Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2000, Blaðsíða 4
ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2000
tölvui tíkni og visinda
Á þriðjudaginn/yrir viku birtist frétt á baksíðu DV um það að hefja eigi útflutning á
þorskensímum til Ítalíu til notkunar í snyrtivörur. Útflutningurinn mun hljóða upp á millj-
arða króna ef vel tekst til. Rannsóknir á ensímum hafa nú staðið yfir í 15-20 ár og er margt
athyglisvert í gangi á þeim vettvangi sem vert er að gefa gaum að.
Þorskensím í smyrslformi:
Virkar vel á sár og bólgur
- frekari rannsóknir fram undan
Eins og fram
kom 1 baksíðu-
frétt i DV sein-
asta þriðjudag
er Jón Bragi
Bjamason, pró-
fessor í lífefna-
fræði við Háskóla íslands, að fara
að hefja útflutning á smyrsli sem
unnið er úr þorskensímum, kall-
að Penzim, og hefur reynst vel
gegn þó nokkuö mörgum kvillum
sem hrjá fólk.
Ofurvirkt ensím
„Vinnslan skiptist í tvo hluta
hjá okkur. í fyrsta lagi vinnum
við ensímblöndu úr þorskslógi,
öllu nema lifur, hrognum og svili.
Þessa blöndu köllum við kríótín
sem hefur verið hreinsað af öll-
um ensímum nema þeim sem eru
það sem kallað er prótínkljúfandi
og er hún notuð hjá Norðurís á
Höfn í Hornafirði til framleiðslu
á bragðefnum úr sjávardýrum,"
segir Jón. „Kríótínið hefur þann
eiginleika að vera ofurvirkt.
Ástæðan fyrir því er sú að það er
virkt við mjög lágt hitastig í
þorskinum þar sem sjórinn er um
5 stiga heitur. Virkni þess eykst
síðan allt frá 20-200 sinnum við
hærra hitastig sem gerir það að
verkum að miklu minna þarf af
því en spendýraensímum." Þegar
Norðurís hefur nýtt kríótínið er
það sent til Reykjavíkur. Fyrir-
tækið Ensímtækni sér um að
hreinsa það frekar þangað til að-
eins er eftir ensímið Penzim.
Gleymdi að hún var með
gigt
Fyrir þremur og hálfu ári
komust Jón Bragi og samstarfs-
fólk hans að því í samstarfsrann-
sóknum að Penzim brýtur niður
nokkrar gerðir prótína sem tengd
eru bólgum, gigt og exemi, þ.á m.
psoriasis. „Ég fór að gera rann-
sóknir með virkni Penzim og
byrjaði á móður minni sem er
með slæma liðagigt og gat ekki
lengur staðið upp á morgnana.
Hún bar Penzim á hendur og fæt-
ur. Fimm dögum seinna hringdi
hún í mig og sagðist hafa staðið
upp um morguninn og alveg ver-
ið búin að gleyma því að hún var
með gigt. Einnig prófaði ég
Penzim á psoriasis-sjúklingum og
í ljós kom að þaö virkaði í mörg-
um tilfellum en þó ekki öllum,
eitthvað sem ég hef enn ekki
fengiö botn í,“ segir Jón.
Fyrír þremur og hálfu
árí komust Jön Bragi
og samstarfsfólk hans
að því í samstarfs-
rannsóknum að
Penzim brýtur niður
nokkrar gerðir próíina
sem tengd eru bólg-
um, gigt og exemi, þ.á
m. psoriasis.
nærri búnar og næg verkefni
fram undan. „Við ætlum okkur
að halda áfram að rannsaka
Penzim með einhverjar fleiri vör-
ur í huga. Auk þess erum við að
vinna í rannsóknum á því hvern-
ig nýta megi ensímblöndur í förg-
un úrgangs hvers konar úr mat-
vælaiðnaði,“ segir Jón Bragi.
Sala hreinna ensíma er einnig á
teikniborðinu þar sem fleiri ens-
ím en Penzim falla til úr kríótín-
blöndunni. Nú þegar hafa Jón
Bragi og samstarfsaðilar hans
tekið að sér að hreinsa ensím fyr-
ir rannsóknarhópa erlendis.
Ástæðan fyrir þessu er sú að
hreinsun ensíma á iðnaðarskala
var þróuð af Jóni og samstarfsað-
ilum.
Við minnum enn lesendur DV-Heims á að vilji þeir koma
einhverju á framfæri við umsjónarmenn blaðsins eru allar
hugmyndir, athugasemdir, ábendingar og annað vel þegið.
Hægt er að senda okkur línu á netfangið dvheimur@ff.is
Ensím eru próteinsameindir sem allar lífverur jarðarinnar framleiöa til þess að hraða fyrir efnahvörfum og hjálpa til
við niöurbrot fæðu. Án þeirra værum viö mennirnir t.d. um 50 ár að melta eina máltíð í stað þeirra ca tólf tíma sem
það tekur okkur aö staöaldri að klára hana alveg. Stöðugt eykst notkunargildi ensíma eftir því sem meiri rannsókn-
ir fara fram. Ensím eru notuð í iðnaö og lyfjagerð. T.d. eru komin á markaö hreinsi- og þvottaefni sem nýta ensfm til
að brjóta niöur óhreinindi og er helsti kosturinn viö þvílíka notkun aö ensímin eru algerlega lífræn, brotna auðveld-
lega niður og valda því engri mengun.
Ensím eru undirstaða hraðra efnahvarfa
Litlar líkur á aukaverkunum
„Það er aldrei hægt að útloka
aukaverkanir en líkurnar eru
hverfandi litlar þar sem hér er
um algerlega náttúrlegt efni að
ræða. Það hefur hins vegar eng-
inn þeirra sem ég veit til að hafi
prófað Penzim kvartað yfir
slíku,“ svarar Jón Bragi aðspurð-
ur. „Penzimið er mjög líkt og
ákveðið ensím sem fólk hefur i
meltingarveginum sem gerir lík-
urnar á aukaverkunum mjög litl-
ar.“
Jón tekur það hins vegar fram
að hann viti um tvo einstaklinga
sem hafi kvartað yfir sviða í húð
þegar þeir bera kremið á. Skýr-
inguna á því segir Jón vera sér-
stakt efni sem viðheldur bygg-
Umhverfi þorksins er 5 gráöur á celsíus og ensími sem geta unnið við þann
hita vinna enn hraöar við líkamshita og þar af leiðandi þarf minna af þeim í
hvers kyns áburð eða lyf sem framleidd eru úr þeim.
Frekari rannsóknir leiddu í
ljós mjög góða virkni Penzim
gegn fjölmörgum kvillum. Eitt af
því eru græöandi áhrif á sár.
„Það eru til þó nokkur græðandi
smyrsl sem innihalda spendýra-
ensim. Hins vegar telur Jón
Penzim vera mun meira græð-
andi vegna þess að það er ofur-
virkt við líkamshita.
Jón segir að árið 1997 hafi hann
og samstarfsfélagar hans haldið
að þeir væru með eitthvað alveg
nýtt í höndunum en komust svo
að því að til var þýskt smyrsl sem
unnið er úr nautaensímum.
„Þetta var dálítið áfall fyrir okk-
ur en í leiðinni staðfesti þetta þá
trú okkar á virkni okkar vöru.
Meginmunurinn á þessum tveim
vörum er að magn ensíma í þýska
smyrslinu er tvö hundruð sinn-
um meira en í Penzim."
ingu ensímssameindarinnar, sem
er mjög viðkvæm. Hins vegar er
aðeins um tvo einstaklinga af
hundruðum sem hafa prófað og
sviðinn ekki mikill þannig að
fólk ætti ekki að hafa miklar
áhyggjur.
Næg verkefni fram undan
Þótt Penzim sé komið á markað
nú þá eru rannsóknir Jóns Braga
og samstarfsfólks hans hvergi
Þaö eru um þrjú og hálft ár síðan að Jón Bragi komst að því að Penzim virk-
aöi vel gegn ýmsum kvillum og nú er það loks komið á markað.