Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2000, Side 4
26
ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2000
Eyjólfur Sverrisson.
Eyjólfur ekki með
Eyjólfur Sverrisson verður fjarri
góðu gamni þegar Hertha Berlín
leikur gegn Sparta Prag í Meistara-
deild Evrópu í Prag í kvöld. Eyjólfur
meiddist á hásin í leiknum gegn
Unterhacing um helgina. Raunar er
ástand á leikmönnum þýska liðsins
ekki beysið og verður liðið án nokk-
urra lykilamanna í kvöld. Má í því
sambandi nefna Michael Preetz og
Dick van Burik og fleiri. Norðmað-
urinn Kjetil Rekdal, sem margir
töldu að hefði leikið sinn síðasta leik
fyrir félagið, hefur verið kallaður
inn vegna ástandsins á leikmönnum.
Hertha verður að vinna leikinn til
að eiga einhverja möguleika í riðlin-
um. -JKS
Vala Flosadóttir, stangarstökki,
fékk Suzuki Jimny jeppann eftir allt
saman á Stórmóti ÍR i fyrrakvöld.
Leppin-umboöið, sem hafði heitiö
Völu jeppanum ef hún slægi Evrópu-
metið, endumýjaði samning sinn við
Völu og fær hún afnot að bifreiðinni
þegar hún er stödd hér á landi.
iþróttayfirvöld í Rússlandi hafa
miklar áhyggjur þessa dagana af tíð-
um árásum á þekkt íþróttafólk. Ung-
ur boxari, sem talinn var mikið efni,
var skotinn til bana á dögunum og í
kjölfarið var ráðist á eina bestu
hlaupakonu Rússa í dag, 800 metra
hlauparann Natalyu Gorelovu. Var
það greinilega ætlun árásarmann-
anna að eyðileggja feril hlaupakon-
unnar þar sem þeir réðust með bar-
eflum á fætur Gorelovu. Hún slapp þó
furðu vel frá öllu saman. Og nú síðast
var bifreið einnar frægustu skauta-
drottningar Rússsa, Mariu
Butyrskayu, sprengd i tætlur fyrir
utan heimili hennar.
Gríóarleg spilling innan Alþjóða
Ólympíunefndarinnar er enn til
rannsóknar. Nú síðast heftu- varafor-
seti Alþjóða Ólympíunefndarinnar,
Kevan Gosper, verið til rannsóknar
og hefur verið ákveðið að skipa óháð-
an aðila til að fara ofan í saumana á
spillingarmáli Gospers. Hann á að
hafa þverbrotið allar reglur Alþjóða
Ólympíunefndarinnar með því að
þiggja mjög háar peningaupphæðir í
mútur og ferðalög að auki með alla
fjölskyldu sína til Bandarikjanna á
þeim tima er Salt Lake City var í
þann veginn að fá vetrarleikana sem
fram fara árið 2002.
-SK
NBA-DEILDIN
Úrslit í nótt:
Washington-Orlando........85-87
Hamilton 25, Murray 14, Strickland 12 -
Atkins 15, Magette 14, Amaechi 13.
Milwaukee-Atlanta........111-78
Cassell 21, Robinson 17, Thomas 16 -
Wright 18, Terry 12, Rider 12.
Phoenix-Miami............100-92
Hardaway 28, Gugliotta 15, Marion 13 -
Mouming 25, Brown 22, Hardaway 10.
Portland-Toronto.........90-109
Wallace 27, Sabonis 16, Smith 11 -
Carter 35, Christie 26, McGrady 13.
San Antonio-New Jersey . 106-104
Robinson 25, Duncan 17, Johnson 16 -
Marbury 34, Van Horn 23, Kittles 14.
LA Clippers-LA Lakers . . 103-123
Talor 25, Anderson 21, Odom 17 -
O'Neal 61, Bryant 22, Rice 16.
Sacramento-Dallas.......130-109
Webber 22, Divac 19, Anderson 17 -
Cebellos 27, Nowitzki 25, Finley 18.
Úrslit í fyrrinótt:
Boston-Orlando ...........97-91
Pierce 19, Walker 18 - D. Armstrong
19, Atkins 17.
Vancouver-Toronto ........92-94
Rahim 22, Harrington 22 - Carter 28,
Curry 16.
LA Lakers-Miami...........93-80
Rice 23, O’Neal 17 - Mourning 21,
Mashbum 17.
Charlotte-Chicago........100-94
Coleman 26, Jones 23 - Brand 24,
Hoiberg 20.
New York-Utah Jazz .......79-88
Sprewell 22, Houston 20 - Malone 30,
Russell 19.
Minnesota-Seattle......105-100
Gamett 21, Brandon 20 - Payton 34,
Baker 20.
Denver-Cleveland.........92-100
Van Exel 20, Gatling 16, Lafrentz 16 -
Murry 20, Miller 15.
Golden State-lndiana .... 95-114
Marshall 27, Caffey 18 - Croshere 18,
Davis 15, Mullin 15.
J‘
Islendingar bera fram tillögu hjá FIBA:
Þjóðum verði fjölgað
í milliriðlunum í fimm
- málið kynnt frekar fyrir alþjóðaþingið í vor
Körfuknattleikssambandið bar fyrir
skemmstu fram þá tillögu að þjóðum í
milliriðlakeppni Evrópumóts lands-
liða verði íjölgað. í núverandi mynd er
leikið í fjóruní sex þjóða riðlum en til-
laga KKÍ gerir ráð fyrir fimm riðlum
sem skipa myndu sex þjóðir.
Pétur Sigurðsson, framkvæmda-
Pétur Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri KKÍ.
stjóri KKÍ, sem staddur var á fundi hjá
FIBA um helgina, sagði að málið hefði
verið tekið fyrir f nefnd og fengið í
fyrstu atrennu frekar dræmar undir-
tektir.
„Við ætlum í framhaldinu að kynna
málið vel fyrir smáþjóðum í Evrópu
fyrir alþjóðaþingið sem verður í Tyrk-
landi í vor,“ sagði Pétur í samtali við
DV í gær.
íslendingar hafa leikið í milliriðlum
Evrópukeppninnar undanfamar tvær
keppnir og hefur það haft mikla þýð-
ingu fyrir íslenskan körfubolta. Það er
öllum smærri þjóðum Evrópu mikið í
mun að taka þátt i keppninni en fyrir
utan hana hafa t.d. Norðmenn og
Rúmenar staðið á sl. árum.
„í okkar huga hefði þessi fjölgun
mikið að segja í allri útbreiðslu körfu-
boltans í Evrópu. Það skiptir máh að
fá landsleiki heima og heiman og méð
fjölgun myndu sóknarfærin verða
fleiri. Smáþjóðir Evrópu hafa því mið-
ur langflestar staðið íyrir utan þessi
keppni en við höfum verið lánsamir
að vinna okkur þátttökurétt og þar
með fengið tækifæri til að keppa við
margar af bestu þjóðum Evrópu. Hvað
útbreiðsluþáttinn varðar yrði það góð-
ur kostur ef riðlunum yrði fjölgað og
að okkar mati myndu fleiri kostir
skapast í kjölfarið," sagði Pétur.
Pétur á sæti í unglinganefnd FIBA
og sat fund hemiar í Múnchen um
helgina. Fyrir fundinn lá fyrir um-
ræða um að fjölga þjóðum úr 12 í 16 í
úrslitakeppnum Evrópumóts ung-
mennalandsliða.
„Ákveðið var að fresta ákvörðunar-
töku um eitt ár. Það sýndist sitt hveij-
um í þessu máli en skipulagning
myndi í kjölfarið aukast með fjölgun-
inni og leikið yrði í tveimur borgum í
stað einnar áður. Fram hjá þeirri stað-
reynd verður hins vegar ekki horft að
þjóðum í Evrópu hefúr fjölgað úr 30 i
50 eftir breytingamar í Austur-Evrópu
á síðasta áratug," sagði Pétur.
Xy ENGLAND
Brian Little er hættur sem
framkvæmdastjóri enska 1.
deildar liðsins West Bromwich
Albion. WBA hefur aðeins náð 8
stigum af 45 mögulegum í síð-
ustu 15 leikjum og er í bullandi
fallhættu. Eftirmaður Littles hef-
ur ekki verið ráðinn.
Tottenham hefur hætt við að
kaupa John Hartson, sóknar-
leikmann Wimbledon. Hartson
kom illa út úr læknisskoðun hjá
Tottenham og ekkert verður af
sex milljóna punda tilboði frá
Tottenham. Hartson hefur ekk-
ert leikið með Wimbledon síðan
um áramót er hann gekkst undir
aðgerð vegna meiðsla á hné.
Ekki er útilokað að Tottenham
bjóði í Hartson siðar á þessu ári
ef kappinn braggast.
Manchester United er sagt vera
á höttunum á eftir miðjumann-
inum Pavel Nedved frá Tékk-
landi en hann er á mála hjá
ítalska liðinu Lazio. Alex Fergu-
son ku lengi hafa haft áhuga á
Nedved og ef marka má enska
fjölmiðla er United reiðubúið til
að greiða 10 milljónir punda fyr-
ir Nedved. Líkur á því að
Nedved fari til United aukast
verulega ef Lazio missir ítalska
titlinum í vor. -SK
Tölfræðilegar upplýsingar úr NBA:
Á ýmsu hefur gengið í NBA-
deildinni í vetur en athygli hefur
vakið hvað LA Lakers og Portland
hafa sýnt mikla yfirburði en bæði
þessi lið koma úr Kyrrahafsriðlin-
um. Lakers-liðið hefur unnið 49
leiki og tapað aðeins 11 leikjum en
Portland hefúr unniö 46 leiki og
tapað 12 leikjum. Lakers-liðið hefur
ekki verið sterkara í mörg ár og er
líklegt til að fara alla leið að þessu
sinni. Lið með O’Neal, Bryant og
Rice er ekki á flæðiskeri statt enda
hafa þeir leikið sérlega vel í vetur.
Línur skýrast á næstu
vikum
Meistarar fyrra árs, San Antonio
Spurs, hafa sumpart valdið von-
brigðum en liðið er í öðru sæti vest-
urriðilsins en Utah Jazz er þar með
nokkuð góða forystu. Allan stöðug-
leika hefur vantað í San Antonio en
liðið hefur svo sannarlega mann-
skapinn til að verja titilinn. Línum-
ar í riðlunum koma til með að skýr-
ast enn frekar á næstu vikum en
liðin eiga um 20 leiki eftir áður en
úrslitakeppnin hefst í vor.
Philadelphia hóf tímabilið mjög
vel en hefur gefíð aðeins eftir í bar-
áttunni á síðustu vikum. Liðið er í
þriðja sæti Atlantshafsriðilsins þar
sem Miami Heat er í efsta sætinu.
Allen Iverson hjá Philadelphia hef-
ur leikið geysivel í vetur og er með
besta skorið að meðaltali í leik.
Hann hefur leikið mun færri leiki
Malone hefur skorað 1495 stig í 58
leikjum. Vince Carter hjá Toronto,
sem spekingar vestanhafs segja að
eigi glæsta framtíð fyrir sér í deild-
inni, hefur skorað 1477 stig í 58
leikjum.
Hörö keppni á milli
Mutombo og Shaquille í frá-
köstunum
Dikembe Mutombo, Atlanta
Hawks, og Shaquille O’Neal berjast
harðri keppni um flest fráköst.
Mutombo hefur vinningin með 845
fráköst en O’Neal hefúr tekið 835
fráköst. Langt er í næsta mann en
hann er Tim Duncan hjá San Ant-
onio með 696 fráköst.
Jason Kidd, Phoenix Suns, er
duglegastur í stoðsendingum með
alls 573 sendingar í 58 leikjum.
Næstur er Sam Cassell, Milwaukee,
með 532 í 58 leikjum.
Hubert Davis, Dallas Mavericks,
er mesta skyttan í deildinni í dag.
Hann hefur tekið 138 þriggja stiga
skot og hitt úr 71 sem gerir um
51,4% nýtingu. Rodney Rogers,
Phoenix Suns, hefur tekið 151 slík
skot og hitt úr 69 þeirra sem gerir
um 46% nýtingu.
Alonzo Mouming, Miami Heat,
hefur varið flest skot, alls 227 skot í
56 leikjum. Dikembe Mutombo, Atl
anta, er í öðru sæti með 198 skot
varin í 57 leikjum.
-JKS
en aðrir en meiðsli settu þar strik í
rekiningin.
Samt sem áður hefur Iverson
skorað að jafnaði 29,2 stig í aðeins
48 leikjum en næstur í stigaskorun-
inni er Shaquille O’Neal hjá Lakers
með 27,6 stig að jafnaði í 59 leikum
eða ellefu fleiri en Iverson. O’Neal
er þó stigahæstur með 1628 stig en
Iverson hefur skorað 1424 stig. Karl
Allen Iverson hjá Philadelphia hefur veriö iöinn viö kolann í vetur og skoraö
mest aö jafnaöi í leik í deildinni. Reuter
Lakers og Portland
sýna mestan styrkinn
- Allen Iverson skorar að jafnaði um 30 stig í leik fyrir Philadelphia