Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1999, Blaðsíða 2
20
FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1999
FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1999
21
Sport
Enska knattspyrnulidiö Middles-
brough staðfesti i
gær að hafa gert til-
boð í Paul Ince en
Liverpool hefur ekki
þörf fyrir krafta
hans lengur. Það
mun koma í ljós á
næstu dögum hvort
Ince gengur i raðir
Middlesbrough en
miklar líkur taldar á
Þýska liðiö Armenia Bielefeld, sem
leikur í A-deildinni á næsta timabili,
festi í gær kaup á austurríska lands-
liðsmanninum Markus Weissen-
berger frá LASK Linz. Kaupverðið
nam um 80 milljónum króna.
Óvist er hvort Sonny Anderson, sem
franska liðið Lyon keypti frá Barce-
lona í síðasta mánuði, getur hafið
tímabilið, sem hefst í lok júlí, vegna
meiðsla. Franska liðið keypti hann á
1,4 milljarða.
Franska liðiö Mónakó festi i gær-
kvöld kaup á Pablo Conteras, lands-
liðsmanni Chile. Pablo, sem er 20 ára
vamarmaður, vakti athygli i S-Amer-
íkubikamum þar sem Chile varð í
flórða sæti.
Riólakeppninni á heimsmeistara-
móti unglingalandsliða í körfuknatt-
leik lauk í Lissabon i gærkvöld.
Spánn, Króatía, Bandaríkin og Arg-
entina komust í undanúrslit.
Bandariska hlaupakonan Marion
Jones er ósigrandi í 200 metra hlaupi
en í gærkvöld vann hún sitt 17. hlaup
í röð á stigamóti Alþjóða fijálsíþrótta-
sambandsins í París. Hún hljóp á
21,99 sekúndum.
Kjartan Einarsson, miðjumaðurinn
sterki hjá Breiðabiiki, meiddist á
kálfa á æfingu í fyrrakvöld og gat
ekki spilað með gegn Val í gærkvöld.
Arnór Guðjohnsen var á ný í leik-
mannahópi Vals eftir meiðsli en sat á
varamannabekknum allan tímann
gegn Blikum.
Lárus Sigurðsson markvörður er nú
titlaður aðstoðarþjálfari Vals en hann
spilar ekkert i sumar vegna meiösla.
Hann fékk rækilegt tiltal frá Pjetri
Sigurðssyni aöstoðardómara i leikn-
um fyrir að hvetja sína menn einum
of ákaft.
-GH/JKS/VS
Urvalsdeild karla
KR 9 6
ÍBV 9 5
Fram 9 3
Leiftur 9 3
Valur 9 2
Breiöablik 9 2
Grindavík 9 2
ÍA 7 1
2 1 21-8 20
3 1 14-6 18
5 1 12-8 14
4 2 8-10 13
5 2 12-16 11
4 3 9-9 10
2 5 8-11 8
4 2 3-5 7
Keflavík 9 2 16 10-16 7
Víkingur R. 9 1 4 4 8-16 7
Þrir leikir fara fram í úrvalsdeild-
inni í kvöld kl. 20. ÍA mætir KR á
Akranesi, botnliðin Keflavík og Vík-
jingur eigast við í Keflavik og Fram
tekur á móti Grindavík á Laugardals-
velli.
Ingi Björn Albertsson:
Rétti staður-
inn fyrir Val
„Við erum komnir í efri hlutann
og það er náttúrlega rétti staðurinn
fyrir Val. Liðið hefur lagt virkilega
hart að sér og er nú að uppskera í
samræmi við það. Það er geysilegur
karakter í þessu liði, þessir strákar
vilja leggja hart að sér og þeir vilja
ná árangri. Þeir eiga heiðurinn skil-
inn, það eru þeir sem eru inni á
vellinum og leggja sig fram en ég á
minnstan þátt í þessu. Við erum
komnir af þessu leiðindasvæði í
deildinni og nú er að fara ekki neð-
ar en þetta og reyna helst að klífa
eitthvað ofar,“ sagði Ingi Björn
Albertsson, þjálfari Vals, við DV í
gærkvöld en Hlíðarendaliðið er
ósigrað í fimm deildarleikjum undir
hans stjórn. -VS
Etxebarria fyrstur
Spánverjinn David Etxe-
barria vann sína aðra sérleið í
Tour de France í gær. Þá lögðu
hjólreiðakapparnir að baki 16.
sérleiðina sem nam 192 km frá bænum Lannem-
ezan til Pau. Lance Armstrong, Bandaríkjunum,
er enn í fyrsta sæti. -JKS
Síminn ekki stoppað
Spænski landsliðsbakvörðurinn og einn besti
leikmaður Barcelona, Sergi Barjuan, telur ekki
útilokað að hann yfirgefi herbúðir liðsins. Hann
segir að síminn hafi vart stoppað hjá sér í sumar.
Lið á Englandi og ítahu fylgjast spennt með en
þau vita að hann er ekki yflr sig ánægður í
Barcelona. -JKS
Kuerten úr leik
Hinn brasilíski Gustavo
Kuerten er úr leik á sterku
tennismóti í Stuttgart. Kuerten,
sem er í fimmta sæti á alþjóða
styrkleikalistanum, varð að láta í minni pokann
fyrir Svíanum Magnus Norman í fyrsta setti.
Kuerten örmagnaðist og hætti keppni. -JKS
Ofnæmiskast
Rússneski ólympíumeistarinn í 200
metra flugsundi, Denis Pankratov,
fékk slæmt ofnæmiskast á æfingu i
gær og var fluttur í skyndingu á
sjúkrahús. Læknar voru hikandi við
að gefa honum lyf þar sem þau gætu
leitt til falls á lyfjaprófi. -JKS
Marel í uppskurð
Marel Jóhann Baldvinsson,
sóknarmaðurinn efnilegi hjá
Breiðabliki, fer í uppskurð á
liðþófa í hné um helgina. Þar
með er ljóst að hann spilar
ekki með Kópavogsliðinu
næstu vikur. -VS
MTK geysisterkt
Mótherjar ÍBV í forkeppni meistara-
deildarinnar í knattspyrnu, MTK Búdapest,
eru greinilega geysisterkir. Þeir unnu 27
leiki af 34 í ungversku A-deildinni síðasta
vetur og fengu 19 stigum meira en næsta
lið, Ferencvaros. Markatalan var 77-26. Það
bíður því ÍBV afar erfitt verkefni. -VS
Rikki skoraði
Ríkharður Daðason, landsliðsmið-
herji í knattspymu, skoraði fyrsta
mark Viking úr vítaspyrnu í 3-1 sigri
á enska liðinu Southampton f vináttu-
leik í Stavanger í gærkvöld. Ríkharð-
ur lék í 65 mínútur en Auðun Helga-
son spilaði allan leikinn með Viking.
Sport
-JKS/VS
Kristinn Lárusson, fyrirliði Valsmanna, hefur betur í baráttu við Blikann Hreiðar Bjarnason að Hlíðarenda í gærkvöld.
DV-mynd Hilmar Þór
Hálfnað
Með 20 stig í húsi að lokinni fyrri umferð
em KR-ingar verðskuldað á toppi úrvalsdeild-
arinnar í knattspyrnu. Ef það skyldi hafa farið
fram hjá einhverjum er KR aldargamalt í ár og
í vesturbænum er nú 1 undirbúningi einhver
magnaðasta fagnaðarhátíð sem um getur í ís-
lenskri íþróttasögu.
KR-ingar hafa oft stefnt bjartsýnir á titla að
vori en í 31 ár hafa þeir mátt bíða eftir þeim
stóra. Nú síðustu ár hafa þeir fyrirhitt ofjarla
sína í Skagamönnum og Eyjamönnum en eins
óg þetta KR-lið spilar í dag er vandséð hvernig
það á að komast hjá því að standa uppi sem ís-
landsmeistari. Öflugur leikmannahópur, besta
sóknarlið deildarinnar, áberandi stuðnings-
menn og þeir fjölmennustu, og sú staðreynd að
KRer búið með alla erfiðu útileikina. Strák-
arnir hans Atla eiga bara leiki á höfuðborgar-
svæðinu eftir.
Það er alltaf undiralda í Vesturbænum. Líka
núna, merkilegt nokk, þrátt fyrir þessa
stöðu liðsins. KR-ingar skiptast
nefnilega í tvo hópa, með og á '''
móti þjálfaranum. Ef eitthvað
getur fellt KR-inga era það
þeir sjáifir. Til þessa hafa j
þjálfari og leikmenn nánast j
lokað sig af og náð að skapa
vinnufrið. Tapist óvænt stig |
er hætt við að friðurinn sé úti
og pressan á hópinn fari að Sf-
segja til sín.
Eyjamenn hafa tvo titla að verja
og eru á hælum KR. Þar er líka á
ferð geysisterkur leikmannahópur en
ýmis teikn em á lofti um að seinni hluti móts-
ins verði ÍBV erfíður. Meistaramir hafa ekki
verið sannfærandi í sumar, ef frá er talinn
fyrsti leikurinn, og hafa ekki sýnt þá knatt-
spymu sem hefur fært þeim titlana tvö síðustu
árin. Eyjamenn hafa marið þrjá eins marks
sigra á heimavelli og misstu stig til Framara,
og á útivelli hafa þeir unnið einn leik af fjór-
um.
Leikaðferð liðsins hefur verið gagnrýnd,
Bjami þjálfari svarar fyrir sig og hefur sagt
mönnum að éta það sem úti frýs. Þessi aðferð
hafi skilað árangri undanfarin ár. Já, já, en nú
em önnur lið búin að læra að spila á móti ÍBV.
í Eyjum sætir Bjarni líka vaxandi gagnrýni
fyrir að minnka hlut heimamanna í liðinu. Sú
pressa ein og sér er erfið í samfélagi eins og
Iþróttaljós
Vestmannaeyjum. Taki Eyjamenn sér ekki tak
er hætt við að þeir dragist fljótlega aftur úr KR-
ingum og vonin um meistaraþrennuna verði
úti löngu fyrir mótslok.
Eitt þriggja bestu liða deildarinnar situr í
þriðja neðsta sæti og hefur skorað 3 mörk í
sumar. Skagamenn eiga reyndar tvo leiki til
góða en hafa misst of mörg stig til að geta
stefnt á annað úr þessu en að ná þriðja sæti
deildarinnar. Til þess hafa þeir styrkinn, og
spili Stefán Þ. Þórðarson með þeim út mótið
eykur það líkurnar enn. En þá þurfa Skaga-
menn líka að fara að skora mörkin.
Fram og Leiftur sitja í þriðja og fjórða sæti
deildarinnar eftir fyrri umferð. Þetta em þau
félög sem tóku mestum breytingum frá síðasta
ári. Bæði eru vel mönnuð og því líkleg til að
bæta sig seinni part mótsins. Það er reyndar
með ólíkindum að Framarar skuli vera komn-
ir með 14 stig eins og þeir hafa spilað, ekkert
lið hefur fengið jafnmörg óverðskulduð
stig í sumar. En það er styrkleiki út
af fyrir sig. Nái Ólafsfirðingar að
smelia betur saman eru þeir til
alls líklegir.
Valsmenn eru skyndilega
komnir af botninum og upp í
5. sæti, og sýni þeir áfram
sama karakter og að undan-
fomu er ekki von á frekari
7 falldraug að Hlíðarenda í ár.
Breiðablik stefndi í toppbaráttu
JSL-- en sígur nú hratt niður töfluna.
Það ræðst í næstu umferðum hvort
Kópavogsliðið býr yfir styrk til að rétta
sig af, eða hvort það lendir í fallbaráttu einu
sinni enn.
Grindvíkingar lofuðu góðu en era dottnir
ofan í gryfju sem erfitt gæti reynst að komast
úr. Þeir hafa orðið fyrir mótlæti og látið það
fara í taugarnar á sér. Ef þeir hætta að vola
yfir þvi hve aðrir séu vondir við þá og taka upp
baráttugleði undanfarinna ára, geta þeir snúið
blaðinu við. Annars ekki.
Keflavík hefur valdið einna mestum von-
brigðum. Sterkur leikmannahópur, en hann
virðist algerlega staðnaður. Keflvíkingar verða
að brjóta upp leik sinn ef ekki á illa að fara.
Víkingar hafa ekki unnið siðan í fyrstu um-
ferð og hvað eftir annað tapað stigum sem þeir
höfðu í hendi. Á þá er kominn fallstimpill sem
erfitt verður að hrista af sér.
Forkeppnin:
HB steinlá
í Finnlandi
Úrslit í síðari leikjum í 1. umferð
forkeppni meistaradeildar Evrópu í
knattspyrnu í gærkvöld urðu þessi
og samanlögð úrslit eru aftast:
Ararat-Zalgiris........0-3 (0-5)
Kapaz Ganja-Sloga .....2-1 (2-2)
Zimbru-St. Patrick’s...5-0 (10-0)
Skonto Riga-Jeunesse...8-0 (10-0)
SK Tirana-ÍBV .........1-2 (1-3)
Flora-Partizan ........1-4 (1-10)
Haka-HB Þórshöfn ......6-0 (7-1)
Valletta-Barry Town....3-2 (3-2)
Glentoran-Liteks.......0-2 (0-5)
Leikir í 2. umferð forkeppninnar
eru þessir: Rapid Vín - Valletta,
Anorthosis - Slovan Bratislava,
Partizan Belgrad - Rijeka, Litex -
Widzew Lodz, Dinamo Tblisi -
Zimbru Chisinau, Dnepr Trans-
mash - AIK, Rapid Búkarest -
Skonto Riga, Besiktas - Hapoel
Haifa, Dynamo Kiev - Zalgiris
Vilnius, ÍBV - MTK Búdapest,
CSKA Moskva - Molde, Haka Val-
keakoski - Glasgow Rangers, Sloga
Jugomagnat - Bröndby, Maribor
Teatanic - Genk.
Fyrri leikimir verða 28. júlí og
síðari 4. ágúst.
-JKS
KT
1. DEILD KARLA
Fylkir
ÍR
9 8 0 1 21-10 24
9 5 2 2 26-16 17
Víðir
Stjarnan
FH
Þróttur R.
KVA
KA
10
9
9
9
9
10
4 20-24 14
4 20-17 13
3 18-14 12
4 14-13 11
4 15-24 11
4 9-14 10
Dalvík 9 2 3 4 13-19 9
SkaUagr. 9 2 16 16-21 7
Aðrir leikir í 10. umferð fara fram
annað kvöld. Þaö eru Skallagrím-
ur-Stjarnan, Dalvík-KVA, ÍR-Þróttur
R., og FH-Fylkir.
Rútur eftirsóttur
Eyjamaðurinn Rútur Snorrason hefur í
mörg hom að líta eftir að hann hætti að
leika með ÍBV á dögunum. Flest lið úr-
valsdeildar og nokkur í 1. deild hafa fal-
ast eftir honum. Þau sem sótt hafa fastast-
eru KR, Keflavík og Valur, og í gærkvöld bættust Framar-
ar í hópinn, samkvæmt heimildum DV. Rútur ætlar að gefa
sér góðan tíma til að taka ákvörðun en frestur til félaga-
skipta rennur út 31. júlí.
-VS
KA af botninum
- með sannfærandi sigri á Víði í Garði, 1-2
er takmark Valsmanna en Blikar búa sig undir fallbaráttu eftir 2-1 tap
Það er ekki langt síðan talað var um
Breiðablik sem spútniklið úrvalsdeildarinnar
og Valsmenn sem vísa fallkandídata. Eftir 2-1
sigur Vals í opnunarleik síðari umferðarinn-
ar að Hlíðarenda í gærkvöld hafa hlutirnir
heldur betur snúist við. Valsmenn eru komn-
ir í efri hlutann, taplausir í sex leikjum í röð,
en Blikar stefna beint í fallbaráttuna, án sig-
urs í fimm síðustu deildaleikjum sínum.
Valsliðið sem lagði Blika í gærkvöld á ekk-
ert sameiginlegt með því Valsliði sem tapaði
í leik liðanna i fyrstu umferðinni í Kópavogi
í vor - nema rauðu búningana. Slík eru um-
skiptin. Ljóst er að Ingi Björn Albertsson hef-
ur náð upp öðru og betra hugarfari meðal
leikmanna, og Ólafur sonur hans lagði sitt af
mörkum í gærkvöld með því að skora fyrra
markið og krækja í vítaspyrnu sem gaf það
síðara. Strákur sýndi sóknartilþrif sem
minntu á „þann gamla“ þegar hann var upp
á sitt besta. Þessi tvö mörk
skildu liðin í hléi en Blik-
ar áttu þó líka sín færi í
opnum og líflegum fyrri
hálfleik. Hreiðar Bjarna-
son fékk tvö þau bestu, en
hann komst ekki nær en
að hitta í utanverða stöng.
Valsmenn þéttu vömina
eftir hlé, drógu sig aftar á
völlinn og Blikar sóttu að
mestu út leikinn. Þeir
minnkuðu muninn úr víta-
spyrnu og Valur missti um
leið Sigurbjörn Hreiðarsson af velli með rautt
spjald. Þennan liðsmun náðu Blikar ekki að
0~fD Ótafur Ingason (10.) skall-
” aöi yfir Atla markvörð frá
vitateig eftir langa sendingu Harðar
Más frá eigin vallarhelmingi.
©_ /J\ Sigurbjörn Hreiðarsson (38.)
^ úr vitaspyrnu eftir að Hjalti
Kristjánsson braut á Ólafi Ingasyni sem
fékk stungusendingu frá Herði.
0.0 Salih Heimir Porca (62.) úr
v v vítaspymu eftir að Sigur-
björn Hreiðarsson sló boltann við
marklínu Valsmanna.
nýta sér þrátt fyrir talsverða pressu. Vals-
menn héldu út með mikilli baráttu og Krist-
inn var rétt búinn að skora
þriðja markið. Valsmenn
sluppu þó með skrekkinn
þegar mark var dæmt af
Blikum vegna rangstöðu.
Þrátt fyrir pressuna þurfti
Hjörvar, maíkvörður Vals,
aldrei að verja hreint skot
Blika í leiknum, þau fóru
flestöll yfir eða fram hjá.
„Þetta var sætur sigur og við
þurftum virkilega að hafa
fyrir þessu. Eftir tvö töp
gegn Blikum í sumar þurfti
ekki að stemma menn sérstaklega fyrir þenn-
an leik. Það var hálfkjánalegt hjá Sigurbimi
að láta reka sig út af því boltinn var að snú-
ast frá markinu. Við stjórnuðum leiknum
fram að brottrekstrinum, líka eftir að við
bökkuðum i seinni hálfleik, og sýndum
karakter manni færri, rétt eins og gegn
Fram. Við erum á uppleið og það er engin
launung á því að við ætlum að vera í baráttu
um Evrópusæti," sagði Kristinn Lámsson,
fyrirliði Vals.
„Heppnin var ekki með okkur í þetta
skipti, við nýttum ekki nokkur góð færi á
meðan þeirra mörk vora frekar ódýr. Það er
erfitt að rífa sig upp 2-0 undir og við sköpuð-
um okkur ekki nóg af færum til að jafna. Nú
erum við komnir í bullandi fallbaráttu með
þremur öðmm liðum, það er hörkuprógramm
fram undan og við þurfurn að taka á því,“
sagði Hákon Sverrisson, fyrirliði Blika. -VS
Valur 2 (2) - Breiöablik 1(0)
Hjörvar Hafliðason - Sindri Bjamason @, Helgi Már
Jónsson, Izudin Daði Dervic Hörður Már Magn-
ússon - Sigurbjöm Hreiðarsson, Ólafur Stígsson, Guðmundur
Brynjólfsson, Kristinn Lárusson @ - Ólafur Ingason, Jón Þ. Stefánsson
@ (Matthias Guðmundsson 62.)
Gul spjöld: Ólafur I., Matthías G. Rautt spjald: Sigurbjöm H.
Breiðablik:
Atli Knútsson @ - Guðmundur Öm Guðmundsson
@, Ásgeir Baldurs, Sigurður Grétarsson, Hjalti
Kristjánsson - Guðmundur Karl Guðmundsson (Ottó Karl Ottósson 74.),
Guðmundur Páll Gíslason (Marel J. Baldvinsson 46.), Hákon Sverr-
isson, Salih Heimir Porca @ - Hreiðar Bjamason, ívar Sigurjónsson.
Gult spjald: Marel.
Valur - Breiðabhk Valur - Breiðablik
Markskot: 11 13 Völlur: Góður í sólinni.
Hom: 4 8 Dómari: Egill Már Markús-
Áhorfendur: 689. son, þokkalegur.
Maður leiksins: Hörður Már Magnússon, Val.
Fimasterkur í vörninni og fljótur að snúa vörn í sókn.
0-1 Þorvaldur Makan (68.)
1-1 Grétar Einarsson (80.)
1-2 Jóhann Traustason (90.)
Það var að duga eða drepast
fyrir KA-menn gegn Víði í
Garðinum i gærkvöld, aðeins
með sjö stig á botninum eftir
fyrstu níu leikina. Strax frá
fyrstu mínútu tóku þeir leik-
inn í sínar hendur og héldp
nær óslitið út leikinn.
Það var aðeins Ragnar
Ragnarsson í marki Víðis sem
kom 1 veg fyrir að sigurinn
yrði stærri en hann bjargaði
Víðismönnum oft með frábærri
markvörslu. Ekki var þó sigur-
inn þrautalaus fyrir KA-menn,
því fyrra mark þeirra kom
ekki fyrr en á 68. mín. en þá
náði Þorvaldur Makan að
brjóta ísinn, var fyrstur að
boltanum þegar Ragnar varði
meistaralega fast skot utan af
velli. Við það vöknuðu Víðis-
menn og tóku skyndilega að
sækja af krafti. Þeir uppskáru
víti þegar Eggert markvörður
braut klaufalega á Gunnari
Sveinssyni. Grétar Einarsson
skoraði örugglega úr vítinu.
KA-menn, sem höfðu slakað
aðeins á klónni, gáfu allt sem
þeir áttu í leikinn og uppskám
sigurmark þegar Jóhann
Traustason, sem kom inn á sem
varamaður skömmu áður, skor-
aði með fóstu skoti af stuttu færi.
Sigur KA-manna verður að
teljast mjög sanngjarn og eins
og þeir spiluðu mátti sjá að ým-
islegt býr í þessu liði. Ef þeir
halda áfram af sama krafti má
búast við að þeir færist hægt
og örugglega upp stigatöfluna í
seinni umferðinni.
Víðismenn komust aldrei í
takt við leikinn og voru sem
farþegar lungann úr leiknum.
Heimavöllurinn sem hefur oft
verið sterkasta vígi Garð-
manna hefur nýst illa í sumar
og það kann aldrei góðri lukku
að stýra.
Maður leiksins: Ragnar
Ragnarsson, Víði.
-KS
Annar Dani í Leiftur
Leiftur fær enn einn erlendá knattspyrnu-
manninn á morgun því þá kemur Brian
Christensen frá Danmörku til liðs við félagið.
Landi hans, Kenneth Tange, er nýkominn
norður og lofar góðu. Christensen er 27 ára og
lék síðast í dönsku A-deildinni með Vejle
vorið 1998. -HJ/VS
Elliott þarf nýra
Sean Elliott, leikmaður NBA-meistaranna í
San Antonio Spurs, þarf eins fljótt og kostur
að gangast undir nýrnaígræðslu. Elliott hefur
um nokkurra ára skeið átt við nýmasjúkdóm
að striða og hefur heilsu hans hrakað að und-
anfomu. -JKS