Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1998, Blaðsíða 4
LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1998
Volvo FH-16 6x4 Globetrotter XL-70:
Vel búin af-
Volvo FH-16 XL-70 er sérlega vel búin afmælisútgáfa sem gerð var í tilefni af
70 ára afmæli Volvo. Einn slíkur kom hingað til lands á dögunum, bíll núm-
er 749. Á bak við má sjá fyrsta FM-bílinn sem einnig er nýlega kominn til
landsins. DV-myndir GVA
eru í mælaborði til skrauts.
Húsið er með sérstakri loftfjöðr-
un og með rafstýrðum veltibúnaði
til að komast að vél og girkassa.
Þrefaldur ljósabúnaður er að fram-
an, hefðbundin ökuljós, aflmiklir
kastarar og sérstök þokuljós.
í mælaborði er að finna aksturs-
tölvu og sérlega aflmikil hljómflutn-
ingstæki með geislaspilara og sex
hátölurum. Stýrishjól er leðurklætt
og hægt að velta því og draga að eða
ýta því lengra frá ökumanni ef þörf
er á. Loftpúði er í stýrishjóli til auk-
ins öryggis fyrir ökumann en auk
þess er bíllinn með læsivörðum
hemlum (ABS).
Ökumannssætið er upphitað og
með loftfjöðrun. Miðstöð og loft-
ræsting er mjög fullkomin, sjálfvirk
olíumiðstöð hitar upp stýrishúsið
og vélina sjálfa í kulda.
Vindkljúfur er á toppi og einnig
eru hliðar stýrishússins búnar
vindkljúfum.
Ekki þarf að stoppa á hverri bens-
ínstöð því olíutankurinn tekur 355
lítra. Það er gott að athafna sig við
bilinn, jafnvel í myrkri, því góð
vinnuljós eru staðalbúnaður.
Lipur og hljóðlátur
Það var bráðskemmtilegt að fara
í þennan stutta kynningarakstur.
Vélin hefur svo yfirdriflð afl að við-
bragðið minnir meira á sportbíl en
vörubil, enda var hlassið ekkert í
þessum akstri. í sumar hafði hins
vegar gefist tækifæri til að aka
svona bíl með 59 tonna heildar-
þunga og þvi var búið að sannreyna
að vélaraflið dugar líka vel þótt
hlassið sé þungt.
Það kom þægilega á óvart hve
bíllinn er lipur í þröngri innanbæj-
arumferð og einnig hver hljóðlátur
hann er þótt vélin snúist á fullri
ferð. Hér á árum áður voru vörubíl-
stjórar sterkir og gróflr kallar með
krafta í kögglum, enda veitti ekki af
slíku áður en aflstýri og aflhemlar
komu til sögunnar. í dag er ekki
þörf á slíku því það er léttara og
kostar minni átök að aka þessum
þriggja ása dráttarbíl en minnstu
fólksbílum og til viðbótar kemur sú
þægilega staðreynd að ökumaður-
inn situr sérlega hátt og hefur
miklu betri yfirsýn fram á veginn
en ökumenn smábíla.
-JR
mælisútgáfa
Bíllinn er sérlega vel búinn, sæti eru leðurklædd, ökumannssætið upphitað og með loftfjöðrun
og glæsileg hljómtækin eru ekki af verri endanum.
Volvo kynnti nýjar línur vörubíla
á liðnu sumri, FM og endurbætur á
FH-bílunum. í tilefni af því að Vol-
vo á 70 ára afmæli var útbúin sér-
stök afmælisútgáfa af FH-bílnum. Á
dögunum kom einn slíkur hingað til
lands og gafst umsjónarmanni DV-
bíla kostur á að
fara í stuttan
kynningarakst-
ur. Raunar var
búið að segja frá
akstri á þessum
bílum fyrir
nokkru hér á síð-
um DV-bíla en
það er ávallt
skemmtilegra að
reyna bílana við
íslenskar aðstæð-
ur.
Um var að
ræða sérbúinn
dráttarbíl, FH-16,
6x4 Globetrotter
XL-70. Sex sinn-
um fjórir þýðir að
bíllinn er þriggja
ása og með drif á
báðum afturás-
um. Globetrotter
stendur fyrir
stýrishúsið sem
er háþekjuhús og
sérlega vel búið.
Loks stendur XL-
70 fyrir að þetta
er sérstök afmæl-
isútgáfa í tilefni
af 70 ára afmælinu.
Vélin er 520 hestöfl, með snún-
ingsvægi upp á 2400 Nm. Bíllinn er
búinn tvívirkum vélarhemli og
hraðastilli.
Gírkassinn er 14 gíra og með sér-
stöku aflúrtaki. Drifbúnaður er með
niðurgírun i hjólum.
Parabólufjaðrir eru á framás og
burðargeta er 7100 kíló. Loftpúða-
fjöðrun er á afturásum með raf-
stýrðri hæðarstillingu, burðargeta
21.000 kíló.
Vegna þess að um er að ræða sér-
staka afmælisútgáfu er bíllinn mál-
aður í sérstökum grænum lit,
„Tropic Green Met“. Hver bíll hefur
fengið sitt sérstaka númer og er
þessi bíll númer 749.
Mjög vel búinn
Þetta er sérlega vel búin útgáfa af
Fh-16. Mikið hefur verið vandað til
innréttingarinnar og sæti eru að
hluta leðurklædd og viðaráfellur
Nýtt flaggskip frá Alfa - 166:
Vel búinn
glæsivagn
Alfa Romeo frumsýndi nýjan og
vel búinn glæsivagn í París að
þessu sinni, Alfa 166, sem er vænt-
anlegt flaggskip verksmiðjanna.
Þetta er bíll með svipaðar línur og
156, en þó eilítið mýkri. Bíllinn er
4,72 m á lengd og 1,81 á breidd.
Val verður um nokkrar vélar, 2,0
lítra og 16 ventla Twin Spark, 155
hö, 205 hestafla 2,0 1 turbo V6 og 2,5
1 (190 hö.) og 3,0 1 (205 hö.) 24 ventla
V6.
Alfa 166 er búinn ABS og loftpúð-
um sem skynja hvort farþegi situr í
framsæti.
Hugsanlega verður þessi nýi 166
einnig í boði með 270 hestafla twin-
turbo en hvort það tekst er óvíst nú
Framendinn er svipaður og á 156.
Nýtt flaggskip frá Alfa Romeo: 166.
vegna þess að nýi sex gíra kassinn
frá Fiat á erfitt með að mæta þeim
mikla krafti sem vélin skilar á hæg-
um snúningi.
Mikil framleiðslaá 156
Hjá Alfa er framleiðsla á 156 kom-
in i hámark. Nú eru smíðaðir 540
bílar á dag og gætu þeir komist í 600
sem er hámarkið á næstunni. Ætl-
unin er að smíða 118.000 Alfa 156 á
þessu ári og 130.000 á næsta ári.
Reiknað er með því að station-
gerð 156 líti dagsins ljós á árinu 2000
en þetta verður fyrsti statonbíll Alfa
frá þvi að Alfa 33 Sport Wagon datt
úr framleiðslu árið 1994. -JR