Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1997, Síða 6
6
FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1997
Neytendur
^ Sjálfsali Orkunnar tekur of oft af debetkortinu:
Alag á Reiknistofu bank-
anna um að kenna
- segir Gunnar Skaptason, framkvæmdastjóri Orkunnar
krónum í bensín. Báðar færslurnar
fara inn til Reiknistofu sem úttekt
til að byrja með. Síðan er sjálfvirk
leiðrétting á færslunum og alveg
himdrað prósent öruggt að aðeins er
tekið út af reikningnum sú upphæð
sem keypt var fyrir. Það hefur kom-
ið fyrir að það hafi verið tekið of
mikið út og það virðist gerast þegar
símalínur til Reiknistofu lokast eða
falla niður,“ segir Gunnar Skapta-
son, framkvæmdastjóri Orkunnar.
Villuleit einu sinni á sólarhring
„Reiknistofa bankanna hefur um-
sjón með öllum færslunum og
stemmir þær reglulega. Einu sinni á
sólarhring sendum við uppgjör til
Reiknistofu og þá eru úttektir frá
okkur keyrðar saman með úttektum
bankanna. Ef listinn stemmir ekki
er gerður villulisti og leitað að
skekkjunni. Stundum er það mikið
að gera hjá Reiknistofu að það tek-
ur einhverjar klukkustundir að
leiðrétta færslurnar og jafnvel daga.
Við höfum enga heimild til að leið-
rétta beint inn á reikninga og verð-
ur að gera það í gegnum viðskipta-
bankana. í sumum tilfellum er tekið
út af reikningnum meira en við-
skiptavinurinn á inni og það eru
verstu dæmin af því að viðkomandi
fer yfir á reikningum. Við erum
ekki þeir einu sem þurfum að kljást
við þetta vandamál en engin dæmi
eru þekkt um að viðskiptavinurinn
hafi þurft að borga meira en hann
tók út fyrir, allt er leiðrétt. Við gæt-
um einfaldlega ekki staðið í við-
skiptum upp á annað,“ segir Gunn-
ar.
Pappírslaus kassi
Varðandi það að oft vanti pappír
í sjálfsalann og því ekki nokkur leið
að fá kvittun segir Gunnar að það
vanti aldrei pappír.
„Settur er pappír í sjálfsalana á
hverjum morgni og það er aldrei
búið á rúllu að kvöldi. Hins vegar
eru íslendingar oft svo óþolinmóðir
að þeir rífa kvittunina út úr sjálfsal-
anum með þeim afleiðingum að hún
rifnar og pappírinn festist í kassan-
um. Við vitum af þessu og höfum
leitað leiða til að laga þetta en þetta
vandamál er óþekkt erlendis hjá
samstarfsaðilum þar sem menn eru
þolinmóðari."
-jáhj
Viðskiptavinur Orkunnar kom að
máli við Neytendasíðu DV þar sem
hann taldi að bensínsalan Orkan
hefði ófullkomið tölvukerfi sem
tæki sömu færsluna oftar en einu
sinni út af bankareikningnum.
Á þriðjudaginn keypti þessi mað-
ur bensín hjá Orkunni og borgaði
með debetkorti. Hann bað sjálfsal-
ann um heimild fyrir 3000 krónum
en bensínið kostaöi 2.467 krónur.
Daginn eftir hringdi maðurinn í
bankalinuna og þar taldi þulurinn
upp fjórar færslur, hverja upp á
2.467 kr. í stað 2.467 kr. höfðu tæpar
10 þúsund kr. verið teknar út af
reikningnum. Maðurinn hringdi í
bankann sinn og fékk þau svör að
þetta væri algengt hjá Orkunni og
bankamaðurinn tók að sér að leið-
rétta mistökin. Sami viðskiptavinur
lenti í nákvæmlega eins dæmi fyrir
nokkrum mánuðum og þurfti þá
líka að fá þau leiðrétt hjá viðskipta-
banka sínum.
Sjálfvirk leiörétting
„Þetta gerist þannig að viðskipta-
vinurinn biður um heimild fyrir
3.000 króna úttekt og eyðir 2.600
Ofreikna&ar færslur eru alltaf lei&réttar samdægurs, segir Gunnar Skaptason, framkvæmdastjóri Orkunnar.
McDonald’s skyndibitakeðjan hef-
ur sett í gang nýja herferð í Banda-
ríkjunum segir í frétt í Viðskipta-
blaðinu nýlega. Verðlækkun er á
nokkrum vinsælustu morgunverð-
arréttunum og hafa þeir verið lækk-
aðir um helming, sumir hverjir.
„Þessi verðlækkun kemur okkur
lítið við hér á íslandi,“ segir Kjart-
an Öm Kjartansson, eigandi Lystar
hf. sem á og rekur McDonald’s hér-
lendis.
„Þetta er alþjóðleg keðja og aðilar
að henni eiga fátt annað sameigin-
legt en nafnið og vöruheitið. Starfs-
umhverfið er gjörólíkt um heiminn.
Við lækkuðum verðið verulega árið
1993 og hefur það haldist óbreytt
síðan þrátt fyrir hækkanir á aðföng-
um og ýmsum vörum. Við kaupum
íslenskt nautakjöt og greiðum laun
eftir íslenskum kjarasamningum.
Það er engar líkur á að við förum að
lækka verð hér.“
Með herferðinni í Bandarikjun-
um vill McDonald’s styrkja stöðu
sína á skyndibitamarkaðnum en á
síðasta ári lækkaði markaðshlut-
deild McDonald’s í sölu á hamborg-
urum úr 42,3% f 42,1%.
• Stillanlegur sog
• Sfillanlegf Sogrör
• Fylgihlufageymsla
• Tveir auka sogsfúfar
• Inndraganleg snúra
• Rykpoki 4,0 lítrar
• 750wöff
( Nýff sparar 30% orku
skilar sama sogkrafti
og 1400w mótor)
B R Æ Ð U R N I
Lí
SSON
Lágmúla 8 • Sími 533 2800
%
orkusparnaður!
Verðlækkun hjá McDonald’s í Bandaríkjunum:
Óbreytt verð hér-
lendis síðan 1993
iturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi.
'iröi. Veatflrölr:. Geirseyrarbúðin, Patreksfiröi. Rafverk.Bolungarvik.Straumur.ísafiröi.
Noröurland: Kf.Steingrímsfjaröar, Hólmavík. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. SkagfiröingabúÖ.Sauöárkróki. KEA, byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri.
KEA.Dalvík. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Urö, Raufarhöfn. Austurland: Sveinn Guömundsson, Egilsstööum. Verslunin Vík, Neskaupsstað.
Kf. Fáskrúösfirölnga, FáskrúÖ6firði.KASK, Höfn Suðurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Jón Þorbergsson, Kirkjubæjar-
klaustri. Ðrimnes.Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg. Grindavík.
Rosso ryksugan kemur
í vandaðri tösku sem hefur
margvíslegt notagildi
Í
i
í
i
i
í
(
(
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
(
(
(
(
(
(
(
(
(