Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2000, Síða 4
FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000
22
Kemst ÍBV í úrslit?
Drífa Skúladóttir og stöll-
ur hennar í FH eiga á
brattann aö sækja.
Kvennalið ÍBV í hand-
knattleik getur tryggt sér
sæti í úrslitunum um Is-
landsmeistaratitilinn
vinni liðið sigur á FHí
öðrum undanúrslitaleik
liðanna sem fram fer í
Vestamannaeyjum í kvöld.
Eyjakonur, sem hafa
verið á miklu skriði á und-
anfórnum vikum, gerðu
sér lítið fyrir og sigruðu
FH í Kaplakrika í fyrra-
kvöld og það voru úrslit
sem komu mörgum mjög á
óvart. Grótta/KR er þegar
komið í úrslitin og sigri
ÍBV í kvöld er ljóst að nýtt
nafn verður ritað á bikar-
inn en hvorugt þessara
liða hefur orðið meistari
áður.
Mikill áhugi er fyrir
leiknum í kvöld og er búist
við fjölmenni í iþróttahöll-
ina í Eyjum.
-GH
Gianluca Vialli, knattspymustjóri
Chelsea, hefur fullan hug á því að
framlengja samning við félagið en
hann á enn þá 18 mánuði eftir af nú-
verandi samningi. Hann segist eiga
eftir mikið straf óunnið hjá félaginu
og viil koma því í fremstu röð.
ítalskir fjölmiðlar sögðu frá því í
gær aö Juventus væri reiðubúið að
bjóða 13 milljónir punda í enska
landsliðsmanninn Sol Campbell hjá
Tottenham. Fulltrúi frá Juventus er
væntanlegur til London til að ræða
þessi mál frekar.
West Ham gerði í gær nýjan samn-
ing við enska unglingalandsliðs-
manninn Joe Cole og er hann því
samningsbundinn félaginu til ársins
2004. Cole, sem er 18 ára gamall, þyk-
ir eitt mesta efni í enskri knatt-
spyrnu um þessar mundir. Nýi
samningurinn gefur honum um 2,5
milljónir f vikulaun.
Svo gceti farið að austurríski mark-
vörðurinn Alex Manninger hjá
Arsenal sé á fórum frá félaginu.
Hann hefur fengið þrýsting frá Otto
Baric, þjálfara austurríska lands-
liðsins, að hann þurfi að leika með
liði þar sem han hefur fast sæti.
Manninger hefur orðið að láta í
minni pokann fyrir David Seaman
á síðustu tveimur árum.
Manchester United er sagt á höttun-
um eftir tvítugum Argentíumanni,
að nafni Pablo Aimar sem leikur
með River Plate. United hefur fylgst
með Aimar undanfarna mánuði og
hefur hann fengið grænt ljós um það
að hann megi fara til Evrópu í sum-
ar. Forseti River Plate segir að Aim-
ar fari ekki nema fyrir mikla pen-
inga og hefur upphæðin 15 milljónir
punda verið nefnd í því sambandi.
Þaö kemur fátt í veg fyrir að
Charlton endurheimti sæti sitt í
ensku A-deildinni í knattspyrnu en
liðið náði í gær 13 stiga forskoti í B-
deildinni með 4-0 sigri á Grimsby.
Öll mörk Charlton voru skoruð meö
skalla en þau skoruðu Andy Hunt,
Shaun Newton, Mattias Svensson
og Carl Tiler.
Ipswich skaust upp f annað sætið
með 0-2 sigri á Tranmere. Black-
burn lagði Birmingham, 1-0,
Norwich tapaði heima fyrir
Swindon, 0-2 og Crystal Palace lagði
QPR á útivelli, 0-1. Charlton er með
81 stig, Ipswich og Bamsley eru með
68 stig og Manchester City 66 stig. í
skosku A-deildinni vann Hearts ör-
uggan sigur á Aberdeen, 3-0.
-JKS/GH
A
NBA-DEILDIN
Urslitin í nótt
Boston-Minnesota ........106-109
Pierce 25, Walker 22, Potapenko 18 -
Garnett 40, Sealy 24, Peeler 16.
Philadelphia-Toronto . . . .106-93
Iverson 44, Hill 20, Snow 11 -
Carter 26, McGrady 20, Christie 13.
New York-Chicago ..........78-67
Sprewell 21, Johnson 14, Ewing 12 -
Brand 22, Anstey 14, Carr 14.
Orlando-Atlanta ..........103-90
Armstrong 27, Amaechi 16, Mercer 15 -
Wright 18, Glover 18, Crawford 18.
Charlotte-New Jersey . . .119-103
Jones 26, Coleman 22, Wesley 22 -
Marbury 23, Van Horn 17, Gill 17.
San Antonio-L.A. Clippers .103-78
Duncan 30, Walker 18, Daniels 14 -
Anderson 17, Olowakandi 16 -
Phoenix-Sacramento.......114-93
Robinson 26, Rogers 18, Livingston 17 -
Webber 16, Divac 14, Williams 14.
Portland-Detroit ........95-104
Wallace 20, Smith 20, Sabonis 15 -
Hill 24, Stackhouse 23, Mills 16.
L.A. Lakers-Golden State . .119-96
O'Neal 22, Bryant 18, Rice 17 -
Hughes 26, Caffey 17, Cummings 14.
Vignir Stefánsson, júdókappi í Ármanni, ásamt kærustu sinni, spretthlauparanum Silju Úlfarsdóttur í FH. DV-mynd Teitur
Vignir Stefánsson júdómaður er blankur og fer ekki til Sydney:
Utskufaður
- átti mestu möguleika íslenskra júdómanna á
þátttöku á ÓL en
„Ég er auðvitað mjög svekktur yfir þessari niður-
stöðu. Ég var búinn að leggja aila mina peninga í
þetta og meira til en Júdósambandið sá aldrei ástæðu
til að styrkja mig um eina einustu krónu. Þeir hafa
neitað að líta á mig sem A-landsliðsmann. Þrátt fyrir
að ég hafi náð bestum árangri á A-mótum, ásamt
Bjarna Skúlasyni, hef ég alveg verið útskúfaður af
Júdósambandinu," segir Vignir Stefánsson, júdómað-
ur í Ármanni.
Vignir hefur undanfamar vikur verið að glima við
ólympíulágmarkið í júdó fyrir leikana i Sydney
ásamt flórum öðrum júdómönnum sem allir hafa ver-
ið styrktir af Júdósambandinu. Vignir keppti um
tíma i Bandaríkjunum og náði þar mjög góðum ár-
angri.
Júdómenn í Evrópu hafa svokölluð A-mót til að
vinna sér inn þátttökurétt á Ólympíuleikum auk
Evrópumóts sem hefur tvöfalt vægi á við A-mótin.
Þetta em gríðarlega sterk mót þar sem allir bestu
júdómenn álfunnar keppa. Níunda sætið í hverjum
þyngdarflokki gefur þátttökurétt á Ólympíuleikana.
Fjórum af þessum sex mótum er lokið og Vignir og
Bjarni hafa náð bestum árangri og eru þar af leiðandi
næst því að komast á leikana í Sydney í haust. í dag
héldu fjórmenningarnir á fimmta A-mótið sem fram
fer á Ítalíu. Vignir varð hins vegar að afpanta sinn
farmiða vegna fjárhagserfiðleika.
„Ég þurfti að leggja út mikinn kostnað við vem
mína í Bandaríkjunum og átti alltaf von á því. Einnig
fékk ekki styrk frá
vegna A-mótanna úögurra. Ég kláraði ailan minn
pening og steypti mér í skuldir. Núna em peningarn-
ir búnir og ég get ekki meira,“ segir Vignir og vill
taka fram að hann fékk 100 þúsund króna styrk frá
Garðabæ sem hann er þakklátur fyrir.
„Vitaskuld er mjög erfitt að sjá á eftir félögunum
til Italiu og geta ekki reynt áfram við leikana í Sydn-
ey. Júdósmbandið sagði mér á sínum tíma að sanna
mig á A-móti í Búlgaríu. Ég fór þangað og komst í
átta manna úrslit. Ég kom heim fúllur bjartsýni um
stuðning frá JSÍ en afstaða þeirra var óbreytt. Það er
ekki síður svekkjandi að sitja eftir heima vegna jiess
að ég hafði unnið flestar glímumar á A-mótunum
Qórum ásamt Bjarna Skúlasyni, af öllum landsliðs-
mönnunum íslensku. Ég vil taka fram að ég er ekki
að gera litið úr þeirra árangri eða því að JSt skuli
hafa styrkt þá. Það sem ég er óánægður með er að ég
fékk ekki tækifæri til að sitja við sama borð og þeir.
Einhverra hluta vegna leit JSÍ aldrei á mig sem A-
landsliðsmann og vildi aldrei styrkja mig. Þeir hafa
borið því við að ég hafi sótt of seint um styrk. Það er
rétt en ég held að það hefði ekki verið neitt mál fyr-
ir JSÍ að styrkja mig ef vilji hefði verið fyrir hendi,“
sagði Vignir.
„Vignir hefur ekki rætt viö okkur nú
nýverið um að fá styrk“
„Á sínum tíma fékk Júdósambandið um 1,750
milljónir króna vegna undirbúnings júdómanna
Júdósambandinu
fyrir Ólympíuleikana i Sydney. Þessum pening-
um vöröum við í aö styrkja fjóra júdómenn með
Ólympíuleikana i huga. Vignir Stefánsson var
ekki i þessum hópi, einfaldlega vegna þess að á
þeim tíma hafði hann ekki náð nægilega góðum
árangri," sagði Kristján Gunnar Valdimarsson,
formaður Júdósambands íslands, í samtali við
DV í gær.
„Síðan að við úthlutuðum þessum styrkjum
til fjögurra júdómanna hefur Vignir sótt í sig
veðrið og náð ágætum árangri. Það vissum við
auðvitað ekki fyrirfram. Við getum ekki hróflað
við þeim stryrkjum sem við höfum lofað og pen-
ingarnir frá ÍSÍ duga engan veginn til að standa
undir kostnaði við að senda júdómennina á öll
þau mót erlendis sem þeir þurfa að mæta á. Það
er hins vegar rétt að taka það fram að Vignir
Stefánsson hefur ekki sótt um styrk til okkar nú
nýverið. Hann hefur enn þá tíma til að gera það.
Við myndum þá í framtíðinni sækja um viðbót-
arstyrk fyrir hann hjá ísí. Við myndum gera
það strax. Það hefur aldrei staðið á okkur að
gera eitthvað fyrir hann. Við viljum jú fram-
gang júdóíþróttarinnar sem mestan og bestan
og viljum allt fyrir Vigni gera sem í okkar valdi
stendur," sagði Kristján Gunnar Valdimarsson,
formaður Júdósambandsins.
-SK