Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2000, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2000, Síða 16
Orðið klíka þykir yfirleitt neikvætt. En orðið á oft við um vina- hópa þar sem vinirnir efla hvern annan og margir erkisnillingar hafa fengið andlegt fæði í klíkum. Hérlendis á valinkunnugt fólk oft valinkunna vini og jafnvel frá barnæsku. Fókus skoðaði nokkrar vinaklíkur sem krydda íslenskt þjóðfélag. Matthildarklíkan-------1 Breiðholtsklíkan flaggar for- manni SUS og ungum mönnum á framabraut en eru þeir jafn töff Matthildarklíkan? Hún er nefni- lega ein þekktasta klíkan og dregur nafn sitt af útvarpsþættinum Matt- hildi sem Davíð Oddsson, Þórarinn Eldjám og Hrafn Gunnlaugsson voru með, líkt og alþjóð veit. Félag- ar Matthildarklikunnar voru skólafélagar í MR og eiga það sam- merkt að skipa feitan sess í þjóðlíf- inu. Davíð er forsætisráðherra, Hrafn gerði ísland frægt í Svíþjóð og Þórarinn er eitt fremsta skáld Islendinga. Þessir menn hafa oft verið umdeildir í gegnum tíðina og þá sérstaklega Hrafn og Davíð en landinn minnist útvarpsþáttanna ætíð á jákvæðan hátt. Þegar þá ber á góma er þrenningin álitin húmorísk fram í fmgurgóma og þeim fyrirgefið margt annað eins og kvótakerfið eða Myrkrahöfð- inginn. Matthildarklíkan er auðvit- að algjör hægriklíka en hefur að mestu leyti sloppið við samsæris- kenningar og kjaftasögur. Það er erfitt fyrir hægrisinnaðar stutt- buxnaklíkur að komast með tæm- ar þar sem Matthildur hefur hæl- ana. -Vogaskólaklíkan Úr Vogaskólanum kemur hópur vinstrisinnaðs fólks sem var her- stöðvaandstæðingar í mennta- skóla. Hluti þeirra hefur skapað sér öruggan sess í íslensku menn- ingarlífi og aðrir hafa sterk ítök í pólitíkinni. Land- inn bendlar óspart samsæriskenning- ar við svokallaða Vogaskólaklíku og þeir sem eiga að teljast til hennar eru Friðrik Þór Friðriksson, Einar Már Guðmunds- son, Ingibjörg Sól- rún Gisíadóttur, Örnólfur Thors- son, Stefán Jón Hafstein og Örn Daníel Jónsson. Vogaskólaklíkan Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir borgarstjóri, Friö- rik Þór Friöriksson kvikmyndageröarmaö- ur, Einar Már Guö- mundsson rithöfundur, Örnólfur Thorsson, Stef- án Jón Hafstein blaöa- maöur. Þaö vantar mynd af Erni Daníel Jónssyni lektor... i einrumi ... hjá íslenskri erföagreiningu og ég skil ekkert í því sem ég er að gera. Ég er menntaður frá Háskóla í Danmörku en var aldrei alveg með á nótunum þegar ég var í skólanum. Sumt skildi ég, annað ekki. Ég held að það sé ekkert óal- gengt. Það er mikill misskilningur að maður þurfi að skilja allt sem maður lærir til þess að læra það. A.m.k. tókst mér að ná öllum prófunum og ná mér í góða stöðu hjá íslenskri erfðagreiningu ... ... en þá byrjuðu vand- ræðin Kári Stefánsson hefur mikinn áhuga á því sem ég er að gera. Ég býst við að flestir séu sammála um það að það er gaman að hafa yfirmann sem sýnir manni áhuga en þessi áhugi Kára á mér og mínu starfi hefur snúist upp í al- gera martöð. Hann kemur oft til mín, rennir yfir þaö sem ég er að gera í tölvunni og byrjar svo að tala ... ... og ég skil ekki rass- gat Ég hef oft séð hann í sjónvarpinu útskýra út á hvað rann- sóknirnar ganga og það er mjög auðskiljanlegt. En þegar hann talar við mig þá er eins og hann geri aðrar kröfur. Hann talar um hluti sem ég hef aldrei heyrt minnst á, alls kyns vísindamenn sem ég þekki ekki og vitnar í rannsóknir sem ég á auðheyrilega að þekkja en hef ekki hugmynd um. Hann sýnir mér mikið traust og ég veit að hann hefur mikla trú á mér vegna þess að hann er alltaf að hrósa mér ... ... en ég er alveg úti að skíta Ég talaði oft um þetta við konuna mína en hún trúði mér ekki. Hún sagði að ég væri bara svona hógvær eða að ég hefði ekki nógu mikla trú á mér. Að ég sé í rauninni klárari en ég viti sjálfur en það er ekki satt. Ég er vitlausari en mig óraði fyrir. Stundum hef ég reynt að taka Kára upp á segulband. Ég kveiki á diktafóni í vasanum þegar ég sé hann nálgast, reyni að standa tiltölulega ná- lægt honum á meðan hann tal- ar við mig og hlusta svo seinna á upptökuna. Einu sinni gekk ég svo langt að lána vini mínum þetta og spurði hann svo álits. Hann sagði að þetta væri mjög merkilegt og að hann væri impóneraður á því ... ... hvað ég svaraði Kára af miklu innsæi En ég var orðinn ofboðslega þreyttur á þessu. Það sem helst virkaði á hann var að sitja bara negldur við tölv- una þegar hann kom í heim- sókn, gjóa til hans augunum eins og hann væri að trufla mig og stynja. Hann kann að meta það. Ég veit ekki hvort hann er svona hrifinn af því að ég gefi mér ekki tíma til að tala viö hann eða hvort hann beri svona mikla virðingu fyrir fólki sem þolir hann ekki. Þetta bar a.m.k. árangur eða ... ... það hélt ég um tíma Það kom sem sagt í ljós að hann fékk það á heilann að ég væri einhvers konar snillingur og gaf mér stöðuhækkun. Núna er ég yfirmaður kerfisdeildarinnar með 50% hærra kaup en áður. Það góða við það er auðvitað að nú þarf ég ekki að gera mikið meira en að ganga á milli og horfa á tölvuskjáinn hjá fólki, kinka kolli eða andvarpa, bara svona nokkurn veginn til skiptis. Stundum kemur Kári með mér en það er allt í lagi. Núna horfir hann bara aðdáunaraugum á mig hvað sem ég geri. Við erum ógeðslega góðir saman, hann veit ekki hvað ég er að hugsa og mig grunar ekki einu sinni um hvað hann er að tala. I gegnum aldirnar hafa vinaklíkur stungið upp kollinum og markað samtíð sína. Þetta eru valdamiklir hópar og teygja oft angana út i áhrifamikla geira samfélags- ins. Meðlimimir standa sam- an og hvetja, styðja og efla hvem annan til dáða - eða ódáða. Þekktasta dæmið er líklega maflan á Sikiley en hóparnir eru oft fámennari eins og félagarnir Platón, Sókrates og Aritóteles sem miðluðu hver öðrum af visku sinni og kvikmyndagúrúamir Spielberg, Coppola og Lucas sem voru bekkjarfélagar og miklir vinir. íslendingar eiga líka sínar merkisklíkur, allt frá félögunum í Unuhúsi til grafílti- listamanna sem halda hópinn. Breiðholtsklíkan------------- Breiðholtsklíkan er áberandi og skartar m.a. fótboltakappa, ráð- herraefni og sjónvarpsstjömu. Þeir hafa verið vinir frá bamæsku og ólust flestir upp í sömu blokk í Breiðholtinu. „Við vorum allir í leikskólanum Hólaborg, fórum svo í Hólabrekkuskóla og æfðum fót- bolta hjá Fram. Síðar vorum við allir í Versló fyrir utan einn,“ seg- ir Gísli Marteinn fréttamaður um þá vinina. Þeir hvetja hver annan áfram og rökræða stundum út í hið óendanlega. „Við höfum rökrætt mikið alla tíð. Stundum um eitt- hvað sem öðrum þykir bara smá- mál en okkur finnst feikilegt stór- mál. Eins og í Trival Pursuit, þá körpum við kannski ákaft um hvort Bláa lónið sé fullnægjandi svar eða hvort Bláa lónið við Svartsengi sé eina rétta svarið," út- skýrir Gisli og bætir við að þeir fé- lagamir haldi ætíð hópinn. „Við erum til dæmis að fara í sumarbú- staðciferð á eftir. I árlega þorraferð með kærastunum. Við erum líka í spilafélaginu Mána og félagið átti 10 ára afmæli í fyrra svo við fórum allir ásamt kvinnunum tO Calpe á Spáni. Fundum tíma þegar það var frí í 1. deild norska fótboltans, í Þjóðleikhúsinu, Sjónvarpinu o.s.frv. Við leigðum meiriháttar villu þar, með útsýni yfir Miðjarð- Matthildarklikan Davíö Oddsson, Þórarinn Eldjárn, Hrafn Gunnlaugsson. 16 f Ó k U S 25. febrúar 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.