lítur út fyrir að við höfúm samt
gert það. Við vorum að spila
langt undir getu og það er ein-
beitingarleysi ríkjandi hjá okk-
ur. Við voram að gera allt of
mörg mistök 1 sókninni og það
gerði útslagið en ekki það að
Stjaman væri að leika svona vel.
Nú þurfum við að rífa okkur upp
og mæta brjálaðar í næsta leik,
bæta hugarfarið og við ætlum að
taka titilinn á heimavelli," sagði
Hulda Bjamadóttir, leikmaður
Hauka, við DV eftir leikinn.
Mætast í
Strandgötu
í kvöld
Fjórði úrslitaleikur Hauka og
Stjörnunnar fer fram í íþrótta-
húsinu við Strandgötu i Hafnar-
firði í kvöld og hefst klukkan 20.
-GH
Úrslitarimman um íslandsmeistaratitilinn í 1. deild kvenna:
Stjörnustúlkur enn
meö í baráttunni
Deildarmeistarar Stjörnunnar
halda enn lífi í einvígi sínu við ís-
landsmeistara Hauka um íslands-
meistaratitilinn í handknattleik
kvenna eftir að hafa unnið sigur í
þriðja leik liðanna í Garðabæ á
laugcU'daginn, 23-22. Með sigri
hefðu Haukakonur tryggt sér titil-
inn annað árið i röð en stöllur
þeirra úr Stjömunni vora ekki á
því og tókst að knýja fram sann-
gjarnan sigur sem var öraggari en
lokatölumar gefa til kynna.
Staðan í einvígi liðanna er því
2-1, Haukum í vil. Fjórði leikurinn
er á dagskrá í Hafnarfirði í kvöld.
Sigri Haukamir er titillinn þeirra
en nái Garðabæjarliðið að sigra fer
fram hreinn úrslitaleikur í Garða-
bænum á miðvikudagskvöldið.
Stjarnan hafði undirtökin í
leiknum allan tímann, Haukamir
áttu góðan endasprett og náðu að
minnka muninn í eitt mark á síð-
ustu sekúndum leiksins en sigur
Stjömunnar var aldrei í hættu.
Meiri sigurvilji hjá
Stjörnunni
Lykillinn að sigri Stjömunnar
var sterkur varnarleikur, góð
markvarsla Sóleyjar Halldórsdótt-
ur í markinu og meiri sigurvilji en
hjá Haukunum. Stjörnukonur
mættu ákveðnar til leiks og náðu
góðum tökum á leiknum með því
að komast í 4-1 eftir 10 mínútna
leik. Þessi góða byrjun Stjömunn-
ar virtist slá Haukana út af laginu.
Stjaman hélt þægilegri forystu, 3-5
mörkum yfir mestallan leikinn, en
Haukastúlkur náðu upp smá-
spennu þegar þær náðu tvívegis að
minnka muninn í 2 mörk. í stöð-
unni 22-20, þegar ein og hálf mín-
úta var eftir, renndi Ásta Sölva-
dóttir sér inn úr hominu og inn-
siglaði sigur Stjömunnar en
Haukakonur áttu síðasta orðið og
skoraðu tvö síðustu mörkin.
Eins og fyrr segir var Stjörnu-
vömin lengst af góð með Herdísi
Sigurbergsdóttur og Margréti
Theodórsdóttur sem lykilmenn og
fyrir aftan vömina var Sóley í finu
formi. Herdís var með yfirfrakka á
sér í sókninni en Stjarnan náði að
leysa það vel og sérstaklega voru
hornamennimir Ásta Sölvadóttir
og Inga Fríða Tryggvadóttir seigir
að brjóta sér leið fram hjá vörn
Hauka, Ásta í fyrri hálfleik og Inga
Fríða í þeim síðari en fjögur mörk
hennar á skömmum tíma voru lið-
inu mjög dýrmæt. Ragnheiður
Stephensen átti einnig ágætan leik
þó svo að hún hefði ekki leikið
eins vel og í öðram leiknum þegar
hún skoraði 14 mörk.
Meö sömu baráttu og sigurvilj-
ann að vopni eiga Stjömustúlkur
möguleika á að snúa einvíginu sér
í vil og þær eru minnugar úr-
slitarimmunnar í fyrra þegar þær
glutruðu niður tiflinum eftir að
hafa unnið fyrstu tvo leikina.
Lykilmenn Hauka náöu sér
ekki á strik.
Haukakonur voru ekki líkar
sjálfum sér því eitthvert ein-
beitingarleysi og slen einkenndi
leik liðsins. Þær gerðu sig seka
um mörg mistök í sókninni og
vora ekki að leika sem lið. Judit
Esztergal. sem hefur verið lykil-
maður liðsins, náði sér ekki á strik
og það hafði slæm áhrif á aðra
leikmenn í liðinu. Andrea Atla-
dóttir og Hulda Bjamadóttir, sem
að jafnaði era mjög atkæðamiklar,
skoraðu til að mynda ekki mark í
fyrri hálfleik. Vigdís markvörður
var besti leikmaður Hauka og
Thelma Árnadóttir stóð fyrir sínu.
Þrátt fyrir ósigurinn eru
Haukakonur með góða stöðu. Mæti
þær með rétt hugarfar í leikinn í
kvöld og tilbúnar til að herjast eins
og ljón er ekki ósennilegt að þær
taki á móti titlinum í kvöld, vel
studdar af stuðningsmönnum sín-
um.
-GH
Ásta Sölvadóttir átti góðan leik fyrir Stjörnuna gegn Haukunum í Ásgaröi á laugardaginn. Hér er hún að sleppa í gegnum vörn Hauka og skora eitt af sex
mörkum sínum í leiknum. Hulda Bjarnadóttir, línumaöur Hauka, fylgist með og er nokkuð skelkuð á svipinn. DV-mynd Hilmar Þór
Larvik féll út með minnsta mun:
„Ætluðum okkur Evr-
ópumeistaratitilinn"
- sagði Kristján Halldórsson þjálfari
Larvik frá NoregC lið Kristjáns
Halldórssonar, missti naumlega af
því að leika til úrslita um Evrópu-
bikar kvenna í handknattleik.
Larvik tapaði fyrir Rostov í Rúss-
landi, 28-25, en hafði unnið heima-
leikinn, 33-30. Rostov kemst í úr-
slit á fleiri mörkum á útivelli og
mætir þar Leipzig frá Þýskalandi
sem vann Sombor frá Júgóslavíu,
33-21, um helgina.
„Þetta eru mikil vonbrigði því
við ætluðum okkur Evrópumeist-
aratitilinn. Nú verðum viö að
gleyma þessu og einbeita okkur að
úrslitakeppninni um norska
meistaratitilinn,“ sagði Kristján
við Aftenposten í gær.
Þetta er annað árið i röð sem
Larvik verður fyrir slíkum von-
brigðum. í fyrra lék liðið til úr-
slita í EHF-bikamum en tapaði
fyrir Debrecen frá Ungverjalandi
á færri mörkum á útivelli.
Ótrúlegt tap Evrópumeist-
aranna
Ótrúleg úrslit urðu í Evrópu-
keppni meistaraliða kvenna þegar
hinir sexföldu Evrópumeistarar
Hypo Niederösterreich töpuðu fyr-
ir Mar Valencia áSpáni, 34-22.
Hypo hafði unnið fymi leikinn,
26-15, og virtist á leið í sinn 11. úr-
slitaleik í Evrópukeppni.
-VS
TÖLVUPAPPÍR - TÖLVUPRENTUN
eða venjulega prentun fyrir skrifstofuna í
einum eða fleiri litum.
Þetta höfum við framleitt í áratugi.
Hafðu samband. - Fáðu upplýsingar.
11 ■ IFORMPRENT
HVERFISGÖTU 78 - Tí 552 5960 - 552 5566