Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2000, Qupperneq 4
a
Loksins geta skóböðlar
fagnað því skóverslunin Kron
á Laugaveginum er komin með
skó sem eru kjömir fyrir fólk
sem fer illa með skóna sína.
Þessir skór eru frá Campers og
eru til í tveimur litum. Það
sem er sameiginlegt með þeim
er að búið er að ganga hælana
niður á skónum þegar þeir eru
keyptir og þannig eiga þeir að
vera. Þetta eru sem sagt kjöm-
ir skór fyrir þá sem eru svo
latir að þeir nenna ekki að
nota skóhom til að fara í
skóna og eyðileggja hælana á
hverju skóparinu á fætur öðru.
Skórnir með beyglaða hælnum
kosta 10.400 krónur.
Eftir að hafa notið mikilla vinsælda um árabil eru vinsældir hipphopp-tónlistar
hér á landi á miklu undanhaldi. Rapparinn Slim reynir að sporna við þeirri þróun
með því að gefa sjálfstætt út tónlist sína á geisladiski.
Reykvísku rappararnir Intro og Slim reyna að halda lífi
Óliver
hipphopp-menningu Islands.
islenskrar
tónlistar
Þessir skór eru kjörnir fyrir þá sem
ganga alltaf niður hælana á skón-
um sínum því hér hefur skófram-
lelðandinn sparað manni ómakið
og gengið hælinn niður fyrir mann.
GRIM
„Það virðist vera lítill mark-
aður fyrir útgáfu á islensku
hipphoppi í dag. Vegna þessa
eru plötufyrirtækin hérna
heima treg tU að gefa þetta út,“
segir rapparinn Slim sem dags-
daglega svarar nafninu Kristinn
Helgi Sævarsson. Vegna þessar-
ar þróunar ákvað hann að gefa
diskinn út sjálfur og fæst hann í
tískuvöruversluninni Brim við
Laugaveg.
„Ég sagði í viðtali við Undir-
tóna fyrir nokkram áram að það
væri mjög dæmigert fyrir ís-
lenska markaðinn að hipphopp-tón-
list félli úr tísku mjög fljótlega. Það
kom svo á daginn að ég reyndist
sannspár. Þegar hæpið lognaðist út
af stóðu alvörarapparamir eftir.
Þetta er svipað og gerðist með
hjólabrettin hér um árið.“
Plata Slim, sem kallast Analog,
var hljóðblönduð í samvinnu við
Magse sem var i Subterranian.
Magse rappar auk þess með Slim í
tveimur lögum og segir Slim það
almennt mat manna sem vit hafa á
tónlistinni að Magse sé einn besti
hipphopp-pródúser í heimi. Einnig
rappa með Slim á plötunni Class B,
Tact, Intro, Magic og Elevated
Minds. B. Ruff sér um að þeyta
skífur og ku hann hafa hafið feril
sinn í því aðeins þriggja ára gam-
all.
ímyndin allt í dag
Þegar Slim er beöinn um að lýsa
tónlistinni á plötunni segir hann
þetta vera djassað hipphopp og sé
tónlistin mikið til sömpluð upp úr
gömlum vinýl-djassplötum sem
teknar höfðu verið upp á Analogue-
upptökutæki og er titill plötunnar,
Analog, sprottinn úr því.
Slim segir að ekki sé mikil pæl-
ing bak við texta íslenskra rapp-
ara. „80% íslenskra rappara rappa
bara orð sem flæða, það er lítið
samhengi eða pæling bak við
þetta.“ Slim vill þó halda því fram
að textamir hans fjalli allir um
eitthvað. „Textamir á plötunni era
að miklu leyti óður til hipphopp-
tónlistarinnar sjálfrar, um það að
vera sannur í því sem gert er og
vera jákvæður gagnvart líflnu."
Slim rappar einnig um þann pirr-
ing sem hann upplifir gagnvart
bandarískum „sell out“-röppurum
á borð við JC og Nas. „ímyndin
ræður öllu í rappheiminum í dag
og allt gengur út á að græða sem
mest á sem skemmstum tima.“
Slim segist sjálfur líta mest upp til
rappara á borö við Blackstar, A
Tribe Called Quest og Organised
Confusion, manna sem láta mark-
aðslögmálin ekki ráða í listrænni
sköpun.
Engar falsvonir
Slim gerir sér engar vonir um að
ná eyram annarra en eigin lands-
manna sem hann viðurkennir þó
að gæti orðið erfitt þar sem engin
íslensk útvarpsstöð spili hipphopp
í dag. „Eftir að Skratzið lagði upp
laupana er hipphoppið orðið hálf-
gerður Óliver Tvist, munaðarleys-
ingi íslenskrar tónlistarflóru sem
hvergi á heima. Eina rappið sem
fær einhverja spilun i dag er bara
popptónlist sem búið er að rappa
yfír og þetta flokka ég ekki sem
hipphopp." Slim hefur þó ekki
miklar áhyggjur af þessu heldur
tekur hann einfaldlega lífinu með
ró og ætlar að halda áfram að gera
sanna hipphopp-tónlist ástriðunn-
ar vegna.
JA, 'i PYRRA0A6.,, EN áö HölM-
LE6A BÚINN AÐ 6LIYMA H6NNI
3K ÞITTA SVONA MYND StM MAOUR
ÞARP HIUST AO S3A * HVIR3UM DIGI
«■- ■ - ■ 1' ■■ I ■ I .----
4
f Ó k U S 24. mars 2000