Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2000, Blaðsíða 3
Ifókus
Vikan 28. iúlí til 3. áqúst
1 ífift.p
T I R V
viö mælum meö
g g r a
h e 1 g í n a
Á föstudagskvöldið er sýning á Thrill-
er og eftir sýninguna fer ég í partí. Það
eru stelpurnar i saumaklúbbnum sem
ætla að hittast. Eftir það partí fer ég í af-
mæli en það er ein bekkjarsystir mín sem
verður tvítug og heldur upp á það á
Sportkaffi.
Á laugardaginn er ég að vinna. Ég vinn
á gróðrarstöð við alls konar störf og verð
að vinna allan laugardaginn. Eftir vinnu
ætla ég að hitta nokkrar vinkonur mínar
og við ætlum að grilla saman eitthvað gott.
Svo er annað tvítugsafmæli á dagskrá um
kvöldið. Afmælisbarnið er vinkona mín og
heldur upp á það í Keiluhöllinni, en ég veit
ekkert hvort það verður eitthvert keilu-
þema i partíinu.
Á sunnudaginn er ég aftur að vinna og
eftir vinnu gæti ég trúað að ég skellti mér
í sund. Svo kemur vel til greina að fara og
fá sér ís eftir það, sérstaklega ef veðrið
verður gott.
Mariko Ragnarsdóttir,
leikkona í Thriller
Knattspymumcnn fara naklir f bað mcð öðrum mönnum
á hvcrjum degi og nudda kynfæri sín mcð sápu.
Það er ekki ofsögum sagt að Óvæntir bólfélagar á vegum Tilraunaeldhússins og
Menningarborgarinnar séu með ferskustu atburðum ársins. Á sunnudaginn toppa
Bólfélagarnir sig aftur. Þá mæta félagarnir í Stilluppsteypu ásamt listamanninum
Magnúsi Pálssyni í Iðnó og sjóða saman óvæntan kokkteil sem ætti ekki að valda
neinum vonbrigðum.
Soðið saman yfir
Ermarsundið
Tónleikum Lands og sona i
Leikhúskjallaranum annað
kvöld. Þeir hafa farið mikinn
undan-
f a r i ð ,
piltarn-
■ ir, og
f e n g i ð
ótrúleg-
/ ar við-
J 'ílii*** tökur en
—,Æm 1B9HKH1H t eru nú
loks komnir í bæinn og geta
Reykvíkingar fengið að berja
Hreim og félaga augum í alvöru
sveitaballastemningu.
Að fólk
h j á 1 p i
s t a r f s -
mönnum
Borgar-
b ó k a -
safnsins
að flytja
niður í
Tryggvagötu. Það eina sem þarf
að gera er að næla sér í bækur á
gamla staðnum og skila þeim aft-
ur á nýja staðinn þegar safnið er
flutt. Nóg er nú bruðlað af opin-
beru fé í flutninga og starfs-
mennirnir taka heldur ekkert
hart á sektum í þessu tilviki.
Vestubæjarlauginni sem
gengið hef-
ur i gegn-
um miklar
breytingar
undanfar-
ið. Yfir-
mennirnir
sáu að fólk
var ein-
faldlega
hætt að
mæta og tóku allt í gegn og
bættu við eimbaði, nýjum potti
og svo voru útiklefarnir endur-
bættir. Það er því ljóst að þetta
er laugin í dag.
Sjávarréttaveitingastaðnum
Tveim flskum í
miðbænum.
Eini alvöru
sushi-stað-
urinn sem
við íslend-
ingar höfum
fengið að
kynnast og
verður vart sleg-
inn út í bráð. Við bíðum bara eft-
ir nýja staðnum í Aðalstræti.
„Satt að segja er þetta svolítið
leyndarmál. Ég get eiginlega ekki
greint nákvæmlega frá því sem
mun eiga sér stað í Iðnó á sunnu-
daginn,“ segir Sigtryggur, með-
limur Stilluppsteypu. Hann,
Heimir og Helgi í Stilluppsteypu
eru búnir að vera í stöðugu sam-
bandi við Magnús Pálsson lista-
mann undanfarið hálft ár til að
undirbúa þennan viðburð sem
heitir Corp Credit: Bænagjörð
og trommusóló.
Ekkert hálftíma kukl
Áætlað er að sjálfur atburður-
inn á sunnudaginn standi yfir í
rétt rúma tvo tíma. Á þeim tíma
munu strákarnir í Stilluppsteypu
spila tónlist og hljóðverk sem
þeir hafa samið í kringum texta
sem Magnús Pálsson hefur sett
saman. Magnús mun varpa upp á
tjald tveimur videoverkum auk
þess að hann og Ragnheiður
Guðmundsdóttir lesa upp á
meðan Stilluppsteypa spilar.
„Ef við myndum ekki spila
svona lengi kæmumst við ekki al-
mennilega í transinn. Það þýðir
ekkert að vera að einhverju hálf-
tíma kukli,“ segir Sigtryggur.
Stilluppsteypa og Magnús Páls-
son hafa verið í sambandi frá því
að þeir hittust í Amsterdam fyrir
hálfu ári. Síðan hafa föxin, sím-
tölin og bréfin flogið á milli.
„Ég og Ragnheiður höfum verið
úti í London en strákarnir viðs
vegar um Holland. Samstarfið
hefur gengið ágætlega, ég sendi
þeim texta og hugmyndir frá mér
yfir Ermarsundið og þeir sendu
mér tónverk á móti. Síðan hefur
Eyvindur Erlendsson einnig
verið að leikstýra mér í þessum
textasmíðum," segir Magnús.
„Þannig vitum við nokkurn veg-
inn hvernig þetta verður þó svo
að spuninn eigi að sjálfsögðu eft-
ir að vera áberandi."
Magnús Pálsson og Stilluppsteypa verða á spunanótunum í Iðnó á sunnudaginn þar sem þeir koma fram sem Óvæntir
bólfélagar.
Með Sonic Youth
„Já, við spinnum mikið og höld-
um okkur á tilraunakenndum nót-
um,“ segir Sigtryggur. „Annars
væri ekkert gaman.“
Stilluppsteypa er annars þekkt
fyrir spuna á tónleikum og tekur
sjaldan útgefið efni lifandi. Það er
nóg búið að vera i gangi hjá þeim
upp á síðkastið. Nýlega luku þeir
við að spila á tvennum tónleikum í
Hollandi og Belgíu þar sem þeir
hituðu upp fyrir Sonic Youth. Og
það ekki í fyrsta skipti. „Það lukk-
aðist vel. Sjóið var mjög flott og
þeir voru góðir á því, tóku öll lög-
in sín sem maður þekkir.“
Stilluppsteypa gaf nýlega út EP-
skífu, Not a Laughing Matter,
rather a Matter of Laugh, og eru
þeir sífellt að grúska, hvort sem
þeir eru hver í sínu horni eða sam-
an. Þannig verður gaman að fylgj-
ast með þeim félögum á tónleikun-
um á sunnudaginn þar sem þeir
spila örsjaldan hér heima.
Bólfélagarnir verða annars með
hefðbundnu sniði. Telefónían er á
sínum stað, sem og góði andinn.
Atburðurinn verður síðan tekm
upp af Smekkleysu, sem sér um að
festa Bólfélagana á analog. Þannig
getur enginn talist maður með
mönnum nema hann leggi leið sína
niður í Iðnó á sunnudagskvöld.
/L