Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2000, Blaðsíða 5
fókus
Vikan 14. aorfl til 20. aoríl
1 1 f 1 ð e F T-I R
V^1 N N LL
Forseti íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, opnar sýning-
una Chihuly á fslandi, Form úr eldi, á Kjarvalsstöðum í dag.
Sýningin er haldin til heiðurs frú Guðrúnu Katrínu
Þorbergsdóttur. Það er mikill fengur að fá Dale Chihuly,
heimsþekktan glerlistarmann, hingað til lands en auk
sýningarinnar á Kjarvalsstöðum mun hann byggja innsetningar
með 600 glerformum í nágrenni Reykjavíkur.
Bandaríski glerlistarmaðurinn
Dale Chihuly þykir einn sá fremsti
á sínu sviði í heiminum í dag.
Hann byggir á mjög fjölbreyttum
möguleikum glers til að skapa um-
fangsmikil höggmyndaverk og inn-
setningar og notar sérstakar að-
ferðir til þess sem hann hefur þró-
að i gegnum tíðina. Þær aðferðir
voru svo byltingarkenndar á sínum
tima að hann gjörbreytti glerlist í
Bandaríkjunum fyrst þegar hann
kom fram á sjónarsviðið.
við að byggja innsetningarnar hér í
kringum Reykjavík," segir Jennifer
Lewis.
Hin 600 glerform, sem Chihuly ætl-
ar að byggja innsetningar úr, lét
hann blása fyrir sig í Finnlandi og
var þá með íslenska sögu og náttúru
í huga. Nú um helgina mun Chihuly
ásamt aðstoðarfólki sínu og myndlist-
amemum fara um nágrenni Reykja-
víkur og vinna að innsetningunum.
Afraksturinn verður gefinn út í bók-
ar- og myndbandsformi sem verður
unnið af Guðmundi Ingólfssyni ljós-
myndara og samstarfsmönnum úr
starfsliði Chihuly. Sýningin á Kjar-
valsstöðum stendur til 18. apríl.
Hér er Chihuly að teikna hinn himinháa Biáa turn
sem er eitt af þeim verkum sem prýða Jerúsalem.
Innsetning í Feneyjum. Chihuly hefur
unnið mikið þar.
Verre, 1986). Samstarfsmenn hans
lýsa honum sem stormsveipi en
hann kemur kannski eilítið undar-
lega fyrir sjónir, haltrandi með
lepp fyrir öðru auganu. Leppinn
fékk hann þegar hann missti sjón á
öðru auga í bílslysi árið 1976 en
hann hefur aldrei sett það fyrir sig
frekar en þegar hann skaddaðist
íllilega á öxl á brimbretti tveimur
árum siðar. Það slys gerði það að
verkum að hann getur ekki snúið
og verkað glerið sjálfur (þar sem
stangimar eru níðþungar) og tók
hann þá upp þá aðferð að nota
teikningar og málverk til að tjá
samstarfsmönnum sínum hug-
myndir sínar. Síðan hafa myndirn-
ar verið eitt af aðalsmerkjum hans.
Áhugi á íslandi
Samstarfsmenn Chihulys hafa unn-
ið hörðum höndum frá síðasta laugar-
degi við að setja sýninguna upp.
„Þetta eru mestallt ný verk sem voru
hugsuð inn í þetta rými í bland við
eldri,“ segir Jennifer Lewis, aðstoðar-
kona Chihuly. „Við erum búin að spá
mikið í það hvernig við ættum að út-
færa innsetninguna hérna í þessu
rými, með þessa lofthæð og veggi.
T.d. er risastórt rautt verk sem hang-
ir niður úr loftinu sem vegur 600
pund, annað sem kemur upp úr gólf-
inu og alls kyns lýsingar á verkunum
sem þurfti að koma fyrir.“
Chihuly hefur ekki enn skoðað
Kjarvalsstaði i eigin persónu en hann
heimtaði myndir af hverjum fermetra
og vill fylgjast vel með hvernig geng-
ur. Hann hefur í nógu öðru að snúast,
á miðvikudaginn opnaði hann sýn-
ingu í Marlborough Chelsea-safninu í
New York og einnig er hann að und-
irbúa risaverk sem mun standa í mið-
borg Monte Carlo í sumar.
„Hann hefur mikinn áhuga á ís-
landi og vill opna það fyrir glerlist-
inni. í dag er hér einungis ein gler-
vinnslustofa, rekin af Sigrúnu Ein-
arsdóttur og Sören Larsen, þannig að
þetta er óplægður akur hérlendis. Ég
hef orðið vör við að myndlistarnem-
arnir eru mjög áhugasamir um glerið
en 35 af þeim ætla að hjálpa okkur
Yfirtók Jerúsalem
Chihuly hefur verið að í rúm
þrjátíu ár og verið mjög athafna-
samur. Hann er einn af stofnend-
um Pilchuck Glass School sem hef-
ur frá stofnun verið einn af horn-
steinum glerlistar í heiminum og
hafa þaðan jafnan sprottið fersk-
ustu listamennirnir hverju sinni.
Chihuly hefur ferðast út um allan
heim með glerstykkin sín og er
innsetning í alls kyns umhverfi
hans aðalsmerki. Hann er með
vinnustofur úti um allan heim, t.d.
í Bandaríkjunum, Finnlandi, Jap-
an, Tékklandi og Frakklandi.
Nú stendur yfir sýning í Dav-
íðstumi í gamla hluta Jerúsalem
þar sem hann tengir saman hinar
fornfrægu byggingar sem þar
standa, þar sem saga ótal kynslóða
hefur verið rituð, hvort sem það
var með blóði eða tárum. Þessu
gerir hann góð skil í innsetningum
sínum, sem margar hverjar eru
himinháar og gnæfa hátt yfir Jer-
úsalem. Þeirri sýningu lýkur í
október en þá hefur hún staðið yfir
í tæpt ár.
Einkasýning í Louvre
Það þýðir ekki að telja upp allar
viðurkenningamar og verðlaunin
sem Chihuly hefur fengið í gegnum
árin sökum fjölda þeirra. Hann er
heiðursdoktor í öðrum hverjum
listaháskóla í Bandaríkjunum.
Hann hefur sýnt í ótal galleríum og
er einn fjögurra bandarískra lista-
manna sem hafa haldið einkasýn-
ingu í Louvre-safninu (Objets de
Fyrir neðan Persian Pergola
innsetninguna i Listasafninu í
Detrolt.