Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1999, Page 1
19
ÍBV
vann \
Tirana
C3D
Feðgar á sigurbraut
Ólafur Ingason og faðir hans, Ingi Björn
Albertsson, gátu leyft sér að brosa breitt
eftir 2-1 sigur Valsmanna á Breiðabliki í
úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld.
Ólafur skoraði fyrra mark Vals og krækti
sfðan í vítaspyrnu, og undir stjórn Inga eru
Valsmenn ósigraðir í deildinni og komnir í
efri hlutann.
DV-mynd Hilmar Þór
Jóhannes Ólafsson, formaður knattspyrnudeildar ÍBV, ánægður með framgang síns liðs:
Hræðist mest álagið
„Það var frábært hjá liðinu að ná þessum
úrslitum í Tirana. Ég átti von á því að ef okk-
ur tækist að skora á undan myndi vörnin hjá
Albönunum opnast. Þeir þurftu þá í kjölfarið
að sækja og það var hagur okkar,“ sagði Jó-
hannes Ólafsson, formaður knattspyrnudeild-
ar ÍBV, í samtali við DV eftir að úrslitin úr
leik Eyjamanna gegn SK Tirana í 1. umferð að
forkeppni meistaradeildar Evrópu í knatt-
spymu bárust.
Jóhann sagði þessi úrslit ekki aðeins mikil-
væg fyrir ÍBV heldur einnig fyrir islenska
knattspymu á næstum ámm.
- Það er ljóst að álagið verður mikið á lið-
inu á næstimni?
Þrír leikir á einni viku
„Já, ég hræðist mest álagið sem verður á
mannskapnum á næstum vikum. Liðið leggur
af stað frá Tirana til Búdapest og þaðan til
London þar sem það þarf að dvelja yfir nótt-
ina. Liðið verður ekki komið heim til íslands
fyrr en á fóstudagskvöldið. Á sunnudag leikur
liðið svo í deildinni gegn Leiftri á Ólafsfirði.
Deildin er þétt setin og KSÍ kemur leiknum
ekki fyrir á öðrum tíma,“ sagði Jóhannes við
DV.
Eyjamenn eru komnir í 2. umferð forkeppn-
innar og mæta ungverska liðinu MTK Búda-
pest í Eyjum á miðvikudaginn kemur. Síðari
leikurinn verður svo ytra viku síðar.
„Við gerum okkur grein fyrir því að MTK
Búdapest er sterkari mótherji en SK Tirana.
Með réttri einbeitingu eru allir möguleikar
fyrir hendi," sagði Jóhannes Ólafsson.
Stukku hæð sína
Við dráttinn í Genf í Sviss fyrir nokkrum
vikum stukku menn frá ungverska liðinu,
sem voru viðstaddir dráttinn, hæð sína þegar
ljóst var að mótherji þeirra í næstu urnferð
yrði annaðhvort ÍBV eða SK Tirana. Því
mætti halda Ungverjarnir kæmu sigurvissir
til leiksins í Eyjum i næstu viku.
Sjónvarpað beint til Ungverjalands
Ungverska sjónvarpið hefur lýst yfir áhuga
að sjónvarpa leiknum beint frá Eyjum. Það
kemur hins vegar í ljós um helgina hvort af
því verður.
-JKS
Körfuknattleikslið KR missir sterkan leikmann:
Eiríkur til Holbæk
Eiríkur Önundarson,
bakvörðurinn knái sem lék
með KR á síðustu leiktíö og
þar áður með ÍR, hefur gert
árs samning við danska A-
deildarliðið Holbæk. Eirík-
ur, sem verður 25 ára í
haust, heldur til Danmerk-
ur í lok þessa mánaðar.
„Ég er auðvitað mjög
spenntur fyrir þessu og það
verður gaman að breyta til
og kynnast öðru umhverfi.
Ég veit svo sem ekki mikið
um þetta lið en ég veit að
það var einu sæti frá því að
komast I úrslitakeppnina á
síðasta tímabili. Mínar
heimildir segja að danskur
körfuknattleikur sé sterk-
ari en sá íslenski og breidd-
in þar er meiri en hér
heima," sagði Eiríkur í
samtali við DV í gær. Hann
lék 22 leiki með KR í úr-
valsdeildinni á síðustu leik-
tíð og var einn sterkasti
leikmaður liðsins. Hann
skoraði að meðaltali 16 stig
og átti 3 stoðsendingar.
Arnar til KR?
Þrátt fyrir að KR-ingar
missi Eirík úr sinum röð-
um verður vesturbæjarlið-
ið ekki á flæðiskeri statt
varðandi bakverði. Ólafur
J. Ormsson er kominn til
baka frá KFÍ, Daninn
Jesper Sörensen verður
áfram en hann kom til KR
undir lok síðustu leiktíðar
og þá hefur Sauðkræking-
urinn Amar Kárason verið
sterklega orðaður við KR
en þar er á ferðinni einn af
efnilegri körfúknattleiks-
mönnum landsins. -GH
Árangur ÍBV borgar sig:
Fimmtán millj-
ónir tryggðar
Með sigrinum á SK Tirana í gær hafa Eyjamenn tryggt sér 15
milljóna króna greiðslu frá UEFA, Knattspyrnusambandi Evr-
ópu. Þeir fá 4 milljónir fyrir hverja umferð sem þeir taka þátt i,
og sem landsmeistarar fá þeir sjö milljóna króna uppbótar-
greiðslu ef þeir verða slegnir út í annarri umferð forkeppninn-
ar. Takist þeim að komast enn lengra fara greiðslumar ört
hækkandi. Reikna má með að ferðir ÍBV til Tirana og Búdapest
kosti félagið í kringum fjórar milljónir, og þá standa eftir um 11
milljónir i hreinan hagnað af þátttökunni, fyrir utan aðgangs-
eyri og auglýsingar. -VS