Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2000, Blaðsíða 8
46
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000 ID'V
Eins og lítil keppni í formúlu
- körtukappakstur aldrei vinsælli hérlendis
Eins og sjá má eru mörg handtökin við hverja keppni og oft þarf að skipta
um dekk sem klárast hratt.
Síðastliðið sumar var í fyrsta sinn
keppt í körtuakstri á íslandi en núna
munu vera hátt í 60 körtubílar á land-
inu. Sú hugsun að körtuakstur og -
keppni sé einungis mótorsport fyrir
böm virðist vera töluvert áberandi hér
en það er ekki svo. Margir, ef ekki all-
ir, fremstu ökumenn heimsins i For-
múlu 1 kappakstri byrjuðu feril sinn
feril í körtuakstri og margir þeirra
halda honum áfram jafnhliða akstri í
formúlunni. Má þar nefna þá
Schumacherbræður, Vilieneuve og nú-
verandi heimsmeistara, Mika
Hakkinen. En hvað er karta eða go-
kart eins og það hefur oftast verið kall-
að?
25 hestafla tryllitæki
Körtur eins og keppt er á hér á landi
eru farartæki um 1,5 metrar á lengd og
um metri á breidd og vega um 80 kg en
lágmarksþyngd með ökumanni er 160
kg. Nær allar vélamar i körtubílunum
sem keppa hér em 125 rúmsentímetra
og eitthvað um 25 hestöfl. Þijá gerðir
hafa verið fluttar inn af körtum en til
þess að geta keppt verða allar gerðir að
uppfylla nokkuð ákveðnar kröfur um
uppbyggingu. Til að tryggja enn frekar
jafna keppni er einnig kveðið á um að
dekkin séu frá sama framleiðanda, þó
svo að fram hjá því hafi verið litið síð-
astliðið sumar. Keppni í körtuakstri
fer að jafhaði fram á lokuðum hring-
brautum en þó er eitthvað um að keppt
sé á götum eins og gert var á Akureyri
síðastliðið sumar. Hér á íslandi er að-
eins til ein braut sem hefúr verið lög-
uð fyrir keppni i körtuakstri en það er
rallíkrossbrautin í Kapelluhrauni í
Hafnarfirði. Þar sem nauðsynlegt er að
keppa á malbiki var nauðsynlegt að
bæta töluvert við brautina þannig að
núna getur hún þjónað bæði
rallíkross- og körtuakstri. Körtuhluti
brautarinnar er 787 metrar og það tek-
ur hraðskreiðustu körtumar rúmlega
eina mínútu að fara hringinn þannig
að meðalhraði í brautinni er um 80
km/klst. Hámarkshraði í brautinni
mun vera um 115 km/klst. I keppninni
í sumar vom eknir 15 hringir í 4 riðl-
um og keppendur fengu punkta í sam-
ræmi við stöðu sína. Sigurvegari var
svo sá sem fékk flesta punkta.
Líkamleg þolraun
Keppni í körtuakstri reynir mjög á
líkamlegt atgervi. Keppendur mega
heldur ekki vera of þungir þar sem
þyngd ökumanns er mjög afgerandi í
heOdarþyngdinni. í einum riðli, 15
sinnum 787 metrum, em eknir um 12
km. í einni keppni em því eknir um 48
km eða sama vegalengd og frá Reykja-
vík til Hveragerðis. í því sambandi er
rétt að hafa í huga að körtur em ekki
á fjöðrum og fjarlægð frá sæti öku-
manns niður í götu er einungis 2 cm.
Þó að munur milli keppnistækja sé
mjög lítill er það þó svo að sumir öku-
menn em betri en aðrir. Þannig má
iðulega sjá að þegar búnir era 10
hringir af 15 hafa þeir sem fljótastir
em náð að hringa hina sem hægar
fara. Tímatökur era gerðar með svip-
uðu sniði og i formúlunni. Keppendur
hafa ákveðinn tíma eða fjölda hringa
til að fara brautina á sem skemmstum
tíma og sá sem hefur stystan tíma í
tímatöku startar fyrstur. Tvær aðferð-
ir em notaðar við að starta keppend-
um, svokallað fljúgandi start eða beint
start (stand still). Þegar keppt hefur
verið á Islandi hefur verið notað fljúg-
andi start. Það fer þannig fram að bíl
er ekið á undan körtunum, þeim er
raðað annaðhvort í einfalda eða tvö-
falda röð á eftir forystubílnum (pace
car) og staðsetning kartna í röðinni fer
eftir árangri i tímatöku. Að loknum
einum eða fleiri hringjum, þegar
keppnisstjórnandi telur keppnistæki
vera nægilega þétt saman, gefur hann
merki og keppni getur hafist. í beinu
starti yrði körtunum raðað upp hlið
við hlið, þó alltaf þannig að sú sem var
fyrst í tímatöku sé alltaf hálfri körtu-
lengd á undan þeirri næstu og svo koll
af kolli.
Spennandi keppni fram undan
Síðastliðið sumar voru tvær
keppnisraðir. Önnur var bikar-
meistarakeppni undir merkjum
Símans GSM og var hún ætluð sem
æfingakeppni tfi að slípa tO kepp-
endur og keppnishaldara. Hin
keppnisröðin var síðan íslands-
meistaramótið. Þá var einnig var
keppt í götukörtuakstri á Akureyri.
Margar reglur sem stuðst er við em
þær sömu og notaðar em í formúl-
unni. Þannig gefur blátt flagg tO
kynna að viðkomandi eigi að hleypa
fram úr sér, gult flagg merkir að
hætta sé fram undan og framúrakst-
ur bannaður og rautt flagg að
keppni hafi verði stöðvuð. Fyrir þá
mörgu sem fylgjast með formúlunni
er það góð tObreyting að fylgjast
með körtukeppni sumarsins. í
þeirri keppni sem MSK hyggst
standa fyrir hefur verið raðað
þannig að ekki sé keppt sömu helg-
ar og keppt er í formúlunni. Eitt er
víst að í körtuakstri má aOtaf búast
við spennandi keppni og miklum tO-
þrifum. -PÁJ
Mikil þátttaka var í keppninni í fyrra og viðbúiö aö svo veröi líka í ár.
DEKK OG FELGUR OG MARGT FLEIRA.
V #
ÚTSÖLULOK LAUGARDAGINN 12. FEBRÚAR.
OPIÐ FRÁ KL. 8-20
SENDIBILADEKK
30%
AFSLATTUR
185-R14,
KR. 4.804
195-70R15,
KR. 5.946
JEPPADEKK
30%
AFSLATTUR
235-75R15, KR. 7.016
30x9,50R15, KR. 7.583
31x10,50R15, KR. 8.033
4 STK. MEÐ 15x8 ÁLFELGUM
30" DEKK + FELGUR, KR. 74.900
31" DEKK + FELGUR, KR. 77.900
DEKK OG FELGUR
AF NÝJUM BÍLUM
ÁLFELGUR. 16x7,
6 GATA, DEKK 245-70R,
KRTK25.Ö00
VERSLUN SUPURLANDSBRAUT
108 REYKJAVIK - s. 588 9747.
16
FJARSTYRINGAR
VERÐ FRÁ 3.990
25-50%
AFSLÁTTUR.
4 STK- ALFELGUR
OG NY NEGLD DEKK
ALFELGUR. 16X7,
6 GATA,
NY DEKK, 265-75R16,
4 STK.
KR. 60.000
m
ALFELGUR, 15x6,
5 GATA,
DEKK, 205-75R15,
4 STK.,
KR. 20.000
ALFELGUR
AFSLÁTTUR
14" KR. 7.716
15" KR. 8.172
14" KR. 49.900
15" KR. 56.900
20-40%
AFSLÁTTUR
AÐUR2Sv7CG,
IMU 19.900
A9UR 35.6SC
ÞRAÐLAUS
GJORGÆSLA
MEÐ ASTANDi
u IOLBARÐANNA
19.900
NÝ SNJÓDEKK
30%
AFSLÁTTUR
155-10R13, KR. 2.345
165-70R13, KR. 3.111
175-70R13, KR. 3.102
175-70R14, KR. 3.467
185-70R14, KR. 3.780
175-65R14, KR. 3.731
185-65R14,KR. 4.091
195-65R15, KR. 4.537