Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1999, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1999, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1999 23 mmm a------~x---r- [ I' "jAvhlf """ Klór í heila alzheimer- sjúklinga Vísindamenn telja sig hafa að hluta til fundið skýringuna á því hvers vegna alzheimersjúkdómurinn eyði- leggur heilafrumur. Hún er einfaldlega sú að við efnahvörf í heila alzheimersjúklinga myndast vetnisperoxíð, algengt klórefni sem notað er til að aflita hár og gera hvít fót hvít- ari. Vetnisperoxíðið er líka mjög sótthreinsandi. Það drepur bakteríur og veirur og lika frumur. Ashley Bush við læknadeild Harvardháskóla segir að þar kunni að vera skýringin á eyðileggingu heila- frumna hjá alzheimersjúkling- um. Alzheimer, sem veldur því að heilinn hrömar smám sam- an, er algengasta ástæðan fyrir elliglöpum. Fjórar milljónir Bandaríkjamanna em með sjúkdóminn, þar á meðal Ron- ald Reagan, fyrram forseti. Risaeðlur gengu nánast eins og fuglar Aumingja risa- eðlumar. Vis- indamenn hafa komist að því að þessar mikil- fenglegu skepn- ur gengu um mörkina nánast eins og fuglar á vorum dögum gera. Vísindamennimir uppgötv- uðu þetta með aðstoð þrívídd- argrafikur þar sem byggt var á fótsporum sem fundust á Grænlandi eftir risaeðlu. „Fuglar hreyfa sig ekki ná- kvæmlega eins og risaeðlur en þeir komast næst þeim,“ segir Stephen Gatesy við Brown-há- skóia á Rhode Island í Banda- ríkjunum. Getur verið óhollt að láta gata sig Fólk með með- fædda hjarta- sjúkdóma er líklegra til að krækja sér í banvæna ígerð þegar það lætur gera göt á ýmsa líkamshluta sína, þar á meðal eyran, að ekki sé nú tal- að um viðkvæmari staði eins og nafla og kynfæri. Læknar við Mayo-sjúkrahús- ið í Bandaríkjunum rannsök- uðu 445 sjúklinga með með- fædda hjartasjúkdóma og komust að raun um að nærri einn af hverjum fjóram fékk ígerð í hjartaloku eftir að göt vora gerð á líkamann. Hörundið er helsta vörn mannsins gegn alls kyns smiti og þegar gerð hafa verið göt á það aukast líkurnar á ígerö, segja vísindamennirnir við Mayo. ■jeunur Stærfræöileg rökhugsun og sköpunargáfa: Heilinn reiknar á 2 stöðum Frakklands (INSERM) og tæknihá- skólann í Massachusetts (MIT) hafi sýnt fram á að nákvæm stærðfræði, þar sem notast er við táknmyndir tungumálsins, örvi vinstri ennis- geirann í heilanum. Útreikningar sem ekki eru jafnnákvæmir fara aft- ur á móti fram í vinstri og hægri hvirfilgeira sem alla jafna fást við sjónræna úrvinnslu í rúmi og hreyf- ingu fingranna. Rannsóknir bæði franskra og banda- rískra vísindamanna benda til að manns- heilinn noti tvö mis- munandi svæði á heila- berkinum þegar hann fæst við nákvæm reikningsdæmi eða út- reikning sem þarf ekki að vera svo nákvæmur. Vísindamennirnir gerðu tvenns konar rannsóknir. Bandaríkjamenn- irnir, undir forystu Elizabeth Spelke, hugfræðings við MIT, kenndu tví- tyngdum sjálfboðaliðum, sem töluðu bæði rússnesku og ensku, stærðfræði. Hluti hópsins lærði á ensku en hinn á rússnesku. Síöan voru lögð dæmi fyrir sjálfboðaliðana á þeirri tungu sem þeir lærðu ekki stærðfræðina á. í ljós kom að tilraunadýrin voru einni sekúndu lengur að gera ná- kvæma útreikninga. Ef aðeins þurfti að áætla útkomuna hvarf þessi mun- ur. Frakkanir lögðu stærðfræðiþraut- ir fyrir tilraunadýrin og fylgdust um leið með heilastarfseminni með aðstoð segulómsjár. Niðurstöður þeirra vora mjög í anda þess sem Bandaríkjamenn komust að. Þegar heilinn í okkur þarf að reikna skiptir máli hvort útkoman þarf að vera nákvæm eða hvort nægir að hafa hana svona um það bil. Stærfræðileg rökhugsun og leiftrandi sköp- unargáfan sem henni fylgir hafa löngum verið manninum ráð- gáta. Albert Einstein sagði til dæm- is, þegar hann reyndi að skýra hvaðan honum bærist innblástur að hvorki hið talaða orð né skrifaða virtust gegna neinu hlutverki þegar hann hugsaði. Þess í stað byggðist hugsun hans upp á táknum og myndum, mismunandi skýram sem hann gæti raðað niður að vild. Ýmsir aðrir, aftur á móti, leggja áherslu á grundvallarþátt stærð- fræðilegra tákna í hugarferli sínu. Hvað um það. Rannsóknir bæði franskra og bandarískra vísinda- manna benda til að mannsheilinn noti tvö mismunandi svæði á heila- berkinum þegar hann fæst við ná- kvæm reikningsdæmi eða útreikn- ing sem þarf ekki að vera svo ná- kvæmur. í maíhefti tímaritsins Science kemur fram að vísindamenn við læknisfræðirannsóknarstofnun ziiuP oauji ss Si z Eitruð skipamálning veldur umhverfisspjöllum: Sæsniglar verða tvíkynja llla er komið fyrir sæsniglum við Danmerkurstrendur. Þeir eru flestir á góðri leið með að verða tvíkynja vegna eitraðrar málningar á stórum skipum. | Ekki er gott að i vera sæsnigill. IJillhVOVÍÍ AJia vega ekki ' við Danmerkur- i strendur. Rann- BHMMMMiaiiMiMU sóknir danskra vísindamanna sýna aö drjúgur hluti danskra sæsnigla er á góðri leið með að verða tvíkynja af völdum eitraðrar skipamálningar. Hormónatruflanirnar meðal danskra sæsnigla eru svo miklar, að sögn danska blaðsins Politiken, að Jakob Strand, sérfræðingur í sæ- sniglum, hefur heitið því að gefa hverjum þeim sem færir honum rauðan beitukóng án karlkynsein- kenna eina kampavínsflösku. Hann hefur ekki enn þurft að láta flösk- una af hendi. Eitrið sem veldur þessum ósköp- um heitir tributyltin, skammstafað TBT. Því er bætt út í skipamálningu þar sem það kemur í veg fyrir að hrúðurkarlar, þörangar og önnur smadýr setjist utan á skipsskrokk- inn. Dýrin geta spillt fyrir sjóhæfni skipa, auk þess sem skipin brenna meiri olíu. Sjómenn líta skepnur þessar því ekki beint hýra auga. Vitað er af tilraunum að TBT er mjög svo eitrað. Aðeins 0,5 milljarð- asti hluti af grammi í einum lítra vatns getur valdið hormónabreyt- ingum. Efnið brotnar líka seint og illa niður í náttúrunni. Fyrir átta árum var efnið bannað i málningu minni báta en er enn notað í málningu skipa sem era lengri en 25 metrar. Dönsk umhverfisyfirvöld áætla að milli 0,6 og 4,9 tonn af efninu losni í hafið nærri ströndum Dan- merkur á ári hverju. Hormónatruflanimar meðal danskra sæ- snigla eru svo miklar, að sögn danska blaðs- ins Politíken, að Jakob Strand, sérfræðingur í sæsniglum, hefur heit- ið þvi að gefa hverjum þeim sem færír honum rauðan beitukóng án karlkynseinkenna eina kampavínsflösku. Jakob Strand furðar sig ekki á því, miðað við magn TBT í hafinu við Danmörku, að sæsniglar þar séu orðnir tvíkynja. Ástandið er einna verst við stærri hafnir og nærri nokkrum höfnum á Jótlandi vestan- verðu er svo illa komið fyrir einni snigilstegundinni að vísindamenn óttast að hún muni hverfa með öllu. Vaxandi áhyggjur heilbrigðisyfirvalda í Evrópu: Bílamengun drepur Mengun af völdum bíla- umferðar er ört vaxandi vandamál um Evrópu þvera og endilanga. í sumum löndum deyja fleiri af völdum loftmengunar þessarar en í umferðarslysum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Alþj óðaheilbrigðismálastofnunar- innar (WHO) sem kynnt var fyrir skömmu. Langtímaloftmengun af völdum bíla í Austurríki, Frakklandi og Sviss veldur 21 þúsund ótímabær- um dauðsfóllum til viðbótar á ári úr öndunarfæra- eða hjartasjúk- dómum. Það er meira en saman- lagður fjöldi þeirra sem lætur lífið í umferðarslysum í löndunum þremur á ári. „Loftmengun af völdum umferð- ar eins og hún er nú hefúr gífurleg áhrif á heilsu fólks,“ sagði Carlos Dora, starfsmaður Who í Rómar- borg. Skýrslan var samin fyrir þriðju ráðherraráðstefnu WHO um um- hverfi og heilsufar sem haldin var I Lundúnum í síðasta mánuði. Þar er sýnt fram á að loftmengun af völd- um bíla veldur þrjú hundrað þús- und tilvikum af bronkítis til viðbót- ar í börnum, fimmtán þúsund inn- lögnum á sjúkrahús vegna hjarta- sjúkdóma og 162 þúsund asmaköst- um í börmnn í löndunum þremur. Carlos Dora segir að sífellt fleiri sannanir um þá auknu byrði sem loftmengunin er á heilsufar fólks komi nú í ljós. „Við verðum að taka á þessu,“ sagði Carlos Dora. Mengun af völdum bílaumferðar sendir 21 þúsund manns í þremur lönd- um Evrópu í gröfina á ári hverju.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.