Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2000, Page 1
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000
Bílþjófar
stöðvaðir
Ms. 22
Spennandi
leikur á
leiðinni
Ms.23
Ríkustu menn
heims
Ms. 18
tölvui tækni og vísinda
PlayStation
Napster fær lög-
mann
MP3-dreifingarþj ón-
ustan Napster hefur
ráðið einn helsta
þungavigtarlög-
manninn vestanhafs
til að sjá um vöm fyrirtækisins í
málaferlum gegn fyrirtækinu sem
standa fyrir dyrum. David Boies
heitir hann og
er hvað helst
þekktur um
þessar mundir
fyrir að hafa
tætt varnir
Microsoft í
sundur á meðan
á Microsoft-
málaferlunum
stóð. Boies varð
þó fyrst þekktur á áttunda áratugn-
um þegar honum tókst að verja IBM
fyrir ákærum um einokunartil-
burði. Það eru samtök tónlistarút-
gefenda í Bandaríkjunum sem
stefna Napster fyrir rétti og vonast
þau til að lögbann verði sett á starf-
semi fyrirtækisins. Búist er við að
málaferlin hefjist í San Fransisco í
seinni hluta næsta mánaðar.
Ósýnilegur
smokkur
Ný tegund getnaðar-
varnar og varnar
gegn kynsjúkdóm-
um, sem kölluð hef-
ur verið ósýnilegur smokkur, er nú
í prófun. Þetta er nokkurs konar gel
í vökvaformi sem er sett inn i
leggöngin. Gelið er gegnsætt, lyktar-
og litarlaust og finnur hvorki konan
né félagi hennar fyrir því eftir að
því hefur verið komið fyrir. Það eru
kanadískir vísindamenn sem eru að
þróa þessa vöm og hafa stundað
rannsóknir á henni í níu ár. Prófan-
ir sem gerðar hafa verið á músum
hafa leitt í ljós að þessi lausn virkar
vel í a.m.k. tvo klukkutíma við
stofuhita. Ekki er vitað hvenær lík-
legt er að ósýnilegi smokkurinn
komi á markað en sennilega taka
prófanimar nokkur ár i viðbót áður
en almenn sala verður leyfð.
Fílskálfurinn liggur hér nýfæddur á heimili sínu í Zurich og stolt móðirin skoðar
afkvæmið.
Asíski filiinn Ceyla-
Himali fjölgaði fila-
kyninu fyrir skömmu
í dýragarðinum í
Zúrich. Fæðingin var
send út beint á Internetinu með hjálp
tveggja netmyndavéla og er þetta í
fyrsta sinn sem fill kemur i heiminn
fyrir framan vökul augu netverja.
Um 46.000 manns höfðu skráð sig á
lista fyrir fæðinguna og var þeim öO-
um gert viövart með tölvupósti er
ljóst þótti að fiOinn myndi koma í
heiminn innan stundar.
Þetta framtak þeirra Zúrich-
manna vakti verulega athygli meðal
netverja og var greint frá því í fjöl-
miðlum víða, m.a. hér í DV-Heimi.
Vikumar áður en fæðingin átti sér
stað fékk heimasíða dýragarðsins 1,4
miOjónir heimsókna frá áhugamönn-
um um Ceyla-Himali og afkvæmi
hennar.
Afkvæmið reynist vera karlkyns,
hraustur 140 kOóa kálfur, sem sjá má
hér á forsíðumyndunum ásamt móð-
ur sinni.
Á heimasíðu Zúrich-dýragarðsins
hefur verið reglulega sent út frá lífi
fílssnáðans og hafa útsendingamar
verið mjög vinsælar. Hann braggast
vel og er farinn að kynnast öOum
hinum fílunum á svæðinu. Þeir sem
vOja frétta meira af Ceylu-Himali og
syni hennar geta komist á heimasíðu
dýragarðsins með þvi að slá inn slóð-
ina littP://www./,oo.di
—
Ferðir innanlands
20 síðna sérblað um ferðir innanlands
fylgir DV á morgun.
Meðal efnis:
Feröir fyrir fjölskylduna þar sem áhersla er lögö á útivist, afþreyingu og skemmtun
fyrir fjölskyldur og hóþa. Sagt verður frá því sem hæst ber í sumar á stöðum vítt
og breitt um landiö. Auk þess veröur fjallað um útivist: gönguferðir og leiðsögn,
hestaferðir, bátsferöir, fjalla- og jeppaferðir, flug, veiði, skíðasvæöi o.fl.