Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2000, Page 4
ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2000
BKaKidl i
Marco Simone, framherji Mónakó,
hefur hótaö að hætta hjá liðinu ef
ekki fer að ganga betur og liðsmenn
þess að leggja sig fram.
Luis Figo og
Ivan Helguera
verða báðir í
leikbanni þegar
Real mætir
Spartak i kvöld.
Þá eru þeir
Paulo Bento,
Sporting, og
Jens Nowotny,
----------------- Leverkusen, í
Luis Figo. banni þegar lið-
in mætast.
Sinisa Mihajlovic veröur í leik-
banni þegar Lazio mætir Sparta
Prag og Gilles Grimandi verður
ekki með Arsenal gegn Donetsk af
sömu orsökum.
Amedeo Carboni, Valencia, verður
í banni í leik liðsins gegn Heeren-
veen.
Kaya Suat, Galatasaray, og Ranka
Popovic, Sturm Graz, veröa hvorug-
ur með í kvöld vegna leikbanna. Þá
eru þeir Bert Konterman, Rangers,
Franck Jurietti, Mónakó, og Mart-
in Djetou, Mónakó, einnig í banni.
Svo gœti farið að miðvaUarleikmaö-
urinn Patrik Berger hjá Liverpool
leiki ekki með liðinu á þessu tíma-
bili. Berger meiddist á hné í leikn-
um gegn Leeds um helgina. í gær
kom fram að leikmaðurinn myndi
fara til Colorado í Bandaríkjunum í
læknismeðferð.
Flest bendir nú til þess að Rudi
Völler taki við stjóm þýska lands-
liðsins i knattspymu. Völler þjálfar
Bayer Leverkusen tímabundið og
tiikynnti félagið í gær að þrír þjálf-
ara væru inni í myndinni og er
Völler ekki á meðal þeirra. Þetta
þykir auka líkumar á því að Völler
verði næsti landsliðsþjálfari Þjóð-
veija.
Eins og kunnugt er átti Christoph
Daum að taka við liðinu næsta
sumar en það fór út um þúfur eftir
að Daum varð uppvís aö neyslu
kókains. -JKS/ÓK
Um líf eða dauða
- aö tefla hjá Mónakó sem er í slæmum málum, heima og heiman
Síðasta umferðin í riðlakeppni
Meistaradeildar Evrópu hefst í
kvöld með átta leikjum og nú
ræðst það endanlega hvaða lið
komast áfram í 16-liða úrslit.
Þónokkur lið hafa þegar tryggt sig
áfram en önnur standa frammi
fyrir erfiðum viðureignum þar
sem mikiö liggur við.
Skiptir engu
í A-riðlinum er nú þegar ljóst
hvaða tvö lið fara áfram, Real Ma-
drid og Spartak Moskva, og eru
leikimir í riðlinum því nánast
bara formsatriði og aðeins stoltið
að veði og einhveijir aurar. Real
og Spartak mætast í Moskvu og
ætla Rússamir sér sigur í leiknum
til aö hefna ósigursins í Madrid og
þeir vilja sýna hvað í þeim býr
gegn einu af toppliðum Evrópu.
Real hyggjast hins vegar hvHa
nokkra lykilleikmenn en mun
sjálfsagt vHja sigra tH að koma sér
aftur af stað eftir ósigurinn gegn
Numancia um helgina.
Stolt Sporting Lissabon veltur að
mörgu leyti á leiknum gegn
Leverkusen í kvöld þar sem þeir
eiga ekki möguleika á sæti i
UEFA-bikamum en það eiga Þjóð-
verjarnir víst. Gengi Portúgalanna
hefur verið hörmulegt og vist er að
þeir vHja reyna að sýna hvað í
þeim býr.
Sæti í UEFA-bikarnum aö veöi
Lazio og Arsenal hafa þegar
tryggt sér áframhaldandi þátttöku
í B-riðlinum en Sparta Prag og
Shakhtar Donetsk berjast um laust
sæti í UEFA-bikarnum.
Lazio á fyrir höndum erfiðan
leik gegn Juventus í ítölsku deUd-
inni og mun væntanlega stUla upp
varaliði í leiknum gegn Spörtu og
unglingamir hjá liðinu fá líklega
möguleika tU að spreyta sig en
samt sem áður má búast við að
meirihluti liðsins verði skipaður
landsliðsmönnum, svo sterkur er
hópurinn hjá Lazio. Spörtu-menn
hafa hins vegar verið á Uugi á
heimaslóðum og eru æstir í að ná
UEFA-sætinu.
Shakhtar þarf að ná betri úrslit-
um gegn Arsenal en Sparta nær
gegn Lazio tU að krækja í lausa
sætið í UEFA-bikarnum en
Arsenal hefur á að skipa geysi-
sterku liði og vUl sjálfsagt forðast
tap. Nokkrir lykiileikmenn liðsins
vora skUdir eftir heima og því
verður Arsenal ekki með sitt
sterkasta lið.
Stefnt á toppsætiö
Valencia hefur þegar tryggt sig
áfram í C-riðlinum en Olympiakos
geta náð toppsætinu ef Valencia
tapar og það sigrar.
Valencia þarf aðeins jafnteUi
gegn Heerenveen á heimaveUi tU
þess að tryggja sér toppsætið og
ætti það að vera auðfengið þar sem
hoUenska liðið hefur ekki riðið
feitum hesti frá riðlakeppninni, að-
eins unnið einn leik og skorað tvö
mörk.
Leikur Lyon og Olympiakos
verður mjög spennandi og Frakk-
amir verða að sigra 1-0, 2-1 eða
með tveimur mörkum tU þess að
komast áfram. Grikkimir þurfa
hins vegar aðeins jafnteUi tU að
komast áfram en þeim hefur ekki
gengið sem best á útiveUi og hafa
tapað fyrir bæði Valencia og Heer-
enveen.
Allt opiö
D-riðUlinn er tvímælalaust sá
opnasti af riðlunum átta en öU lið-
in eiga möguleika á að komast
áfrcun í keppninni. Sturm Graz er
öUum að óvörum á toppnum en á
erfiðan leik fyrir höndum þegar
það heimsækir Galatasaray en
Tyrkimir þurfa nauðsynlega að
sigra tU þess að komast áfram.
Rangers er á heimaveUi gegn
neðsta liðinu Mónakó en á í
nokkrum meiðslaerfiðleikum og
gæti því lent í einhverjum vand-
ræðum. Mónakó hefur ekki verið
að spUa vel það sem af er leiktíð-
inni í Frakklandi og í Meistara-
deUdinni og þarf nauðsynlega á
sigri að halda tU að snúa lukkimni
sér í hag.
-ÓK
A-riðill
Spartak Moskva-Real Madrid
Sporting -Leverkusen
B-riðill
Sparta Prag-Lazio
Shakhtar Donetsk-Arsenal
C-riöill
Valencia-Heerenveen
Olympique Lyon-Olympiakos
D-riðill
Galatasaray-Sturm Graz
Rangers-Mónakó
Staðan A-riðiU Real Madrid 5 4 1 0 15-7 13
Spartak 5 3 0 2 8-3 9
Leverkusen 5 2 0 3 9-12 6
Sporting 5 0 1 4 5-15 1
Arsenal B-riðill 5 4 1 0 11-5 13
Lazio 5 3 1 1 12-4 10
S. Donetsk 5 1 0 4 7-15 3
Sparta Prag 5 1 0 4 6-12 3
Valencia C-riðUl 5 4 0 1 6-3 12
Olympiakos 5 3 0 2 6A 9
Lyon 5 2 0 3 7-6 6
Heerenveen 5 1 0 4 2-8 3
Sturm Graz D-riðill 5 3 0 2 7-10 9
Galatasaray 5 2 1 2 8-11 7
Rangers 5 2 1 2 8-5 7
Mónakó 5 2 0 3 11-8 6
tX»)«ilSfARADtllPIN
Leikirnir í kvöld: