Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2000, Qupperneq 3
16
FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2000
FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2000
17
Sport
DV DV
Sport
Þór Ak.-Haukar á Akureyri:
Spenna
- Haukarnir gerðu góða ferð norður
Þór Ak. (49) 92
Haukar (52) 103
6-6, 10-8, 17-13 (21-16), 23-27, 36-37,
45-46, (49-52). 51-56, 62-81, (69-65),
77-67, 83-93, 92-103.
Stig Þórs:
Clifton Bush 30, Magnús Helgason 18,
Óöinn Ásgeirsson 17, Einar Örn Aðal-
steinsson 9, Hermann D. Hermanns-
son 8, Siguröur F. Sigurösson 6, Kon-
ráð Óskarsson 2, Guömundur Odds-
son 2.
Stig Hauka:
Rick Mirkens 46, Bragi Magnússon
26, Davíö Ásgrímsson 10, Marel Guö-
laugsson 9, JónArnar Ingvarsson 6,
Lýður Vignisson 3, Eyjóifur Jónsson
3.
Fráköst: Þór 22, Haukar 20.
3ja stiga skot: Þór 7/18, Haukar 9/17.
Dómarar (1-10): Rögnvaldur Hreiö-
arsson og Kristinn Óskarsson (3).
Gœði leiks (1-10): (4).
Vitanýting: Þór 11/15, Haukar
26/33.
Áhorfendur: 200.
Maður leiksins: Rick Mirkens,
Haukum.
Tindastóll (51) 92
Valur (41) 80
2-8, 17-17, (29-27), 35-30, 41-34,
(51-41). 56-54, 63-47, (73-57), 74-62,
86-65, 92-80.
Stig Tindastóls:
Shawn Mayers 26, Tony Pomones 19,
Mikhail Antropov 12, Lárus Dagur
Pálsson 11, Kristinn Friöriksson 10,
Svavar Birgisson 8, Ómar Sigmars-
son 6.
Stig Vals:
Brynjar Karl Sigm-össon 19, Herbert
Arnarson 14, Drazen Jozic 12, Kjartan
Orri Sigurösson 9, Pétur Sigurðsson
9, Delawn Grandison 8, Bjarki Gúst-
avsson 5, Sigurbjöm Björnsson 4.
Fráköst: Tindastóll 31, Valur 19.
3ja stiga skot: Tindastóll 6/17, Valur
11/22.
Dómarar (1-10): Einar Þór Skarp-
héöinsson og Erlingur Erlingsson (8).
Gæði leiks (1-10): 7.
Vitanýting: Tindastóll 21/28, Valur
10/15.
Áhorfendur: 355.
Maður leiksins: Shawn Mayers,
Tindastóli.
Mikil spenna einkenndi leik
Þórs og Hauka þegar liðin mætt-
ust í íþróttahöllinni á Akureyri í
gær. Það voru þó gestirnir sem
höfðu betur að lokum,
lokatölurnar urðu 92-103.
Fyrsta leikhluta unnu Þórsarar
með fimm stigum og var sú for-
ysta fyllilega verðskulduð. Hauk-
ar sýndu svo hvað í þeim býr og
unnu annan leikhluta örugglega
en Haukar skoruðu fimm þriggja
stiga körfur á fyrstu fimm mínút-
unum í öðrum leikhluta. Þórsarar
tóku sig svo til og voru yfir í
þriðja leikhluta.
Þetta einkenndi leikinn, liðin
voru alltaf að skiptast á um að
hafa forystu. Þegar um átta mínút-
ur voru eftir af leiknum voru
Þórsarar yfir, 77-67 og allt virtist
stefna í sigur Þórsara. Þá tóku
Haukar leikhlé og eitthvað virtist
Valsmenn voru liklegir til að
velgja Tindastólsmönnum veru-
lega undir uggum eftir fyrsta
leikhlutanum á Króknum í
gærkvöldi að dæma, en þegar
Tindastólsmenn náðu að þétta
vömina í öðrum leikhlutanum
kom styrkleikamunur liðanna í
ljós og sigur Tindastóls var í
raun mun öruggari en lokatölur
gefa til kynna.
Leikurinn í gær var skemmti-
legur á að horfa og góður körfu-
bolti lengst af. Líklegt er þó eftir
þessum leik að dæma að Tinda-
stóll eigi góða möguleika að
halda sér í efri hluta deildarinn-
vera sagt í leikhléinu því Haukar
skoruðu næstu 24 stig og komust
yfir, 77-91, með fjórtán stiga for-
ystu og rétt um þrjár mínútur eftir.
Mirkens réö úrslitum
Maðurinn á bak við þetta var
Rick Mirkens en hann skoraði 22
stig í fjóröa leikhluta en aUs 46
stig í öllum leiknum. Hann var af-
burðamaður á vellinum og átti
leikinn. Clifton Bush hjá Þór verð-
ur sterkari með hverjum leiknum
og skoraði 30 stig. Þegar Þórsarar
voru með 10 stiga forskotið þá ætl-
uðu þeir sér að klára leikinn með
stæl í staðinn fyrir að taka hann
öruggt. Haukar nýttu sér þetta og
stálu boltanum ítrekað af Þórsur-
um. Mikil barátta var í Haukalið-
inu og skilaði hún sigrinum hjá
liðinu.
-JJ
ar í vetur, en Valsmenn verða
líklega í pakkanum sem berst á
hinum endanum.
Hjá Tindastóli átti Shawn
Meyers enn einn glansleikinn,
Grikkinn Tony Pomones átti
einnig stórleik og Rússinn An-
tropov sýndi góða takta. Krist-
inn, Lárus og Svavar stóðu fyrir
sínu.
Hjá Val var Herbert bestur,
Brynjar Karl drjúgur framan af,
en Jozic kom sterkur inn í
seinni hluta leiksins. Þá var
gaman að sjá mikla baráttu hjá
Kjartani Orra Sigurðssyni.
-ÞÁ
Tindastóll-Valur/Fjölnir á Sauðárkróki:
Þétt vörn
- tryggði heimamönnum öruggan sigur
Hamar-KR í Hveragerði:
HAMARSSTYRKUR
- Islandsmeistararnir lagðir að velli, 76-67
Það má segja að Hamarsmenn
hafi sýnt það í gær í íþróttahúsinu
i Hveragerði að þeir eru ekki auð-
unnir á heimavelli, það fengu KR-
ingar að finna fyrir. Fyrstu mínút-
ur leiksins voru mjög hraðar og
virtist sem leikmenn réðu ekki
við þennan hraða. KR var þó betra
liðið í fyrsta hluta og munaði þar
mest um stórleik Jóns A. Stefáns-
sonar. Hamarsmenn komust samt
meira inn í leikinn í öðrum hluta
og náðu sér í átta stiga forystu í
hálfleik og voru Skarphéðinn
Ingason og Chris Dade í aðalhlut-
verki.
Þriðji hluti leiksins var einleik-
ur Jóns A. Stefánssonar og vann
hann upp forskot Hamars upp á
sitt eindæmi, en KR varð þá fyrir
blóðtöku er hann meiddist og gat
lítið sem ekkert spilað í fjórða-
hluta. Það má þó segja að það hafi
ekki skipt sköpum því Hamars-
menn voru betri aðilinn í leiknum
og verðskulduðu þennan mikil-
væga sigur.
Pétur Ingvarsson, þjálfari Ham-
ars, var að vonum ánægður með
að leggja núverandi íslandsmeist-
ara að velli, hann sagði að menn
væru að leggja sig fram í leikjun-
um og gera það sem fyrir þá er
lagt. Um KR-liðið sagði Pétur að
þeir væru ekki eins sterkir eins
og í fyrra og að þá sárvantaði er-
lendan leikmann, þó svo það væri
ekki hans verk að segja til um
það.
Ingi Þór Steinarsson var ekki
eins kátur, eins og við var að bú-
ast, þetta var þriðji tapleikur KR
og virðist sem hinir ungu leik-
menn KR nái ekki nógu vel sam-
an. Ingi sagði að það væru margir
hlutir að. „Eldri leikmenn, sem
áttu að hjálpa þessum ungu mönn-
um, hafa verið meiddir og það er
erfitt að ná þessu saman þegar svo
er komið, okkur vantar ekki er-
lendan leikmann," sagði Ingi.
„Þeir þurfa bara að komast betur
saman þá fer þetta að ganga, við
eigum leik við Hamar hér í Kjör-
ís-bikarnum á næstunni og þá ætl-
um við okkur að gera betur.“
Bestur í liði KR var Jón A. Stef-
ánsson, hann gerði 27 stig og var
allt í öllu hjá KR. Bestir í liöi
Hamars voru Chris Dade, Pétur
Ingvarsson, Skarphéðinn Ingason
og Gunnlaugur Hafsteinsson sem
komst í gang með sínar þriggja
stiga körfur. -EH
Hamar (42) 76
KR (30) 67
0-2, 8-13, 15-19 (18-22), 23-22, 30-28,
37-29 (42-30). 46-35, 48-42, 52-50,
(61-57), 64-62, 70-65, 76-67.
Stig Hamars:
Chris Dade 16, Pétur Ingvarsson 15,
Gunnlaugur Hafsteinsson 13,
Skarphéðinn Ingason 11, Hjalti
Pálsson 8, Svavar Pálsson 5, Ægir
Jónsson 4, Óli Barðdal 4, Lárus
Jónsson 1.
Stig KR:
Jón A. Stefánsson 27, Ólafur Jón
Ormsson 12, Magni Hafsteinsson 12,
Amar Kárason 7, Jonathan Bow 7,
Hjalti Kristjánsson 2.
Fráköst: Hamar 30, KR 31.
3ja stiga skot: Hamar 8/21, KR
5/20.
Dómarar (1-10): Sigmundur
Herbertsson og Rúnar Gíslason (7).
Gæði leiks (1-10): 7.
Vítanýting: Hamar 17/27, KR
23/31.
Áhorfendur: 350.
Maður leiksins: Chris Dade,
Hamri.
Hreggviður Magnússon, IR, sækir að körfu Grindvíkinga í leik
liðanna í gækvöldi en Pétur Guðmundsson Grindvíkingur
fylgir honum fast eftir. DV-mynd E.ÓI.
- sagði Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflavíkur, eftir sigur á Njarðvík
Keflavík (48) 106
Keflvíkingar unnu góðan sigur á
Njarðvíkingum, 106-96, í iþróttahúsinu
í Keflavík í gærkvöldi. Jafnræði var
með liðunum fram eftir fyrsta leikhluta,
en Keflvíkingar náði fljótt 10 stiga for-
skoti sem þeir héldu lengi vel og var
munurinn mest 21 stig. Njarðvíkingar
klóruðu aðeins í bakkann á síðustu 5
mínútum leiksins, en betur má ef duga
skal og Keílvíkingar unnu sinn þriðja
sigur í jafnmörgum leikjum í Epson-
deildinni.
Njarðvíkingar byrjuðu með þriggja
stiga körfu í upphafi, en Keflvíkingar
svöruðu með 9 stigum á skömmum
tíma. Það fór mikið fyrir 3ja stiga skot-
unum og vantaði þá helst til jafnvægi á
sóknarleik Njarðvíkinga sem fóru lítið
með boltann upp að körfu ef Halldór
Karlsson er undanskilinn.
Munurinn eftir fyrsta leikhluta var 6
stig, 27-21. Njarðvíkingar höfðu þá ekki
fengið eina einustu villu, þannig að eitt-
hvað hefðu þeir mátt herða vamarleik-
inn. Þá var eins og Keflvíkingar færu í
gang og munurinn fór í 10 stig og hélst
lengi vel en Njarðvíkingar minnkuðu
muninn og hálfleikstölur 48-41. Munaði
þar mest um stórleik Calvin Davis sem
skoraði 16 stig og tók 15 fráköst, auk
þess að trufla Njarðvíkinga í aðgerðum
sínum nálægt körfunni. Logi Gunnars-
son var þó sá maður í Njarðvíkurliðinu
í 2. leikhluta sem sýndi áræði og skor-
aði 13 í fjórðungnum.
Seinni hálfleikur var vart hafmn er
Jes Hansen, miðherji Njarðvikinga, var
kominn með 4. villuna. Hafði hann sig
lítið í frammi eftir það og verður að
segjast að stráksi komst aldrei í takt við
leikinn. Keflvíkingar spiluðu mjög góða
vörn í byrjun seinni hálfleiks sem kom
þeim í þægilega stöðu, en það má hrósa
Njarðvikingum fyrir það að þeir gáfust
aldrei upp. Tilþrifm vantaði ekki og
náðu hámarki er Magnús Gunnarsson
henti boltanum frá miðlínu í átt að
körfu, og þar var Calvin Davis mættur
og tók boltann á lofti og skilaði í körf-
una með glæsilegri troðslu.
Njarðvíkingar brugðu á það ráð að
spila pressuvöm og náðu á skömmum
tíma að minnka muninn úr 21 stigi nið-
ur í 7 stig en lengra komust þeir ekki og
Keflvíkingar eru því ósigraðir eftir 3
umferðir Epson-deildar.
Calvin Davis var maðurinn á bak við
sigur Keflvíkinga, hitti 12 af 13 í skotum
af velli og fráköstin og ógnin vamarlega
vógu þungt, einnig var gaman að sjá að
Falur Harðarson er að komast í sitt
gamla form, og Birgir Öm og ungu
mennirnir Magnús og Jón voru einnig
duglegir.
Njarðvikingar stórtöpuðu einvíginu
um fráköstin og fundu aldrei rétta takt-
inn i sókninni. Logi Gunnarsson og
Brenton Birmingham voru atkvæða-
mestir og Halldór Karlsson var einnig
duglegur.
Sigurður Ingimundarson, þjálfari
Keflvíkinga, var sáttur í leikslok. „Við
spiluðum góða vörn í byrjun seinni
hálfleiks, það skilaði sér í að þeir voru
þreyttari í lokin, en þeir gáfust ekki upp
og Njarðvíkingamir börðust vel, en góð-
ur sigur og ég er mjög sáttur."
„Við vomm lengi að fmna mennina
okkar og þeir eru fljótir að refsa. Frá-
köstin vantaði lika okkar megin. Sókn-
arlega fórum við allt of lítið með bolt-
ann upp að körfu og létum áuk þess ýta
okkur út úr leikkerfunum okkar. Það
verður því að segjast eins og er að við
fundum aldrei taktinn í þessum leik.
En við eigum mikið inni, þeir skora
ekki 106 stig í leikjunum í Kjörís-bik-
amum i næstu viku,“ sagði Jón Júlíus
Árnason, aðstoðarþjálfari Njarðvíkinga,
að leik loknum.
Njarðvík (41) 96
0-3, 13-13, 22-17, (27-21), 33-23, 39-27,
45- 38, (48-41). 5441, 6146, 68-53,
(79-63), 82-63, 87-73, 91-80, 106-96.
Stig Keflavíkur:
Calvin Davis 26, Falur Harðarson 25,
Birgir Örn Birgisson 14, Magnús
Gunnarsson 13, Gunnar Einarsson 12,
Jón N. Hafsteinsson 10, Guðjón
Skúlason 3, Hjörtur Harðarson 3.
Stig Njarðvlkur:
Logi Gunnarsson 29, Brenton
Birmingham 27, Teitur Örlygsson 11,
HaUdór Karlsson 10, Jes V. Hansen 8,
Ragnar Ragnarsson 5, Sævar Garðar-
son 3, Friðrik Ragnarsson 3.
Fráköst: Keflavík 52, Njarövík 28.
3ja stiga skot: Keflavik 10/26, Njarð-
vík 11/28.
Dómarar (1-10): Leifur Garðarsson
og Jón Bender (9).
Gæði leiks (1-10): 7.
Vítanýting: Keflavík 12/27, Njarðvik
19/31.
Áhorfendur: 800.
Maður leiksins: Calvin Davis,
Keflavík.
ÍR-Grindavík í Seljaskóla:
Sveiflukennt
- þegar Grindvíkingar sigruðu ÍR, 79-84
Grindvíkingar sigruðu ÍR-inga í
Epson-deildinni í körfuknattieik í
Seljaskólanum í gærkvöldi með 84
gegn 79 í spennandi, sveiflukenndum
og skemmtilegum leik. í byrjun leit
helst út fyrir að Grindvíkingar ætl-
uðu að valta yfir ÍR-inga því þeir
pressuðu grimmt á þá og náðu fljót-
lega góðu forskoti en ÍR-ingum tókst
að róa leikinn niður og ná eins stigs
forystu með skynsömum leik þegar
fyrsti flórðungur var aliur.
Annar fjórðungur var jafn nánast
allan tímann en undir lok hans tók
Guðlaugur Eyjólfsson, leikmaður
Grindvíkinga, til sinna ráða og rað-
aði niður þriggja stiga skotum þannig
að þeir Suðurnesjamenn leiddu með
níu stigum í háifleik. í þriðja leik-
hluta gaf að líta miklar sveiflur og
náðu ÍR-ingar frábæmm leikkafla og
tókst á stuttum tíma að skora 13 stig
án þess að Grindvíkingar næðu að
svara fyrir sig og var mjög gaman að
sjá til liðsins á þessum kafla.
í fjórða leikhiuta komust Grindvík-
ingar fljótlega inn í leikinn aftur og
boöið var upp á jafnan leik þar sem
lokamínútumar voru spennandi en
Guðlaugur tryggði Suðurnesjapiltun-
um sigurinn með því að hitta úr víta-
skoti þegar níu sekúndur vora eftir
og auka muninn í fjögur stig sem var
of mikið fyrir ÍR-inga að brúa á svo
stuttum tíma. í heildina séð var leik-
urinn hin besta skemmtun fyrir þá
fáu áhorfendur sem leið sína lögðu í
Seljaskóla í gærkvöldi.
Bæði lið mæta með töluvert breytt
lið frá síðasta keppnistimabili en ef
fram heldur sem horfir þá verða bæði
liðin í efri hluta deildarinnar.
Hjá Grindavík var Kim Lewis góð-
ur í fyrri hálfleik en sást lítið í þeim
seinni, Guðlaugur Eyjólfsson hitti vel
úr þriggja stiga skotum og þá átti Páll
Axel Vilbergsson flnan leik. Hjá ÍR-
ingum var Cedrick Holmes traustur,
Eiríkur ðnundarson átti mjög góðan
leik og Sigurður Þorvaldsson stóð vel
fyrir sínu.
„Þetta var góður og mikilvægur
sigur hjá okkur á þessum erfiða úti-
velli. Við eram enn dálítið ryðgaðir
því það hafa verið töluverðar manna-
.breytingar hjá okkur en þetta stefnir
allt i rétta átt,“ sagði Pétur Guð-
mundsson, fyrirliði Grindvikinga.
„Það var sárt að tapa þessum leik
því mér fannst við vera komnir með
mjög góö tök á honum um miðjan
seinni hálfleikinn en í lokin gat þetta
farið á hvorn veginn sem var. Við er-
um oft og tiðum að spila vel en skort-
ir jafnvægi, en ég lít björtum augum
á framhaldið," sagði Jón Örn Guð-
mundsson, þjálfari ÍR-inga.
-SMS
ÍR (40) 79
Grindavík (49) 84
2-5, 8-18, (23-22), 26-24, 3640, (4049).
44-51, 57-51, (63-55), 63-60, 75-76,
79-84.
Stig ÍR:
Cedrick Holmes 26, Eiríkur Önund-
arson 25, Sigurður Þorvaldsson 15,
Ásgeir Bachmann 5, Halldór Krist-
mannsson 2, Hreggviður Magnússon
2, Steinar Arason 2, Guðni Einarsson
2
Stig Grindavíkur:
Guðlaugur Eyjólfsson 21, Kim Lewis
18, Páll Axel Vilbergsson 18, Kristján
Guðlaugsson 13, Pétur Guðmundsson
7, Dagur Þórisson 4, Guðmundur Ás-
geirsson 2,
Fráköst: ÍR 41, Grindavík 42.
3ja stiga skot: ÍR 4/21, Grindavík
11/36,
Dómarar (8): Helgi Bragason og Jón
H. Eðvaldsson.
Gæði leiks (7).
Vítanýting: ÍR 11/18, Grindavík
19/25.
Áhorfendur: 80.
Maður leiksins: Cedrick Holmes,
ÍR
Rjúpnaveiöin að byrja á sunnudaginn:
Allt gert klárt
Þaö var ailt a fullu hja Johanni Vil-
hjálmssyni byssusmið i gærdag er
viö kiktum viö, enda veiðimenn aö
kaupa sér skot og jafnvel skot-
vopn a rjupuna en veiöitiminn
byrjar á sunnudaginn.
DV-mynd G. Bender
„Það er búið að vera hellingur
að gera síðustu daga og í dag hef-
ur verið mikið um skotveiði-
menn sem eru að ná í byssur og
kaupa skot,“ sagði Jóhann Vil-
hjálmsson byssusmiður í gærdag,
er DV-Sport ræddi við hann, en á
sunnudaginn byrjar rjúpnaveiðin
strax í morgunsárið og eru veiði-
menn einhverjir þegar famir á
þá staði sem þeir ætla að byrja
veiðiskapinn á á sunnudaginn og
margir ætla í dag og á morgun í
allra síðasta lagi.
„Ég held að þetta verði góð ver-
tíð og ég ætla eitthvað hérna i
næsta nágrenni Reykjavíkur í
næsta viku þar sem má skjóta. Á
sunnudaginn verð ég með skot-
vopnanámskeið og kemst ekki
neitt. Næstu helgi á eftir ætla ég
til Sigurfinns á Sauðárkróki á
rjúpu,“ sagði Jóhann og hélt
áfram að afgreiða viðskiptavini
sem voru að fara til rjúpna.
„Síðustu dagar hafa verið góð-
ir og við höfum selt helling af
skotum," sagði Ingólfur Kolbeins-
son í Vesturröst og í sama streng
tók Ólafur Vigfússon í Veiðihorn-
inu.
Skotveiðimenn sem DV-Sport
ræddi við í gærdag sögðu mis-
jafnt hvað sést hefði af rjúpu.
Laxveiðimenn segja nóg
af rjúpu
Laxveiðimaður sem var að
veiða í Selá í Vopnafírði undir
það síðasta sá mikið af rjúpu þar
og það sama sögðu veiðimenn við
Hofsá. Á Laxárdalsheiðinni, milli
Búðardals og Hrútafjarðar, sást
hellingur af fugli.
En svæðin verða líka fleiri og
fleiri þar sem veiðin er bönnuð
eins og núna síðast í Eyjaflrðin-
um á stórum hluta. Það virðist
vera erfiðara og erfiðara fyrir
skotveiðimenn að fá að skjóta,
því fleiri og fleiri bætast í hópinn
á hverju ári.
Fleiri og fleiri erlendir skot-
veiðimenn eru famir að koma til
landsins og skjóta fugl. Það þykir
mikið ævintýri að skjóta rjúpu á
íslandi. Eitthvað hefur líka verið
um að heilu dalimir séu leigðir
fyrir veiðiskapinn og þá allan
tímann sem má skjóta.
„Við seljum á rjúpuna hérna í
kringum okkur, enda hafa skot-
veiðimenn komið hérna og gist,“
sagði Elín Ása Ólafsdóttir, vert í
Víðigerði í Víðidal, í gærdag, er
við spurðum hana um stöðuna,
en þá var byrjað að snjóa í Víði-
dalnum.
-G. Bender