Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1999, Blaðsíða 1
FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1999
19
Möguleiki hjá
íslensku
liðunum
C22>
Friðrik Ingi Rúnarsson skrifar undir
tveggja ára samning í sólinni í (
um það að hann muni stjórna
íslenska körfuknattleiks-
landsliðinu. Friðrik Ingi
mun auk þess þjálfa
Njarðvík áfram í úr-
valsdeildinni og
sinna starfi
fræðslu-
stjóra
sam-
bands-
ins.
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari úrvalsdeild-
arliðs Njarðvíkur, aðstoðarþjálfari landsliðs-
ins síðasta vor og þjálfari ársins á síðasta
l tímabili hefur verið ráðinn sem nýr lands-
L liðsþjálfari í körfuknattleik.
Friðrik Ingi skrifaði í gær undir
tveggja ára samning en hann tekur við
I af Jón Kr. Gíslasyni sem hefur
stjómað landsliðinu í 4 ár. Samningur
við Jón Kr.
rann út eftir
; glæsilega for ís-
lenska landsliðs-
ins til Slóvak-
i íu í sumar.
Friðriki
j líst vel á
! verkefnið en
island er í fyrsta sinn í hópi þeirra bestu í tvær Evr-
ópukeppnir í röð en dregið verður í milliriðla næst-
komandi laugardag og segir Friðrik Ingi framhaldið
ráðast nokkuð af hvaða mótherja við fáum þar.
Auk þess að sinna hinum venjulegum störfum
landsliðsþjálfara mun Friðrik Ingi verða yfirþjálfari
allra yngri landsliðanna auk þess að sinna störfum
fræðslustjóra Körfuknattleikssambandsins og mun
starf hans vera mun sýnilegra en áður hefur verið.
Friðrik Ingi er ákveðinn í að brúa bilið á milli yngri
landsliða og A-landsliðsins og mun því fara að taka
inn unga framtíðarleikmenn á þessu tveggja ára
tímabili. Friðrik þjálfar Njarðvík áfram.
Friðrik Ingi er einn sigursælasti þjálfari okkar ís-
lendinga, hann hefur gert Njarðvíkinga tvisvar að
íslandsmeisturum og Grindvíkinga einu sinni auk
þess að hafa komið sínum liðum í lokaúrslit um
íslandsmeistaratitilinn flmm síðustu árin. -ÓÓJ
Guðmundur Benediktsson kom
KR-ingum aftur inn í leikinn
með tveimur mörkum eftir
slæma byrjun liðsins gegn Fylki
í vesturbænum í gær.
Hann er hér í léttum dansi við
Theodór Óskarsson sem lagði
upp fyrsta mark Fylkis og
skoraði það þriðja í sjö marka
leik iiðanna í gærkvöld.
DV-mynd ÞÖK