Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1998, Side 11
FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1998
tónlist;
Metal- og punkrokk þarf
ekki aö tilheyra hvítu
fólki, reyndar ekkert
frekar en rapp tilheyrir
svörtum", segir Chino Moreno
söngvari Deftones. Þetta er ekkert
undarleg yfirlýsing frá meölimi
Deftones en sveitina skipa tveir
mexikanar, einn kínverji og einn
hvítur. Sveitin hefur fyrir vikiö
breiðari aödáendahóp en gengur og
gerist.
Tónlist Deftones hefur líka hitt í
mark. Ákafir og magnþrungnir
keyrsluryþmar ligggja undir
melódiskum og tilfinningaríkum
laglínum Moreno og skapa undar-
lega en orkuríka blöndu sem kemur
við kaunin í þér.
Tekið upp „live"
Deftones koma frá Sacramento í
Kalifomiu og var sveitin stofnuð
uppúr 1990. Eftir að hafa verið upp-
hitunarsveit í fjögur ár fyrir hljóm-
sveitir eins og Bad Brains, Korn, L7
og Quicksand náði sveitin samningi
við Maverick útgáfufyrirtækið.
Debutplata Deftones, Adrenaline
sem kom út 1995 geislaði af krafti.
ákveðni og ástríðu. Það er ekki síst
að þakka pródúsentinum Terry
Date að hrár kraftur sveitarinnar
nær að skila sér á diskinn þannig
að þú getir setið heima í stofu en
samt skynjað tónlistina beint í æð.
Terry Date sem hefúr unnið með
ekki ómerkari sveitum en Sound-
garden, White Zombie og Pantera,
tekur upp megnið af lögum sveitar-
innar „live“ til að ná betur besta
eiginleika sveitarinnar sem er
óbeislaður og ástríðufullur kraftur.
Þeir Chino Moreno, Chi Cheng,
Abe Cunningham og Stephen
Carpenter em gamlir hjólabretta-
töffarar og má segja að tengsl með-
lima sveitarinnar séu upprunnin
þar. Þrátt fyrir að fáir kannist við
Sacramento sem einhverja tónlist-
arborg halda þeir félagar því fram
að hún geisli af sköpunarkrafti um
þessar mundir.
Nýja plata sveitarinnar, Around
the Fur kom út fyrir stuttu síðan.
Að nýju starfar Terry Date með
sveitinni og má segja að hann sé nú
órjúfanlegur hluti af Deftones.
„Around the Fur er lík síðustu
plötu okkar að því leyti að ég elska
hvert einasta lag“, segir Stephen
Carpenter, gítarleikari sveitarinn-
ar. „Hvert lag er frábmgðið hinum
en hafa samt þessa gegnumgang-
andi hljómun, sem er orka.
„Ég finnst lögin full af ástríðu og
kannski er best að skilgreina tónlist
okkar þannig", segir Chi Cheng
bassaleikari Deftones.
„Ég myndi lýsa plötunni sem já-
kvæðri þróun, segir Stephen. Ekki
að platan sé betri en fyrri plata okk-
ar, heldur frekar öðruvísi. Við höf-
um allir þroskast og öll tjáskipti eru
miklu skýrari. Það má segja að ég
viti hvað Chino ætli að gera áður en
hann gerir það.“
Textar Chino hafa líka þróast og
hann tjáir persónulegri málefni en á
fyrri plötu sveitarinnar. Titillag
plötunnar lýsir t.d. áhuga hans á
skuggahlið tísku og vændis.
Annað lag plötunnar MX tekur á
skyldu viðfangsefni sem er græðgi
og hið ljúfa líf. Chino vildi ólmur fá
kvenmann til að mynda andsvar við
sig í laginu og fékk eftir miklar for-
tölur konu Cunningham, Annalynn
sem kallar hann m.a.
„fucking rock star í laginu.
Deftones ná einhvernveginn að
koma sér inná þig, á sálina og lík-
amann með ótamdri orku. -ps
Þeir Chino Moreno, Chi Cheng, Abe Cunningham og Stephen Carpenter eru gamlir hjólabrettatöffarar og má segja að
tengsl meðlima sveitarinnar séu upprunnin þar. Þrátt fyrir að fáir kannist við sacramento sem einhverja tónlistarborg
halda þeir félagar því fram að hún geisli af sköpunarkrafti um þessar mundir.
hxátt rokk og geggjadir hjólabretta^ejar
Bowie segir nei!
Söngvarinn og leikarinn David
Bowie hefur neitað bón leikstjór-
ans Todd Haynes um að nota lög
sín í hans nýjustu kvikmynd sem
ber heitið Velvet Goldmine og er
nokkurs konar glam rokk-kvik-
mynd. Söngvari R.E.M., Michael
Stipe, sem hefur umsjón með allri
tónlist í myndinni segist ekkert
skilja í David Bowie að leyfa þeim
ekki að nota lögin og sérstaklega í
ljósi þess að Velvet Goldmine er
nafn á lagi eftir sjálfan Bowie. Að
sögn talsmanna David Bowie er
ákvörðunin viðskiptalegs eðlis.
Þar á bæ segjast menn sífellt vera
að fá inn á borð til sín óskir um að
nota lög eftir David Bowie í auglýs-
ingar, sjónvarpsþætti og kvik-
myndir og að einhverju verði
stundum hreinlega að hafna. Þrátt
fyrir að Michael Stipe fái ekki að
nota lög eftir Bowie í myndinni
getur hann irnað sæll við þá tón-
listarmenn sem hafa sagt já við
verkinu. Þar má telja Thom Yorke
úr Radiohead. Hann á eitt lag í
myndinni og hina frábæru hljóm-
sveit Tindersticks. Annars er það
af David Bowie að frétta að hann
er nú að leika í kvikmyndinni Ev-
erybody Loves Sunshine ásamt
jungle-tónlistarmanninum Goldie
og sagan hermir að þeir tveir leiki
saman í ástaratriði í myndinni.
-JAJ
o
Land og synir
Hljómsveitin Land og
synir leikur á Gauki á
Stöng um helgina.
Woofer á Kaffi Kjarki
Hljómsveitin Woofer leik-
ur í kvöld á Kaffi Kjarki
að Þingholtsstræti 5.
Annað kvöld mun plötu-
snúöurinn Jón Þór þeyta
skífur.
Croysztanz á
Rósenberg
Hljómsveitimar Croyszt-
anz og Woofer spila á
Rósenberg í kvöld.
Sólarkaffi ís-
firdingafélags-
ins
Hið árlega Sólarkaffi ís-
firðingafélagsins verður
haldið í kvöld á Hótel ís-
landi. Ómar Ragnarsson
og Diddú munu skemmta
gestiun og Hljómsveit
Stefáns P. mun leika fyr-
ir dansi.
Saktmóðugur i
Hinu húsinu
Síðdegistónleikar ' Hins
hússins eru á sínum staö
kl. 17 í dag. Þar kemur
m.a. fram hljómsveitin
Saktmóðugur.
Sóldögg I
Sjallanum
Hljómsveitin Sóldögg
leikur í Sjallanum á Ak-
ureyri annað kvöld.
Vikingasveitin
Um helgina verður hald-
in þorraveisla að hætti
víkinga á Fjörukránni.
Þar mun hljómsveitin
Víkingasveitin leika fyrir
dansi.