Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2000, Page 2
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000
18
Gerir
1? IV
u
tólvun tatkni og visinda
Bluetooth-tæknin aö verða að veruleika:
snúrurnar úreltar
- 2000 fyrirtæki með Bluetooth-lausnir i vinnslu
Meöal þess gagns sem Bluetooth getur gert er aö ekki er lengur þörf á aö hafa snúru milli gsm-síma og heyrnartóls
fyrir símann. Starfsmaöur Ericsson sýnir hér slík tól.
Hinir ófáu metr-
ar af köplum og
snúrum sem
nauðsynlegir
eru í dag til að
tengja saman
helstu nútímatól og tæki gætu heyrt
sögunni til ef tækni nokkur sem
nefnd er eftir víkingi nær fótfestu. í
síðustu viku var haldin ráðstefna í
Monte Carlo til heiðurs þessari
tækni en hún kallast „Bluetooth" á
ensku í höfuðið á Haraldi blátönn
Noregskonungi sem réð ríkjum í
Ekki verður lengur þörf
á að fínna rétta snúru-
tegund, rétt millistykki
og réttan hugbúnað til
að flytja gögn frá einu
tæki í annað. Blue-
tooth gerir tækjunum
mögulegt að skiptast á
gögnum svo lengi sem
þau eru í innan við 10
metra fjarlægð hvert
frá öðru.
Noregi og Danmörku á árunum 940
til 981. Haraldur var þekktur fyrir
að vilja frekar fara samningaleiðina
heldur en berjast og því er ekki úr
vegi að nefna nýja samskiptatækni
eftir honum. Sú staðreynd aö tvö
helstu fyrirtækin á bak við Blu-
etooth-tæknina eru skandinavísk,
Ericsson og Nokia, eykur svo enn
tengslin við víkingana.
Bluetooth-tæknin byggir á því að
gera öllum tegundum tækja, farsím-
um, tölvum, ísskápum og þar fram
eftir götunum mögulegt að skiptast
þráðlaust á gögnum án allra vand-
ræða ef þau hafa innbyggð Blue-
tooth-senditæki. Ekki verður lengur
þörf á að finna rétta snúrutegund,
rétt millistykki og réttan hugbúnað
til aö flytja gögn frá einu tæki í ann-
að. Bluetooth gerir tækjunum
mögulegt að skiptast á gögnum svo
lengi sem þau eru í innan við 10
metra fjarlægð hvert frá öðru.
1.600 hopp á sekúndu
Þróun Bluetooth hófst fyrir sex
árum og í dag eru næstum 2.000 fyr-
irtæki að vinna að þróun á vörum
og þjónustu sem nýta sér þessa út-
varpstækni. Hún notar 2,4 GHz
bylgjulengd sem í flestum löndum
er nýtt fyrir iðnaðar-, vísinda- og
læknistól. í flestum löndum er
hverjum sem er leyfilegt að nýta
þessa bylgjulengd að undanskildu
Frakklandi og Spáni en verið er að
vinna í að afnema takmarkanimar í
þessum löndum á 2,4 GHz bylgju-
lengdinni.
Tæki eins og þráðlaus tölvunet á
skrifstofum, örbylgjuofnar og fjar-
stýrðir bílskúrsdyraopnarar nýta
einnig þessa bylgjulengd. Bluetooth
truflar þó ekki þau tæki sem fyrir
er með því að klippa gagnasending-
arnar niöur í smáa pakka og senda
þá á mismunandi tíönisviðum. Blu-
etooth-tæki hoppa 1.600 sinnum á
sekúndu milli 79 mismunandi rása.
Meö farmiðann í símanum
Meðal þess gagns sem Bluetooth
gæti gert, auk þess að losa fólk við
allar snúrurnar, er að símunum
gæti fækkað. í stað þess að vera
með farsíma úti í bæ, snúrusíma á
heimilinu og mótald í tölvunni get-
ur einn Bluetooth-sími gegnt öllum
þessum hlutverkum. Fjölbreyttari
notkunarmöguleikar eru einnig í
burðarliðnum. Dæmi um eitt til-
raunaverkefni með Bluetooth er frá
Svíþjóð þar sem veriö er að reyna
að nýta farsíma sem lestarmiða.
Farþegar geta pantað miða með
tölvu sinni á Netinu og vistað upp-
lýsingar um það á símanum sínum.
Þegar þeir setjast um borð í lestina
sér Bluetooth-netþjónn í lestinni um
að hafa samskipti við síma farþeg-
ans til að athuga hvort hann hafi
réttan lestarmiða og sitji á réttum
stað.
Ericsson kynnti fyrr í mánuðin-
um fyrsta farsímann sem nýtir Blu-
etooth-tækni. Bluetooth-kort fyrir
heimilistölvur munu að öllum lík-
indum koma á markaðinn seinna á
árinu.
Nýtt netsamfélag sett á laggirnar:
Heppilegt fyrir rugludalla
- Hugi.is tengir saman fólk með sömu áhugamál
Síðastliðinn
fostudag var
opnaður nýr
áhugamálavefur
og er markmiðið
að skapa samfé-
lag fólks með
sömu áhugamál á Netinu. „Þessi
vefur á sér enga hliðstæðu og kem-
ur að góðum notum fyrir rugludalla
sem vilja fá fréttir, kjaftasögur og
spjall um áhugamál sín á einum
stað,“ eins og aðstandendur hans
orða það.
Hugi.is heitir hann og heldur
utan um safn af netsíðum og frétt-
um um ákveðin áhugamál. Til að
byrja með eru það áhugamenn um
Quake, Halflife, Formúlu 1, tölvu-
tónlist og mp3, fljúgandi furðuhluti
og DVD sem fá inni á síðunni en
fljótlega munu svo fleiri málefni fá
sinn hluta af Huga.is.
Þjónustan virkar þannig að
áhugasamir skrá sig á Huga.is, þar
sem þeir fá sitt netfang og sína eig-
in síðu og sníða vefinn að eigin ósk-
Til að byrja með eru
það áhugamenn um
Quake, Halflife, For-
múlu 1, tölvutónlist og
mp3, fljúgandi furðu-
hlutiog DVDsemfá
inni á síðunni en fljót-
lega munu svo fleiri
málefni fá sinn hluta af
Huga.is.
um. Notendur geta síðan skoðað alls
kyns upplýsingar um áhugamál sín,
síður því tengdar og skipst á skoð-
unum viö aðra sem hafa sömu
áhugamál. Þeir fá ýmiss konar frétt-
ir um efniö og með tímanum afla
þeir sér aukinna réttinda á vefnum
til að ritstýra sínu áhugasviði. Vef-
urinn er þannig ritstýrður af not-
endum sjálfum. Á Huga.is eru
spjallrásir, spjallsíður, greinar,
fréttir og margt fleira.
Notendur sem taka virkan þátt í
samfélaginu fá stig. Stig fást fyrir
innsendar greinar, að vera á spjall-
rásinni, skrifa á korkinn o.s.frv.
Með auknum stigafiölda geta menn
orðið leiðtogar á vefnum og öðlast
aukin réttindi sem felast m.a. í því
að ekki þarf að samþykkja greinar
sem þeir senda inn á vefinn, þeir
geta öðlast réttindi til að samþykkja
greinar frá öðrum o.fl. Þannig geta
áhugasamir unnið sig upp í Huga-
samfélaginu með því að taka virkan
þátt í þvi sem þar fer fram.
Áhugamenn um Formúlu 1 eru meðal þeirra sem geta fundiö eitthvaö viö sitt hæfi á Hugi.is til aö byrja meö.
Listinn yfir ríkasta fólk í heimi:
Hátæknijöfrar í efstu sætum
- þrátt fyrir niðursveiflu í verði hlutabréfa
Bill Gates
er ríkasti maður
í heimi en forskot hans í
þeim efnum hefur minnkaö veru-
lega aö undanförnu.
en
Heimsins ríkasta
fólk kemur úr há-
tæknibransanum
samkvæmt nýjasta
lista Forbes-tímarits-
ins yfir þá sem eru
loðnastir um lófana.
Hrun verðs á hlutabréfúm
í Microsoft gerir það
verkum að forskot Bill Gates
á alla aðra á listanum hefur
minnkað verulega. Helsti keppi-
nautur hans nú er Larry Ellison frá
helsta keppinaut Microsoft í hug
búnaðargeiranum, Oracle Corp.
Á undanfórnum mánuðum hefur
verð hlutabréfa Oracle aukist
fimmfalt á meðan Microsoft
lækkaði um helming í verði eft-
ir úrskurðinn í Microsoft-
réttarhöldunum. Þrátt fyrir
það er Gates með nokkuð
örugga forystu
hann er
inn
eiga 60
milljarða
doUara
(um 4.600
miUjarða
króna) á með-
an EUison á um 47
miUjarða doUara
(um 3.600 miUj-
arða króna).
Gates er ekki eini
fuUtrúi Microsoft á þessum lista því
Paul AUen, einn stofnenda fyrirtæk-
isins, og Steve Ballmer, núverandi
framkvæmdastjóri Microsoft, eru
einnig ofarlega á listanum.
En þrátt fyrir að forystumenn úr
hátækniiðnaði séu ofarlega á blaði
hjá Forbes hefur lækkun hlutabréfa
í hátæknifyr-
irtækjum
mánuði
tekið
veruleg-
an toU af
auði þeirra.
Einna
verst
úti
varð
jap-
anski
far-
símajöf-
urinn
Ya-
sumitsu
Shigeta
en auð-
ur hans
hrundi úr 39 miUjörð-
um doUara niður í 1,7
miUjarð á örfáum mán-
uðum fyrr í vetur.
TúIjui