Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2000, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2000, Blaðsíða 1
15 Föstudagur 13. október 2000 Landslið karla í borðtennis: Nýr leikmaður til Snæfells Körfuknattleiksdeild Snæfelis á von á nýjum leikmanni um helg- ina. Er það Júgóslavi, nánar tiltek- ið frá Belgrad, Mirko Virijevic að nafni. Mirko er liðlega tveir metrar á hæð, er senter (stærsti maður undir körfu) og taiinn styrkja liðið til muna. Hann er sagður mikill „troðari" og verður orðinn löglegur leikmaður strax og hann kemur, en nær tæplega að leika með liðinu um helgina á Egilsstöðum. -DVÓ Króatinn áfram FH-ingar í handboltanum urðu, eins og flestir muna, fyrir mikifli blóðtöku þegar Króatinn Dalibor Valinicic meiddist í leik gegn Aft- ureldingu fyrir skömmu. Þegar Guðmundur Karlsson, þjálfari liðs- ins, var inntur eftir þvi i gær hvort eitthvað hefði verið gert í að leysa þá stöðu sem komin er upp á hægri vængnum sagði harin að ekki væri stefnt að því að leita að staðgengli fyrir Valinicic, pening- arnir til slíkra ráðstafana væru hreinlega ekki fyrir hendi. Króatinn mun fara utan til með- ferðar og verður hann áfram á samningi hjá FH og standa vonir til þess að hann verði leikfær í febrúar ef allt gengur eftir. I milli- tíðinni segir Guðmundur að liðið verði að reyna að skapa sér góða stöðu í deildinni en liðið hefur þurft að þola nokkurt mótlæti í upphafi leiktíðar. Semb býður uppsögn Nils Johan Sem, þjálfari norska knattspyrnulandsliðsins, hefur boðist til að láta af störfum en mik- il óánægja hefur verið með gengi liðsins að undanfómu. Norska knattspyrnusambandið segir hins vegar Semb vera hluta af langtíma- áætlunum sambandsins og því sé hann ekki á leið úr stjómunar- stólnum. -ÓK Van Gaal gagnrýndur Louis Van Gaal, þjálfari hollenska knattspyrnulandsliðsins, hefur verið mjög gagnrýndur af flölmiðlum í heimalandi sinu eftir 0-2 tap liðsins gegn Portúgölum í fyrrakvöld og 2-2 jafriteflið gegn írum fyrir skömmu. Möguleikar liðsins á að komast áfram í keppninni eru nú mjög í hættu. Fjölmiðlar segja þjálfarann hafa gert mistök með val á liðinu fyrir leikinn í fyrrakvöld og það hafi leitt til sárs- aukafulls og skammarlegs ósigurs. Sér- staklega var það vörnin sem brást von- um. Van Gaal til varnar má segja að val hans hafi verið takmarkað vegna meiðsla lykilleikmanna. Van Gaal seg- ir þó ekki alla nótt úti en vissulega sé undir högg að sækja. Louis Van Gaal, þjálfari Hollands. -ÓK Beckham sekta - ásamt Galatasaray. Chelsea-leikmenn fá bann Knattspyrnusamband Evrópu hefur sektað David Beckham, leik- mann Manchester United, fyrir að hafa í frammi „klár mótmæli" við dómara leiks United og PSV Eind- hoven. Sektin er um tiu þúsund svissneskir frankar (um hálf millj- ón) og kemur í kjölfar þess að Beckham hrækti í átt að dómaran- um undir lok leiksins. Annars er það að frétta af leikmanninum að hann mun ekki þurfa að fara í að- gerð á hné eins og húist hafði ver- ið við. Tyrknesku Evrópumeistararnir Galatasaray hafa einnig verið sektaðir um 28.600 svissneska franka og er helsta ástæðan að baki sektinni sögð sú að félagið hafl útdeilt klósettrúllum til stuðn- ingsmanna sinna fyrir leik gegn Rangers i Istanbúl sem síðan var fleygt inn á völlinn svo að fresta varð að hefja leik og tvisvar þurfti að stöðva leikinn vegna þessa Einnig mun önnur hegðun áhang enda liðsins á vellinum hafa haf eitthvað að gera með sektina. Chelsea-leikmennimir Jimm; Floyd Hasselbaink og Franck Le boeuf fengu báðir tveggja leikj; bann í Evrópukeppni fyrir a< móðga dómarann þegar liðið dat óvænt út fyrir svissnesku meistur unum St. Gallen. Þá var bann Pascal Nouma, leik manns Besiktas, lengt úr þremui leikjum í fjóra, en Nouma hafð áfrýjað dómi um þriggja leikj; bann en fékk aðeins einn leik í við bót fyrir viðleitnina. Bannið fæi hann fyrir að slá Danny Mills, leik mann Leeds, í leik liðanna fyrii skömmu. -ÓE David Beckham þarf ekki að vera súr yfir sektinni, hann ætti að geta borgað hana. Reuter Mætir Lúxemborg - í Evrópukeppninni á morgun íslenska landsliðið í borðtennis mætir liði Lúxemborgar á laugardag í forkeppni 2. deildar Evrópukeppninnar. Viðureignin fer fram í íþróttahúsi TBR og hefst kl. 11. Þjáifari íslenska liðsins, Kínverjinn Hu Dao Ben, hefur valið liðið og verður það skipað þeim Guðmundi Stephensen, Adam Harðarsyni, Markúsi Árnasyni og Sigurði Jónssyni. Allir leikmenn landsliðsins eru úr Víkingi. -ÓK Landsliðshópurinn f.v.: Hu Dao Ben þjálfari, Sigurður Jónsson, Adam Haröarson, Markús Árnason, Guðmundur E. Stephensen.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.