Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1997, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1997, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1997 Fréttir Fjöldi manns hringdi í Skunk Anansie á beinni línu DV og fylgdist með á Internetinu: Rauðglóandi símalínur Fjöldi manns hringdi í hljóm- sveitina Skunk Anansie er hún sat fyrir svörum á beinni línu DV í gærkvöldi, nýkomin til landsins vegna tónleikanna í Laugardalshöll í kvöld. Síminn var rauðglóandi all- an tímann og þau Skin, Ace, Cass og Mark máttu hafa sig öll við að svara þeim spurningum sem rigndi yfir þau. Spjall íjórmenninganna við íslenska aðdáendur sína fór fram í beinni útsendingu á Internet- inu með aðstoð Miðheima. Þar var einnig hægt að koma á framfæri spurningum og fjölmargir netbúar víðs vegar rnn heim náðu í gegn eða heimsóttu slóðina. Miðað viö að hljómsveitin sat við símann í hálf- tima var aðsóknin frábær. Þetta var í fyrsta sinn á íslandi sem aðdáend- um heimsfrægrar hljómsveitar á borð við Skunk Anansie gafst kost- ur á spjalli af þessu tagi. Hljómsveitin var ánægð með mót- tökumar á DV og kom það henni á óvart hvað margir komu til að sjá þau spiia á þaki hússins. Tónleik- arnir hefðu verið frábærir en kuld- inn hefði verið þeirra eini óvinur. „Það var meiri háttar hvað allir voru áhugasamir og æstir,“ sagöi Ace. Skin var ánægö með gullplöt- una sem Skífan afhenti hljómsveit- inni og sagði stutt í að platínuplat- an kæmi fyrir 10 þúsund seld ein- tök hér á landi af Stoosh. Þetta væru hreint frábærar viðtökur hér á íslandi. Blaðamennirnir sem unnu að beinni línu voru Björn Jóhann Björnsson, Hallgrimur Indriðason, Kjartan Bjarni Björgvinsson og Haukur Lárus Hauksson. Ljós- myndarar voru Þorvaldur Örn Kristmundsson og Hilmar Þór Guð- mundsson. Aðsóknin var slík að hér fyrir neðan kemur aðeins úrval spurn- inga og svara af beinni línu og Internetinu. Magnús úr Reykjavík sendi þessa af Internetinu: Hver er munurinn á íslenskum áhorfend- um og öðrum sem þið hafið upp- lifað? Skin: „Það er ekki svo mikill munur. Aðdáendur Skunk eru hins vegar einstakir og eins alls staðar í heiminum. Mér finnst íslendingar þó vera betur inni í textum okkar en aðrir, það er mín tilfinning, hvemig sem á því stendur." Ingi í Hafnarfirði spurði hver væri galdurinn á bak við vel- gengni hljómsveitarinnar: Ace: „Vinna og aftur vinna. Við erum langt frá því að vera löt og viljum ekki hafa slíkt fólk í kring- um okkur.“ Skin: „Auk mikillar vinnu af okkar hendi þá höfum við verið mjög heppin. Síðast en ekki síst höf- um við búið til góð lög sem fallið hafa vel í kramið hjá fólki víða um heim. Við eram með góða tónleika og góða framkvæmdastjóm." Komum vegna veöursins Jón Haukur úr Njarðvík spurði hvað drægi hljómsveitina aftur til íslands: Cass: „Veðrið!" Skin: „Við hlutum frábærar við- tökur þegar við komum hingað í maí og skemmtum okkur vel. Þess vegna fannst okkur gráupplagt að koma við hérna, halda tónleika og slappa aðeins af á leið okkar til Bandaríkjanna þar sem við munum troða upp á fjölmörgum tónleikum." Bobba í Reykjavík hafði þessa spurningu fyrir Skin: Hvers vegna ertu sköllótt? Skin: „Ástæðan er einfaldlega sú að fyrir átta árum gafst ég upp á öllu umstanginu sem fylgir því að hafa hár. Maður þurfti alltaf að vera að klippa það, raka, lita, setja permanent í það og svo framvegis og ég varð einfaldlega leið á því. Það er miklu betra að hafa það eins og núna.“ Fríður lagði þessa spumingu fyrir hljómsveitina: Hvaða lög eftir ykkur sjálf eru í mestu upp- áhaldi hjá hverju ykkar? Mark: „Brazen." Cass: „Political Army.“ Skunk Anansie skemmti sér konunglega á beinni línu DV í gærkvöldi. Hér eru þau Mark, Ace, Cass og Skin að svara íslenskum aödáendum sínum. DV-mynd PÖK Skin: „Við höfum textana okkar pólitíska til að sýna að okkur standi ekki á sama. Við ferðumst mikið inn heiminn og verðmn vitni að ýmsxnn atburðum sem gerast á hverjum stað. Þessir atburðir hafa áhrif á okkur og við getum ekki úti- lokað okkur frá þeim.“ Ace: „100 Ways to Be a Good Girl.“ Skin: „Milk Is My Sugar, auk þess sem mér finnst Twisted gott lag.“ Að beinni línu lokinni tóku æstir aödáendur sveitarinnar á móti henni fyrir utan DV-húsið. Hér kemst Skin meö naumindum áfram með rósavöndinn sinn. Einar Örn Benediktsson tónleikahaidari sleppur frá „múginum". DV-mynd Hilmar Þór Eftir aö beinu línunni lauk sýndi Eyjólfur Sveinsson, framkvæmda- og útgáfustjóri Frjálsrar fjölmiðlunar, Skunk An- ansie húsakynni ritstjórnar DV. Hér er sveitin að skoða myndir ÞÖK frá tónleikunum á þaki DV--hússins. DV-mynd Hilmar Þór Odýrt hús óskast! Rakel úr Reykjavík hringdi og spurði: Ætlið þið að kaupa hús eða íbúð á íslandi eins og Damon Albarn, söngvari Blur, hefur gert? Skin og Cass: „Við gerum ekkert sem Damon i Blur hefur gert. Við þolum ekki spurningar um Blur eða Oasis eða hverja aðra hljómsveit." Skin: „Annars hefði ég ekkert á móti því að kaupa hús hérna. Veistu um gott hús handa mér? Það má ekki vera dýrt.“ Ung móðir úr Reykjavík hringdi: Ég vildi gjarnan vita hvar hægt er að sjá ykkur annars staðar en á tónleikunum? Mark: „Það má alltaf finna okkur á hótelinu. Þá ætlar Ace gítarleikari í Bláa lónið enda passaði hann vel upp á það að sundskýlan hans væri örugglega á sínum stað í farangrin- um.“ Bima í Kópavogi hringdi með þessa: Hvemig semjið þið lögin, hver í sínu homi eða sameigin- lega? Skin: „Hvert og eitt okkar kemur með hugmyndir sem við reynum að sjóða saman í eina heild. Bestu lögin eru þau sem koma strax hjá okkur.“ Rífast aldrei Gunnar á Akureyri sló á þráð- inn og spurði hvort aldrei kæmi upp ágreiningur innan sveitar- innar: Mark: „Aldrei!“ Skin: „Víst, við rífumst oft.“ Cass: „Nei, aldrei." Skin: „Ókei, í alvöru, þá rífumst við aldrei. Er það ekki, strákar?" Hinir: „Jú!“ Reynir í Keflavík hringdi og spurði hvort þau reyndu að að hafa áhrif á gang heimsmála með pólitískum textum sínum: Hörmulegt meö Díönu en ... Reynir kom með aðra spurn- ingu: Hvernig kom fréttin við ykkur um fráfall Díönu prinsessu? Ace: „Við voram stödd í Þýska- landi og þetta kom okkur mjög á óvart." Mark: „Þetta var hörmulegt en við þekktum konuna ekki neitt. Snerti okkur ekki svo rnikið." Cass: „Það er hörmulegt þegar einhver deyr með þessum hætti, sama hver á í hlut.“ Afmæliskveöjur Skin og Cass bárust fjölmargar hamingjuóskir frá aðdáendum sínum í gær, en þau hafa bæði átt þrítugsafmæli nýlega. Einn þeirra sem óskaði henni til ham- ingju var Anna Sif. Skin: „Ekki minna mig á afmæl- ið mitt, ég er að reyna að halda mér á þrítugsaldri og forðast fertugsald- urinn. Ég reyni alltaf að sýnast yngri en ég er með því að hegða mér barnalega." Anna Sif hafði orðið þess heið- urs aðnjótandi að koma upp á svið á síðustu tónleikum hljóm- sveitarinnar og ætlaði aftur í kvöld. Skin: „Þá sjáumst við á morgun, láttu bara vel í þér heyra í rólegu köflunum hjá okkur og þá hóum við í þig upp á svið. Ég hlakka til að sjá ykkur öll á ný og við getum lof- að allt öðruvísi og betri tónleikum en síðast. Við spilum lengur en þá og ætlum að koma verulega á óvart.“ Með þeim orðum kvaddi hljóm- sveitin aðdáendur sína á beinni línu DV í gærkvöldi. ) I t t I I t I I > I t I I t I I I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.