Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1998, Qupperneq 1
FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1998
29
Gengið til kosninga í 162 sveitarfélögum:
Um 194 þúsund
manns á kjörskrá
- kjósendum fjölgar mest í Kópavogi
Kosiö verður til sveitarstjóma á
morgun. Kjörstaöir veröa alla jafna
opnir frá 9-22 og víðast hvar hefst taln-
ing strax aö loknvun kjörfundi eöa fyrr.
Á kjörskrárstofni sveitarfélaga em á
þessu ári 193.698 menn. Konur em
97.268 en karlar 96.430. Einhverjar
breytingar munu eiga eftir aö veröa á
þessum tölum en þær stafa af leiðrétt-
ingum vegna athugasemda út af kjör-
skrá og andláti manna eftir aö kjör-
skrárstofn er búinn til. Kjósendur
verða rúmlega 7 þúsund fleiri nú en í
síðustu sveitarstjórnarkosningum, eða
um 4% fleiri. Kjósendum fjölgar á höf-
uöborgarsvæði, Suöumesjum og Norö-
urlandi eystra en fækkar á öörum land-
svæöum, mest á Vestfjörðum, um
11,1%. Af einstökum sveitarfélögum
fjölgar kjósendum mest í Kópavogi, um
18,9%.
Sveitarfélög eru nú 162 en veröa eftir
kosningar 124. Viö síðustu kosningar
töldust þau 195.
í Reykjavík em 78.849 manns á kjör-
skrá. Þar er kosið í 96 kjördeildum, auk
einnar kjördeildar á Kjalamesi, en kos-
ið er í tíu skólum. Talning fer fram í
borgarstjómarsal Ráðhússins
og hefst upp úr klukkan
sex þegar talningar-
fólk verður læst
þar inni. Fljót-
lega eftir lok-
un kjörstaöa
má búast
viö
tölum úr
Reykja-
vík. Odd-
viti yfir-
kjör-
stjórnar
er Eiríkur
Tómasson
hrl.
í Kópavogi
voru 14.349 á
kjörskrá þegar
hún var lögö
fram. Austurbæing
ar munu kjósa í Kópa
vogsskóla og Smáraskóla
en vesturbæingar í Kársnesskóla.
Talning fer fram í íþróttahúsinu Digra-
nesi og formaður yfirkjör-
stjórnar er Jón Atli
Kristjánsson.
í Hafnarfiröi var
12.521 á kjörskrá.
Kosið veröur í
Lækjarskóla,
Víöistaöa-
skóla og
Setbergs-
skóla, á
Hrafnistu
og á Sól-
vangi.
Oddviti
yfirkjör-
stjómar er
Ingimundur
Einarsson og
taliö verður í
íþróttahúsinu
við Strandgötu.
í Reykjanesbæ eru
7.235 á kjörskrá. Þar
verður kosiö í Holtaskóla í
Keflavík og í Njarðvíkurskóla í
Njarðvík. Talning atkvæöa fer fram í
íþróttahúsinu Njarðvík og formaður
yfirkjörstjómar er Ásbjörn Eggertsson.
Á Akureyri er að venju kosið í Odd-
eyrarskóla en aö þessu sinni er talið í
KA-heimilinu. Formaöur kjörstjórnar
er Ásgeir Pétur Ásgeirsson. 10.817 eru á
kjörskrá.
Skv. lögum númer 5/1998 um kjör-
fundi er kjósanda leyfilegt aö breyta
uppröðun manna á listanum sem hann
merkir viö meö því aö setja 1 fyrir
framan nafn þess frambjóðanda sem
hann vill hafa í fyrsta sæti, 2 fyrir
framan nafn þess sem hann vill sjá í
öðru sæti og svo framvegis. Einnig get-
ur kjósandi látið það í ljósi ef hann vill
einhverja frambjóöendur burt af listan-
um með því að strika yfir nafn
hans/þeirra. Hafa ber þó í huga að
hvers kyns merkingar á lista, annan en
þann sem kosinn er, era óheimilar og
ógilda seðilinn. Einnig verða kjósendur
að vara sig á því að auðkenna ekki
kjörseðil á nokkurn hátt með annarleg-
um merkingum. Það ógildir seðilinn
þegar í stað.