Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1997, Page 5
24
MÁNUDAGUR 3. NÓVEMBER 1997
MÁNUDAGUR 3. NÓVEMBER 1997
íþróttir
Wenta með
Þjóðverjum
Bogdan Wenta frá Póllandi,
einn besti handboltamaður
heims um langt árabil, er orðinn
þýskur ríkisborgari. Hann lék
sinn fyrsta landsleik fyrir Þýska-
land á fóstudagskvöldið þegar
liðið burstaði Noreg, 24-14, í
undankeppni EM. Þar skoraði
hann 4 mörk og í gær bætti hann
um betur með því að skora 8
mörk í seinni leik liðanna. Þjóð-
verjar unnu þá Norðmenn í
Osló, 23-18.
Wenta er orðinn 36 ára gamall
og á að baki 180 landsleiki fyrir
Pólland. Þjóðverjar hafa samt
greinilega not fyrir þennan
snjalla leikmann sem spilar með
Nettelstedt.
-VS
Norska sam-
bandið í vanda
Norska handknattleikssam-
bandið er komið í bullandi fjár-
hagsvandræði. Skuldir þess
nema nú um 60-80 milljónum ís-
lenskra króna og mikill sam-
dráttur í starfseminni blasir við.
Skafmiðahappdrætti hefur
verið helsta tekjulind sambands-
ins síðustu árin. Það gaf um 190
milljónir króna í hagnað árið
1996, en á þessu ári er happ-
drættiö hins vegar rekið með
130-140 milljóna króna tapi.
-VS
Norskur sigur á
5 landa-mótinu
Norska kvennalandsliðið í
handknattleik hélt uppi heiöri
Norðmanna á handboltasviðinu,
ekki í fyrsta skipti, þegar það
tryggði sér í gær sigur á fimm
landa-mótinu sem lauk í Noregi í
gær. I síðustu umferðinni gerðu
Norðmenn og Þjóðverjar jafn-
teíli, 23-23, og hlutu bæði 7 stig
en norsku stúlkurnar voru með
bestu markatöluna. Rúmenar
urðu í þriðja sætinu með 4 stig,
Rússar 2 og Svíar ráku lestina
með ekkert stig.
-GH
Leikirnir við
Júgóslava
ísland og Júgóslavía mætast í
lokaumferðum Evrópukeppninn-
ar en þar ræðst endanlega hvaða
tvö lið úr riðlinum komast í
lokakeppnina á Ítalíu. Leikið
verður hér á landi 27. nóvember
en í Júgóslavíu 30. nóvember. Á
sama tima eigast við lið Sviss og
Litháen.
-VS
Island (13) 25
Utháen (9) 18
1-0, 3-0, 4-3, 6-3, 8-5,10-6,12-8, (13-9).
13-10, 15-10, 17-10, 18-12, 18-15, 19-16,
21-16, 21-17, 23-17, 23-18, 25-18.
Mörk Islands: Patrekur Jóhann-
esson 6, Valdimar Grímsson 6/1, Ró-
bert Julian Duranona 5, Ólafur Stef-
ánsson 4, Róbert Sighvatsson 2,
Bjarki Sigurðsson 1, Björgvin Þór
Björgvinsson 1.
Varin skot: Bergsveinn Berg-
sveinsson 20/1.
Mörk Litháens: Julius Marcin-
kevicius 6, Gediminas Bucys 3/1,
Giedrius Gemiaauskas 2, Andrius
Stelamokas 2, Dalius Rasikevcius 1,
Gintaras Vilaniskis 1, Robertas
Pauzuolis 1, Gintas Giedrius 1.
Varin skot: Arunas Vaskevicius
14.
Brottvísanir: ísland 8 mín, Lit-
háen 4 mín.
Dómarar: Hakanson og Nilson frá
Svíþjóö. Góðir lengstun og svoliítiö
hliðhollir íslendingum undir lokin.
Áhorfendur: 2500.
Maður leiksins: Bergsveinn
Bergsveinson. Frammistaöa hans
átti stærstan þátt í sigri íslend-
inga.
25,
Iþróttir
„Við felldum þá
á eigin bragði"
- sagði Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari
EVRÓPUKEPPNI
1. riðill:
Rúmenia-Portúgal ..........30-26
Licu 8, Besta 7, Raduta 6 - Cruz 5,
Filipe 4, Martins 4.
Makedónía-Króatía .........31-29
Markovski 7 - Cavar 10.
Portúgal-Rúmenía ..........20-24
Króatía-Makedónía .........37-27
Króatía 4 3 0 1 120-101 6
Rúmenia 4 2 0 2 97-100 4
Makedónía 4 2 0 2 121-127 4
Portúgal 4 1 0 3 107-117 2
2. riðill:
Ísland-Litháen.............25-18
Júgóslavía-Sviss...........36-22
Júgóslavía 4 2 2 0 113-93 6
ísland 4 2 1 1 110-104 5
Litháen 4 1 1 2 98-108 3
Sviss 4 0 2 2 99-115 2
3. riðill:
Frakkland-Slóvenia.........26-24
Tékkland-ísrael............24-23
Frakkland 4 4 0 0 110-85 8
Tékkland 4 2 1 1 102-98 5
Slóvenía 4103 98-107 2
ísrael 4013 85-105 1
4. riðill:
Þýskaland-Noregur ........24-14
Stephan 5, Wenta 4, Schwalb 3,
Schwarzer 3 -
Noregur-Þýskaland ........18-23
Vatne 6, Oustorp 3, Kjendalen 3 -
Wenta 8, Kretschmar 4, Schwarzer 4.
Spánn-Slóvakia ............33-23
Spánn 4 2 1 1 107-89 5
Þýskaland 4 2 1 1 86-80 5
Slóvakía 4 2 0 2 105-115 4
Noregur 4 1 0 3 88-102 2
5. riðill:
Ungverjaland-Danmörk . . . 22-17
Eles 9, Pasztor 5, Sotonyi 4 - Nikolgj
Jacobsen 4, Klaus Bruun Jörgensen 3.
Svíþjóð-Pólland.............26-21
Frándesjö 9, Lövgren 5, Wislander 4,
Olsson 4 - Nowakowski 5, Orzlowski
4, Jurasik 4, Gowin 4.
Ungverjal. 4 3 1 0 96-83 7
Svíþjóð 4301 101-88 6
Danmörk 4 1 1 2 85-92 3
Pólland 4 0 0 3 86-105 0
Christian Hjermind, einn besti
leikmaður Dana, meiddist á æfmgu
nokkrum timum fyrir leikinn í
Ungverjalandi og lék ekki með.
Inaki Urdangarin lék sinn fyrsta
landsleik með Spáni eftir að hann
giftist Kristinu Spánarprinsessu í
haust. Hann skoraði 5 mörk gegn
Slóvakíu.
Frakkar og Ungverjar tryggðu sér
um helgina sæti í lokakeppninni á
Italíu. -VS
Hvernig fannst Kristjáni Arasyni leikur íslenska liðsins?
Mjög heilsteypt
- frábær árangur að vinna Litháa með sjö mörkum
Kristján Arason, margreyndur
landsliðsmaður og þjálfari toppliðs
FH í 1. deildinni, var að sjálfsögðu
á meöal áhorfenda í Kaplakrika í
gær. DV náði tali af Kristjáni
skömmu eftir að sænsku dómar-
amir höfðu flautað leikinn af og
báðu hann að gera leikinn upp.
„Mér fannst íslenska liðið spila
þennan leik virkilega vel. 3:3 vörn-
in var geysilega sterk og hún virt-
ist koma Litháunum mikið á óvart.
Fyrir vikið áttu Litháarnir í erfið-
leikum með að spila sig fría fram-
an af leik. Svona vörn kostar mikla
vinnu og krefst mikils úthalds og
Þorbjörn breytti henni á hárréttum
tíma í 6:0 þegar um 15 mínútur
voru eftir. Bergsveinn var virki-
lega góður í markinu en það hjálp-
aði honum mikið að skyttur Lihá-
anna höfðu ekki mikinn tíma. Það
var því fyrst og fremst vörnin og
markvarslan sem skópu þennan
frábæra sigur.“
- Hvað með sóknarleikinn?
„Sóknin átti stundum í erfiðleik-
um en menn voru að spila vel til
skiptis. Patrekur skoraði mikilvæg
mörk í seinni hálfleik, Ólafur lék
mjög vel í fyiTÍ hálfleik, spiiaði
leikmenn upp og skapaði færi,
Duranona átti góðan kafla i fyrri
hálfleik og skoraði þá mjög góð
mörk. Þá átti Valdimar Grímsson
mjög góða innkomu og nýtti færi
sín vel. Róbert Sighvatsson er að
veröa gífurlega sterkur á línunni.
Hann var sívinnandi í blokkering-
um og spilaöi sig í færi. í heildina
séð var þetta mjög heilsteyptur
leikur hjá íslenska liðinu í vörn
sem sókn.
Að vinna 7 marka sigur gegn
þessu sterka liði Litháa er frábær
árangur. Við fengum að vísu að
brjóta nokkuð mikið á þeim og
dómararnir leyfðu þeim það. Þess
vegna gekk það upp að leika þessa
3:3 vöm.“
- Er ekki útlitið bjart eftir
þennan sigur?
„Þetta lítur miklu betur út núna
eftir þennan góða sigur en viö þurf-
um samt að vinna sigur á Júgóslöv-
um. Litháarnir era sterkir og hafa
alla burði til að vinna Sviss tvíveg-
is svo við megum hvergi slaka á.“
- Þarf að breyta íslenska lið-
inu fyrir leikina gegn Júgó-
slavíu?
„Eins og liðið var í þessum leik
sé ég ekki neina ástæðu til þess að
breyta því, alla vega ekki í þessum
aðalstöðum ef hægt er að tala um
þær. Þessi leikur var einn besti
leikur landsliðsins í langan tíma og
við þurfum leik eins og þennan tii
þess að leggja Júgóslavana að
velli,“ sagði Kristján að lokum.
-GH
Allt annað var að sjá til íslenska lands-
liðsins í handknattleik þegar að það mætti
Litháum í síðari leik þjóðanna í riðla-
keppni Evrópumótsins í Kaplakrikanum í
gærkvöldi. Það vora þrír þættir sem lögðu
grunninn að þessum sigri, markvarsla
Bergsveins, vamarleikurinn og síðast en
ekki sist stuðningur áhorfenda. 2500 áhorf-
endur troðfylltu Krikann og minnti stuðn-
ingur þeirra óneitanlega á gömlu góðu dag-
ana þegar Höllin var alltaf full.
Með sigrinum vænkaðist hagur Islend-
inga að nýju í riðlinum og liðið gulltryggir
sig í úrslitakeppni mótsins með sigri á
Júgóslövum í Reykjavík í lok þessa mánað-
ar. íslenska liðið hafði tögl og hagldir í
Krikanum í gærkvöldi. Litháar vora samt
aldrei langt undan en mestur var munur-
inn sjö mörk í byrjun síðari hálfleiks og
munurinn var sá sami þegar upp var stað-
ið, 25-18. Bergsveinn Bergsveinsson gaf
tóninn strax í byrjun en hann var eldheit-
ur i markinu allan tímann. Vömin var
geysisterk ef undan er skilinn smákafli í
síðari hálfleik. Sóknin var nokkuð beitt en
þó aldrei beittari en í lokakafla leiksins.
Litháar gripu til örþrifaráða þegar liða tók
á leikinn, léku þá maður á mann en allt
kom fyrir ekki. íslendingar bættu við jafnt
og þétt og uppskára sjö marka sigur. ísland
er sigurvegari tveggja viðureigna gegn Lit-
háum vegna hagstæðra markahlutfalls.
Með sama vamarleik gegn Litháum í
Kaunas hefði ekki þurft að spyrja að
leikslokum. Vörnin var þar liðinu að falli.
Það er hægt að hrósa liðinu fyrir margra
hluta sakir. Þorbimi Jenssyni tókst að
berja vömina í hausinn á strákunum. Þeg-
ar hún er í lagi hrekkur markvarslan í
gang og það gerði hún með eftirminnileg-
um hætti í gærkvöldi.
Bergsveinn Bergsveinsson átti stórleik,
varði á stundum stórkostlega á mikilvæg-
um augnablikum. Valdimar Grímsson, sem
ekki átti heimangengt i fyrri leiknum, var
gífurlega drjúgur og þá alveg sérstaklega á
lokakaflanum. Patrekur Jóhannesson óx
ásmegin eftir því sem á leikinn leið og
skoraði nokkur dýrmæt mörk úr erfiðum
færum á lokakaflanum. Julian Robert
Duranona var sterkur í fyrri hálfleik en
var ekki eins áberandi í síðari hálfleik. Lit-
háar gættu hans þá mjög vel. Geir Sveins-
son lék að mestu í vöminni og skilaði þar
sínu hlutverki með sóma, mun betur en í
fyrri leiknum. Róbert Sighvatsson kom inn
á línuna í sóknarleiknum og komst ágæt-
lega frá sínu þótt nýting hans hefði mátt
vera betri. Það hentar íslenska liðinu illa
að leika gegn vörn eins og Litháar beita.
Framundan er gríðarlega mikilvægur leik-
ur gegn Júgóslövum sem era með bestu
stöðuna í riðlinum eftir stórsigur á Sviss
um helgina. íslenskir áhorfendur hlýddu
kallinu í gærkvöldi og skiluðu hlutverki
sínu með sóma. Það er vonandi að þeir geri
það einnig í næsta leik.
-JKS
„Gamla góða baráttan skóp þennan sigur
„Það er engin spuming að það var
gamla góða baráttan í vörninni sem skóp
þennan sigur og markvarslan var frábær.
Beggi gaf okkur tóninn með frábærri
byrjun sem skiptir miklu máli í svona
leik. Við vorum hins vegar kannski að
gera full mikið af feilum í sókninni, nýta
illa færin og láta markvörö þeirra verja
full mikið hjá okkur. En við gátum leyft
okkur það með því að vera að spila svona
góða vöm,“ sagði Geir Sveinsson, fyrirliði
íslenska landsliðsins, við DV eftir leikinn
í Krikanum í gær.
„Það má eiginlega segja að við höfum
spilað þeirra vörn í þessum leik sem
eflaust hefur komið þeim á óvart. Við
tókum þá ákvörðun að spila þetta nánast
maður á mann og það gekk vel upp enda
stuðningur áhorfenda hér í kvöld alveg
frábær og það munar mikið um slíka
aðstoð," sagði Geir Sveinsson. -ÖB
„Eins og í gamla daga“
„Vörnin small saman og þá kemur markvarslan um leið. Það
var mjög gott að ná að byrja svona vel og stemningin í húsinu
var frábær. Þetta var bara eins og í gamla daga með FH í úrslita-
keppninni gegn Selfyssingum," sagði Bergsveinn Bergsveinsson
markvöröur en hann átti stórleik í markinu í gær og kunni
greinilega vel við sig á sínum gamla heimavelli.
„Þeir eru með miklar skyttur sem oft er erfitt að eiga við en
strákamir tóku þá hreinlega í nefíð í kvöld og það var alveg
meiriháttar gaman að spila þennan leik.“ -ÖB
léttist nokkuð
„Já, það er alveg öraggt að brúnin léttist nokkuð hafi hún verið farin
að síga eftir leikinn gegn Litháum úti. Þetta var alveg meiriháttar leikur
og góður baráttusigur. Þegar liðið spilar svona eru ekki mörg liö sem
standast þeim snúning, vörnin var frábær og allir skiluðu sínu með
sóma. Þaö er búið að taka Höllina frá fyrir leikinn gegn Júgóslövum en
það á svo bara eftir að ræða það við þjálfarann hvort hann vilji kannski
spila frekar aftur hér i Krikanum. Ég er bjartsýnn fyrir leikina gegn
Júgóslavíu. Ég er í rauninni alltaf bjartsýnn þegar íslenska liðið er
annars vegar,“ sagði Guðmundur Ingvarsson, formaður HSÍ. -ÖB
Patrekur Jóhannesson lyftir sér og skorar eitt sex marka sinna gegn Litháen í Kaplakrika í gærkvöld. Róbert Sighvatsson er viö öllu búinn á línunni. Á litlu myndinni fagna Patrekur, Ólafur Stefánsson og
mikilvægum áfanga í Evrópukeppninni. Eftir þennan sigur er staöan sú aö meö því að ná í tvö stig úr tveimur leikjum viö Júgóslava um næstu mánaöamót tryggir íslenska liöiö sér sæti í lokakeppninni á
Ítalíu næsta vor.
DV-myndir Brynjar Gauti
„Það er rétt að ég ætlaði að fella
þá á eigin bragði. Ég hugsaði þetta
þannig að þeir kæmu til með að
reikna með því að við myndum
spila 5+1 á sexuna hjá þeim sem var
okkur erfiður úti en við höfum oft
verið að spila þessa vöm vel og tók-
um hana vel í gegn á æfmgum nú
fyrir þennan leik. Ég var hins vegar
dálítið smeykur um að við myndum
ekki ná að halda þessa vöm út allan
leikinn og því bökkuðum við dálítið
í lokin,“ sagði Þorbjöm Jensson,
landsliðsþjálfari, hress í bragði eftir
leikinn gegn Litháum í Kaplakrika í
gærkvöldi enda öruggur og mikil-
vægur sigur íslenska liðsins í höfn.
„Þegar maður er að eiga við þjálf-
arana í þessari baráttu er maður oft
að hugsa um hvað hann muni koma
til með að gera og ég svona ímynd-
aði mér það að þeir mynda kannski
koma út og taka tvo eða jafnvel
detta alveg til baka eins og þeir í
rauninni gerðu í byrjun. Þegar fór
svo að líða á kom hann með liðið að-
eins framar á völlinn en þó aldrei
eins framarlega og þeir gerðu úti.
Vömin hjá okkur í þessum leik
var hins vegar frábær enda erum
við að fá á okkur 18 mörk í kvöld
sem er heilum 14 mörkum færra en
úti í Litháen. Grimmdin var til staö-
ar og það er gott að láta þá finna fyr-
ir sér strax í byrjun enda ætlaði ég
svo sannarlega að láta Litháa muna
eftir dvölinni á Islandi."
„Það að Júgóslavar skuli vinna
Svisslendinga með 14 marka mun
kemur í sjálfu sér ekki mjög á óvart
en ég hafði spáð þvi að þeir myndu
sigra með svona átta mörkum.
Svisslendingar hafa greinilega ekki
þolað pressuna. Næsti leikur hjá
okkur, heima gegn Júgóslövum, er
algjör lykilleikur sem hreinlega
verður að vinnast því riðillinn er
galopinn og öll liðin geta séð mögu-
leika í stöðunni," sagði Þorbjörn í
lokin.
-ÖB
- eftir góðan sigur íslands á Litháen í Kaplakrika í gærkvöld, 25-18