Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2000, Page 4
Þorvaldur Stefánsson er óöum aö ná tökum á
Ram-jeppanum sem á þaö stundum til aö leika
hann grátt.
FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2000
Ragnar Róbertsson ætlar aö skemmta sér vel í torfærunni á morgun en
hann leiðir nú keppnina í götubíiafiokknum á Pizza 67-Willysnum.
DV-Sport-heimsbikarmótið í torfæru á morgun
Spennan í
algleymingi
Sjötta og næstsíðasta umferð
DV-Sport-heimsbikarmótsins í
torfæruakstri, Formula OffRoad,
verður ekin á morgun, laugardag-
inn 14. október. Að þessu sinni
verður keppt i gömlu malargryfj-
unum móts við Litlu-kaffistofuna
fyrir ofan Sandskeið og verður
þetta þriðja skipti sem verður
keppt þar í sumar.
Keppnin í Jósepsdal í júní
skal gilda
Að þessu sinni hefst keppnin
kl. 13.00 og eknar verða 8 brautir
sem hver getur gefið 300 stig.
Skráning í keppnina hefur gengið
vel og er búist við 14 keppendum
til leiks. Stjórn Landssamtaka ís-
lenskra akstursíþróttafélaga
ákvað á fundi sínum að torfæru-
keppnin sem fram fór í Jósepsdal
í júni skyldi gilda, bæði til ís-
landsmeistaratitils og Heimsbik-
artitils, eins og upphaflega hafði
verið ákveðið í vor.
Upp komu efasemdir um að
keppni gæti gilt til stiga í tveim-
ur mótum, samkvæmt lögum LÍA,
og þess vegna kom upp misskiln-
ingur og misvísandi ákvarðanir
um gildi keppnanna í sumar. En
stjórn LÍA hefur nú, sem fyrr
sagði, höggvið á þennan hnút.
Eins og staðan er í dag sam-
kvæmt síðustu ákvörðunum eiga
þrír keppendur möguleika á að
hreppa heimsbikartitilinn en þeir
eru Gísli G. Jónsson, Haraldur
Pétursson og Sigurður Þór Jóns-
son. Reyndar eru möguleikar Sig-
urðar ekki miklir og þurfa bæði
Gísli og Haraldur að lenda mjög
neðarlega í báðum síðustu keppn-
unum til að draumar hans verði
að veruleika. Gisli G. Jónsson
leiðir mótið með sex stigum en
DV-sport
heimsbikarmótið
Staðan
Gísli G. Jónsson, Arctic Trucks . 78
Haraldur Pétursson, Musso........72
Sigurður Þ. Jónsson, Thoshiba . . 48
Páll Antonsson, Reis-græjan .... 36
Gunnar Ásgeirsson, Örninn........32
Ragnar Róbertsson, Pizza 67 .... 27
Guðmundur Pálss., Sýnar-billinn . 21
Gunnar Egilsson, Egils-gulliö ... 21
Gunnar Gunnarsson, Trúðurinn . 20
Ásgeir J. Allanss., FM 957-skutlan 18
Götubílaflokkur
Ragnar Róbertsson, Pizza ......67
Gunnar Gunnarsson Trúðurinn . . 75
Ásgeir J. Allanss. FM 957-skutlan 57
Daníel Ingimundars., Græna þ. . 40
Rafn Guöjónsson Rauði prinsinn 34
Árni Kópsson Rauði prinsinn ... 15
Hans Maki .....................12
Hrólfur Árni Borgarson, Willys ... 8
hann hafði verið í 2. sæti þess
fyrir ákvörðun LÍA um breyting-
una á gildi Jósefsdalskeppninnár.
Ég ætla ekki að kæra
,,Ég ætla ekki að kæra þessa
ákvörðun LÍA,“ sagði Haraldur
Pétursson þegar hún var borin
undir hann. „Það væri leiðinlegt
að vinna mótið út á niðurstöðu
einhverrar kæru. Ánnars líst mér
bara vel á keppnina á laugardag-
inn. Mér hefur gengið vel í gryfj-
unum við Litlu-kaffistofuna í
sumar, unnið báðar keppnirnar
sem hafa verið haldnar þar þrátt
fyrir að Mussoinn hentar ekki
sérstaklega vel í þröngum braut-
um. Ég er búinn að yfirfara allan
bílinn og hyggst taka hraustlega
á þessu og gefa ekkert eftir,“
sagði Haraldur að lokum.
Ég ætla að verða ferskur
„Ég ætla að vera ferskur á
laugardaginn og mæta ákveðinn,"
sagði Gísli G. Jónsson þegar DV
hafði samband við hann.
„Ég er að yfirfara Arctic
Trucks Toyotuna núna ásamt að-
stoðarmönnum mínum og við
verðum tilbúnir á laugardaginn.
Þá verður ekkert gefið eftir,“
sagði Gisli.
í götubílaflokknum breyttist
staðan einnig við ákvörðun LÍA
um Jósepsdalskeppnina. Þá færð-
ist Ragnar Róbertsson á Pizza 67
Willysnum upp fyrir Gunnar
Gunnarsson á Dabo Trúðnum en
ljóst er að baráttan um titilinn
mun standa á milli þeirra
tveggja.
Reyndar eiga Ásgeir Jamil All-
ansson á FM 957 skutlunni og
Daníel G. Ingimundarson á
Grænu þrumunni fræðilegan
möguleika á að ná titlinum en
möguleikar þeirra eru ekki mikl-
ir ef Ragnar og Gunnar mæta í
keppnirnar sem eftir eru sem
þeir ætla vissulega að gera.
„Ég er ekki kominn í keppnis-
gírinn frekar en venjulega," sagði
Ragnar Róbertsson á þriðjudags-
kvöldið.
Nenni ekki að stressa mig
„Ég kíki kannski á Nitróið fyr-
ir helgina fyrst ég er kominn í
efsta sætið en það er búið að vera
bilað í ár. Ég nenni ekki að vera
að stressa mig og mæti eins og
venjulega til að hafa gaman af
þessu. Ég býst við hinu versta og
verð þeim mun ánægðari með
það sem vel gengur," bætti Ragn-
ar við en hann hefur verið að
sýna mjög góðan akstur í sumar
og er árangur hans frábær, sér-
staklega ef tekið er tillit til þess
að hann ekur aílminnsta bílnum
sem verið hefur með í sumar.
Gunnar Gunnarsson er alls ekki ánægður meö að hafa veriö rutt af
toppnum. Þangað stefnir hann nú og hyggst tryggja sér báða titlana í ár.
Harald Pétursson þyrstir í titil og hann á nú mikla möguleika á að ná því
takmarki sínu á sérsmíðaða Mussonum sínum.
Ekki ýkja hrifinn af
breytingunum
Gunnar Gunnarsson á Dabo
Trúðnum er ekki ýkja hrifin af
breytingunum sem er orðin á
stöðu efstu manna en við hana
dettur hann niður í annað sætið.
Trúðurinn hjá Gunnari varð
fyrir verulegum skemmdum í síð-
ustu keppni sem haldin var í
Mosfellsbæ. Gunnar er búinn að
endurbyggja allt fjöðrunarkerfið
undir jeppanum að framan fyrir
þessa keppni. Hann er ákveðinn í
að gefa ekkert eftir og ætlar sér
að bæta heimsbikartitlinum við
íslandsmeistaratitilinn sem hann
tryggði sér í siðustu keppni.
-JAK
Gísli G. Jónsson mætir ákveðinn til leiks á morgun og hyggst sýna
keppinautum sínum afturendann á Arctic Trucks Toyotunni. Gfsli er búinn
að tryggja sér íslandsmeistaratitilinn í ár og ætlar að landa
heimsbikartitlinum í tveimur næstu keppnum.
Sigurður Þór Jónsson á Thoshiba-tröllinu á fræðilegan möguleika á heimsbikartitlinum. Hann þarf þó að verða mjög heppinn ef þeir draumar hans eiga að
rætast. DV-myndir JAK