Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1997, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1997, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1997 Fréttir____________________ 21 árs norsk stúlka leitar móöur sinnar á íslandi: Langar að faðma mamma „Mig langar svo mikið að hitta þig, mamma, og faðma þig að mér. Mig langar að sjá hvemig þú lítur út og vita hvernig þér líður. Þetta er mjög erfitt því ég geri mér grein fyr- ir því að þetta getur komið sér Ula fyrir þig. Ég vona þó að þú takir þessu vel mamma, ég trúi ekki öðru en þú hafir oft hugsað til mín eins og ég hef hugsað til þín ,“ segir Tor- il Grindahl, 21 árs stúlka búsett í Noregi. Þetta eru skilaboð hennar til móður sinnar, sem hún leitar að á íslandi. Toril telur að hún sé fædd á ís- landi og að móðir hennar sé íslensk. Hún telur að norskir foreldrar henn- ar séu í raun fósturforeldrar hennar og þau hafi ættleitt sig ólöglega. „Fyrir tveimur mánuðum, þegar fósturamma mín lést, skildi hún eft- ir bréf til mín þar sem hún sagði frá því að ég hefði verið ættleidd ólög- lega frá Islandi þegar ég var tveggja ára gömul. Ég hef undir höndum myndir frá íslandi sem ég fékk frá fósturömmu minni, þ.á.m. eina mynd af ungri konu, sem hún telur að sé móðir mín. Aftan á myndina er ritað íslenskt kvenmannsnafn,“ segir Toril. Tvö fæöingarvottorö Hún telur að móðir sín hafi verið mjög ung þegar hún eignaðist sig, miðað við myndina að dæma. Toril segist hafa grunað að eitthvað und- arlegt væri við uppruna sinn þegar hún fann fæð- ingarvottorð í pappírum for- eldra sinna þegar hún var 14 ára. Þar kemur fram að hún sé fædd 10. des- ember 1973. Á ööru fæðing- arvottorði, sem hún hefur undir hönd- um, segir hins vegar að hún sé fædd 18. júní 1976, og við það hefur aldur hennar ávallt verið miðaður í Noregi. Hún segir að fósturfor- eldrar sínir hafi síðan reynt að leyna því að hún sé ættleidd og þau séu nú mjög ósátt við að hún leiti móður sinnar á íslandi. Hún telur að fósturfaðir sinn hafi búið til falskt fæðingarvottorð þegar hún Toril Grindahl, með hiö dularfulla fæðingarvottorö þar sem kemur fram aö hún sé fædd 1973. Á ööru fæðingarvottoröi kemur fram aö hún sé fædd 1976 og hefur ávallt veriö miðaö viö þaö enda telst hún 21 árs í Noregi. Hún leitar móöur sinnar á íslandi. Myndin er tekin á heimili Toril í Osló í gærkvöld. DV-mynd Scan-Foto var lítil þar sem standi að hún sé norsk. Toril bjó í bænum Sarpborg og ólst þar upp en hún býr nú i Osló. Hún stefnir á að koma hingað til íslands í næstu viku til að leita að móður sinni. „Ég er orðin mjög spennt að koma til íslands og heimsækja land- ið. En það er svo margt skrýtið í þessu dæmi að ég er eiginlega alveg ringluð. Ég hef aö sjálfsögðu alltaf talið mig norska en undanfarna tvo mánuði hef ég hugsað mikið um ís- land og að ég eigi íslenska móður. Ég veit ekki einu sinni hvort ég var skirð íslensku nafni. Ég hef tvö fæð- ingarvottorð og á tvo afmælisdaga. Samkvæmt öðrum er ég 21 árs en samkvæmt hinum 24 ára,“ segir Toril. Refsivert athæfi „Dómsmálaráðuneytið aðhefst ekkert í þessu máli nema konan leiti eftir aðstoð hjá okkur. Þá mun- um við að sjálfsögðu reyna að hjálpa henni eins og mögulegt er. Við höfum hins vegar ekkert heyrt frá henni. Ef það er rétt að fóstur- faðir hennar hafi falsað fæðingar- vottorðið þá er það auðvitað refsi- vert athæfi,“ segir Drífa Pálsdóttir, hjá dómsmálaráðuneytinu, aðspurð um málið. -RR Riöa ekki ósvipuð hrörnunarsjúkdómum í mönnum: Stuttar fréttir Niðurskurður nauðsyn - segir Siguröur Siguröarson, dýralæknir á Keldum „Þetta er sjúkdómaflokkur sem ýmsar dýrategundir og menn veikjast af. Þessir smitsjúkdómar með smit- andi próteini koma í ungar skepnur og menn. Þetta eru hrömunarbreyt- ingar því þama er um að ræða dauða á ftumum án þess að um bólgubreyt- ingar sé að ræða,“ segir Sigurður Sig- urðarson, dýralæknir á Rannsóknar- stofa Háskóla íslands í meinafræði að Keldum, mn riðuveiki í sauðfé en riða er nú komin upp í sauðfé á Borgarfirði eystri. Sneiðmyndir af heila úr sýktri sauðkind sýna blöðrur svipaðar þeim og sjást í manni með alz- heimer. Erfitt er að greina sjúkdóm- inn en hann er ekki bráðsmitandi. Einkennin em oft óljós, stundum óstjómlegur kláði, æmar leggja af, skjálfti getur komið í haus og hreyf- ingar orðið óstöðugar. Sjúkdómur- inn getur dregið kindina til dauöa á örskömmum tíma. Aðspurður hvort niðurskurðurinn sé umdeildur segir Sigurður að hann sé aö minnsta kosti nauðsynlegur. Eftir að tekið var upp á þvi að hafa engar ær i húsum í tvö ár hafi líkur á enduruppkomu farið niður í um 5%. Fyrir niðurskurð hafi riða kom- ið upp á öðram hverjum bæ. -sv Skattafrumvarpið á þingi í dag: Hrein svik verði það ekki afgreitt - segir forseti ASÍ „Ef skattalækkunarfrumvarpið verður ekki afgreitt á yfirstandandi þingi er það ljóst að stjórnvöld eru að svíkja klár fyrirheit sem við feng- um við gerð kjarasamninga," segir Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ. Grétar segir að enginn héraðs- brestur verði þótt afgreiöslan drag- ist eitthvað, jafnvel mánuð fram yfir 1. maí eins og lofað var, en það séu vanefhdir engu að síður. Friðrik Sophusson ljármálaráð- herra mælir fyrir skattalækkunar- frumvarpinu á Alþingi í dag, en Ólaf- ur G. Einarsson, forseti Alþingis, taldi í samtali við DV í gær að tvísýnt væri hvort tækist að afgreiða frum- varpið sem lög fyrir þinglok. -SÁ j rödd FOLKSINS 904 1600 Á almenningur að taka þátt í biskupskjörí? Þaö var erfiöur dagur fram undan í morgun hjá Friöriki Sophussyni fjármálaráö- herra, en í dag mælir hann fyrir hinu mjög umdeilda lífeyristryggingafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem hann hér heidur á. Þá mælir hann einnig í dag fyrir skatta- lækkanafrumvarpinu sem rikisstjórnin hét, í tengslum viö kjarasamninga, aö af- greiöa fyrir 1. maí. Bæöi frumvörpin eru i uppnámi. DV-mynd Hilmar Þór Töpuð útlán Viðskiptabankamir og stærstu sparisjóöimir áætla að hafa tapað 2,6 milljörðum í útlánum á sl. ári. Landsbankinn tapaði helmingn- um af þeirri uppphæð. RÚV sagði frá. Fornritin á Netið íslendingasögumar og ýmis fom handrit verða sett á Intemet- ið á næstu þremur áram. Banda- rískur sjóður styrkir verkefnið. RÚV segir frá. Engar hvalveiðar Ekkert hefur breyst á alþjóða- vettvangi þannig að hvalveiðar geti hafist á næstu vikum að því er Halldór Ásgrímsson sagði í skýrslu utanríkisráðherra á Al- þingi í gær. Dýr snjómokstur Snjómokstur á götum Reykja- vikur verður um 145 milljónir eft- ir veturinn í vetur, 30-35 milljón- um hærri en í fyrravetur. Götur era illa slitnar af völdum nagla- dekkja eftir veturinn að sögn Dags-Tímans. Ætla að kæra P&S Hjá íslenska útvarpsfélaginu er verið að undirbúa kæra á hendur Pósti og síma til Samkeppnis- stofnunar fyrir óeðlilega sam- keppni með því aö dreifa sjón- varpsefni á breiðbandi P&S. Morgunblaðið segir frá. Flotgallar tískuvara Morgunblaðið segir frá því að íslenskir flotvinnubúningar og frystihúsagallar séu að verða tískufatnaður erlendis eftir að Björk Guðmundsdóttir og erlent fjölmiðla- og tískufólk hefur tekið að ganga í slíkum fatnaði. -SÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.