Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1998, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1998
Wlar og vetrarakstur -
Ert þú viðbúin/n að bíða í bílnum?
Hvað á að gera ef maður verður
svo óheppinn að festa bílinn að vetri,
kannski á fjöllum uppi eða annars
staðar fjarri mannabyggð, og þarf að
láta fyrirberast í honum kannski svo
klukkutímum skiptir? Jafnvel í svo
snælduvitlausu veðri að það sé ekki
hundi út sigandi?
Ef svona stendur á er vandamálið
fyrst og fremst að halda hita á þeim
sem í bílnum eru og hafa nægilegt
hreint loft. Varasamt er að hafa bíl-
inn í gangi til að halda hitanum,
nema jafnframt sé tryggt að hann
fyllist ekki af kolsýringi úr útblæstri
vélarinnar. Kolsýringur er lyktar-
laust, banvænt eiturefni í pústinu og
engin leið að gera sér grein fyrir
hvort það er að streyma inn í bílinn
eða ekki. Þeir sem fyrir því verða
líða einfaldlega út af eins og þeir séu
að sofha og vakna kannski aldrei
framar.
Gott að hafa teppi
Þess vegna verður að gæta þess, ef
bíll er látinn ganga til að halda hita,
að pústið komist ekki inn í hann og
jafnframt hafa góða loftræstingu.
Það getur verið erfltt í glórulausum
byl því kófið stendur þá allt í kring-
um bílinn og leitar á opna glugga,
líka þeim megin sem undan veit
veðrinu. Þannig bálviðri er fljótt að
fylla bíl af snjó, þó rifan á gluggan-
um sé ekki nema lítil En þama kann
að vera um líf og dauða að tefla.
Sums staðar á norðlægum slóðum,
þar sem menn geta átt von á að lenda
í festu og þurfa að láta fyrirberast i
bílnum, hafa menn fyrir reglu að
hafa teppi í bílnum. Það fer ekki
mikið fyrir samanbrotnu teppi, en
það getur gert mikinn gæfumun ef
þannig stendur á. Hérlendis mun
eitthvað vera um að menn hafi ál-
hitapoka í bílum sínum til að grípa
til ef svona stendur á. Fyrirferð álp-
okanna er mjög lítil svo þetta kann
að vera skynsamleg ráðstöfun.
Kertalogi gefur líka yl
Þá hefur einnig verið bent á að
þótt logi af kerti sé ekki mikið bál
Dísil-hlaðbakur frá Jaguar?
Jaguar á tilbúnar teikningar af
hlaðbaksútfærslu á nýja Jaguar S-
bílnum. Jaguar S hlaðbakur gæti
orðið veruleiki árið 2001 eða 2002,
en ekki hefur verið tekin ákvörðun
um framleiðslu hans. Jaguarmenn
eru einnig að velta vöngum yfir
hugsanlegri dísil-túrbínuvél í S-inn.
Ný Felicia eftir tæp tvö ár
Skoda er að smiða nýja vél í nýju
Feliciuna sem kemur á markaðinn
aldamótaárið 2000, byggð á grunni
Volkswagen Polo. Því miður verður
vélin ekki tilbúin þá og verður fyrst
gripið til að nota eldri vél, líklega
sams konar og Felicia hefúr nú.
Skoda hefur mátt þola margt um
dagana og átt sína slæmu daga, en
ekki síður góða. Eitt af því sem alltaf
hefúr fengið visst lof hafa verið vél-
amar sjálfar, þannig að Skoda hefúr
þar úr háum söðli að detta - sem fyr-
irtækið hefur raunar hugsað sér að
gera ekki. Nýju vélamar eiga að vera
900 til 1300 rúmsentimetra.
Annars er það af Skoda að frétta að
þar á bæ er verið að velta fyrir sér
hver þriðji bíllinn eigi að verða. Lík-
legast er talið að það verði ögn stærri
bíll en Octavian. Stærsti viðskipta-
vinahópur Skoda em eins bíls fiöl-
skyldur sem dugar ekki bíll á stærð
við Lupo. Passat stærðin er talin vit-
urlegri fyrir þetta markaðssvæði.
Bannað að þjóna þeim gráu
Grár innflutningur er víðar vanda-
mál en á íslandi. Mitsubishi hefúr nú
skipað 150 sölustöðum sínum á Bret-
landi að hætta að þjóna Mitsubishi
bílum sem fluttir era inn framhjá við-
urkenndum umboðum. Farið verður
eftir framleiðslunúmerum bOa og bíl-
um með þau framleiðslunúmer sem
ekki fmnast í tölvum/bókum umboðs-
mannanna verður einfaldlega vísað
frá þjónustuverkstæðum umboðanna.
Flytja út Daewoo frá Póllandi
Verksmiðjur Daewoo í Póllandi
(Daewoo FSO), sem framleiða Lanos
bíla, ætla að framleiða þar 342.000 bfla
á næsta ári og selja 120.000 bíla þar af
til annarra Evrópulanda. Einnig verð-
ur farið að framleiöa þar 800 og 1200
rúmsentímetra vélar Daewoo sem
eiga að fara í smábílinn Matiz og F-
100 Minivan. Framleiðsla á Daewoo
Matiz hefst í Póllandi nú undir ára-
mótin.
Daewoo og Dana vinna saman
Daewoo FSO (Pólland) og Dana
Corp. ætla að vinna saman að fram-
leiðslu á afturdrifum, drifsköftum og
fleiri bilahlutum í FSO Polonez fólks-
bílinn og Daewoo F-100 Minivan bíl-
inn. Daewoo FSO á 51% í þessari sam-
eiginlegu framleiðslu.
AUfe
bílalyftur
naust
Borgartúni 26 • Sími: 535 9000
Fax: 535 9040 • www.bilanaust.is
stafl samt ylur af honum. Sagt er að
algengt sé í norðurhéruðum Kanada
að menn hafi kerti í bílum sínum til
að hjálpa til að halda yl í bílunum ef
þeir þurfa að láta fyrirberast í þeim
um einhverja stund. Vitaskuld
verða þá lika eldfæri að vera til
staðar til að tendra á kertinu. Kerta-
loginn eyðir að vísu einhverju súr-
efni úr andrúmsloftinu en er engan
veginn jafn viðsjárverður mengun-
arvaldur og eiturframleiðandi og út-
blásturskerfi bilsins.
Hérlendis era menn oftast nær
svo fyrirhyggjusamir að vera vel
klæddir þegar farið er í vetrarferð-
ir. Þvi miður vill samt brenna við,
einkum hjá yngra fólki, að það legg-
ur ofurtraust á guð og lukkuna í
þessum efnum. Það er til mikilla
bóta og getur jafnvel skipt sköpum
að hafa hugleitt þessi mál í víðu
samhengi og komið viðeigandi bún-
aði fyrir í bilnum í tíma. Það er nú
einu sinni svo með slys og óhöpp að
þau gera ekki boð á undan sér.
Ef bfllinn festist í snjónum og við þurfum að haida kyrru fyrir er nauðsynlegt að gæta þess að loft frá útblæstri vél-
arinnar komist ekki inn í hann því kolsýringurinn í útblæstri vélarinnar er lyktarlaus en um leið banvænt eiturefni
sem erfitt er að varast.
Farið hægt í að hleypa
úr dekkjum
Þegar veður skán-
ar og hægt er að huga
að þvi að losa bilinn
hafa margir bent á
það sem ráð að
hleypa lofti úr hjól-
börðum til að auka
flot hans. Þetta er
rétt og gott ráð svo
langt sem það nær.
En sá sem ekki er
með loftdælu með sér
Ágæt regla getur ver-
ið að hafa ávallt teppi
með í bflnum þegar
ferðast er og venju-
legt vaxkerti getur
gefið frá sér það mik-
inn yl að það geti
skipt máli ef menn
þurfa að dvelja lengi
í bfl sem er fastur.
getur verið illa staddur með langt-
um of lítið loft í dekkjum þegar fest-
unni sleppir, þannig að ekki er rétt
að grípa til þessa ráðs nema að
vandlega íhuguðu máli. Þá er betra
að moka, þó það taki tíma og fyrir-
höfn. Það kemur þó altént yl í
skrokkinn, og menn skyldu líka
hafa það hugfast að með góðri
skóflu - sem menn vonandi hafa
ófrávíkjanlega með sér á vetrarferð-
um - tekur yfirleitt mun skemmri
tíma að moka sér leið en ætla mætti
fyrirfram.
-SHH
pi i í“T» | f# l9piilEipisl
-gjf 1 i 1 f 1 fdm r CJ ^
195/65R15 PASSAT ‘97 ....48.000 verð
175/7ÓR13 GOLF‘84-’97 o 38 000 176/70R13 POl O ‘94 3ft nnn
175/80R14 GOLF ‘98 L...J ....42.500 e175l70R13MMC COLT/LANCER? 38.000
155/70R13 POLO ‘94 j ... 32 000 185f65R14MMC CARISMA... 42 500
* .. . J, . 1 HEKLA
www.hekla.is varahlutaverslun sími 569 5650