Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2000, Side 5
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000
tölvu-i takni og visinda
Gagnabanki íslands fær alþjóðlega viðurkenningu:
21
Flest verðlaun á Sophos-ráðstefnu •
- íslensk aðferð við markaðssetningu nýtt erlendis
Heiöar Kristinsson, vöru- og kynningastjóri Gagnabanka Islands, sýnir stoltur alþjóölegar viöurkenningar fyrir vel ?
unnin störf viö sölu Sophos Anti-Virus-Veiruvarnarforritsins hér á landi.
Fyrir stuttu var
haldin alheims-
ráðstefha á veg-
um Sophos Anti-
Virus veiruvarn-
arforritsins í
London á
Englandi. Þetta er árleg ráðstefna þar
sem endursöluaðilar koma saman til
að ræða ýmis mál hvað varðar víru-
svamir. Heiðar Kristinsson frá
Gagnabanka íslands sat þessa ráð-
stefnu i fyrsta sinn þar sem fyrirtæki
hans hóf sölu Sophos Anti-Virus í des-
ember siðastliðnum og hélt hann
einnig fyrirlestur um markaðssetn-
ingu og markaðinn á íslandi.
Gagnabanki íslands hefur ekki ver-
ið umboðsaðili fyrir veiruvarnarfor-
ritið í langan tíma en hefur greiniiega
nýtt þann stutta tíma vel, því fyrir-
tækið fékk þrenn verðlaun í sérstakri
verðlaunaafhendingu á ráðstefnunni -
flest verðlaun þeirra landa sem þátt
tóku í ráðstefnunni. DV-Heimur hafði
því samband við Heiðar og bað hann
að segja nánar frá þessum árangri
Gagnabanka íslands.
Markaðssókn vekur athygli
„Við fengum verðlaun fyrir bestu
markaðshugmyndirnar, við vorum
valdir sem bestu nýju söluaðilar
Sophos Anti-Virus og fengum að auki
verðlaun fyrir bestu hugmynd um
nýjung á heimasíðu Sophos Anti-Vir-
us,“ sagði Heiðar. „Þetta er auðvitað
mikil viðurkenning fyrir okkur, sér-
staklega i ljósi þess hve stutt er síðan
við hófum að kynna þennan hugbún-
að á íslandi. Erlendis hefur Sophos
víða gríðarlega góða markaðsstöðu og
hefur haft um nokkurra ára skeið og
því var skemmtilegt að skáka öðrum
stærri, sterkari og reyndari umboðs-
aðilum þegar viðurkenningar voru
veittar."
Gagnabanki íslands
hefur ekki verið um-
boðsaðili fyrir veiru-
varnarforritið í langan
tíma en hefur greini-
lega nýtt þann stutta
tíma vel, því fyrirtækið
fékk þrenn verðiaun í
sérstakri verðlaunaaf-
hendingu á ráðstefn-
unni - flest verðlaun
þeirra ianda sem þátt
tóku í ráðstefnunni.
Heiðar segir jafnframt að yfirmenn
markaðsmála hjá Sophos hafi sýnt
markaðssókn Gagnabanka íslands
mikinn áhuga og hyggjast prófa „ís-
lenska módelið" víðar. „Helsti munur-
inn á því sem við gerum og þvi sem
tíðkast annars staðar er að við kynn-
um okkur beint til fyrirtækjanna á
meðan útlendingarnir reyna að ná til
þeirra i gegnum auglýsingastofurnar.
Þetta kemur sjáifsagt mikið til vegna
smæðar markaðarins hér en engu að
síður geta aðferðir okkar einnig átt
erindi í fjölmennari löndum að okkar
mati,“ segir Heiðar.
Meðal þess sem kom annars fram á
ráðstefnunni að sögn Heiðars var að
gríðarlegur vöxtur hefur verið á Soph-
os Anti-Virus í heiminum að undan-
förnu. Til að mynda hefur fyrirtækið
tvöfaldað hagnað sinn á síðasta ári en
önnur fyrirtæki á þessum markaði
hafa ekki náð eins mikilli söluaukn-
ingu og hagnaði á heimsvísu. -KJA
mrwwmwm
Geimstöðin Mír fær heimsókn innan skamms:
Fyrsti geim-
túristinn bú-
inn að bóka
- fargjaldið einn og hálfur milljarður króna
LjÍyJjjJ-1
J'iJYUJj'
Næsta geimferð
til rússnesku
geimstöðvar-
innar Mír verð-
ur söguleg því
með í för verð-
ur fyrsti geimt-
úristi sögunnar - viðskiptajöfur
nokkur frá Los Angeles í Banda-
rikjunum. Þetta var tilkynnt fyrir
helgi, um það leyti sem tveir rúss-
neskir geimfarar sneru aftur til
jarðar eftir að hafa dvalið í Mir í
nokkra mánuði og unnið við að
koma geimstöðinni í gagnið aftur
eftir að hún hafði verið skilin eft-
ir mannlaus í nokkum tíma.
Hinn tilvonandi geimtúristi
heitir Dennis Tito, 59 ára gamall
fyrrverandi starfsmaður Geimvís-
indastofnunar Bandaríkjanna,
NASA. Hann mun heimsækja Mír
á næsta ári ásamt tveimur at-
vinnugeimförum.
Jeffrey Manber, forseti
MirCorp, fyrirtækisins sem leigir
geimstöðina af Rússum, sagði fyr-
ir helgi að Tito hefði staðist allar
heilbrigðiskröfur og væri nú mjög
sterkur kandídat fyrir fyrstu
túristaferðina til geimstöðvar á
braut um jörðu. Manber sagði
jafnframt að verið væri að ræða
við fleiri tilvonandi geimtúrista
um væntanlega leiðangra til geim-
hótelsins Mír.
OlGltAL CAMfcRA
C-990 2OOM
Starfsmaöur Olympus sýnir hér nýjustu afurö fyrirtækisins, stafrænu myndavélina Camedia C-990 Zoom, viö frum-
sýningu hennar í Tokyo um síöustu helgi. Myndavélin státar af innbyggöu 2,11 megapixla CCD, JPEG-hreyfi-
mynda- og hljóöupptökumöguleikum og getur þar aö auki smellt mun hraöar af en áöur hefur veriö mögulegt.
Mír verður vefgátt
Tito mun borga um það bil 20
Fyrsta feröin til geimstöövarinnar Mír meö feröamann veröur farin á næsta ári.
milljónir dollara (um einn og hálf-
an milljarð króna) fyrir ferðina og
segja kunnugir að hann hafi auð-
veldlega efni á að borga fargjaldið.
Árið 1973 stofnaði hann fyrirtæki
sem höndlar með eftirlaunasjóði
sem hefur gengið gríðarlega vel og
er talið að auður Titos sé í dag
Jeffrey Manber, forseti
MirCorp, fyrirtækisins
sem leigir geimstöðina
af Rússum, sagði fyrir
helgi að Tito hefði
staðist allar heil-
brigðiskröfur og væri
nú mjög sterkur
kandidat fyrir fyrstu
túristaferðina til geim-
stöðvará brautum
jörðu.
rúmlega 250 milljónir doflara (um
19 milljarðar króna).
Forsvarsmenn MirCorp voru
mjög ánægðir með ferð geimfar- .
anna sem lentu í síðustu viku. Á
75 daga dvöl þeirra í Mír gekk
geimstöðin eins og klukka og ekk-
ert aðalkerfanna sló feilpúst en
saga geimstöðvarinnar hefur síð-
ustu ár einkennst nokkuð af bil-
unum og skemmdum.
Manber og félagar hjá MirCorp
eru að undirbúa ýmislegt annað
en túristaferðir til geimstöðvar-
innar. Þeir munu jafnframt gera
geimstöðina að vefgátt og frá
heimasíðu hennar munu netverj-
ar m.a. geta horft gegnum glugga
Mir og fylgst með jörðinni svífa-,
hjá. Á meðan beðið er eftir því að
sú þjónusta komist i gagnið er
ekki úr vegi að skoða heimasíðu
MirCorp, en hún er á slóðinni:
littp://www.mirstation.eom/