Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1997, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1997, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 18. APRlL 1997 FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1997 27 Iþróttir_________________________________________________________________________________________pv pv_____________________________________________________________________________________________________íþróttir NBA-deildin í nótt: Shaq skorar og skorar - geröi 42 stig gegn Sacramento Shaquille O’Neal er svo sannar- lega mættur í NBA-deildina á ný. Eftir tveggja mánaða fjarveru vegna meiðsla er tröllið í miklum ham og í nótt skoraði hann 42 stig í örugg- um sigri Lakers á Sacramento. Þar með hefur Shaq skorað 35 stig að meðaltali í þeim þremur leikjum sem hann hefur spilað eftir meiðsl- in og Lakers hefur unnið þá alla. „Úrslitakeppnin er framundan og þetta er því rétti tíminn til að sýna sitt besta. Við ætlum okkur aliir stóra hluti, bíðið bara og sjáið,“ sagði Shaq eftir leikinn. Úrslitin í nótt: Denver-Seattle.............104-108 McDyess 29, D.Ellis 27, Johnson 15 - Kemp 27, Payton 24, Schrempf 18. Utah-Golden State..........106-93 Malone 20, Morris 15, Homacek 12 - Mullin 19, Sprewell 14, Fuller 14. Vancouver-Portland .........73-105 Peeler 16, Mayberry 14, Rahim 12 - Wallace 25, Sabonis 15, R.Robinson 14. LA Lakers-Sacramento.......108-99 Shaq 42, Campbeil 21, Rooks 11 - Richmond 23, Grant 19, Polynice 14. Seattle vann í baráttuleik í Den- ver og heldur því efsta sætinu í Kyrrahafsriðli. Lakers er þó á hæl- unum með jafnmörg töp. Sigurinn var tæpur en Sam Perkins tryggði hann með þriggja stiga körfu á lokamínútunni. Utah vann sinn 37. heimaleik af 40 í vetur þegar Golden State kom í heimsókn. Þar með var félagsmetið jafnað og það getur fallið í lokaleik Utah gegn Minnesota um helgina. Deildakeppni NBA lýkur á sunnudagskvöldið og úrslitakeppn- in hefst í næstu viku. -VS Stjarnan stendur vel að vígi Stjeæncm vann mikilvægan sigur á Þrótti úr Reykjavík, 2-1, í deilda- bikarkeppninni í knattspyrnu í gærkvöld. Þar með eru Stjömumenn með úrslitasætið í höndunum. Þeim dugir að sigra Aftureldingu í lokaumferð- inni til að komast áfram. Þróttur R. og Fylkir em með 10 stig og Stjam- an 9 og leikur Þróttar og Fylkis er því hreinn úrslitaleikur um hvort lið- ið fer áfram. KR-ingar unnu FH, 3-1, og innsigluðu þar með sigur sinn í B-riðlinum. Bæði liðin vom fyrir leikinn komin í úrslitakeppnina. KR-ingar unnu alla fimm leiki sína í riðlinum og skoruðu 17 mörk gegn einu. -VS Fótboltaskór á frábæru tiboðsverði Mikael Laudrup. Skór úr gerfiefni. Nr. 37-43 fyrir möl. Verð 2.990 (áður 3.990) Papin Startey nr. 35-46. Leður á tá og rist. Fyrir möl og gras. Verð 3.490 (áður 5.600) Laudrup Champion Nr. 36-45. Leðurskór. Verð 3.950 (áður 5.990) Papin League Nr. 37-45. Mjúkt kengúruleður fyrir möl og gras. Verð 5.990 (áður 7.990) SPORTVÖRUVERSLUNIN SPARTA Laugavegi 49 sími 551 2024 Opið laugardaga til kl. 16 Lærlingar og Afturgöngur meistarar Deildakeppninni í keilu lauk í fyrrakvöld og þar stóðu Lærling- ar uppi sem íslandsmeistarar karla og Afturgöngumar sem ís- landsmeistarar kvenna. Fjögur efstu liðin í deilda- keppni karla fóm í úrslita- keppni. t úrslitum um titilinn unnu svo Lærlingar sigur á Keilulandssveitinni í oddaleik. meö 2.319 pinnum gegn 2.269. Lokastaðan í 1. deild karla varð þessi: Lærlingar 124 Keilulandssveitin 118 PLS 116 Stormsveitin ... 112 Keilugarpar .... 96 Keflavík a 90 KRa 86 Þröstur Keiluböðlar .... 80 Úifamir 62 KRb 46 ET 44 Lokastaðan í 1. deild kvenna: Afturgöngumar ., 134 Flakkarar 120 Tryggðatröll .... 72 Bombumar 64 Keilusystur .... 58 Keiluálfar 32 Alls léku 56 karlalið og 13 kvennalið í deildakeppninni í vetur og keppendur vom sam- tals 342. Um helgina fara fram úrslita- leikimir í bikarkeppninni. Árshátíð FH-inga Árshátíð FH verður á morgun laugardag. Hún hefst með borðhaldi í Hraunhóli kl. 20. Veislustjóri verður Guðmundur Ámi Stefánsson og Össur Skarphéðinsson ræðumaður kvöldsins. Miðar fást á kr. 2.500 í Sjónarhóli. íslendinga• /ið/n áfram - Gautaborg úr leik íslensku liðin Örebro, Örgryte og Hammarby komust áfram í sænsku bikarkeppninni í knatt- spymu í gærkvöld. Örebro komst reyndar í hann krappann gegn Umeá en slapp með sigur í vitaspymukeppni, 3-5, eftir markalausan venjuleg- an leiktíma og framlengingu. Örgryte sigraði Mjállby, 2-0. Rúnar Kristinsson lék ekki með Örgryte vegna meiðsla. Hamm- arby vann Karlshamn, 7-1. Mesta athygli vakti að sænsku meistaramir í Gautaborg töpuðu 5-3 fyrir 1. deildarliði Gávle og eru þar með úr leik í keppninni. -SK/-EH „Ég skemmti mér best Paul Merson ásamt fyrrverandi eiginkonu sinni sem nú er horfin á braut. Gegndarlaus drykkja, eiturlyfjavandamál og milljónaeyðsla í veðmálum fyllti mælinn hjá eiginkonunni og nýlega fór hún fram á skilnað. Gunnar rotað- ur í Belgíu Gunnar Einarsson, atvinnu- maður í knattspymu hjá MVV í Hollandi, varð fyrir slæmum meiðslum í vináttuleik með 21- árs landsliðinu gegn 3. deildar- liði í Belgíu á mánudaginn. Gunnar fékk mikið höfuðhögg frá mótherja, rotaðist og tungan skarst illa. Hann dvaldi hálfan annan sólarhring á sjúkrahúsi en kom heim til Hollands í gær. Hann þarf að taka sér 10 daga hvíld frá knattspymu. Ljóst er aö Gunnar getur ekki leikið með MW um helgina en hann hefur leikið stórt hlutverk í vöm liðsins undanfamar vik- ur. MVV er efst í 1. deildinni og hefur ekki tapað leik síðan Gunnar var fenginn til félagsins í febrúar. -VS Fowler missir af lokaleikjunum Robbie Fowler, markaskorar- inn mikli hjá Liverpool, leikur ekki þqá síðustu leiki liðsins í ensku úrvalsdeildinni. Fowler var rekinn af velli gegn Everton í fyrrakvöld, ásamt David Unsworth hjá Everton. Fowler hlaut þriggja leikja bann fyrir vikið. Hann getur spilað stórleikinn við Manchester United í fyrramálið en síðan er piltur kominn í sumarfrí. -VS Um helgina Reykjavfkurmótið í knattspymu: Víkingur-Fylkir . . . . L. 17.00 Léttir-Þróttur R . . . . L. 17.00 . . . . S. 17.00 ÍR-KR . . . . S. 20.30 Fjölnir-KSÁÁ . . . . S. 20.30 Deildabikarinn 1 knattspyrnu: Víkingur Ó.-Grindavík Haf. L. 14.00 Leiknir R.-Víkingur Ó. Lei. S. 17.00 Bikarúrslit karla í keilu: Keilulandssv.-Stormsveitin . L. 13.00 Bikarúrslit kvenna í keilu: Afturgöngumar-Tryggðatröll L. 13.00 Gefa íslensku fél ögin Evrópukeppn inni langt nef? Margt bendir til þess að dagar íslensku félagslið- anna í Evrópukeppnunum í handknattleik séu taldir. Mörg undanfarin ár hafa félögin freistast til þátttöku I þessum keppnum með misgóðum árangri. Út- koma félaganna hefur þó verið samhljóma að einu leyti; þau hafa öll tapað umtalsverðum fjárhæðum á öllu saman og fengið lítið sem ekkert í staðinn. Oftar en ekki hafa íslensku liðin dregist á móti lítið spenn- andi erlendum liðum sem áhorfendur hér heima hafa ekki haft mikinn áhuga á. Nú kann að verða á þessu breyting. Hugmynd frá Svíþjóö sem hefur hljómgrunn Samkvæmt heimildum DV eru nokkrar líkur á því að stofnuð verði ný keppni bestu liðanna á Norður- löndum. Með öðrum orð- um: Bestu liðin á hinum Norðurlöndunum eru líka uppgefin á þátttöku í Evr- ópukeppnunum og það ku hafa verið hugmynd frá Svíþjóð sem kom af stað umræðu og undirbúnings- vinnu sem nú stendur yfir varðandi þann spennandi kost að stofna til sérstakr- ar keppni bestu liðanna á Norðurlöndum. Víst er að bestu liðin á hinum Norðurlöndunum munu draga til sín mun fleiri áhorfendur en lið til aö mynda frá Júgóslavíu, Hvíta-Rússlandi eða Rúss- landi. Mestu máli skiptir þó að sjálfsögðu gífurlegur ferða- kostnaður til fjarlægra og lítt spennandi landa í Evr- ópu. Ferðakostnaðurinn til Skandinavíu yrði mun lægri en ella. „Það er ljóst að við höf- um ekki mikinn áhuga á því að fara út í Evrópu- keppnina að svo stöddu. Við höfum tapað milljón- um á þessu og erum mjög spenntir fyrir þessari nýju hugmynd um keppni Norð- urlandaþjóðanna. Ef af henni verður munum við vera með,“ sagði forystu- maður 1. deildarfélags í samtali við DV í gærkvöld. Undirbúningsvinna er hafin og vonandi verður niðurstaðan viðunandi fyr- ir íslensk félagslið í þá veru að stanslausum fjár- útlátum, sem litlu sem engu skila, linni. -SK í leikfangabúðum“ - segir Paul Merson hjá Arsenal sem kvíðir einverunni eftir að kona hans fékk nóg Einkalíf knattspyrnumanns- ins Pauls Mersons hjá Arsenal hefur í langan tíma verið í rúst. Mönnum er í fersku minni mikil áfengisneysla hans, eiturlyíjaneysla og sjúk- leg þörf fyrir veðmál þar sem Merson tapaði stórfé. Nú eru ástamál hans rústir einar. Eiginkonan, Lorraine, stóð lengi vel sem klettur að baki manni sínum, en nú hef- ur hún fengið nóg. Dag einn fyrir skömmu tilkynnti hún Merson að hún elskaði hann ekki lengur og fór fram á skilnað sem tekur gildi í næsta mánuði. Paul Merson er miður sin yfir þessari ákvörðun Lorraine. „Ég veit ekki hvem- ig mér gengur að lifa án henn- ar og tilhugsunin um að hún verði í sambandi við annan karlmann er yfirþyrmandi. Ég er mjög afbrýðisamur og mun örugglega sturlast ef ég frétti af nýju ástarsambandi henn- ar,“ segir Merson sem hefur þekkt Lorraine frá þvi þau voru 15 ára, eða í 14 ár. Þau eiga þrjá syni. Sjúkleg afbrýöisemi Afbrýðisemi Mersons var ótrúleg. Hann bannaði konu sinni að fara út úr húsi og sá til þess að hún væri ekki of vel klædd þegar þau fóru saman út til þess að hún fangaði ekki athygli annarra karlmanna. „Þegar ég var fjarri heimil- inu var ég alltaf að hugsa um hvað hún væri að gera. Ég gat á sínum tíma reykt kókaín og enginn komst að því. Gat hún ekki verið að gera einhverja hluti sem enginn kæmist að? Ég viðurkenni að ég er bamalegur. Ég hef í raun og veru aldrei orðið fullorðinn. Mér líður mun betur innan um börn en fullorðið fólk. Reyndar skemmti ég mér best í leikfangabúðum," segir Mer- son. Byrjaði strax 16 ára aö drekka og veöja Hjónabandi Mersons er lok- ið og hann segir að Lorraine hafi uppgötvað að síðustu tíu ár ævi hennar hafi verið henni einskis virði og nú vilji hún bæta fyrir það. Merson segist hafa byrjað að drekka og eyða stórfé í veð- mál strax 16 ára er hann skrif- aði fyrst undir samning hjá Arsenal. Hann hefur tapað 40 milljón- um króna í veðmálum en það em mun meiri peningar en foreldrar hans hafa unnið fyr- ir alla þeirra starfsævi. „Ég skemmti mér og tapaði peningum. Við keyptum okkur hús fyrir 19 milljónir króna. Laun frá Arsenal streymdu inn og ég var með 2,3 milljónir k_ona á viku í laun. Þrátt fyr- ir það áttum við ekki fyrir salti í grautinn og urðum að borða heima hjá foreldrum mínum vegna þess að við átt- um ekki peninga fyrir mat. Ég tapaði stundum milljónum króna á einum degi,“ segir Merson. Hann viðurkennir einnig að hafa barið Lorraine: „Ég kom fullur heim eftir aö hafa tapaði stóru veðmáli. Ég fleygði húsgögnum um alla íbúð og henti Lorraine niður háan stiga. Ég hefði getað slasað hana eða hreinlega gengið af henni dauðri. Fimm mínútum seinna sat ég og horfði á sjónvarp eins og ekkert hefði í skorist. Reyndar henti ég sjónvarpinu skömmu síðar fram af svölunum,” segir Merson sem nú er kominn á rétta braut í lifinu. -SK Það styttist í að ný og glæsileg stúka fyrir áhorfendur verði tekin í notkun á Laugardalsvelli. Framkvæmdir eru i fullum gangi og í gær voru verktakar að koma fyrir stórum einingum á sínum stað í byggingunni. Með nýju stúkunni verður bætt úr brýnni þörf. Margir áhorfendur sem lagt hafa leið sína á Laugardalsvöllinn kannast við það að standa tímunum saman Elleray uppfræðir íslenska dómara David Elleray, hinn kunni ensku knattspymudómari, heldur fyrir- lestra á hinni árlegu ráöstefnu landsdómara sem haldin er um aðra helgi. Hann þykir mjög snjall fyrirlesari og vel að sér í fræðunum. Elleray, sem er skólastjóri í Harrow, er þekktasti dómari Englendinga um þessar mundir. Hann er reyndar mjög umdeildur í heimalandi sínu þessa dagana vegna ýmissa atvika í leikjum sem hann hefur dæmt að undanfomu. Þar má nefna markið sem Chesterfield skoraði gegn Midd- lesbrough í bikarkeppninni en var ekki dæmt gilt. Elleray viðurkenndi eftir á að hann hefði gert mistök í því tilfelli. -VS í stæðum í hvemig veðri sem er. Nú í sumar geta þessir sömu áhorfendur fengið sér sæti í glæsilegri stúkubyggingunni. Þegar hún verður fullbúin mun verða hægt að koma fyrir 7 þúsund áhorfendum í sæti sem er um helmings aukning frá því sem áður var. DV-mynd Hilmar Þór/-SK HM í sundi í Gautaborg: Eydís og Elín bættu fyrri árangur sinn Eydís Konráðsdóttir og Elin Sigurðardóttir náðu i gær sínum bestu tímum í 100 metra skriðsundi þegar heimsmeistaramótið í 25 metra laug hófst í Gautaborg. Eydís synti vegalengdina á 58,34 sekúndum og varð í 29. sæti og Elín synti á 59,10 sekúndum og varð i 37. sæti. Alls tóku 58 sundkonur þátt í þessari grein, sem er aukagrein hjá báöum íslensku stúlkunum. I dag keppir Eydís í 100 metra baksundi og Elín í 50 metra skriðsundi en mótinu lýkur á sunnudaginn. -VS S- y

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.