Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2000, Qupperneq 15
haf
Stundum eru dýr tákngervingar fyrir mannlegt eðli og manneskjur eru sagðar
hundslegar, hænuhausar, nautheimskar, Ijóngáfaðar o.s.frv. Sumir sjá sjálfan sig í
kettinum sínum, hundinum eða jafnvel haferninum. Að ekki sé minnst á
stjörnumerkin sem flokka fólk eftir nokkrum dýrategundum. Átta þjóðþekktir
einstaklingar svöruðu spurningunni hvaða dýr væri flottast og hvaða dýr væri Ijótast.
Auður
Laxness,
húsfreyja á
Gljúfrasteini
Páll Valsson,
ritstjóri og
höfundur
ævisögu Jónasar
Hallgrimssonar.
Margrét Frí-
mannsdóttir
þingmaður.
Sindrí
Freysson,
rithöfundur og
blaðamaöur.
Aðalheiður
Inga Þor-
steinsdóttir,
fréttakona hjá
Ríkissjónvarpinu.
Logi Berg-
mann Eiðs-
son,
fréttamaður hjá
Ríkissjónvarpinu.
Hallbjörn
Hjartarson
kántrýsöngvari.
Guðrún
Pétursdóttir
lífeðlisfræðingur.
Flottasta dýrið
„Ég er nú mest fyrir hunda.
Mér þykja þeir eitthvað svo
geðugir. Þaö hefur alltaf verið
hundur á heimilinu hjá mér."
„Fegursta dýrið er hestur og
næst kæmi kýrin."
„Ég held að það.sé bara
dalmatíuhundur. Mér finnast
þeir alveg ofsalega fallegir og
dalmatíuhundur er það dýr
sem ég myndi helst vilja
eiga."
„Manneskjan er fiottasta dýr-
ið vegna vitsmuna sinna,
hæfileika til samkenndar og
sköpunargáfu. Plús nakin
kona sem er æðsta stig góðr-
ar hönnunar.
„Svartur pardus. Af því að
hann er svo skuggalegur."
„Kötturinn minn, hann Smart
spæjari. Hann er ógeðslega
svalur, kelinn og eins og
heimilisköttur á að vera. Hann
hefur líka sloppið frá katta-
föngurunum."
„Mér dettur nú bara kanína í
hug, svona í fyrstu. Mér finnst
hún sæt og falleg."
„Ég sé ketti alltaf sem litil
tígrisdýr og mér finnst þeir al-
gjört æði.“
.t;:
’
Ljótasta dýrið
„Ég veit það ekki. Það er leiö-
inlegt að segja að eitthvert dýr
sé Ijótt. Jú, kannski rotta."
„Af mörgum ófríðum dýrum
kemur mér fyrst í hug
nashyrningur."
„Ljótasta dýrið finnst mér vera
húsamús. Hún er svo illgjörn á
svipinn."
„Manneskjan er lika Ijótasta
dýrið. Vegna misbeitingar vits-
muna sinna, grimmdar og
sjálfseyðingarhvatar.
„íslenska sauökindin vegna
þess aö hún er lummó og
kostar islenska skattborgara
heilmikið fé. Svo finnst
mér hún heldur ekki góð á
bragðið."
„Geitungur. Mér er rosalega
illa við geitunga."
„Mér finnst rottan
ógeðslegust."
„Sum dýr eru Ijót en þau eru
þá venjulega fýndin líka. Þaö
eina sem mér finnst verulega
Ijótt er illa innrætt mann-
eskja."
Kittý klára er
ordin sameinda-
líffræðingur
Hljómsveitin Oxsmá hlaut nýlega
verðlaun frá Ríkissjónvarpinu fyrir
myndbandið Kittý klára sem gert
var árið 1985 en vídeóið var kosið
hvorki meira né minna en besta
myndband aldarinnar. Aðalsögu-
hetja myndbandsins, Kittý klára, var
leikin af 12 ára stúlku, Önnu Guð-
nýju Hermannsdóttur, sem var ótrú-
lega góð í hlutverki hinnar kláru
kisulóru sem var alltaf fuli í baði.
Þetta ljóshærða súkkulaði lagði þó
ekki leiklistina og dansinn fyrir sig
heldur er hún orðin sameindalíf-
fræðingur. Kittý klára er sem sagt
klár í orðsins fyllstu merkingu, eins
og hún reyndar sannaði í mynd-
bandinu á sinum tíma þegar hún sló
bæði Óskar Jónasson og Kormák
Geirharðsson duglega utan undir og
geri aðrir betur.
Hardrock í
heimsendingu
Hardrockcafé færir enn út kvíarn-
ar og nýjasta uppátækið er heim-
sending á veislumat. Þetta er alvöru-
veislumatur eins
og Santa Fe rúll-
ur, kjúklinga-
v æ n g i r ,
SuperNachos,
klúbbsamlokur
og annað gott-
erí. „Ég meina,
hver er ekki búinn
að fá uppí kok af snittum og
majónesi?11 segir Einar Bárðar sem
þó heldur áfram aö sprauta majónesi
í hamborgarana. Hard Rock café er
með þessu uppátæki að stíga enn eitt
skrefið í þá átt að verða meira
„klassí“ en viljum viö ekki bara hafa
gamla, góða Hard Rock með djúsí
hamborgurum og miklu majónesi?
Gonzales hættur
Guðmundur Amar Guðmundsson,
betur þekktur sem Gummi Gonzales,
hefur látið af störfum sem
skemmtanastjóri á
Ozio. Eins og stað-
an er í dag er
staðurinn því
f o r m 1 e g a
skemmtana-
stjóralaus. Gummi
ákvað að snúa sér
meira að útvarpinu en
hann vinnur að markaðssetningu út-
varpsstöðva íslenska útvarpsfélags-
ins og dagskrárgerð á útvarpsstöð-
inni Mono.
og kraftmikil með 2 x 100 W útgangsmagnara, Power Bass
hátalara, funky blá baklysing, einingar sem auðvelt er að taka
i sundur, gegnsætt lok fyrir CD-spilara og allt það sem þú vilt
hafa i alvöru hljómtækjastæðu, og meira til!
■á-aófiina
sssm
kr. stgr.
25. febrúar 2000 f Ó k U S
15