Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1998, Qupperneq 2
i6 Hk'ikmyndir
Ást í skugga ofbeldis ★★★
Carlos Saura og
Petro Almodóvar eru
þeir leikstjórar
spænskir sem hafa
átt greiðustu leið
með myndir sínar á
heimsmarkaðinn.
Almodóvar hefur
verið meira áberandi
undanfarin ár, en
Saura hefur ekki síð-
ur verið að gera at-
hyglisverðar myndir
sem minna hefur far-
ið fyrir. Taxi er inni-
haldsrík kvikmynd
sem er snilldarlega
kvikmynduð af
ítalska meistaranum
Vittorio Storaro. I myndinni takast kynslóðir á um hvað sé rétt og hvað
sé rangt og í Taxi sjáum við þjóðerniskennd í sinni verstu mynd. Stutt
er i fasismann sem Spánverjar urðu að húa við í áratugi og satt best að
segja er í einni persónunni, Calero, leifarnar af lögregluríkinu.
Taxi er séð með augum ungrar stúlku, Paz, sem feOur á prófi í há-
skóla. í kjölfarið segir hún kærastanum upp og lætur snoðklippa sig, fóð-
ur hennar, leigubílstjóranum Valesco, til mikillar reiði. Hann ákveður
að hún skuli verða leigubílstjóri, að láta hana keyra á móti sér. Þessi
ákvörðun hans fellur ekki vel í kramið hjá „Fjölskyldunni", hópi leigu-
bílstjóra sem stunda þá iðju í skjóli nætur að losa þjóðfélagið við það
sem þeir kalla aðskotadýr. í þeim hópi eru litaðir innflytjendur, eitur-
lyQaneytendur og samkynhneigðir. Þeir hafa ástæðu til að halda að Paz
sjái ekki lífið í Madrid með sömu augum og þeir og hafa þar rétt fyrir
sér. Paz er haldin rikri réttlætiskennd sem er á skjön við hugmyndir
„Fjölskyldunnar". Paz kynnist og verður ástfangin af gömlum æskuvini,
Dani, en móðir hans er ein úr „Fjölskyldunni". Ást hennar er endurgold-
in og er ekki annað að sjá en þau séu sköpuð hvort fyrir annað. „Fjöl-
skyldan" er á móti þessu sambandi þar sem Dani er ætlað mikið verk
við að losna við óæskilegt fólk og er hann móttækilegur fyrir þeim skoð-
unum sem þrýst er upp á hann.
Taxi er sterk þjóðfélagsádeila og eins konar uppgjör við fasismann á
Spáni. Carlos Saura hefur í myndum sínum oftar en ekki fært dramat-
ískan söguþráð í listrænan búning og gerir það hér. Mótvægið við fasis-
mann er Paz, sem Ingrid Rubio leikur af mikilli innlifun og næmi fyrir
persónunni, innileg ást hennar og Dani er feguröin í myndinni en dæmd
til að misheppnast nema miklu verði fómað á móti.
Taxi er gefandi mynd þar sem kafað er djúpt í mannlegar tilfmning-
ar, raunsæ og áhrifarík mynd sem skilur mikið eftir sig.
Taxi: Leikstjóri: Carlos Saura. Handrit: Santiago Taberno. Kvikmyndataka:
Vittorio Storaro. Aðalleikarar: Ingrid Rubio og Carlos Fuentes.
Hilmar Karlsson
Regnboginn - A Life Less Ordinary:
Englar, en engin eiturlyf ★★i
Það þurfti engan
að undra að vinsæld-
ir þríeykisins Danny
Boyle (leikstjórn),
Andrew Macdonald
(framleiðandi) og
John Hodge (handrit)
myndu á endanum
valda fráhvarfsein-
kehnum. Það sama
gerðist með Tar-
antino og Fincher og
á eftir að koma fyrir
fleiri. Ferð þeirra fé-
laga til Hollywood
olli heilmiklum um-
ræðum og dómsdags-
spám og afraksturs-
ins þaðan hefur verið
beðið með eftirvænt-
ingu blandaðri dálítilli illkvittni.
Líklegast er ég því að falla í klassíska gagnrýnendagildru þegar ég lýsi
yfir nokkram vonbrigðum með A Life Less Ordinary. Myndin segir frá
verkefni tveggja engla til að endurreisa sanna ást á jörðu (eða allavega
Bandaríkjunum). Veröandi elskendurnir tveir eru eins ólíkir og hægt
er; ríka og spillta stúlkan Celine (Cameron Diaz) og blanki draumóra-
maðurinn Robert (Ewan McGregor) eru bókstaflega sitt i hvoram enda
þjóðfélagssfigans; hann niðri í kjallara að skúra (og meira að segja rek-
inn þaðan) og hún uppi á efstu hæð á skrifstofu pabba, sem á fyrirtæk-
ið. Robert rænir Celine í misheppnuðu reiði- og hefndarkasti og eru ör-
lög þeirra tveggja þar með væntanlega ráðin.
Fyrri hlutinn er bráðskemmtilegur, ekki sist vegna hinna stórfurðu-
legu engla, sem, blankir og pirraðir á jarðlífinu, beita hinum ýmsu ráð-
um til að komá parinu saman, m.a. ráða þau sig sem leigumorðingja hjá
pabbamun og skrifa blautlegt ástarljóð. En svo fer að halla undan fæti og
það er eins og botninn detti úr öllu saman. Handritiö rennur út í sandinn
og skringileikinn í samskiptum manna, kvenna og engla verður of ýktur
og uppskrúfaöur til að vera sjarmerandi. Mannránsplottið er þunnt tO að
byrja með, en með góðmn töktum - og góðu handriti - í fyrri hlutanum
tekst McGregor og Diaz að halda því á flugi (þó það hljóti að vera ákaf-
lega ólíklegt að nokkur kona geti fallið fyrir manni með svona hallæris-
lega klippingu), en svo var eins og hugmyndaflugið entist ekki alla leið.
Leikstjórn: Danny Boyle. Handrit: John Hodge. Aðalhlutverk: Ewan
McGregor, Cameron Diaz, Holly Huntér, Delroy Lindo, Dan Hedaya, lan
R°lm- Úlfhildur Dagsdóttir
FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1998
Er vinsæli kennarinn
jafnundrandi og unnusta Howards
en brúkaupið stóð fyrir dyrum. En
það er ekki aðeins í Greenleaf sem
uppi verður fótur og fit. Nú telja
fréttahaukar sjónvarpsstöðvanna
víst sé að Howard sé fyrrum
elskhugi Hollywoods-
tjömunnar og í far
arbroddi
þeirra
Peter
Malloy
sem er
ákveðinn
í að
komast
til
botns
í mál-
andi. Þá má
nefna Debbie
Reynolds, Wilford
Brimley og Bob
homm?
Newhart, allt
þekktir
að
mu
og
fer
með
töku-
æ
Sam-bíóin í Álfabakka og Stjörnu-
bíó frumsýna í dag gamanmyndina Á
báðum áttum (In & Out), kvikmynd
sem hefur verið vinsæl i Bandaríkj-
unum í vetur. í myndinni leikur
Kevin Kline kennarann Howard
Brackett sem heldur betur fær að
kenna á almenningsálitinu. Allt byrj-
ar þetta þegar fyrrverandi nemanda
hans, sem orðinn er stórstjarna í
Hollywood, verður það á í ræðu við
afhendingu óskarsverðlaunanna að
efast um kynferði hans. Eins og nærri
má geta verður allt vitlaust í smá-
bænum Greenleaf þar sem Howard er
vinsæll kennari og víst er að allur
bærinn hefur fylgst með sjónvarpsút-
sendingunni. Nemendur hans verða
jafnundrandi og aðrir og fara strax að
rifja upp framferði hans. Jú, hann er
mikið fyrir ljóð og Shakespeare og er
grunsamlega hrifmn af Barbra
Streisand, allt gæti þetta bent til þess
að hann sé hommi. Enginn verður þó
Kevin Kline leikur kennarann Howard Brackett sem fær
óvænt vandamál til að glíma við.
Vandamálin
rædd.
Debbie
Reynolds,
Joan Cusack
og Kevin
Kline í hlut-
verkum sín-
um.
lið til bæjarins.
Auk Kevins Kline
leika stór hlutverk í
myndinni Tom Sel-
kleck, sem leikur
sjónvarpsfrétta-
manninn, hann er
ekki allur þar sem
hann er séður, eins
og fram kemur,
Joan Cusack leikur
kærustuna, sem
Howard hefur verið
með í ein þrjú ár, og
Matt Dillon leikur
nemandann fyrrver-
leikarar sem bregður fyrir í minni
hlutverkum í myndinni.
Allt frá því Kevin Kline lék í sinni
fyrstu kvikmynd, Sophie’s Choice,
þar sem hann lék á móti Meryl Stre-
ep, hefur hann verið eftirsóttur. í
fyrstu var hann mun meira í drama-
tískum hlutverkum, hvort sem var í
leikhúsi eða kvikmyndum, en
frammistaða hans í A Fish Called
Wanda, sem færði honum óskarsverð-
laun, sýndi að hann hefur einnig
mikla hæfileika sem gamanleikari og
er í fremstu röð sem slíkur í Holly-
wood. -HK
Frank Oz ásamt Tom Selleck við
tökur á In & Out.
Frank Oz
Leikstjóri In & Out er Frank Oz,
fyrrum nánasti starfsmaður Jim
Hensons, þar sem hann var meðal
annars rödd Fozza björns og Svínku.
Hann og Jim Henson kynntust þegar
þeir voru báðir í menntaskóla árið
1963. Þegar Henson flutti til New
York og hóf gerð brúðusmiðju sinnar
fékk hann Oz til að koma og vera sér
til aðstoðar og hélst samstarfið allt
þar til Henson lést langt um aldur
fram. Þegar Prúðu leikararnir færöu
sig yfir í kvikmyndirnar hóf hann
feril sem leikstjóri.
Frank Oz hefur einnig leikið smá-
hlutverk í kvikmyndum, má meðal
annars sjá honum bregða fyrir í The
Blues Brothers, An American Were-
olf in London og Spies Like Us, sem
allar voru leikstýrðar af John Landis.
Þá má geta þess að Frank Oz var
Yoda í Stjömustríðsmyndunum The
Empire Strikes Bac og The Return of
the Jedi, skapaði persónuna og var
rödd hennar. Hér á eftir fer listi yfir
þær kvikmyndir sem Frank Pz hefur
leikstýrt:
The Dark Crystal, 1983
The Muppets Takes Manhattan, 1984.
Little, Shops of Horrors, 1986
Dirty Rotten Scoundrels, 1988
What About Bob? 1991
Housesitter, 1992
The Indian in the Cupboard, 1995
In & Out, 1997 -HK
TOPP 2 0
í Bandaríkjunum
- aðsókn dagana 16. til 19. janúar Tekjur í mllljónum dollara og heildartekjur
Titanic slær metin
Hinar ótrúlegu vinsældir Titanic halda
áfram aö koma sérfræöingum á óvart.
Á aöeins 32 dögum er hún aö nálgast
250 milljóna dollara markiö og hefur
engin kvikmynd ájafn skömmum tíma
náö því. Því er nú spáö aö þegar upp
veröi staðið þá muni Titanic hafa hal-
aö inn í Bandaríkjunum þær 350 millj-
ónir dollara sem þarf til aö endar nái
saman og þá er allur heimurinn eftir. Hér
á landi eins og annars staöar hefur veriö mikil aösókn aö Titanic. Fullt
er nánast á allar kvöldsýningar og um síðustu helgi þurfti fólk frá aö
hverfa ef þaö kom ekki á skikkanlegum tíma fýrir sýningu, slík var aö-
sóknin.
Stóru aösóknartölurnar um síöustu helgi skýrast af því aö frídagur var
í Bandaríkjunum síöastliöinn mánudag og því er aösóknin miöuö viö
fjóra daga I staö þriggja. Ný mynd er í þriöja sæti listans, sakamála-
rpyndin Fallen meö Denzel Washington og John Goodman í aöalhlut-
verkum. Rétt fyrir aftan er Hard Rain og þaö þótti merkilegast viö hana
aö ein aöalstjarna myndarinnar, Christian Slater, þurfti aö fara í fang-
elsi daginn eftirfrumsýningu. -HK
Tekjur Heildartekjur
Jack Nlcholson hefur fenglö mikiö lof
fyrir lelk slnn í As Good as It Gets.
1. (1) Titanic 36.014 242.748
2. (2) Good Will Hunting 13.707 37.302
3. (-) Fallen 10.401 10.401
4. (3) As Good as It Gets 10.028 66.831
5. (-) Hard Rain 8.009 8.009
6. (-) Half Baked 7.722 7.722
7.(4) Wag the Dog 6.472 17.975
8. (5) Tomorrow Never Dles 6.336 111.815
9.(6) Mouse Hunt 5.490 52.033
' 10.(10) Amistad 3.341 35.032
11. (-) Star Kid 2.958 3.033
12. (7) Firestorm 2.132 6.992
13. (8) Jackie Brown 1.981 36.609
14. (9) Scream 2 1.939 93.597
15. (-) Kundum 1.620 1.948
16. (13) The Boxer 1.440 3.920
17. (12) Flubber 1.225 87.190
18. (15) For Richer or Poorer 1.060 27.974
19. (-) The Full Monty 1.034 36.845
20. (17) Deconstruction Harry 0.961 8.043
rsr*3