Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1999, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1999, Síða 4
HViTAR KLAM'íDÍUft Ce\oxmr oxmT Allsh flatn i lei husu Sumir segja að leikarabransinn sé einn sá alharðasti. Þar sé mikiil slagur á ferðinni og að þar ríki mik- il öfimd og illmælgi, sérstaklega i garð þeirra sem gengur vel. Ingvari gengur vel en þegar hcmn er spurð- ur út í meinta baráttu kveðst hann ekkert af henni vita. „Það getur vel verið að það sé einhver slagur í þessu en ég verð ekki var við hann. Ég er voðalega öruggur með mig þarna í Þjóðleik- húsinu þar sem ég vinn. Kannski er ég meira að segja orðinn of öruggur með mig. Ef það er rétt að það sé slagur í gangi held ég að það sé leik- listinni ekki til framdráttar. Það leiðir bara til ódýrra lausna.“ Titra ekki af hrifningu Hvernig finnst þér íslenskur leik- húsheimur í samanburöi við er- lenda? „Ég held að við stöndum framar- lega í samanburði við erlendar þjóð- ir, ef það er þá eitthvað að marka mig. Reyndar finnst mér ekki vera góðir tímar í leikhúsunum núna. Það er alltaf verið að tala um að það sé svo mikið að gerast, mikil gróska á að vera í leiklistinni og leikhúsað- sókn góð. En í rauninni er ekki neitt stórfenglegt í boði. Ef litið er á þetta krítískum augum er þetta ein allsherjarflatneskja. Ég hef ekki komið titrandi af hrifningu út úr leikhúsum undanfarið. Ef maður hefur einu sinni orðið fyrir stór- kostlegri upplifun í leikhúsi vill maður að slíkt komi fyrir aftur. Ég hef ekki fundið fyrir því upp á síðkastið,“ segir Ingvar. Ingvar er orðinn þrjátíu og fimm ára, þriggja bama faðir og mikill fjölskyldumaður. Hvað segir hann um það sem koma skal, yngstu leikarana í dag? Þessa sem eru um það bil að útskrifast úr leiklistarskólanum og hafa þegar fengið tækifæri til að sanna sig? „Um daginn fór ég á sýningu út- skriftarárgangsins, Ivanov. Mér fannst þessir krakkar vera mjög öruggir á sviðinu. Ég held að það hafi gert þeim gott að hafa fengið að leika utan skólans. Þannig fengu þau mikla þjálfun en hins vegar er óréttlátt að þau skyldu ekki öll hafa fengið að spreyta sig.“ Ungur Bjartur Sem stendur er Ingvar ekki að leika 1 neinu leikriti núna. Hann er hins vegar á fullu á æfingum fyrir leikritið Sjálfstætt fólk sem verður líklega komið á fjalimar í I bikarkeppm kyntrölla sem fram fer í þessu blaöi rúllar Ingvar Sigurðsson leikari öllum keppinautum sínum upp. Þegar honum voru færðar fréttirnar fór hann hjá sér, fannst þetta vandræðalegt en féllst samt á að koma í smasp Hann vildi ekkert ræða um kyntröll en sagði hins vegar skoðun sína á !e leikritum, leikurum, lífinu og tilverun ciliri lok febrúar. Bókina Sjálfstætt fólk skrifaði Halldór Kiljan Laxness en hann var einmitt valinn íslend- ingur aldarinnar í seinasta tölu- blaði Fókuss. Aðspurður segist Ingvar mjög sáttur við það val. Leikritið Sjálfstætt fólk veröur sett upp sem tvær sýningar. í fyrra hlutanum leikur Ingvar sjálfan Guðbjart Jónsson, Bjart í Sumar- húsum, en í hinu túlkar hann kennarann sem bamar Ástu Sólli- lju. Sami leikhópurinn flytm- báða partana og æfir hann hlutana sinn hvorn daginn. Áhorfendum verður boðið upp á að sjá báðar sýning- amar sama daginn með góðu mat- arhléi á milli en eins verður hægt að sjá sýningamar sinn hvom dag- inn. Kjartan Ragnarsson leik- stýrir verkinu og gerði hann leik- gerðina ásamt konu sinni, Sigríði Margréti Guðmundsdóttur. Ingvar segir það ekki á hvers manns færi að taka jafnmargbrot- ið verk og Sjálfstætt fólk og gera úr því leikrit. Hvernig kanntu viö aö leika Bjart í Sumarhúsum? „Ég gæti ekki verið í betri mál- um.“ Þú viröist oft vera settur í öfga- kennd hlutverk, leikur gjarnan glœpona og menn sem hafa oröiö undir í lífinu. Hvernig stendur á því? „Það er rétt að mér hefur verið kastað í svona öfgakennd hlut- verk. Samt hef ég líka leikið allt öðmvísi og fjölbreyttari týpur. Ég held að fólk muni bara helst eftir öfgakenndum persónum þar sem þær em svo eftirminnilegar.“ Geiðveikur Páll Þegar Sjálfstætt fólk er komið á gott skrið ætlar Ingvar að vinda sér í kvikmyndaleik. Um er að ræða kvikmyndina Engla alheims- ins sem Friðrik Þór Friðriksson leikstýrir. Þar leikur Ingvar hinn geðveika Pál sem sagan fjallar um. Þegar Ingvar er beðinn um að lýsa muninum á að leika í kvikmynd annars vegar og í leikhúsi hins vegar setur hann upp svipinn: „Oh, þarf ég nú að svara þessari spumingu einu sinni enn.“ En hann kann svarið líka utan að: „Helsti muntirinn er að í kvik- myndum leikur maður fyrir myndavél, sem man allt, en í leikhúsi er leikið fyrir fólk, sem gleymir." Þegar þú ert búinn að leika á kvöldin, hvaö gerir þú til aö slappa af? „Ég lít gjaman á kaffihús. Það fer samt eftir því hvað ég er að fara að gera dag- inn eftir. Svo fer ég bara heim að sofa.“ -ILK f ÓktlS 15. janúar 1999 A morgun heldur Blásarakvlntett Reykjavikur tðnleika í Gerðubergi kl. 16. Á efnisskár eru verk eftir J6n Leifs, Pál P. Pálsson, Jón Ás- geirsson, John Cage og Diana Burell. Bæöi tónleikarnir og málþingið á eftir eru samstarf við Tónskáldafélag íslands og hiuti af efnis- skrá Myrkra músikdaga. Blásarakvintett Reykjavíkur skipa:Bernharður Wilkinsson, flauta, Daði Kolbeinssson, óbó, Einar Jóhann- esson, klarínett, Jósef Ognibene, horn, og Hafsteinn Guðmundsson, fagott. Málþlng um Jón Lelfs - 100 ára i Gerbubergi á morgun kl.17. 30-19.00. Þingiö flallar um Jón Leifs frá þremur sjónarhornum: Jón Leifs sem tónskáld og baráttumann og loks manninn Jón Leifs. Beint er sjónum að tónlist hans, félags- málastörfum, hags- munabaráttu og áhrifum hans á is- lenska tónlist og menningu. Meðal þátttakenda: Atli Heimir Sveinsson, Hjálmar H. Ragnars- son, Siguröur A. Magnússon og Örn Magnús- son. Stjórnandi er Ævar Kjartansson. Pétur Pan mætir í Borgarlelkhúsið á morgun og sunnudaginn kl. 13 og enn má krækja sér í miöa. Krökkum finnst þetta ágæt skemmt- un, Pétur glúrinn og glettinn og Krókur ísmeygilega fyndinn og hæfilega ógnvekjandi. Og svo flýgur fólk um sviðið og enginn botnar í hvernig það fer eiginlega að því. Hálfgerðir töfrar allt saman. En þeir hrífa stður á útlifaða foreldra sem þykjast hafa séð þetta allt sam- an áður og eru farnir að velta fyrir sér hvort þetta ævintýri hafi yfirhöfuð nokkurn tlmann verið skemmtilegt. Síminn er 568 8000 fyrir þá sem vilja festa sér miða. Bróðlr mlnn LJónshjarta gengur enn í Þjóðlelkhúslnu og næsta sýning er á sunnu- daginn kl. 14. Þetta harm- ræna ævintýri Astrid Lind- gren snertir unga sem aldna og það kemst þokkalega til skila í þessari uppfærslu. Síminn er 5511200. Dlmmalimm veröur flutt t Iðnó á sunnudaginn kl. 16. Lttið og Ijóðrænt ævintýri eftir Mugg í hófstilltri framsetningu. Síminn er 530 3030 fyrir þá sem ætla að skella sér með börnin. Ávaxtakarfan er leikrit um ein- elti og mun það vera gulrót nokkur sem verður fyrir þvt á sviöi íslensku óp- erunnar. Næsta sýning er á sunnudaginn kl. 14 og hægt er að panta míða t síma 551 1475. 66 BARA VEtT EKK.I HVER.N16 «6 A At> SEG3A HENNI FRA VES&U-.. þý LATUd BAR.A BlÓMIN TALA,. meira á. www visir is FÓKUSMYND: HILMAR ÞÓR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.