Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1998, Side 3
JLJV FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1998
Jean-Pierre Jeunet
Það vakti furðu margra þegar
franska leikstjóranum Jean- Pierre
Jeunet var fengið það verkefni að
leikstýra Alien: Resurraction, en
er þó skiljanlegt þegar hin frábæra
kvikmynd hans The City of Lost
Children er skoðuð en hún hefur
mjög sterk myndrænt yfirbragð og
sterk höfundareinkenni, mynd
sem ekki gleymist fljótt vegna stíls.
Myndsköpun skiptir miklu máli i
Alien-myndunum og þann heim
sem Jeunot skapaði í The City of
Lost Children er auðvelt að færa
yfir í framtíðina. Jeunot er þekkt-
astur fyrir tvær kvikmyndir:
Delicatessen og The City of Lost
Children, báðar myndirnar hafa
verið verðlaunaðar í bak og fyrir
og fengið mikið hól fyrir sérstaka
framsetningu efnis og myndstíl.
Delicatessen, sem er svört
kómedía um ástir og mannát, var
fyrsta kvikmyndin sem Jeunot
leikstýrði. Hann og nánasti sam-
starfsmaður hans, Marc Caro,
höfðu áður unnið saman að gerð
stuttmynda, tónlistarmyndbanda
og sjónvarpsauglýsinga í ein tíu ár
á timabilinu 1980-1990 og þar sköp-
uðu þeir þann stil sem síðan er
orðið vörumerki þeirra.
Jean-Pierre Jeunet býr í París.
Hann
byrjaði
feril sinn
í teikni-
myndum
og fékk
ein
mynda
hans,
Flóttinn,
César-
verð-
launin
árið
1981. í kjölfarið fylgdu fleiri stutt-
myndir sem unnu til margra verð-
launa og á síðasta áratug fóru
stuttmyndir hans, hvort sem þær
voru leiknar eða teiknaðar, á kvik-
myndahátíðir um allan heim og
höfðu alltaf erindi sem erfiði. -HK
Fjórða Alien-myndin:
Ripley klónuð
og ævintýrið heldur áfram
Ahen: Resurrection er flórða mynd-
in í frægustu geimhrollvekjuseríu
kvikmyndanna. Allt byrjaði þetta með
Alien, sem Ridley Scott leikstýrði af
mikilli snilld og tókst að breyta hugar-
fari almennings gagnvart geimverum.
Hann bjó tfl lifandi drápsvél sem gerði
það að verkum að ungir menn með
stjömur í augunum vegna dýrkunar á
geimforum og þeim ævintýraheimi
sem hafði verið sýndur í kvikmyndum
komust snögglega niður á jörðina og
blikið úr augum þeirra hvarf. James
Cameron fylgdi í kjölfarið með hinn
frábæm Aliens, þar sem það tókst sem
yfirleitt tekst ekki; að gera ekki síðri
framhaldsmynd, betri að margra áliti.
Nokkur ár liðu þar til þriðja Alien-
myndin, Alien3, leit dagsins ljós. Henni
leikstýrði David Fincher, sem var að
hefja feril sinn, og þótti hún standa fyr-
irrennurunum tveimur langt að baki.
Hefúr Fincher, sem síðan hefur gert
Seven og The Game, viðurkennt að
reynsluleysi hafi háð honum að mörgu
leyti við gerð Alien3.
Flestir héldu að með Alien3 væri
búið að klára myndaflokkinn, enda að-
alpersónan Ribley, sem Sigoumey
Weaver hafði túlkað eftirminnilega í
öllum myndunum, látin deyja drottni
sínum, vitandi það að hún ber undir
belti einn óskapnaðinn í viðbót. Ekki
vom allir sáttir við
þessi málalok og því
var fljótlega eftir Ali-
en3 farið að huga að
framhaldi og fyrst
hægt var að klóna
kindina Dolly því
ætti ekki að vera
hægt að klóna Ripley
tvö hundrað árum
eftir að Alien3 er lát-
in gerast?
í Alien: Resurrect-
ion er Sigoumey
Weaver sem sagt mætt aftur í hlut-
verk Ripleys og er vígalegri en
nokkra sinni fyrr. Auk hennar
leika í myndinni Winona Ryder,
Ron Perlman, Dan Hedaya, J.E.
Freeman, Brad Dourif og Michael
Wincott.
Handritshöfundur myndarinn-
ar er Joss Whedon. Hann hafði verið
mikill aðdáandi Alien-seríunnar og
kom með hugmynd að framhaldi. Þeg-
ar hugmynd hans var samþykkt beið
hann ekki boðanna og byrjaði. Segfr
hann það hafa hjálpað sér mikið
hversu vel hann þekkti fyrri myndfrn-
ar: „Það var fyrst og fremst tvennt
sem þurfti að huga að; hvemig
hægt væri að gera nýja Alien
mynd sem væri ekki á skjön við
fyrri myndirnar og svo stærsta
vandamálið að ná Ripley
aftur inn i söguna án þess
að það væri of hallæris-
legt.“ Það fór líka svo að
þessi hluti handritsins var
erfiðastur og má segja
allt snúist um endur-
komu Ripleys.
Sigourney Weaver
hefúr nú leikið í fjórum
Alien-myndum og enginn
er kominn til að segja að
ekki verði fleiri myndir
gerðar. Að vísu gekk Alien
Resurrection ekkert
allt of vel í
Bandaríkj-
unum en
náði þó
þokka-
legri að-
sókn og
þegar
upp er
staðið
verður
ömgg-
lega
ekkert
tap
mynd-
inni
rándýr
hafi ver-
Sigourney
Weaver
leikur
Ripley í
fjórðu Alien-
myndinni.
ið. Samstarf Weaver og franska leik-
stjórans Jean-Pierre Jeunet var með
miklum ágætum og það skemmdi ekki
fyrir að Weaver talar reiprennandi
frönsku. Jeunet segir það hafa verið
mikla upplifun að vinna með Weaver.
„Ég hef lengi fylgst með ferli hennar og
að vinna með henni var krefjandi en
um leið skemmtilegt. Hún er mikil at-
vinnumanneskja, veit nákvæmlega
hvemig hún vill hafa hlutina en tekur
um leið vel leiðbeiningum. Oft stóð ég
eins og áhorfandi og fylgdist með
henni leika og gat ekki annað en
klappað þegar atriðinu lauk. Mitt starf
var að stýra henni rétt áfram eins og
ég sá myndina fyrir mér en ég lét hana
um að ráð leiknum."
Alien: Resurracton er frumsýnd í
dag í Háskólabíói, Laugarásbíói og
Borgarbíói á
Akureyri.
-HK
Laugarásbíó/Háskólabíó -
Alien: Resurrection ...
Hefur sig upp
yfir gallana
Upprisa geimveru Gigers visar í þaö tvöfalda
áfall sem hún varð fyrir í mynd Davids
Finchers, þar sem hún annars vegar dó (í
myndinni) og hins vegar féll (úti á markaðn-
um). Það er ekki auðvelt að gefa einhvers kon-
ar hlutlægt mat á nýjasta klónann i seríu sem
þessari sem hefur verið einstök bæði að gæðum
og áhrifamætti. Bæði er tilhneigingin sú að for-
dæma allt sem ekki nær (næstum ómögulegri)
fullkomnum fyrstu myndarinnar og á hinn bóg-
inn slær sú mynd óhjákvæmilega ákveðnum
ljóma á hvaða Alien-framleiðslu sem er og
þannig er hætta á upphafningu á utanaðkom-
andi forsendum.
Alien: Resurrection gerist 200 árum eftir
Alien 3. í stóra herskipi úti í geimi hefur Ripley
verið klónuð og geimveradrottningin inni í
henni um leið. Arftakar „Fyrirtækisins" úr
fyrri þremur myndunum hafa sömu stefnuskrá
og það; að nota geimverana í hemaðarlegum
tilgangi og ala drottninguna upp til útungunar
eggja og síðan - með hjálp nokkurra frosinna
fómcirlamba - fullvaxinna geimvera. Ripley-
klóninn liflr óvænt af brottnám drottningarinn-
ar og fær að leika nokkuð lausum hala (!) í skip-
inu, þrátt fyrir að ljóst sé að hún er ekki með
öllu mennsk, heldur að hluta geimversk, eftir
sambúðina með geimveragenum í tilraunaglös-
um. Og síðan sleppa geimverumar „óvænt“ út
úr geimveruheldum klefum vísindamannanna
og upphefja sín klassísku vinnubrögð við fólks-
fækkun og almennt niðurrif, á meðan drottn-
ingin kemur sér fyrir á heitum stað og fjölgar
sér. Ripley slæst í hóp með „sjóræningjum"
þeim sem höfðu séð hernum fyrir frosnu fórn-
arlömbunum og leggst á flótta um ganga og
ranghala þá sem ævinlega eru ómissandi hluti
af allri framtíðar-
geimhönnun, með
alla geimverusúp-
una á eftir sér.
Alien: Resurrect-
ion er langt í frá
gallalaus og kemur
þar sérstaklega til
illa hugsaður og
klúðurslegur endir,
en að mínu mati
nær myndin að
hefja sig upp yfir
gallana. Fránski
leikstjórinn Jean-Pi-
erre Jeunet kemur
inn í Alien-seríuna
með sína einstöku
sýn og tekst hér
ákaflega vel upp í að
gefa henni nýtt
framhaldslíf. Hand-
ritshöfundurinn
Joss Whedon gerir líka góða hluti, en það er
fyrst og fremst hinn myndræni samruni Borgar
týndu barnanna og Alien sem gerir þessa mynd
að sannri ánægju. Geimverurnar era glæsilegri
en nokkru sinni (sérstaklega í sundatriðunum),
persónur og leikendur eru hver öðrum
skemmtilegri, en eins og alltaf er það Sigourney
Weaver sjálf, drottning geimveranna, sem
stendur upp úr og nýtur sín greinilega í sínu
tvíræða og varhugaverða hlutverki. Myndin
stendur og fellur með henni og hún hefur sjald-
an verið betri en einmitt nú þegar samband
hennar við geimverana hefur loksins verið op-
inberað.
Leikstjóri: Jean-Pierre Jeunet. Handrit: Joss
Whedon. Aðalhlutverk: Sigourney Weaver,
Winona Ryder, Dominique Pinon, Ron Perlman,
Gary Dourdan, Michael Wincott, Dan Hedaya,
geimverur. Úlfhildur Dagsdóttir
kvikmyndir-
Tomorrow Nc-ver Dies
Bond þarf hér að fást viö athyglissjúkan
fjölmiðlamógúl með hjálp kínverskrar
súperpíu. Brosnan er snillingur í því að
halda hárfínu jafnvægi milli sjálfsháðs og
alvöru og það er að stórum hluta honum
að þakka hve Tomorrow gengur vel upp,
bæði sem grín og hágæðahasar. Myndin er
ómissandi skemmtun I skammdeginu og
Brosnan hér með yfirlýstur besti Bondinn.-
úd
L.A. Confidental ★★★★
Skuggahliðar Los Angeles sjötta áratugar-
ins eru sögusviðiö í óvenju innihaldsríkri og
spennandi sakamálamynd sem enginn
ætti að missa af. Spilltar löggur, ósvlfnir
æsifréttamenn, melludólgar og glæsilegar
vændiskonur eru á hverju strái. -HK
Titanic ★★★■),
Stórbrotin og ákaflega gefandi kvikmynd.
Af miklum fítonskrafti tókst James Camer-
on aö koma heilli í höfn dýrustu kvikmynd
sem gerð hefur verið. Fullkomnunarárátta
Camerons skilar sér í eölilegri sviðsetningu
sem hefur á sér mikinn raunsæisbiæ. Le-
onardo DiCaprio og Kate Winslet eru eftir-
minnileg I hlutverkum elskendanna. -HK
Barbara ★★★★
Vel upp byggö og vel leikin mynd í alla
staði, sérstaklega vakti þaö ánægju hversu
vel allar aukapersónur og smáatvik voru
vel og fimlega útfærð. Myndatakan er
áferðarfalleg og aldrei of uppskrúfuð I
landslagsyfirliti og dramatískum veðurlýs-
ingum en nýtti jafnframt vel náttúrufegurð
eyjanna. -úd
Taxi ★★★
Nokkur ár eru frá því kvikmynd eftir Carlos
Saura hefur rekiö á fjörur okkar og Taxi
veldur fjölmörgum aðdáendum hans eng-
um vonbrigðum. Tilfinningaþrungin kvik-
mynd þar sem fram fer eins konar uppgjör
við fasismann og þjóðerniskenndin sýnd í
sinnl verstu mynd. Aðalpersónurnar eru tvö
ungmenni sem sjá lífið I ööru Ijósi en for-
eldrarnir. -HK
Lína langsokkur ★★★
Llna langsoktóir er löngu orðin klassísk og
þaö vill stundum gleymast að hún er ekki
erfð með genunum heldur lesin á bókum.
Llna er hinn stjórnlausi óskadraumur allra
barna, fijáls, óháð og gersamlega sjálf-
stæö, því hún bæði getur allt og leyfir sér
allt. Þarna tókst vel til hvað varöaöi teikn-
ingar og útfærslur og það er óhætt að
mæla með þessum Línu-pakka fyrir börn á
öllum aldri. -úd
Starship Troopers ★★★
Starship Troopers fer hægt af stað en i
seinni hluta myndarinnar er ekkert hlé á
spennunni. Þrátt fyrir að uppskeran sé inni-
haldslítil og óvenjublóöug mynd sem á
flestallt undir glæsilegum tæknibrellum
mæli ég með henni. Brellurnar eru það
góðar að flestir hnökrar gleymast eða
skipta ekki máli. -ge
Stikkfrí ★★★
Gott handrit og góöa barnaleikara þarf til
að gera góöa barnamynd og þetta er aö
finna I kvikmynd Ara Kristinssonar sem auk
þess gerir góðlátlegt grln að þeim aðstæð-
um sem börn fráskilinna foreldra lenda I.
Skemmtileg og Ijúf fyrir alla fjölskylduna.-
HK
Perlur og svín ★★★
Fyndin mynd um hjón, sem kunna ekki að
baka en kaupa bakarí, og son þeirra sem
selur rússneskum sjómönnum Lödur. Ósk-
ar Jónasson hefur einstaklega skemmtileg-
an húmor sem kemst vel til skila og I leiö-
inni kemur hann viö kaunin á landanum.
Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Jóhann Sigurö-
arson eru eftirminnileg I hlutverkum hjón-
anna.-HK
Með fullri reisn ★★★
Eftir að hafa hneykslast upp I háls (og
verða léttskelkaðir líka) á hinum íturvöxnu
fatafellum The Chippendales uppgötva þeir
félagar Gaz (Robert Carlyle) og Dave (Mark
Addy) að það að fækka fötum uppi á sviöi
er hið arðbærasta athæfi. Þaö er varla
hægt aö hugsa sér betri ávísun upp á
skemmtun en svona sögu og svo sannar-
lega skilaði myndin þvl gríni sem hún lof-
aði, með fullri reisn.
-úd
The Devil's Advocate
★★■i
Leikur þeirra Keanu Reeves og Al Pacino er
ágætur þótt segja megi að Pacino hafi ekki
þurft að hafa mikið fyrir hlutverki sinu sem
myrkrahöfðinginn. Leikstill Keanus ein-
kennist venjulega af hiki sem minnir á óör-
yggi og hentar þvl vel hinum ráövillta lög-
fræöingi Lomax. Réttan er að sama skapi
skemmtileg og þótt hún komi ekki endilega
á óvart gengur hún upp. -GE
Home Alone 3
Alex D. Linz skortir nokkuð af þeim krafti
sem einkenndi leik Culkins. Hann er þó
sætur krakki og kemst langt á því. Og ef
menn eru ekki orðnir leiðir á þeim göF
breytilegu og síendurteknu limlestingum
sem einkenna þennan myndaflokk ætti
hún ekki aö valda vonbrigðum. @pers:-ge
Air Force One HHh
Harrison Ford er trúverðugur forseti Banda-
rikjanna, hvort sem hann setur sig I spor
stjórnmálamannsins eða fyrrum Vletnam-
hetju I spennumynd sem er hröö og býður
upp á góö atriði. Brotalamir I handriti
ásamt klisjukenndum persónum veikja
hana þó til muna. -HK
The Game ★★★
The Game nær aö skapa skemmtilegt and-
rúmsloft þar sem ofsóknarótti og framandi
umhverfi haldast ágætlega I hendur. Dou-
glas sýnir góð tilþrif I leik slnum og auka-
hlutverkin eru vel mönnuð. Helsti galli
myndarinnar er sá aö grunnhugmyndin
gengur ekki upp og hnökrar I frásagnarflétt-
unni gera þessa annars skemmtilegu
spennumynd að innantómri vitleysu. -GE