Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2000, Blaðsíða 1
17
Steinþorsson,
þjálfari KR-inga í
körfunni, lyfti
íslandsbikarnum
í gær á fyrsta ári
sínu sem þjálfari
liösins.
DV-mynd E.ÓI.
- á fyrsta ári Inga Þórs í þjálfarasætinu
Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari ís-
landsmeistara KR í körfuboltanum,
hefur verið iðinn við að ná i titla í
yngri flokkum KR undanfarin ár en í
gær varð hann fyrstur íslenskra þjálf-
ara í 21 ár tO að koma íslandsbikarn-
um í vesturbæinn og það í fyrstu til-
raun sem þjálfari meistaraflokks.
Leikurinn byrjaði ekki vel?
„Við voriun afleitir í byrjun leiks
en héldum okkur á lífi með vöminni
og við sýndum gríðarlegan karakter
með því að halda okkur inni í leikn-
um þrátt fyrir að sóknin hafi gengið
svona illa. Við fórum yfir stöðuna í
hálfleik og ákváðum að þeir fengu
ekki fleiri sóknarfráköst sem þeir og
fengu ekki og hitt fylgdi í kjölfarið."
Þið byrjið seinni hálfieik af rosa-
krafti og skorið fyrstu 14 stigin.
„Ég spurði menn bara hvort þeim
langaði virkilega aftur til Grindavík-
ur eða hvort þeir ætluðu að sína smá-
stolt og vinna þetta héma á heima-
velli og þeir sýndu það inn á velli.“
Breiddin og vörnin er grunnur-
inn að þessu sterka KR-liði?
„Við höfum náð að rúlla á öllum
mönnum og það er enginn það mikil-
vægur að hann verði að spila og ef
menn eru þreyttir þá er alltaf vara-
maður tilbúinn. Þetta gerir menn
bara betri og samkeppnin í liðinu er
gríðarleg."
Bjóstu við að þú kæmist svo
langt með liðið þegar þú tókst við
því í haust?
„Nei, nei, við fórum af stað bara
með Jónatan sem útlending en eftir að
við fengum Keith þá stefndum við að
engu öðru en að fara alla leið. Það hef-
ur gengið á ýmsu í vetur og á tímabili
vom 9 af 16 manna hóp meiddir. Það
komu ungir menn inn á meðan og
fengu góða reynslu og í dag er ég með
sem dæmi tvo menn, þá Arnar Kára-
son og Guðmund Magnússon fyrir
utan hópinn, sem hlýtur að sýna mik-
inn styrk þessa leikmannahóps."
Er ekki mikill sigur fyrir félagið
og yngriflokkastarfið að þessi sigur
er að vinnast á ungu strákunum?
„Ég hef starfað í tíu ár með yngri
flokka og þessa stráka sem eru að
koma upp og ef ég myndi ekki
nota strákana þá væri ég ekki í þessu.
Ég hef stefnt að þessu allan tímann að
byggja upp sterka leikmenn með hjálp
góðra manna og þeirra þjálfara sem
hafa lagt granninn að góðum flokkum
hér. Fyrir utan hópinn erum við enn
með gríðarlega sterka stráka sem
spila vel með sínum flokkum og voru
viðloðandi liðið í vetur. Leikmanna-
hópurinn í upphafi og lok árs er gjör-
breyttur og liðið hefur þroskast gríð-
arlega hratt.“
Ólafur Ormsson hefur verið frá-
bær í vetur?
„Það er frábært að hafa hann i sínu
liði. Hann er aðeins 23 ára en spilaði í
vetur eins og sá sem valdið hefur. Eitt
af fyrstu verkum mínum var að fá
hann aftur heim og byggja síðan í
kringum hann. Honum leist ekki
alltof vel á í byrjun en á fyrsta fundin-
um vora sögð orð sem rættust í dag
(gær),“ sagði Ingi Þór Steinþórsson
sigureifur í leikslok í gær. -ÓÓJ
Sigurður þjálfar HK
Sigurður Gunnarsson hefur verið
ráðinn þjálfari 1. deildarliðs HK í
handknattleik. Sigurður býr yfir
mikilli reynslu sem þjálfari en á
þeim vígstöðvum hefur hann
stjórnað Víkingum, Haukum og
Eyjamönnum. Sigurður tekur við af
nafna sínum Sveinssyni sem þjálfað
hafði liðið síðustu fimm ár.
Flest bendir til að HK-menn haldi
flestum liðsmönnum sínum nema
að ákveðið hefur verið að Alexander
Amarson fari til þýska liðsins
Regensbiu-g.
-JKS
KR-ingar enduðu tíu ár bið sina i gær:
Miövikudagur 26. april 2000
dvsport@ff.is
Guðleif
bætir enn
metið sitt
Guðleif Harðardóttir úr IR setti
um helgina nýtt Islandsmet í
sleggjukasti á frjálsíþróttamóti í Ge-
Georgíuriki í Bandaríkjunum. Guð-
leif kastaði sleggjunni 47,44 metra
en gamla metið sem hún átti sjálf
var 46.12 metrar og var það sett fyr-
ir skemmstu.
Guðleif, sem leggur stund á nám
ytra samhliða íþróttaiðkun, hefur
bætt sig um tvo metra á einu ári síð-
an hún fór utan.
-JKS
Afram fylgst
með Eið Smára
Eiður Smári Guðjohnsen, sem
leikið hefur sérlega vel með
Bolton á tímabilinu, er áfram
undir smásjánni hjá nokkrum
stórklúbbum á Bretlandseyjum.
Um helgina gerði aðalnjósnari
Newcastle, Mick Wadsworth, sér
enn eina ferðina á leik með
Bolton gagngert til að fylgjast
með Eið Smára. Skosku liðin
Celtic og Rangers hafa einnig
verið menn á sínum snærum á
síðustu leikjum Bolton.
Ef Bolton tekst ekki að fara
upp í úrvalsdeildina er talið full-
víst að liðið missi íslendinginn
sem metinn er á fimm milljónir
sterlingspunda. -JKS
Guðmundur í viðræðum
við FH og Stjörnuna
- hefur áhuga á að þjálfa erlendis
Guðmundur Karlsson, sem gerði
Hauka að íslandsmeisturum í hand-
knattleik í fyrrakvöld, lætur sem
kunnugt er af störfum hjá félaginu.
Hann hefur átt í viðræðum við FH
og Stjörnuna en þær eru að fram-
stigi eins og hann komst sjálfur að
orði í samtali við blaðið í gærkvöld.
„Þessi mál eiga eftir að skýrast á
næstunni. Ég ákvað að leggja alla
mína krafta í Haukaliðið áður en ég
færi að líta í kring að nýjum starfs-
vettvangi. Mig langar að nýta betur
þá þekkingu og reynslu sem mér
hefur áskotnast í þjálfuninni. Hvort
sem það verður hér á landi eða er-
lendis verður tíminn einn að leiða í
ljós. Ég er alveg eins volgur fyrir
því að fara erlendis en öll þessi mál
eru á byrjunarreit. Við verðum
bara að bíða og sjá hvað setur í
þessum efnum,“ sagði Guðmundur
Karlsson í samtali við DV í gær-
kvöld.
-JKS