Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1997, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1997, Síða 11
FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1997 11 Fréttir >vottavélar Á ÓTRÚLEGU VERÐI! w Verð kr. stgr. Sparnaðarkerfi - L-84 800/500 sn. þvottavél, 13 þvottakerfi Sparnaðarkerfi - Flýtiþvottakerfi, Verð kr. 1000/650 sn. þvottavél, 13 þvottakerfi Sparnaðarkerfi - Flýtiþvottakerfi, Söluaðilar: Reykjanes • Rafbúð Skúla Þórs, Hafnarfirði • Stapafell, Keflavík • Rafborg, Grindavík • Raft.Sig. Ingvars., Garði Vesturland • Rafþjónusta Sigurdórs, Akranesi • Munaðarhóll, Rifi • Guðni E. Hallgrímsson, Grundarf. Vestfirðir • Ástubúð, Patreksfirði • Laufið, Bolungarvík • Húsgagnaloftið, Isafirði Norðurland • KVH, Hvammstanga • KH.BIönduósi • Rafsjá, Sauðárkróki • Rafbær, Siglufirði • Ljósgjafaverslunin, Akureyri • KÞ, Húsavik Austurland • Rafey, Egilsstöðum • Rafaldan, Neskaupsstað ® Rafás, Höfn Suðurland • Rafmagnsverkst. KR. Hvolsvelli • Geisli, Vestmannaeyjum • Rás, Þorlákshöfn Greiðslukjör við allra hæfi VCniU VCLNVJIVIIIN I VCf\3LUIV OKKAR RflFTfEKJflDERZLDN ÍSLflNDS IT - ANNO 1 929 - Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776 Helgi Jóhannesson, skipstjóri á Sólfelli EA: Okkur var öllum sagt upp - og skipið verður flutt til StöðvarQarðar Háskólahátíð á Akureyri „Við fengum allir uppsagnarbréf og verðum því að leita okkur að annarri atvinnu. Ég hef ekki mest- ar áhyggjumar af mér. Það er verra með marga strákana. Það eru níu menn búsettir hér á Dalvík sem voru á Sólfellinu, og þar af einn sem var að flytja frá Siglu- firði. Hann taldi sig vera í öruggri vinnu og flutti þess vegna. Hann var að byrja að koma sér fyrir í nýju húsnæði þegar uppsögnin kom. Það er fátt fyrir þessa stráka að fá hér, það er fullmannað á öll- um togurum og því vitum við ekki hvað tekur við,“ sagði Helgi Jó- hannesson skipstjóri en honum og allri áhöfn Sólfells EA var sagt upp skyndilega. Það sem gerir mennina sárari en ella er að þeir hafa verið á nóta- veiðum með nánast engan kvóta og launin hafa verið nokkuð lægri en gengur og gerist á loðnuflotanum, eða um 250 þúsund á mánuði. Nú styttist í síldveiðar og þá er mögu- leiki að launin hækki eitthvað. „Við stöppuðum stálinu hver í annan. Þar sem KEA er bakhjarl útgerðarinnar vorum við sann- færðir um að úr rættist. Það er því ónotalegt að þetta endi með þess- um hætti,“ sagði Helgi. Sólfellið verður flutt til Stöðvar- fjarðar þar sem áhöfnin á togaran- um Kambaröst tekur við nótaskip- inu Sólfelli. Helgi skipstjóri segir að þeir hafi leitað til sjómannafélaganna en ekk- ert hafi komið út úr því. -sme t dag, 5. september, eru nákvæm- lega tíu ár frá því að háskóla- kennsla hófst á Akureyri. Þetta er stór áfangi sem verður minnst með ýmsum hætti. Aðalafmælishátíðin verður á morgun í skólanum og hefst klukkan 13.50 með harmóniku- leik. Síðan flytja ávörp Þorsteinn Gunnarsson rektor, Davíð Oddsson forsætisráðherra, Þórarinn E. Sveinsson, forseti bæjarstjómar, Guðni Gunnarsson, fulltrúi stúd- enta, Árni Laugdal stjórnfræðingur, fulltrúi brautskráðra kandídata, og Sigrún Magnúsdóttir formaður af- mælisnefndar og yflrbókavörður. Að ávarpi hennar loknu opnar Dav- íð Oddsson nýtt bókasafn skólans. „Bókasafnið okkar var að flytja í nýtt húsnæði," sagði Sigrún. „Við vorum í Þingvallastræti í 150 fer- metrum og erum komin hingað í húsakynni skólans á Sólborgar- svæði í 1070 fermetra brúttó. Það er svolítil breyting! Og við erum hepp- in að þetta skuli bera upp á sama tíma og afmælishátíðin er haldin hátíðleg." En afmælishátíöinni lýkur ekki um helgina þvi hún stendur til októ- berloka með röð fyrirlestra og mál- þinga sem deildir skólans sjá um í tengslum við afmælið. Bókasafnið er fyrst í röðinni. Þann 13. september verður haldið málþing um barnabækur á nýja bókasafhinu og hefst það kl. 14. Þrír fyrirlestrar verða haldnir um hamabókmenntir og auk þess segir rithöfundurinn Magnea frá Kleifum frá því hvemig bók verður til. 20. september talar Gunnlaugur Bjömsson stjameðlisfræðingur um Sólir og svarthol í Oddfellowhúsinu. 27. september verða fyrirlestrar á vegum heilbrigðisdeildar í Oddfell- owhúsinu; aðalræðumaður þar verður Margrét Tómasdóttir, fyrsti forstöðumaður deildarinnar. 11. okt- óber verður ráðstefna á vegum kennaradeildar og Rannsóknastofn- unar HA um gildi mats og matsað- ferðir í skólastarfi. Og loks verður dagskrá á vegum rekstrardeildar 25. október: Er hagur af háskóla? Láttu sentia þér heim! 18“ pitza m/3 áleggsteg. 12“ hvítlauksbrauð eða Margarita, 2L Coke og tivíttauksofía Aðeins 1.790 kr. Komdu og sæktu! 16 pitza m/2 áleggsteg 18“ pitza m/2 áleggsteg Aðeins 990 kr. 568 4848 5651515 Fjórðungsþing: Hvetur til samninga við kennara DV, Vestfjörðum: Á Fjórðungsþingi Vestfirð- inga, sem haldið var á ísafirði um helgina, var samþykkt ályktun um launasamninga kennara. Þingið lýsir yfir von- brigðum sínum með að ekki hafi tekist samningar á milli kennara og sveitarfélaga. Þing- ið hvetur launanefnd sveitarfé- laga og samninganefnd kennara til að semja eins fljótt og auðið er og eyða þar með þeirri óvissu sem nú ríkir. Framsögu um þetta mál hafði Þorsteinn Jóhannesson og var ályktunin lögð fyrir allsherjarnefnd og samþykkt þar. - HK Rangt verð á beikoni Á tilboðssiðu DV í gær var verð á beikoni frá KEA í versl- unum 11-11 sagt vera 398 kr. kg. Það reyndist rangt. Rétt verð er 898 kr. kg.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.