Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1997, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1997, Síða 12
12 FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1997 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjómarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiósla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVlK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverð 160 kr. m. vsk., Helgarblaö 220 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaðsins I stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Fjármál og feimnismál Meðan utanríkisráðuneytið er að stuðla að ættfræði- legri skrásetningu 200 þúsund Vestur-íslendinga er Tölvunefnd að leita leiða til að ritskoða hefðbundin ætt- artöl og stéttartöl og leyfa einstaklingum beinlínis að bannna, að nöfn þeirra séu birt í slíkum ritum. Meðan forsætisráðuneytið leggur mikla vinnu við að fá samþykkt og að kynna almenningi ný upplýsingalög, sem gera ráð fyrir mun greiðari aðgangi að skjölum er b ármálaráðuneytið að leita nýrra leiða til að takmarka enn frekar en áður aðgang að álagningarskrám skatta. Vinstri höndin í kerímu veit ekki hvað hin hægri ger- ir. Annars vegar er verið að opna kerfið og auka út- breiðslu þekkingar. Hins vegar er verið að loka kerfinu og takmarka útbreiðslu þekkingar. Á síðara sviðinu staría einkum Tölvunefnd og fj ármálaráðuneytið. Lokunarsinnar vilja túlka einkamál svo vítt, að það nái til feimnismála og fjármála, þar á meðal skatta, sem greiddir eru opinberum aðilum. Svo langt gengur þetta, að ætla mætti, að fyrirtæki séu sálir, sem hafi persónur og einkalíf, sem beri að vernda fyrir hnýsni að utan. Fj ármálaráðuneytið hefur gert nokkrar tih-aimir til að loka álagningarskrám skatta. Það sættir sig ekki við landslög og gaf í fyrra út ólöglega reglugerð um lokun þessara skráa. Eftir gagnrýni Alþingis var reglugerðm dregin til baka. En ráðuneytið gafst samt ekki upp. Það hefur skipað nefnd til að smíða nýjar reglur, sem fela í sér, að álagningarskrám verði lokað, en í staðinn opnaðar skattskrár, sem veita tveggja ára gamlar upplýs- ingar. Slíkar skrár eru þeim mun gagnminni sem þær eru eldri, enda er það markmið ráðuneytisins. Enginn aðili í kerfinu fer þó meiri hamförum gegn opnun þess en Tölvunefnd, sem er að kanna möguleika til afskipta af ættfræði. Var þó Vilmundur Jónsson land- læknir í eitt skipti fyrir öll búinn að brjóta þá múra, þeg- ar hann birti eyðumar frægu í fyrsta Læknatali. Nokkrir menn reyndu að koma í veg fyrir, að Vil- mundur birti nöfn líffræðilegra foreldra kjörbama. Hann leysti málið með því að taka nöfnin út, en skilja eftir nákvæmlega mældar eyður, þar sem þær æptu framan í lesendur og auglýstu það, sem ekki mátti sjá. Þannig mun einnig fara fyrir tilraunum Tölvunefndar til afskipta af þjóðaríþrótt íslendinga. Eyðumar munu skera í augu og þögnin mun æpa. Enda er nefndin kom- in langt á villigötur í sjónarmiðum sínum á landamær- um opinberra upplýsinga og einkamála. Bameignir utan hjónabands em ekki einkamál, ekki heldur lágar einkunnir embættismanna á háskólapróf- um og enn síður fjármál fyrirtækja og skattgreiðslur manna til sameiginlegra þarfa þjóðfélagsins. Þetta geta verið feimnismál, en em ekki einkamál. Sem dæmi um þetta er tjónaskrá bíla. Tjón geta verið feimnismál, en eru ekki einkamál, þegar bíll er til sölu. Þá er tjónasagan mikilvægt gagn fyrir kaupandann, svo að viðskiptin séu heiðarleg. En Tölvunefnd hefur reynt að takmarka aðgang almennings að tjónaskránni. Sjónarmið fjármálaráðuneytisins og Tölvunefndar stríða gegn anda hinna nýju upplýsingalaga og miða að því að gera þjóðfélagið ógegnsætt. Þau rugla Qármálum og feimnismálum saman við einkamál. Þau draga úr möguleikum borgaranna til að átta sig á þjóðfélaginu. Mikilvægt er, að jafnan sé fylgzt vel með afturhaldsöfl- um kerfisins og tilraunum þeirra til að varpa leyndar- hjúp einkamála yfir fjármál og feimnismál. Jónas Kristjánsson í þessum skrifuðum orðum er að því komið að úrslit biskupskosninga verði gerð heyrum kunn. Nær allir prestar og guðfræðingar landsins hafa lagt sitt lóð á vogarskálina, því kosninga- þátttaka nálgast að vera 100% og er það hið ágætasta for- dæmi. Fjórir frambjóðendur eru í kjöri, allir prýðilega hæflr, en segja má að tvö sjónarmið eigi þar fulltrúa, annars vegar rótgrónar og sterkar heföir, hins vegar uppstokkun og nýjar hug- myndir. Þeir biskupssynir Séra Karl Sigurbjömsson og séra Sigurður Sigurðarson eru báðb- synir biskupa sem voru sanntrúaðir og jafn- framt sterkir persónuleikar. Séra Karl á að baki langt starf í Hallgrímskirkjusókn. Þar hefur blómstrað öflugt menn- ingarstarf með góðri sam- vinnu margra aðila, kirkj- unni til mikils sóma. í þessari stóru sókn býr nokkm- fjöldi af fólki sem ekki hefur of mikið handa á milli, og mig minnir ég hafi heyrt hann komast vel að orði um vanda ungra hjóna: „Fyrrum fylgdi heimanmundur giftingu, en nú er unga fólkið sett á göt- una og lánskjaravísitöluna. Vettvangur séra Sigurðar hefur hins vegar verið í dreif- býlinu, nánar tiltekið á Sel- Fjórir frambjóöendur í kjöri. - Tvö sjónarmiö eiga þar fulltrúa: rótgrónar og sterkar heföir, hins vegar uppstokkun og nýjar hugmyndir. Biskupskjör - hefðir eða nýjungar? fylgst vel með rannsókn- um guðfræðinga erlend- is. Þar reyna margir snjallir hausar að því að komast nær kjamanum í lifandi orði og starfi Jesú Krists. Vídalín- spostilla, lengi biblía ís- lensku þjóðarinnar, kom út fyrir skemmstu í útgáfu sr. Gunnars og nú situr hann í stjóm Rannsóknarráðs ríkis- ins til eflingar vísind- um. Að rjúfa hugmynda- lega einangrun, það get- ur hann. Framboð séra Auðar Eir sætir þó mestum tíðindum því aldrei fyrr hefur íslensk kona boð- „Það hefur ekki faríð fram hjá neinum að kirkjan er í deiglu erf- iðrar reynslu. Erfíð mál hafa kom- ið upp, svo meinfýsnir hafa skemmt sér konunglega en guð- hrætt fólk grátið.u Kjallarinn Inga Huld Hákonardóttir sagnfræöingur fossi, ims hann fyr- ir fáum misserum fluttist sem vigslu- biskup í Skálholt. Sá staður á mikla sögu og mikið bókasafn, og séra Sigurður er tekinn til við endurreisn, eins og sjá má með- al annars í vel- heppnaðri andlits- lyftingu á gröfum fornra biskupa í kjallara kirkjunn- ar. Hann er áhuga- samur um endur- vakningu gamalla helgisiða sem geri messur áhrifameiri og dýpri upplifun, enda sjálfur söng- maður hinn besti. Þau hin Séra Gunnar Kristjánsson og séra Auður Eir Vil- hjálmsdóttir bera með sér gust af breyttum tímum og hika ekki við að ráðast á það sem þeim finnst staðnað eða úrelt. Séra Gunnar er einn mestur fræðimað- ur í hópi sóknarpresta og hefur ið sig fram til biskups. Fyrir hundrað árum eða 1891 þorðu þingmenn ekki að veita konum aðgang að embættum, m.a. vegna þeirrar skelfilegu stöðu sem upp gæti komið ef landshöfðingi og biskup væru hjón! Sögu séra Auð- ar þarf varla að rekja. Fyrir tveimur áratugum var hún eins og stakur hrafn í prestastétt, en nú eru konur í meirihluta í guð- fræðideild. Hún kemur með nýjan stO, fyndin og einlæg. Hljóölát bylting Það hefur ekki farið fram hjá neinum að kirkjan er í deiglu eif- iðrar reynslu. Erflð mál hafa kom- ið upp, svo meinfýsnir hafa skemmt sér konunglega en guð- hrætt fólk grátið. Vissulega þarf skýrari línur. En hljóðlát bylting er í gangi innan kirkjunnar, utan við kastljós fjölmiðlanna. Sem dæmi má taka að störfum flölgar sífellt á sviði félagslegrar þjón- ustu, við böm, við aldraða, við sjúka, við nýbúa... Þar eð allir frambjóðendumir eiga það sammerkt að engmn sög- um fer af illindum prests og safh- aðar í sóknum þeirra, þá megum við, óbreyttir syndarar, vera von- góð um að sjónarmið allra, hvort sem em hefðir eða nýjungar, fái að njóta sin í framtíðarstefnu kirkjunnar, hver svo sem hreppir hið háa embætti. Inga Huld Hákonardóttir Skoðanir annarra Skottulæknar stjórnunarfræða „Eins og aðrar vörur sem seldar em á markaði, þá er fjölbreytni stjómunarkenninganna alltaf að aukast og kaupendur fá aldrei nóg ... Er nokkuð und- arlegt þótt stjómendur og starfsmenn fyrirtækja ger- ist efasemdarmenn þegar nýjar kenningar flæða yfir? EðlOegt er að vera á varðbergi fyrir skottu- læknum stjórnunarfræðanna, en á sama tíma komumst við ekki hjá því að fylgjast vel með og tO- einka okkur nýjungar á sviði stjórnunar og reksturs fyrirtækja sem á öðrum sviðum." Þorkell Sigurlaugsson i Viðskiptablaðinu 3. sept. Pólitískt jafnvægi í ríkis- stofnunum? „Framundan em stööuveitingar í mikOvægum stofnunum íslenska kerfisins. Hvað verður haft til marks um verðleika umsækjenda? ... Þetta er í raun lokapróf íslenska flokkakerfisins á tuttugustu öld. Hversu langt er siðferðið komið? ... ef hugmyndin um pólitískt jafnvægi er yfirfærð á aOar þær lykO- stöður sem nú bíða skipta, er deginum ljósara að rík- isstjómarflokkanna bfður erfitt verkefni." Stefán Jón Hafstein í Degi- Tímanum 3. sept. Aflaheimild og útvarpsleyfi „MikOvægasti munurinn á útyarpsleyfum og afla- heimOdum snýr að upphafinu. Áður fyrr var öUum íslendingum leyft að veiða fisk undan landi. Fjöldi manns hafði valið sér útgerð að ævistarfi, fjárfest í dýrum tækjum og sérþekkingu á sínu sviöi. Síðan var það bannað sem áður hafði verið leyft. Með kvótakerfinu, úthlutun sérstakra aflaheimOda, var fiskimiðunum í raun lokað. Þessu var þveröfugt far- ið með útvarpsrekstur á íslandi. Áður fyrr var öUum bannað að útvarpa nema ríkinu. Aðrir stunduðu því ekki útvarpsrekstur. Síðan var það leyft sem áður var bannað." Hannes Hólmsteinn Gissurarson í Mbl. 4. sept.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.