Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2000, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2000, Page 3
4" 33 "V LAUGARDAGUR 12 ÁGÚST 2000 jtílar * Porsche 911 Turbo kynntur: Flaggskip Porsche fáanlegt á íslandi - og einnig með leirbremsum Vöövarnir eru ekki til sýnis en feguröin kemur jafnt innan sem utan frá. Um helgina frumsýnir Bílabúð Benna nýja Porsche 911 Turbo-bíl- inn en hann er hvorki meira né minna en flaggskip þessa fræga bílaframleiðanda. Hann þykir bjóða upp á það besta í fjöldaframleiddum sportbíl, hvort sem um er að ræða kraft, bremsur, öryggi, og svo mætti lengi telja. Bíllinn var prófaður af blaðamönnum DV-bíia á Keflavíkur- flugvefli i gærkvöld og segjum við nánar frá því í næsta blaði en byrj- um hér á að kynna bílinn aðeins fyrir lesendum til að gefa þeim hug- mynd um af hverju þarf heilan miUilandaflugvöfl til að prófa svona tæki. Úlfur í sauðargæru Það þarf ekki annað en að horfa á bílinn til að sjá hvað hér er á ferð- inni en þrátt fyrir það er nýi bfllinn með mildari línum en áður hefur þekkst frá Porsche. Framan á bfln- um eru þrjú svokölluð „svarthol“ eða loftinntök til kælingar fyrir vél, túrbínu og ljósabúnað. Einnig eru loftinntök á hliðum stærri en í hin- um 250 hestafla Boxter sem við próf- uðum á dögunum. Hann er á lágum en breiðum kappakstursdekkjum frá Pirelli með 18 tommu álfelgum. Brettin eru ekki eins útstæð og áður en yfirbyggingin breikkuð til að fá samræmda línu í bílinn. Vindskeið- in er minni en gamli hvalsporður- inn sem margir kannast við og er nú á vökvalyftum sem hækka og lækka vænginn eftir hraða bílsins. Ævintýralegt vélarafl Aflið í 911 Turbo er svakalegt og er hönnun vélarinnar byggð á GTl- keppnisbflnum. 420 hestöfl koma frá 3,6 lítra „boxer“-mótomum og þegar túrbinan kemur inn við 2700 snún- inga eru það 560 Nm af togi sem tryggja ævintýralega hröðun upp fyrir 300 kílómetra markið. Porsche- verksmiðjurnar gefa upp að hundraðinu sé náð á 4,2 sekúndum og er þá átt við að hvaða meðaljón sem er eigi að ná því marki en með vanan ökumann innanborðs fer hröðunin niður fyrir fjórar sekúnd- ur. Þrátt fyrir vélaraflið er eyðslan ekki mikil og í EB-prófunum mælist hún vera 12,9 lítrar á hundraðið. Vélin stenst líka allar kröfur um mengunarstaöla beggja vegna Atl- antshafsins og það nokkur ár fram í tímann. Fjórhjóladrif með afldreíf- ingu Porsche 911 er með sama aldrifiö og Carrera en með nokkrum tækninýjungum. Aflinu er dreift til hjólanna eftir aðstæðum og eru 5-40% þess á framhjólum. í þennan bíl er komið PSM-kerfi sem tryggir stöðugleika í beygjum og undir hæpnustu aðstæðum en þó ekki fyrr en í óefni er komið. Með kerfið á getur það tekið völdin af óreyndum ökumanni og bjargað honum frá því að missa stjórn á bflnum. Fyrir þá sem telja sig kunna að keyra er svo hægt að slökkva á kerfinu með takka í mælaborði. Ljósin eru meö hvítum gasperum, bæði á lágum og háum geisla, en það er mögulegt, með sérstakri kælingu fyrir perum- ar. Lýsingin minnir einna helst á dagsbirtu og er hafla hennar stjóm- að sjálfvirkt eftir stöðu framendans við hröðun eða bremsun. Leirbremsur setja punktinn yfir M5 Síðast en ekki síst em öflugar bremsur í 911 til samræmis við vél- araflið. í haust kemur þessi bíll með nýjum „leirbremsum" en það eru keramikdiskar sem þola margfalt hitastig á við hefðbundnar bremsur en slíkt er lykilatriði í öflugum sportbíl. Þetta er ein af afurðum geimferöatækninnar og eru disk- amir hertir með keramískri aðferð sem gerir þá margfalt harðari, högg-' þolnari og því endingarbetri. Nýju diskarnir eru líka talsvert léttari en hefðbundnir stáldiskar og minnka fjaðrandi vigt hjólanna um samtals 20 kfló sem skflar sér í betra veg- gripi og aksturseiginleikum. -NG Chrysler aftur heim Gengið hefur verið frá samningum mifli Ræsis hf. og DaimlerChrysler um að Ræsir taki að sér umboð fyrir Chrysler á íslandi. Þar með má segja að Chrysler sé kominn aftur heim því upprunalega var Ræsir stofnaður utan um umboð fyrir Chrysler. Að sögn Hallgríms Gunnarssonar, forstjóra Ræsis hf., hefur nú verið gengið formlega frá þessu samkomu- lagi, í eðlilegu framhaldi af þeirri stefnu DaimlerChrysler aö sami aðili fari með umboð fýrir bæði Chrysler og Mercedes Benz, en Ræsir hefur í áratugi haft umboð fyrir MB. Haflgrímur sagði í samtali við DV- bfla að endurheimt Chrysler-umboðs- ins myndi verða í þremur þrepum. Fyrsta þrepið er uppbygging vara- hlutaþjónustu sem nú er komin í það horf sem á að vera. Varahlutatölvur Ræsis hafa veriö skflgreindar inn í kerfi framleiðandans og varahlutaaf- greiðsla að sögn Hallgrims komin í það horf sem vera skal - að hrað- sendingar skfli sér á sólarhring eins og vera ber. Næsta þrep er að þjálfa þjónustu- menn Ræsis í þjónustu við Chrysler- bfla og fara þeir sumpart utan til óhöpp af völdum þessara dekkja en sjálfsagt sé fyrir þá sem hafa fengið bíla sína afgreidda á Firestonedekkj- unum að hafa samband, þó Ford leggi áherslu á að þetta sé mál Firestone en ekki Ford. Beöiö eftlr Firestone Þórarinn Kristinsson hjá Gúmmí- vinnslunni á Akureyri, sem hefur umboð á íslandi fyrir Bridgesto- ne/Firestone, var þegar DV-bflar höfðu samband við hann að biða eft- ir skýringum frá Firestone. Þórar- inn taldi hins vegar ekkert óeðlilegt við að dekkjaframleiðandi kallaði inn dekk ef þau stæðust ekki þær kröfur sem framleiðandinn gerði, aflra síst þegar virtur framleiðandi eins og Bridgestone/Firestone ætti í hlut. Gúmmívinnslan myndi að sjálfsögðu taka á þessu máli af fullri alvöru í samráöi við framleiðand- ann ytra. Um leið og svör Bridgesto- ne/Firestone lægju fyrir yröu þau gerð almenningi aðgengfleg. þjálfunar og sumpart koma menn að utan til að þjálfa heimamenn. Ræsir hf. hefúr nú tekið á leigu húsnæði og athafnasvæði sem Vélamiðstöð Reykjavíkur hafði áður í Sætúninu sem breytir miklu fyrir Ræsi, en starfsemi fyrirtækisins var orðin ansi aðkreppt á homi Skúlagötu og Sætúns. „Sérstaklega eru þetta við- brigði fyrir þá sem em á stóra bílun- um,“ sagði Hallgrímur. „Nú geta þeir heimsótt okkur og lagt í porti Véla- miðstöðvarinnar. Hins vegar kemur i ljós að verkstæðisaðstaða okkar er hentugri fyrir stóra bflana en það sem við fengum í viðbótarhúsnæð- inu. Við eram með betri gryfjur og nógu háar dyr fyrir stærstu bfla. En með því að flytja bílastæði og annaö úr portinu hjá okkur út á viðbótar- svæðið sem við höfúm nú til ráðstöf- unar verður nægilegt svigrúm í port- inu tfl þess að stóra bílamir hafi við- unandi aðgang að verkstæðinu." Framtiöarstaöur í sjónmáli Lokaáfangi yflrtöku Chryslerum- boðsins verður þegar sala á Chrysler- bílum hefst hjá Ræsi hf. Ekki hefur að Eftir þeim fréttum sem fyrir liggja virðast gallar í þessum dekkjum fyrst og fremst koma fram við mik- inn lofthita þannig að ísland ætti ekki að vera mikið áhættusvæði. Firestone AXT, ATXII og Wildemess AT hafa verið í notkun í nokkur ár Hallgrímur Gunnarsson, forstjóri Ræsis hf. og ætti því að vera komin talsverð reynsla á þau. Undirritaður ók á Firestone ATX af nefndri stærð fjög- ur sumur og líkaði vel. Hins vegar urðu þau strax og kólna tók afar hörð og mjög hál í minnstu ísingu eða snjó. -SHH Gúmmívinnslan býður ný dekk I fréttatilkynningu frá Gúmmí- vinnslunnu hf. á Akureyri, sem er um- boðsaðili Bridgestone/Firestone á Is- landi, kemur fram að Bridgesto- ne/Firestone hefur innkallað eftirtalin dekk á íslandi sem og annars staðar í Evrópu í framhaldi af umræðu í Am- eríku um hugsanleg slys af völdum þeirra: Firestone P235/75R15 AT XFirestone P235/75R15 ATXII Firestone P235/75R15 Wildemess AT í fréttatilkynningunni segir að þótt Ijóst sé að óverulegt magn af þessum dekkjum sé í umferð í Evrópu og þrátt fyrir að „engar sannanir hafl verið færðar á galla í hjólbarðagerðunum þremur telur Bridgestone/Firestone í Evrópu eðlilegt að innkalla þá hjól- barða sem eru í umferð, óháð aldri og sliti, og bjóða eigendum nýja hjól- barða í staðinn. Gúmmívinnslan hf. á Akureyri er umboðsaðili fyrir hjólbarða frá Bridgestone/Firestone og geta eigend- ur áðumefiidra þriggja hjólbarðateg- unda leitað til fyrirtækisins varðandi skipti á þjólbörðum.“ fullu verið ákveðið hvenær það verð- ur. Eftir er að semja um verð á Chryslerbílum til íslands og eins og er hefúr Ræsir ekki rúm i sýningarsal fyrir Chryslerbfla í viðbót við það sem fýrir er, Mercedes Benz og Mazda. Ým- islegt þarf að skoða í því sambandi, að sögn Hallgríms, en með hliðsjón af því að fýrirtækið stefiiir að því að koma sér upp framtíðaraðstöðu svo fljótt sem auðið er verður tæplega farið í þær dýru breytingar sem þyrfti að gera á húsnæðinu sem Vélamiðstöðin hafði áður til þess að þar gæti orðið viðunandi söluaðstaða. Hugsanlegur millileikur gæti orðið sá að leigð yrði sérstök tímabundin aðstaða fýrir sölu Chryslerbíla ef það þætti henta. Hafl- grímur sagðist vongóður um að góð lausn á framtíðarstað fýrir Ræsi hf. væri í sjónmáli en á þessu stigi máls- ins er ekki hægt að skýra nánar frá því. Aðspurður um það hvort Ræsir hf. myndi „þjófstarta" með sölu Chrysler- bfla með því að taka PT Cruiser til sölu fýrr en aðra bfla Chrysler sagði Haflgrímur að vissulega væri gaman ef hægt yrði að byija verkið með þeim hætti. Hins vegar benti hann á að þó að PT Cruiser sé mikill tískubíll um þessar mundir og að ákjósanlegt gæti virst að baða sig í því ljósi væri langt frá að framleiðandinn gæti annað eftir- spum heima í Ameríku og meðan það ástand stæði væri Evrópumarkaði út- hlutað aðeins litlum kvóta. tslensk bílaumboð hafa oft goldið þess að fá ekki bíla eins og þau þurfa meðan mesti áhuginn á tilteknum bílum er fýrir hendi og hætta á að þannig færi með PT Cruiser. Þess utan hefúr ekki enn verið samið um íslandsverð á hon- um fremur en öðrum Chryslerbílum. Hallgrímur minnti líka á að eftir rúmt ár eða svo er væntanlegur á markaðinn nýr og spennandi Cher- okee sem 02 ágerð og fleiri forvitnileg- ir bflar eru væntanlegir frá Chrysler á næstunni, þar á meðal fleiri útfærslur á PT Cruiser, þannig að hvenær sem sala bílanna hefst verður örugglega eitthvað áhugavert á boðstólum. -SHH Toyota Nissan Range Rover Ford Chevrolet Suzuki Cherokee JeepWillys Land Rover Musso Isuzu K CD ALLT PLAST Kænuvogi 17 • Sími 588 67 Framleiðum brettakanta, sólskyggni 09 boddíhluti á flestar gerðir jeppa. einnig boddíhluti i vörubila og vanbíla. Sérsmíði og viðgerðir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.