Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2000, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2000, Blaðsíða 1
15 Arni Gautur Arason, til vinstri, byrjar í islenska markinu gegn Pólverjum í dag. Birkir Kristinsson veröur a varamannabekknum, Peir íélagar sjast her á æfingu á Legia-leikvellinum i gær en leikur íslands og Pólverja verður háöur á þeim velli í dag og hefst hann klukkan 17 aö islenskum tíma. ÐV-mynd Zienkiewicz/Agencja Gazeta gm V f#«t * i Æft fyrir átökin Islendingar mæta Pólverjum í knattspyrnu í Varsjá í dag: Hugur í strákunum - Atli Eðvaldsson valdi byrjunarliðið á fundi með leikmönnum í gærkvöld Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari íslands í knattspyrnu, tilkynnti byrjunarliðið sem mætir Pólverjum í vináttulandsleik í Varsjá á fundi með leikmönnum í gærkvöld. Árni Gautur Arason, markvörð- ur frá Rosenborg, sem var fjarver- andi vegna meiðsla í leikjunum gegn Tékkum og N-írum í síðasta mánuði, kemur inn í liðið á nýjan leik. Eyjólfur Sverrisson, Hertha Berlín, og Hermann Hreiðarsson, Ipswich, verða miðverðir. Arnar Þór Viðarsson, Lokeren, verður vinstri bakvörður og Auðun Helga- son, Lokeren, hægri bakvörður. Brynjar Björn Gunnarsson, Stoke City, og Rúnar Kristinsson, Lokeren, verða á miðjunni. Tryggvi Guðmundsson, Tromsö, verður á vinstri kantinum og Heiðar Helgu- son, Watford, hægra megin. í fremstu víglínu verða þeir Ríkharð- ur Daðason, Stoke City, og Eiður Smári Guðjohnsen, Chelsea. Á varamannabekknum verða þeir Birkir Kristinsson, ÍBV, Am- ar Gétarsson, Lokeren, Bjarni Guð- jónsson, Stoke City, ívar Ingimars- son, Brentford, og Helgi Kolviðs- son, Ulm. „Við lítum á þennna leik sem góðan undirbúning fyrir næstu verkefni liðsins. Ég á von á mjög erfiðum leik þvi Pólverjarnir eiga sterku liði á að skipa en frábær uppbygging þeirra á síðustu árum er farin að skila sér. Það er hugur í mannskapnum og menn eru stað- ráðnir í að gera sitt besta. Leikur- inn hefur fengiö mikla umfjöllun í fjölmiðlum hér, bæði í sjónvarpi og dagblöðum sem hafa reyndar verið uppfull af efni um væntanlegan leik þjóðanna," sagöi Atli Eðvaldsson í samtali við DV eftir að hann valdi byrjunarliðið. -JKS NBA-DEIIDIN Ewing hefndi Átta leikir fóru fram í NBA- deildinni í nótt. Patrick Ewing, sem nú leikur með Seattle spil- aði á móti sínum gömlu félögum í New York og hafði betur, 96-75 og skoraði Ewing 10 stig í leikn- um. Urslit í nótt: Atlanta-Portland .........99-97 Wright 20, Jackson 14, Henderson 12, Maloney 11 - Wallace 25, Stoudamire 14, Wells 12, Kemp 12, Sabonis 12. Cleveland-Golden State . . . 96-86 Murray 24, Miller 19 (9 frák., 9 stoðs.), Ilgauskas 12. - Jamison 25 (11 frák.), Hughes 17, Mullin 13, Dampier 11. Miami-Charlotte ..........89-86 Jones 19, Hardaway 17, Mason 16, Grant 15 - Mashburn 31, Wesley 23, Campbell 15 (17 frák.). Sacramento-Orlando .......96-82 Stojakovic 27 (11 frák.), Pollard 22, Divac 21 (11 frák.) - Armstrong 22, McGrady 20, Doleac 12. Houston-Chicago .........110-83 Francis 28, Mobley 20, Taylor 12, Olajuwon 10, Thomas 10 - Brand 16, Benjamin 13, Artest 12. San Antonio-Utah .........86-79 Duncan 15 (12 frák.), Anderson 15, Eiliott 11, Daniels 10 - Malone 15 (12 frák.), Stockton 14, Russell 11. Seattle-New York..........96-75 Payton 25 (13 stoðs., 8 frák.), Lewis 22, Barry 14, Baker 11 - Camby 20 (17 frák.), Houston 12, Sprewell 10. L.A. Lakers-Denver .... 119-103 O'Neal 34 (19 frák.), Bryant 31, Grant 11, Rider 11 - McDyess 28, Van Exel 17 (11 stoðs.), Abdul-Wahad 11. Djorkaeff hótað lífláti Youri Djorkaeff, leikmaður Kaiserslautern, mun ekki hafa misst sæti sitt í leikmannahópi Frakka fyrir leikinn gegn Tyrkj- um vegna meiðsla heldur mun- honum hafa verið hótað lífláti en sú hótun er talin hafa átt sér tyrkneskar rætur, að því er Emmanuel Petit, félagi hans i landsliðinu, segir. Petit segir meiðslasöguna upp- spuna og ástæðan sé pólitísks eöl- is. Forfeður Djorkaeffs voru Armenar sem hraktir voru frá Tyrklandi í upphafi aldarinnar en þúsundir landa þeirra munu hafa verið myrtir á sama tíma og hefur leikmaðurinn stutt við bak þeirra sem mótmæla ofbeldi Tyrkja í Armeníu. Þá samþykkti franska þingið nýlega ályktun varðandi morðin á tyrkneskum Armenum árið 1915 þegar Otto- man-veldið réð þar ríkjum og hef- ur það fallið í grýttan jarðveg í Tyrklandi. Senol Gunes, þjálfari Tyrkja, vildi lítið gefa fyrir diplómatísk meiðsli Djorkaeffs og sagði Tyrki einbeita sér að leik gegn sterkum andstæðingum, leikinn ætti ekki að nota sem vettvang and- franskra mótmæla. -ÓK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.