Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1997, Blaðsíða 12
40
FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1997 T>'V
íyndbönd
MYNDBAIÍDA
Ellismellur ★★★
Walther Matthau leikur Nat Moyer, 81 árs vand-
ræðaungling sem er stöðugt að spinna upp sögur og
kemur sér og öðrum í vandræði með þykjustuleikj-
um sínum. Hann fer daglega í Centrai Park í New
York og ræðir þar við hálfblinda húsvörðinn Midge
Carter, sem Ossie Davis leikur, en hann er lítið hrifinn af ærslagangin-
um í Nat Moyer. Midge reynir að láta lítið fyrir sér fara og lifa af elli-
árin í hættulegri stórborginni áfallalaust, en Nat skiptir sér af öllu og
öllum sem hann sér og er stöðugt að reyna að berjast fyrir réttlæti og
leysa úr vandamálum fólks með litlum árangri. Myndin er uppfull af
skemmtilegum hugleiðingum um lífið og tilveruna og heldur trúverðug-
leika sínrnn út í gegn án þess að tapa léttleikanum. Walther Matthau og
Ossie Davis fara á kostum í þessari mynd, sem er byggð á samnefhdu
gamanleikriti eftir Herb Gardner, sem hlaut Tony-verðlaunin fyrir það
árið 1984. Myndin ber einmitt einkenni leikhúsverks (fáar sögupersón-
ur, takmörkuð sviðsmynd, samtöl bera uppi söguþráðinn) og er því
nokkuð takmörkuð sem kvikmynd en stendur þó vel fyrir sínu og er
skemmtileg á að horfa.
I'M NOT RAPPAPORT. Útgefandi: ClC-myndbönd. Leikstjóri: Herb Gar-
dner. Aðalhlutverk: Walther Matthau og Ossie Davis. Bandarísk, 1996.
Lengd: 130 mín. Öllum leyfð. -PJ
Skammvinnar vinsældir ***
That Thing You Do er fyrsta leiksijórnarverk
Toms Hanks og segir frá unglingahljómsveit sem
ávinnur sér skammvinna frægð með einu metsölu-
lagi. Trommari sveitarinnar handleggsbrotnar rétt
fyrir hæfileikakeppni í skólanum þar sem þeir ætl-
uðu að spila eina lagið sitt, ballöðu sem aöalsöngvar-
inn og gítarleikarinn samdi. Guy Patterson er feng-
inn til að leysa af en setur allt annan og miklu hrað-
ari takt í lagið, sem fyrir vikið gengur vel í dans-
þyrsta unglingana. Veitingahúseigandi býður þeim
að spila hjá sér og í kjölfarið vekja þeir athygli um-
boðsmanns sem síðan kemur þeim í samband við stórlax hjá stóru plötu-
fyrirtæki sem gefur lagið út. Lagið nær inn á topp-tíu lista en áður en
þeir geta samið fleiri lög verður ágreiningur í hljómsveitinni og sam-
starfinu er slitið. That Thing You Do er ekkert sérstaklega merkileg
mynd en þó nokkuð skemmtileg áhorfs, sérstaklega vegna góðrar
frammistöðu ungu leikaranna, einkum Toms Everetts Scotts i aðalhlut-
verkinu. Þá er tónlistin skemmtileg þó titillagið hljómi (kannski eðli-
lega) ansi oft.
THAT THING YOU DO. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Tom Hanks. Aðalhlut-
verk: Tom Everett Scott, Liv Tyler, Jonathan Schaech, Steve Zahn, Ethan
Embry og Tom Hanks. Bandarísk, 1996. Lengd: 107 mín. Öllum leyfð. -PJ
Flótttamenn 1
Tveir fangar í fangavinnuflokki eru hlekkjaðir
saman vegna agabrots. Annar fangi yfirbugar vörð
og tekur að skjóta á allt í kringum sig og þeir flýja í
ringulreiðinni. Annar þeirra á 25 milljónir dollara
og tölvudisk 1 felum, en þessu hafði hann rænt frá
leppfyrirtæki kúbverskra glæpasamtaka. Þeir hafa
þvi bæði kúbversku mafíuna og yfirvöld á hælum
sér. Myndin er mjög fyrirsjáanleg, óspennandi og
leiðinleg. Stephen Baldwin er dúkkudrengur sem
getur lítið leikið en Laurence Fishbume er meiri
persónuleiki og kemst þolanlega frá myndinni.
Salma Hayek er í kjánalegu aukahlutverki og vondu kallamir era
einnig óspennandi, helst að Robert John Burke nái einhverju út úr sínu
hlutverki. Banabiti myndarinnar er léleg persónusköpun, sem gerir
það að verkum að manni er nákvæmlega sama hvað verður um persón-
umar. Þegar við bætist aö hasarinn er aðeins miðlungsgóður og allir
fimmaurabrandaramir með öllu ófyndnir verður úr mynd sem er ca 90
mínútum of löng.
FLED. Útgefandi: Sam-myndbönd. Leikstjóri: Kevin Hooks. Aðalhlutverk:
Laurence Fishburne og Stephen Baldwin. Bandarísk, 1996. Lengd: 94
mín. Bönnuð innan 16 ára. » -PJ
Bjargvætturinn mikli
í göngunum undir Hudson-ána verður mikil
sprenging sem lokar göngunum báðum megin. Allir
drepast nema nokkrir, sem komast hvorki lönd né
strönd. Leigubílstjórinn Kit Latura (Stallone) kemst
inn til þeirra í gegnum loffræstigöng og tekur til við
að bjarga málunum. Þau komast ekki sömu leið til
baka svo þau verða að finna nýja leið, meðan vatn
fossar inn og göngin era við það að hrynja ofan á
þau. Þar að auki em vondir stjómmálamenn búnir
að gefa björgim upp á bátinn og ætla að bora í grjótmulninginn þangað
til allt hrynur. Myndin þjáist af heimskulegum og fyrirsjáanlegum sögu-
þræði, óspennandi persónum og lélegum leikhóp, en fær prik fyrir brell-
ur. Annað prik fær hún fyrir lokaatriði sem er svo ævintýralega bjána-
legt að það er óstjómlega fyndið. Annars er hálfsorglegt hvaö miklum
peningum og fyrirhöfh er sóað í svona þriðja flokks myndir.
DAYLIGHT. Útgefandl: ClC-myndbönd. Leikstjóri: Rob Cohen. Aðalhlut-
verk. Sylvester Stallone. Bandarísk, 1996. Lengd: 110 mín. Bönnuð innan
SÆTI FYRRI VIKA VIKUR Á LISTA TITILL ÚTGEF. TEG.
1 1 3 Turbulence Sam-myndbönd Spenna
2 2 5 Sleepers Háskóiabíó Spenna
3 5 2 Bound Sam-myndbönd Spenna
rjiriíir' 4 Ný 1 Setitoff Myndform Spenna
5 4 4 Maximum Risk Skrfan Spenna
6 S 2 Frighteners ClC-myndbönd Spenna
7 3 5 Glimmer Man Warnermyndir , Spenna
S 13 i 2 Mirror Has Two Faces Skífan Gaman
9 Ný i ; That Thing You Do! Skífan 1 Gaman
io ; 6 7 , First Wives Club ClC-myndbönd Gaman
11 7 ; 6 Secrets and Lies Háskólabíó 1 Drama
12 9 6 Djöflaeyjan Skrfan Gaman
13 ; n ; io ; Long Kiss Goodnight Myndform Spenna
14 14 f 5 Matilda Skrfan Gaman
15 I io ; 3 Evita Myndform , Drama
f 10 12 7 ; Craft Skífan Spenna
17 i 16 ; 2 Booty Call Skrfan 1 Gaman
is ; 1 15 S : Rich Man's Wife Sammyndbönd , Spenna
19 17 ’ 4 ; Crucible Skífan Drama
20 ; Ný n ; Sweet Nothing Warner myndir Drama
Spennumyndin Turbulence situr enn í efsta sæti
myndbandalistans. Fáar breytingar hafa orðið á
listanum síöan í síðustu viku. Eina nýja myndin
er spennumyndin Set It off sem er í fjórða sæti
listans. Spennumyndin Bound fikrar sig upp iist-
ann og situr nú í þriöja sæti en var í því fimmta í
síöustu viku. Eins og í síðustu viku eru það ein-
ungis spennumyndir sem verma fimm efstu sæti
listans. Á myndinni sést leikarinn Ray Liotta í
hlutverki sínu í myndinni Turbulence.
‘■'.r > , '
Turbulence
Ray Liotta og
Lauren Holly.
Flugþjónninn Teri
Halloran, sem leikinn er
af Lauren Holly, bjóst við
einfóldu flugi. Einungis
nokkrir jólaferðalangar
voru í 747- vélinni sem
var á leið frá New York
til Los Angeles. En allt í
einu fyllist loftið af
óþægilegum kulda þegar
fjórir lögregluþjónar
koma um borð með tvo
dæmda glæpamenn. Ann-
ar þeirra er fjöldamorð-
inginn Ryan Weaver,
sem leikinn er af Ray
Liotta, en hinn er mis-
kunnarlaus ræningi sem
heitir Stubbs. Þegar vélin
er komin á loft er áhöfh-
in vöruð viö miklu
óveðri sem sé fram und-
an. En inni í vélinni
brýst út annars konar
óveður sem hefur ófyrir-
séðar afleiðingar.
Sleepers
Kevin Bacon, Ro-
bert De Niro,
Dustin Hoffman
og Brad Pitt.
Sleepers er saga fjög-
urra manna sem ólust
saman upp í hverfi í New
York sem nefiit var Vít-
iseldhúsið vegna þess
hversu illræmt það var
fyrir glæpi. Drengimir
fjórir bindast sterkmn
vináttuböndum og bralla
ýmislegt saman. Einn dag-
inn fer eitt prakkarastrik
þeirra úr böndunum og
drengimir em handteknir
fyrir vikið. Þeir em síðan
sendir á heimih fyrir af-
brotaunglinga. Sú dvöl á
eftir að reynast þeim dýr-
keypt því yfirfangavörður-
inn er ofbeldisfúllur og
vægðarlaus hrotti sem
misnotar drengina. Mörg-
um árum siöar ákveða
drengimir að leita hefiida.
Bound
Jennifer Tilly og
Gina Gershon.
Það em tvær milljón-
ir dollara í skjalatösku
sem liggur á skrifborði í
íbúð í Chicago. Ceasar
er maður sem þvær pen-
inga fyrir mafiuna.
Violet er kærasta hans
til fimm ára og Corky er
nýsloppin úr fangelsi.
Hvað er það síöasta sem
gæti komið upp á milli
mannleysu eins og Ce-
asars og peninganna?
Tvær kynþokkafullar og
djöfullega klárar dömur
sem gimast hvor aðra
og milljónimar.
Set It off
Jade Pinkett,
Queen Latifah,
Vivica A. Fox og
Kimberly Eiise.
Þær Stony, Cleo,
Tisean og Frankie hafa
alist upp í einu úthverfi
Los Angeles-borgar.
Þær hafa þurft að þola
margt misjafnt af hendi
karlmanna. Þær hafa
hins vegar alltaf staðið
saman þegar einhver
þeirra hefur átt í vand-
ræðum. Nú er komið að
þrekraun sem á eftir að
reyna verulega á þær.
Röð atvika hefúr leitt til
þess að ein þeirra á á
hættu að missa bam
sitt. Sú staðreynd hefur
ýtt henni út á barm ör-
væntingar. Vinkonum-
ar fjórar ákveða því að
freista gæfunnar, snúa
vöm I sókn og leggja út
á hættulega braut, enda
telja þær sig engu hafa
að tapa.
Maximum
Risk
Jean-Claude van
Damme og
Natasha Hen-
stridge.
Alan er lögreglumað-
ur í Frakklandi sem
uppgötvar að hann á tví-
burabróður sem heitir
Mikhail. Mihail hefur
verið myrtur í New
York vegna tengsla
sinna við rússnesku
mafiuna. Alan verður
að komast til botns í
málinu og ákveður að
fljúga vestur um haf.
Þar setur hann allt á
annan endann þvi allir
halda að þar sé Mikhail
lifandi kominn. Sú eina
sem Alan getur treyst er
unnusta Mikhails. Með
mafíuna og FBI á hæl-
unum reyna þau að hafa
upp á morðingja Mik-
hails.