Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Blaðsíða 6
LAUGARDAGUR 14. MARS 1998 JjV
{bílar__________________________________________________________
Dönsk lög um notkun farsíma:
Ovissa um hvaí má og má ekki
Mikil umræða hefur verið um
notkun farsíma í bílum og hvort
notkun þeirra geti valdið hættu í
umferðinni. Hér á landi hefur ekki
enn veriö bundið í lög hvemig þess-
um málum eigi að vera háttað að
því okkur sé kunnugt um en hins
vegar hafa allir verið sammála um
það að beina því til ökumanna að
stöðva bílinn í vegarkanti á meðan
talað er í farsíma. Handfrjáls búnað-
' ur á farsímum getur leyst þetta að
nokkru en þó eru talsmenn umferð-
aryfirvalda í mörgum löndum á
þeirri skoðun að öll notkun farsíma,
hvort sem hann er handfrjáls eða
ekki, geti valdið hættu eða í það
minnsta óöryggi í umferðinni.
Danir banna „handnotkun"
Frændur okkar Danir hafa tekið
af skarið og bannað „handnotkun"
farsíma í ökutækjum frá og með 1.
júli næstkomandi. Þar í landi hefur
þessi lagasetning vakiö miklar um-
Guöbjöm Sigvaldason
sölumaður
löggiltur bifreiðasali
dur Gunnarsson
sölumaður
Ámi Sveinsson
sölumaður
Pétur Stefánsson j
sölumaður
Jón Hjálmarsson
sölumaður
Jöggiitur bifreiðasaii
rGuðni Þór Jónsson
msdóttir
ir Sigmundsson
við umboðsmenn
Unnur Elva Amardóttir
sölumaður
starfsmönnum okkar löggiltir bifreiðasalar
samkvæmt lögum um sölu notaðra ökutækja.
SVONA EIGA BÍIASALAR AÐ VERA !
Samkvæmt erlendum rannsóknum
getur notkun farsíma í bíl í akstri
valdið því að aksturinn verði óná-
kvæmari og viðbragðstfmi öku-
manna lengri. Öruggasta leiðin,
sem um leið sýnir meiri virðingu
fyrir öðrum í umferðinni, er að
staldra við úti í kanti meðan talað
er í farsímann.
DV mynd: ÞÖK
ræður og óvissu um hvað hún þýðir
í raun.
Lagagreinin sjálf hljóðar svo:
„Ökumenn farartækja mega ekki
nota handhelda farsíma." Önnur
grein segir: „Samgönguráðherra
getur sett fram nákvæmari reglur
um notkun annars talbúnaðar í
akstri."
Danski samgönguráðherrann
Bjöm West sagði í nóvember 1997
að „lögin segja að notkun hand-
heldra farsíma við akstur allra far-
artækja sé bannaður. Þetta bann
þýöir að ökumenn véiknúinna öku-
tækja, hjólreiðamenn, hestamenn
og jafnvel notendur hjólastóla, mega
ekki nota slíka síma í akstri".
Hann bætir við: ...Það liggur
ekki fyrir nein staðfesting á því að
notkun handheldra farsíma hafi or-
sakað umferðaróhöpp en rannsókn-
ir benda til að aksturinn verði óná-
kvæmari og viðbragðstími öku-
manna lengri.
Þessi lagasetning um notkun far-
síma gengur í gildi 1. júlí 1998
þannig að eigendur þessara farsíma
hafa nægan tíma til að kaupa búnað
sem gerir handfrjálsa notkun far-
síma mögulega."
Hvað má?
Það hefur hins vegar dregist að
setja þessar nákvæmari reglur í
Danmörku og því hafa seljendur far-
símabúnaðar ekki getað upplýst við-
skiptavinina um þaö hvað felst í því
að nota „handheldan farsímabúnað"
og hvaða búnað þeir eigi að kaupa
til að uppfyUa lögin.
I Danmörku sýnist sitt hverjum
um þessa lagasetningu. Talsmaður
samtaka seljenda flarskiptabúnaðar
segist vona að „lögin þýði að ein-
faldlega sé bannað að halda á sím-
anum í hendinni og tala í hann í
akstri. Menn eru hins vegar úti að
aka ef bannað er að snerta símann
eða að hann sé algerlega raddstýrð-
ur. Þá yrði einnig það sama að gilda
um útvarpstæki í bílum.
í sama streng tekur umferðarör-
yggisráðið en meirihluti þess segir
að ef til standi að banna notkun far-
síma í bílum eigi einnig að skoða
notkun útvarpstækja, segulbanda
og að reykja í bílum.
Því hafa eftirfarandi spumingar
vaknað í Danmörku:
Hvenær er farsími „handheldur"?
Er hægt að mæta lögunum ef sím-
inn er í bandi um hálsinn?
Má velja númer eða snerta takk-
ana á símanum ef hann er fastur í
höldu?
Hversu „handfrjáls" er handfrjáls
notkun?
Hversu oft má ýta á takka á sím-
anum til að svara símtali?
Er farsími sem festur er í bílinn
en með símtóli á snúru einnig hand-
heldur?
Sýnum aðgæslu
Hér á landi hefur ekki verið kveð-
ið upp úr með hvaða hætti farsíma-
notkun í ökutækjum verður í fram-
tíðinni.
Þar til slík niðurstaða liggur fyr-
ir verður að beina því til ökumanna
að sýna fyllstu aðgæslu við notkun
síma í bílrnn. Ef ekki er handfrjáls
búnaður í bílnum er um að gera að
koma sér út í kant og ljúka símtali
og ef viðkomandi þarf að hringja úr
bílnum þá sé beðið með það þar til
hægt er að stöðva bílinn og hringja.
-JR