Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1999, Blaðsíða 1
19
Soort
dvsport@ff.is
Fimmtudagur 9. desember 1999 ,
Vikingarnir Leo Orn Þorleifsson og
Hjörlur Arnarson fagna Þresti Helga-
syni, sem tryggöi þeim sæti í undan-
úrslitum bikarkeppninnar í handbolta
meö marki á síðustu sekúndu fram-
lengingar. DV-mynd Hilmar Þór
20-2
Gústaf með
7 gegn Kiel
Gústaf Bjamason skoraði 7
mörk fyrir
Willstatt
gegn meist-
urum Kiel í
þýsku A-
deildinni í
handknatt-
leik í gær-
kvöld. Þau
dugðu þó
skammt þvi Kiel vann yfirburða-
sigur á heimavelli sínum, 35-21.
Stefan Lövgren skoraði 9 mörk
fyrir Kiel og Nicolai Jacobsen 8.
Willstatt er sem fyrr næst-
neðst í deildinni með aðeins 4
stig en Kiel fór úr 7. sæti í ann-
að sætið með 21 stig. Flensburg
er efst með 28 stig en Kiel á tvo
leiki til góða.
-VS
Ljubljana vill fa
Friðrik Stefánsson
- Slóvenarnir hrifust af íslenska landsliðsmanninum
Forsvarsmenn Slovan Ljubljana
hrifust mjög af Friðriki Stefánssyni,
landsliðsmanni í körfuknattleik,
þegar landsliðið lék gegn Slóvenum
ytra í forkeppni Evrópumóts lands-
liða í síðustu viku.
Strax eftir leikinn kom fram-
kvæmdastjóri liðsins að máli við
Sigurð Hjörleifsson aðstoðarþjáifara
og lýsti yfir miklum áhuga að fá
Friðrik i herbúðir félagsins fyrir
næsta tímabil.
„Þeir sögðu að Friðrik hefði
skrokkinn til að ná langt í körfubolt-
anum. Hann þyrfti að komast undir
handleiðslu þjáifara li'ðsins sem
myndi gera hann enn betri. Umrædd-
ur þjálfari er mjög fær á sínu sviði og
hefur náð langt sem slíkur. Slóven-
arnir lýstu yfir
miklum áhuga á
að fá Friðrik í
sínar raðir og
ætla að ræða nán-
ar við hann þegar
tímabilinu lýkur
i vor,“ sagði Sig-
urður Hjörleifs-
son við DV i gær.
„Minn hugur stefnir í atvinnu-
mennskuna. Ég ætla að bæta mig
sem körfuboltamaður og til að svo
geti orðið verður maður að fara
utan. Deildin í Slóveníu er ein sú
sterkasta í Evrópu en við sjáum
hvað setur í þessum efnum eftir
tímabilið í vor,“ sagði Friðrik Stef-
ánsson í spjalli við DV í gærkvöld.
Ljubljana er sem stendur í 4. sæti
i deildinni og hefur um árabil verið
í hópi sterkustu liða í Slóveníu.
-JKS
Vekja
athygli
vestan-
hafs
c
Grikki
til ísa-
fjarðar
Urvalsdeildarlið Körfu-
knattleiksfélags Ísaíjarðar
barst í vikunni góður
liðsauki en þá kom til
liðsins Grikkinn Vinco
Patelis. Hér er um að
ræða 25 ára gamlan
leikmann sem er 2,03
metrar á hæð.
Hann kom til KFÍ frá
Spáni þar sem hann lék
með liði í 2. deildinni.
Patelis lék sinn fyrsta
leik gegn Þór í fyrra-
. kvöld og skoraði 21 stig.
Bindum vonir viö
Patelis
„Við bindum vonir við
Patelis og hann á eflaust
eftir að styrkja okkur í
baráttunni í vetur. Við
höfum verið í sárum til
þessa en það er engin
uppgjafartónn í okkur
hér fyrir vestan. Við eig-
um eftir að eflast,“ sagði
Guðjón Þorsteinsson, for-
svarsmaður KFÍ, í sam-
tali við DV.
KFÍ er að gera sér von-
ir um að fá Hrafn Krist-
jánsson til baka í janúar
en hann var skorinn ný-
lega upp við meiðslum í
nára.
-JKS
Sterkur
leikmaður
til Snæfells
Úrvalsdeildarlið Snæfells frá
Stykkishólmi fær liðsauka þegar
deildin fer af stað eftir áramótin.
Hér er mn að ræða bandarískan
bakvörð að nafni Robert Patrick
og er hann með írskt vegabréf.
Hann er núna í desember að
ljúka námi við State University í
New York.
Patrick er sterkur leikmaður
en hann hefur skorað að meðal-
tali 28 stig með háskóla sínum og
tekið 12 fráköst. Snæfell er í 8.
sæti í úrvalsdeildinni með 6 stig
af 12 liðum. Liðið vann góðan
sigur í síðustu umferð gegn
Grindavík en með tilkomu þessa
leikmanns ætti liðið að styrkjast
til muna.