Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2000, Page 1

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2000, Page 1
+ 15 Föstudaéurr 25. febrúar 2000 www.visir.is Evrópumótið innanhúss í frjálsum íþróttum hefst í dag: Jón Arnar verður í baráttunni um gullið - Vala Flosadóttir í eldlínunni í stangarstökkinu Evrópumótið innanhúss í frjáls- um íþróttum hefst í borginni Ghent í Belgíu í dag. Fjórir íslenskir kepp- endur eru á meðal þátttakenda, Jón Arnar Magnússon, Vala Flosadótt- ir, Guðrún Arnardóttir og Einar Hjartarson. Jón Arnar keppir í fjórum grein- um i sjöþrautinni í dag. Keppni hefst á 60 metra hlaupi og síðan Jón Arnar Magnússon stendur í ströngu í Belgíu um helgina en þar etur fylgja langstökk, kúluvarp og há- hann kappi við sterkustu sjöþrautarmenn Evrópu.____________________________________________________________ stökk í kjölfarið. Vésteinn Hafsteinsson, farar- stjóri hópsins, sagði í gærkvöld all- ar aðstæður á keppnisstað mjög góðar en mótið færi fram í nýrri og glæsilegri höll. „Jón Arnar á góða möguleika og hann verður í baráttunni um gull- verðlaunin við þá Erki Nool, Rom- an Seberle og Tomas Dvorak. Vala á enn fremur góða möguleika í stangarstökkinu en undankeppnin fer fram í dag. Átta bestu komast áfram í úrslit. Guðrún Arnardóttir stefnir að því að bæta sig og setja íslandsmet í 400 metra hlaupi og 60 metra grindahlaupi. Einar Hjartar- son er á sínu fyrsta stórmóti í há- stökki og gaman væri að hann næði lágmörkunum fyrir Ólympíu- leikana," sagði Vésteinn. -JKS KR-konur fögnuöu vel 24 stiga sigri á Keflavík í gær í 1. deild kvenna því um leiö tryggöi liöiö sér næsta örugglega deildarmeistaratitilinn. DV-mynd Hilmar Pór Evrópumótið: 17ár íslenska landsliðið í körfu- bolta leikur sinn fimmta leik í undanúrslitariðli Evrópumóts landsliða í körfúbolta gegn Por- túgal í Laugardalshöllinni á morgun. Leikurinn hefst klukkan 16.00 og er ókeypis inn á hann í boði Esso og Lýsingar. íslenska liðið hefur þegar tapað fyrstu fjórum leikjum sínum í keppninni og í raun öllum 14 leikjum sínum í þessum hluta Evrópumótsins sem liðið tekur nú þátt í í annað sinn. Menn eru orðnir langeygð- ir eftir fyrsta sigrinum sem yrði stórt skref fyrir íslenskan körfu- bolta. Mótherjinn nú, Portúgal, ætti þó að gefa nokkra mörguleika á að enda þessa 14 leikja taphrinu þó að íslenska liðið verði að eiga mjög góðan leik og fá miklan stuðning frá áhorfendum ef það á að takast. ísland hefur ekki náð að vinna Portúgal í 17 ár en Portúgal hefur líkt og íslenska liðið tapað öllum fjórum leikj- um sínum í riðlinum til þessa. Bæði lið hafa orðið undir í baráttunni um fráköstin í fjór- um leikjum stnum í riðlinum til þessa (ísland hefúr teki 44,9% og Portúgal 45,2%) en Portúgalar hafa hitt mun betur úr skotum sínum, bæði utan af velli (45% gegn 38,2%) og af vítalínunni (72% gegn 69%). íslenska liðið hefur á móti gert fleiri þriggja stiga körfur (31 gegn 19) og átt fleiri stoðsendingar (43 gegn 35). Mótherjar íslenska liðsins hafa hitt úr 53,8% skota sinna til þessa en mótherjar Portúgala 47,8% en þess má geta að Makedóníumenn hittu úr 63,5% skota sinna gegn íslenska liðinu á miðvikudaginn. -ÓÓJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.