Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2000, Blaðsíða 2
20
FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2000
FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2000
21
Sport
Skallagrímur-Hamar 87-84
(11-26), (36-48), (63-65), 87-84.
Stig Skallagrims:
Warren Peebles 25, Hafþór Ingi Gunn-
arsson 19, Alexander Ermolinski 16,
Ari Gunnarsson 15, Sigmar P. Egils-
son 7, Evgenij Tomilovskij 4, Pálmi Þ.
Sævarsson 1.
Stig Hamars: Chris Dade 40, Pétur
Ingvarsson 14, Skarphéöinn Ingason
11, Gunnlaugur H. Erlendsson 6, Óli
S. Barödal 5, Svavar P. Pálsson 4,
Hjalti J. Pálsson 4.
Fráköst: Skallagrímur 36, 25 í vörn,
11 sókn; (Alexander 7), Hamar: 32, 22
í vörn, 10 sókn, (Gunnlaugur 7).
Stoösendingar: Skallagrímur 19
(Peebles 5), Hamar 23 (Dade 6, Pétur
6).
Stolnir boltar: Skallagrímur 20
(Peebles 5), Hamar 18 (Skarphéðinn 5,
Dade 5).
Tapaöir boltar: Skallagrímur 22
Hamar 17.
Varin skot: Skallagrímur 2 (Hafþór,
Alexander), Hamar 2 ( Hjalti 2).
3ja stiga: Skallagrímur 31/15, Hamar
34/10.
Víti: Skallagrímur 8/13, Hamar
12/17.
Dómarar (1-10): Jón Bender og
Eggert Aðalsteinsson (5).
GϚi leiks (1-10): 6.
Áhorfendur: 230.
Maður leiksins: Hafþór Ingi
Gunnarsson, Skallagrími.
KR-Tindastóll 95-105
2-0, 4-4, 15-4, 15-12, 22-12, 22-15,
(29-19), 29-23, 33-25, 40-36, 40-41,
46-41, 5fr46, (5fr48), 56-50, 70-56,
70-69, 74-71, 74-77, (76-79), 80-79,
80-86, 87-86, 90-90, 95-92, 95-105.
Stig KR: Ólafur Jón Ormsson 29,
Hermann Hauksson 18, Keith Vassell
15, Arnar Kárason 14, Magni Haf-
steinsson 9, Tómas Hermannsson 4,
Steinar Kaldal 4, Ólafur Már Ægisson
2.
Stig Tindastóls: Shawn Myers 38,
Michail Antropov 15, Svavar Birgis-
son 15, Kristinn Friðriksson 14, Ómar
Sigmarsson 11, Lárus Dagur Pálsson
10, Friðrik Hreinsson 2.
Fráköst: KR 25 ( 9 í sókn, 16 í vöm,
Vassell 11 ), Tindastóll 41 (13 í sókn,
28 í vörn, Myers 17).
Stoósendingar: KR 25 (Vassell 10),
Tindastóll 24 (Antropov 5).
Stolnir boltar: KR 8 (Vassell 3),
Tindastóll 6 ( Myers 2).
Tapaóir boltar: KR 10, Tindastóll 13.
Varin skot: KR 3 (Vassell, Magni,
Ólafur Jón), Tindastóll 6 (Antropov
4).
3ja stiga: KR 21/14, Tindastóll 16/5.
Víti: KR 15/9, Tindastóll 24/20.
Dómarar (1-10): Sigmundur Már
Herbertsson og Einar Þór
Skarphéðinsson (7).
GϚi leiks (1-10): 8.
Áhorfendur: 300.
Maður leiksins: Shawn Myers,
Tindastóli.
KFÍ-Keflavík 83-77
6-4, 13-16, 15-21, (12-24), 20-25, 25-26,
29-32, (38-38), 42-41, 46-45, 51-51,
(53-55), 56-59, 63-66, 80-75, (83-77).
Stig KFÍ: Ales Zianovic 24, Dwayne
Fontana 23, Sveinn Blöndal 17,
Baldur Helgi Jónasson 7, Ingi F.
Vihjálmsson 4, Magnús Þ.
Guðmundsson 4, Hrafn Kristjánsson
2, Gestur M. Sævarsson 2.
Stig Keflavíkur: Calvin Davis 37,
Guöjón Skúlason 16, Magnús Þ.
Gunnarsson 7, Hjörtur Harðarson 6,
Birgir Guðflnnsson 6, Gunnar
Einarsson 4, Birgir Öm Birgisson 3.
Fráköst: KFÍ 53, 16 í sókn og 37 í
vörn (Fontana 18), Keflavík 35, 16
vörn og 19 vörn (Davis 22).
Stoðsendingar: KFÍ 15 (Hrafn 6),
Keflavík 6 (Hjörtur 3).
Stolnir boltar: KFI 9 (Fontana 2,
Zianovic 2, Dragojlovic 2), Keflavík 10
(Guðjón 3).
Tapaóir boltar: KFl 15, Keflavík 8.
Varin skot: KFÍ 1 (Sveinn), Keflavík
6 (Davis 5).
3ja stiga: KFf 3/15, Keflavík 7/27.
Víti: KFÍ 12/16, Keflavík 16/30.
Dómarar (1-10): Björgvín
Rúnarsson og Rúnar Birgir Gíslason
(7).
Gteöi leiks (1-10): 9.
Áhorfendur: 220.
Maður leiksins:
Calvin Davis, Keflavík.
Magni Hafsteinsson KR-ingur sækir hér að körfu Tindastóis en Svavar A. Birgisson, Tindastóli, er til varnar. Á
innfelldu myndinni er Jón Arnór Stefánsson KR-ingur prúðbúinn en hann er meiddur á læri. DV-myndir E.ÓI.
Njarövik-Grindavík 93-56
3-0, 10-5, 12-11, (19-15), 28-15, 37-18,
41-21, (47-29), 55-31, 60-39, 6ÍÞ43,
(66-43), 74-48, 81-52, 84-54, 93-56.
Stig Njaróvíkur: Logi Gunnarsson
26, Halldór Karlsson 14, Brenton
Birmingham 13, Jes Hansen 11, Teitur
Örlygsson 8, Sævar Garðarsson 7,
Friðrik Ragnarsson 6, Ragnar Ragn-
arsson 3, Þorbergur Heiðarsson 3, As-
geir Guðbjartsson 2.
Stig Grindavíkur: Páll Axel Vilbergs-
son 17, Dagur Þórisson 13, Guðlaugur
Eyjólfsson 7, Kristján Guðiaugsson 6,
Pétur Guðmundsson 6, Elentínus Mar-
geirsson 5, Helgi Helgason 2.
Fráköst: Njarðvík 45, 37 vöm, 8 sókn
(Brenton 11), Grindavík 36, 29 vöm,
6 sókn, (Lewis 9).
Stoósendingar: Njarðvík 23 (Brenton
6), Grindavík 12 (Lewis, Elentínus 3).
Stolnir boltar: Njarðvík 15 (Brenton
6), Grindavik 11 (Lewis 3).
Tapaöir boltar: Njarðvík 18, Grinda-
vík 20.
Varin skot: Njarðvik 1 (Hansen),
Grindavík 3 (Lewis, Bergur, Páll Axel).
3ja stiga: Njarðvík 31/10, Grindavík
30/2
Víti: Njarðvík 23/16, Grindavík 15/12.
Dómarar (1-10): Einar Einarsson og
Rögnvaldur Hreiðarsson (6).
GϚi leiks (1-10): 6.
Áhorfendur: 200.
Maður leiksins:
Logi Gunnarsson, Njarðvík.
Þór Ak.-Valur 99-92
7-4,14-14, 21-20, (28-29), 33-29, 42-34,
(46-38), 48-43, 53 43, 60-49, 65-51,
67-57, 67-61, (71-70), 71-72, 79-76,
83-81, 90-83, 95-89, 99-92,
Stig Þórs: Sigurður Sigurðsson 27,
Óðinn Ásgeirsson 24, Clifton Bush
22, Magnús Helgason 15, Hermann
Hermannsson 10, Hafsteinn Lúð-
víksson 1.
Stig Vals: Brian Hill 27, Guðmund-
ur Bjömsson 18, Brynjar Karl 14,
Herbert Amarson 12, Bjarki Gúst-
afsson 8, Kjartan Orri Sigurðsson 2.
Fráköst: Þór 34, 12 I sókn, 22 í vörn
(Bush 14), Valur/Fjölnir 24, 6 í sókn,
18 í vörn (Hill 12).
Stoösendingar: Þór 18 (Hafsteinn
7), Valur/Fjölnir 22 (Herbert 8).
Stolnir boltar: Þór 12 (Sigurður 4),
Valur/Fjölnir 14 (Herbert 4).
Tapaöir boltar: Þór 15, Val-
ur/Fjölnir 10.
Varin skot: Þór 5 (Óðinn 4), Val-
ur/Fjölnir 1 (Brian).
3ja stiga: Þór 27/10, Valur/Fjölnir
20/6.
Víti: Þór 21/15, Valur/Fiölnir 19/16.
Dómarar (1-10): Erlingur Snær
Erlingsson og Kristinn Oskarsson
(8).
Gceöi leiks (1-10): 8.
Áhorfendur: 150.
Maður leiksins: Sigurður F.
Sigurðsson, Þór Ak.
Haukar-ÍR 79-67
0-2, 7-10, 14-15, (16-17), 25-21, 25-28,
35-30, (35-34), 42-41, 5341, (60-46),
65-52, 71-59, 79-67
Stig Hauka: Bragi Magnússon 22,
Jón Amar Ingvarsson 17, Mike
Bargen 14, Marel Guðlaugsson 10,
Guðmundur Bragason 8, Eyjólfur
Jónsson 7, Lýður Vignisson 1.
Stig ÍR: Eiríkur Önundarson 16,
Cedrick Holmes 15, Halldór
Kristmannsson 11, Hreggviður
Magnússon 7, Ólafur Sigurðsson 6,
Guðni Einarsson 5, Sigurður
Þorvaldsson 4.
Fráköst: Haukar 40 (Bargen 10), ÍR
36 (Holmes 14).
Stoðsendingar: Haukar 16 (Jón
Amar 4), ÍR 15 (Eiríkur 4).
Stolnir boltar: Haukar 9 (Bargen
4), ÍR 8 (Holmes 2).
Tapaöir boltar: Haukar 15, ÍR 20.
Varin skot: Haukar 2 (Eyjólfur 1),
ÍR 2 (Holmes 1).
3ja stiga: Haukar 5/17, ÍR 6/18.
Víti: Haukar 19/27, ÍR 15/17.
Dómarar (1-10): Jón Halldór
Eðvaldsson og Kristinn Aibertsson
(8).
GϚi leiks (1-10): (5).
Áhorfendur: Um 200.
Maður leiksins:
Jón Arnar Ingvarsson, Haukum.
DV DV
Sport
- Shawn Myers og Michail Antropov voru saman með 53 stig, 25 fráköst og 77%
hittni þegar Tindastólsmenn stöðvuðu sex leikja sigurgöngu íslandsmeistaranna
Tindastólsmenn gerðu góða
ferð í vesturbæinn í gær og
urðu fyrstir í tvo mánuðu til að
leggja íslandsmeistara KR-inga.
Stólarnir gerðu 13 síðustu stig
leiksins og unnu 95-105 eftir að
KR-ingar höfðu leitt leikinn
nánast allan tímann en KR
hafði unnið sex deildarleiki í
röð.
Tindastóll stólaði á stóru
mennina sina og þeir sáu um að
yfirvinna góða hittni KR-liðsins
í leiknum (54,5%) en KR-ingar
gerðu 14 þriggja stiga körfur úr
aðeins 21 skoti (66,7%).
Shawn Myers var óstöðvandi,
hitti úr 15 af 19 skotum sínum
og gerði alls 38 stig og tók 17
fráköst og það þrátt fyrir að
hluti af varnarskyldum allra í
vesturbæjarliðinu væri að
reyna að stöðva þennan snjalla
framherja.
16 stig á 6 mínútum
Myers var sérstaklega öflug-
ur í þriðja leikhluta þegar Stól-
amir komu sér aftur inn í leik-
inn þegar þeir virtust vera bún-
ir að missa meistarana of langt
fram úr sér.
KR-ingar yfirdekkuðu Myers
stíft fyrstu fjórar mínútur
seinni hálfleiks og gekk vel og
settu síðan á svið stórskotasýn-
ingu í sókninni þar sem fjórar
þriggja stiga körfur á fjórum
mínútum komu muninum upp í
14 stig, 70-56, og fátt virtist í
spilum Tindastólsmanna.
Of stór skammtur
En KR-ingar fengu að því
virtist of stóran skammt af
góðri hittni og misstu við það
stjórn á sóknarleiknum. Liðið
fór að taka of erfið skot og skor-
aði ekki stig í þrjár mínútur og
forskotið gufaði upp. Stólamir
fóru líka að koma boltanum inn
í teig á þá Myers og Antropov
og eftir 16 stig frá Myers á 6
mínútum náðu Stólarnir að
komast yfir fyrir síðasta leik-
hlutann.
Leikurinn hélst áfram í jám-
um, KR-ingar tóku annan sprett
með góðri hittni en þegar öll
augu vora á Myers og Antropov
losnaði um þá Ómar Sigmars-
son og Kristin Friðriksson sem
nýttu sér plássið í lokin og skor-
uðu mikilvægar körfur. KR-
ingar enduðu siðan leikinn
jafnilla og þeir byrjuðu hann
vel því Tindastóll skoraði 13
síðustu stigin í leiknum.
KR-liðið lék án Jóns Amórs
Stefánssonar sem meiddist í
bikarleiknum gegn Njarðvík á
dögunum og Jónatans Bow sem
er meiddur í baki og svo fékk
Keith Vassell högg á olnbogann
á mikilvægum tíma í fjórða
leikhluta sem hélt honum á
bekknum í fimm mínútum og
orsakaði það að hann gat ekki
beitt sér að fullu í lok leiksins.
Besta sóknin í vetur
Valur Ingimundarson, þjálf-
ari Tindastóls, var ánægður 1
leikslok. „Þetta er mjög gott og
viö spiluðum frábæran seinni
hálfleik eftir að hafa verið arfa-
slakir í vörninni í fyrri hálfleik.
Við sýndum mikinn karakter
og ákváðum að snúa blaðinu
við í hálfleik. Michail stóð sig
frábærlega og var aö spila sinn
besta leik i vetur. Það þarf stór-
leik til að vinna KR úti. Þetta er
það besta sem við höfum sýnt í
sókninni í vetur,“ sagði Valur í
leikslok en sem dæmi um sókn-
arleikinn þá hittu Stólarnir úr
64,5% skota sinna í leiknum og
tóku 62% frákastanna.
Hjá KR átti Ólafur Jón
Ormsson mjög góðan leik auk
þess sem mikilvægi Magna
Hafsteinssonar sást best þegar
hans naut ekki við vegna
villuvandræða. Þá var Keith
Vassell með þrefalda tvennu og
Hermann Hauksson setti sjö af
10 skotum sínum niður.
-ÓÓJ
Markasúpa í forrétt
- 34 mörk í fyrri hálfleik þegar ÍBV sigraði Fram í SS-bikarnum
í átta liða úrslitum bikarkeppni HSl mætt-
ust ÍBV og Fram á heimavelli þeirra
fyrmefndu. Liðin höfðu áður mæst fyrr í vetur
í Eyjum, þá í deildarkeppninni og lauk þeim
leik með stórsigri gestanna. í gærkvöldi var
hins vegar annað uppi á teningnum, leikmenn
ÍBV höfðu greinilega unniö heimavinnuna og
áttu Framstúlkur litla von í leiknum. ÍBV sigr-
aði 34-25 og er því komið í undanúrslit.
Það vora gestimir úr Safamýrinni sem byrj-
uðu leikinn betur og fyrsta markið var þeirra.
Eyjastúlkur brettu hins vegar upp ermamar
og svöruðu með þremur mörkum í röð.
Tamara Mandizch fór mikinn í leiknum og var
áberandi í markaskorun frá fyrstu mínútu en
þrjú af fyrstu fjórum mörkum ÍBV komu frá
henni. Framstúlkur börðust áfram þrátt fyrir
mótlætið og um miðjan hálfleikinn var staðan
orðin jöfn, 10-10. Eyjastúlkur settu þá í fluggír-
inn og náðu undirtökunum. Fjögur mörk
skildu liðin að í hálfleik eftir sannkallaða
makasúpu og Eyjastúlkur leiddum, 19-15.
í upphafi seinni hálfleiks leit allt út fyrir að
ÍBV væri að gera út um leikinn enda skoruðu
þær fyrstu tvö mörkin og náðu sex marka for-
ystu. Leikmenn Fram reyndu að klóra í bakk-
ann og gerðu það reyndar en ekki mikið meira
en það. Minnstur varð munurinn í seinni hálf-
leik fjögur mörk en þegar tíu mínútur lifðu eft-
ir af leiknum gripu gestirnir til örþrifaráða og
mættu heimastúlkum mjög framarlega í vam-
arleiknum. Sú hernaðaráætlun mistókst hins
vegar illilega og ÍBV jók muninn jafnt út leik-
inn og niðurstaðan varð níu marka sigur ÍBV.
Vigdís varöi vel
Framliðið lék ekki vel í gærkvöldi og vam-
arleikur liðsins var í molum. Sóknarleikurinn
gekk þó ágætlega, Marina Zoeva var tekin úr
umferð stærstan hluta fyrri hálfleiks en skil-
aði samt sem áður sínu. Einnig áttu Irina
Sveinsson og Katrin Tómasdóttir ágæta spretti
en annars ríkti meðalmennskan í Framliðinu.
Hjá ÍBV vora þær Tamara, Anita Andreas-
sen og Vigdís Sigurðardóttir í algjörum sér-
flokki á vellinum og ekki hægt að neita þvi að
leikur liðsins í gærkvöldi var farinn að minna
nokkuð á meistaraliðið frá því í fyrra. Varn-
arleikur liðsins var þó ekki í háum gæðaflokki
á köflum en Vigdís sá til þess að Fram kæmist
aldrei nálægt ÍBV í seinni hálfleik en þá varði
hún ein fimmtán skot.
„Þetta var alls ekkert auðveldur leikur fyrir
okkur og sérstaklega ekki í fyrri hálfleik. Við
náöum alltaf forskoti en misstum það svo ein-
faldlega aftur niður en við náðum svona miklu
forskoti á lokamínútunum. Það var mikil
breyting á leik okkar frá því á móti Haukum
enda beittum við brostækninni í þetta skiptið
og fóram að hafa gaman af hlutunum, baráttan
kom í kjölfarið og þannig hafðist þetta. Við
einbeittum okkur að okkar leik enda held ég
að það hafi skilað okkur inn í undanúrslitin,"
sagði Vigdis Sigurðardóttir eftir leikinn.
Mörk iBV: Tamara Mandizch 12/6, Anita Andre-
assen 10, Amela Hegic 4, Ingibjörg Ýr Jóhanns-
dóttir 3, Edda B. Eggertsdóttir 2, Gunnleyg Berg
2, tris Sigurðardóttir 1/1.
Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 23.
Mörk Fram: Marina Zoeva 10/4, Katrín Tómas-
dóttir 4, Björk Tómasdóttir 4, Irina Sveinsson 4,
Olga Provchorova 2, Kristin Brynja Gústafsdóttir 1.
Varin skot: Hugrún Þorsteinsdóttir 12.
Hafþór góður
- fór fyrir Skallagrími í sigri á Hamri
Minnugir lokaleiksins í
deildinni I fyrra, þar sem Ham-
arsmenn gerðu vonir Borgnes-
inga um sæti í úrslitakeppn-
inni aö engu, voru heimamenn
staðráðnir í að hefna ófaranna,
þegar Hvergerðingar komu í
heimsókn í Borgames í gær.
Það tókst þeim og lauk leiknum
með sigri þeirra, 87-84.
Strax í upphafi náðu Ham-
arsmenn múdlli forystu með
góðri hittni og sterkri vöm en
að sama skapi spiluðu Borgnes-
ingar afar illa og töpuðu boltan-
um hvað eftir annað, alls átta
sinnum í fyrsta leikhluta. Ekki
hresstist Eyjólfur í öðrum leik-
hluta og Hamarsmenn héldu
forskotinu allt til loka fyrri
hálfleiks.
Hafþórs þáttur
Gunnarssonar
í seinni hálfleik tók hinn
bráðefnilegi leikmaður Skalla-
gríms, Hafþór Gunnarsson,
leikinn í sínar hendur og skor-
aði níu stig á fyrstu tveim mín-
útum hálfleiksins og skyndi-
lega var munurinn kominn nið-
ur í þrjú stig. Borgnesingar
fóm að spila góða vörn og drit-
uðu niður þriggja stiga körfun-
um. Fát kom á Hamarsmenn og
stemningin var öll heima-
manna. Skallagrímsmenn
komust fyrst yfir í upphafi
flórða leikhluta með þriggja
stiga körfu frá Alexander
Ermolinskij. Borgnesingum
hélst á forskotinu, einkum fyrir
tilstuðlan frábærs leiks Hafþórs
og Alexanders, og þeir unnu
sigur í köflóttum leik.
10 þriggja stiga
Alls settu Skallarnir niður 10
þriggja stiga körfur í seinni
hálfleik og voru það helst Al-
exander, Hafþór og Ari sem
hittu best en einnig átti Peebles
góðan seinni hálfleik en tapaði
boltanum of oft.
„í seinni hálfleik byrjuðum
við að spila almennilega vöm
og komum upp stemningu og
þá kom sóknarleikurinn í kjöl-
farið. Það er mjög gott að fara í
jólafrí með sigri. Ég tók bara
mín skot og félagar mínir í lið-
inu voru duglegir að peppa mig
upp og þá kom sjálfstraustið,“
sagði Hafþór Ingi Gunnarsson í
leikslok. Hjá Hamarsmönnum
átti Chris Dade stórleik og setti
40 stig, þá barðist Skarphéðinn
eins og ljón, einnig var Pétur
drjúgur en hefur oft leikið bet-
ur. -RAG
Nú datt það
- hjá KFÍ sem vann sinn fyrsta leik í vetur
Það vora ákveðnir leikmenn ís-
firðinga sem gengu inn á leikvöllinn
í Jakanum í gærkvöldi og unnu
sinn fyrsta leik, 83-77.
Ales Zianovic skoraði fyrstu
körfu leiksins og lagði þar með
grunnin að stórleik sínum. Keflvík-
ingar hresstust þegar líða tók á
fjórðunginn og vora þrjár þriggja
stiga körfur þeirra dýrmætar í
seinni hlutanum. Staðan eftir fyrsta
leikhlutann var 17-24 fyrir Keflavík.
Ales opnaði aftur annan leikhlutann
með góðri körfu og á eftir fylgdu sex
stig heimamanna sem náðu að halda
jöfnu í leikhléi, 38-38. Athygli vakti
aö Davis skoraði öll stig Keflavíkur
í öðrum leikhluta, eða 14 talsins, og
var það til marks um sterka vörn
heimamanna.
Þriðji leikhluti var í jámum og
skiptust liðin á um forystuna. Við
upphaf fjórða leikhluta var staðan
53-55 fyrir gestina. Síðasti hlutinn
var gríðarlega spennandi og greini-
legt að heimamenn höfðu fundið
lyktina af fyrsta sigrinum. Það kom
og á daginn að sigurvilji ísmann-
anna var meiri og þeir lönduðu
verðskulduðum sigri, 83-77. Segja
má að fjórði leikhlutinn hafi verið
eign Sveins Blöndal, sem lítið hafði
sést fyrr í leiknum. Hann skoraði
þar ellefu af 17 stigum sínum og áttu
leikmenn Keflvíkinga ekkert svar
við leik hans.
Karli Jónssyni þjálfara var létt í
leikslok. „Það er búin að vera mikil
stígandi í leik okkar undanfarið og
það var í rauninni bara spuming
hvenær fyrsti sigurinn kæmi. Varn-
arleikurinn hefur verið höfuðverk-
ur en í kvöld sýndum við aö við get-
um líka spilað vörn. Á góðum degi
getum við unnið hvaða lið sem er og
nú ætti jólasteikin að fara aðeins
betur í okkur.“
Bestur í annars jöfnu liði heima-
manna var Ales Zianovic. Pilturinn
sá hefur gjörbreytt liði KFÍ til hins
betra. Fontana átti einnig skínandi
leik og líkar það greinilega vel að
vera kominn með félaga undir körf-
una. Hrafn stjómaði liðinu eins og
herforingi og Sveinn og Baldur settu
mikilvægar körfur.
Calvin Davis var yfirburðamaður
í liði Keflavíkur, hann hélt haus all-
an leikinn og spilaði feiknagóða
vörn á stóru mennina hjá KFÍ og
skoraði grimmt. Annars náði Kefla-
víkurliðið sér ekki á strik gegn
sterkri vöm heimamanna og skytt-
umar tóku mörg slæm skot að utan.
Birgir Guðfinnsson kom sterkur inn
af bekknum. Guðjón Skúlason skil-
aði sínum stigum eins og vanalega.
-TBS
Calvin Davis, Keflavík.
Arfaslök nýting
- Grindvíkinga og stórt tap fylgdi í kjölfarið
Njarðvíkingar tóku Grindvíkinga
í kennslustund í Ljónagryfjunni í
Njarðvík í gærkvöldi. Lokatölur
urðu 93-56 eftir að heimamenn
höfðu leitt í hálfleik, 47-29.
Leikurinn var bragðdaufur í upp-
hafi, en Njarðvíkingar settu kraft í
leik sinn í öðrum leikhluta og
skyndilega var munurinn á liðunum
orðinn 20 stig. Heimamenn voru að
leika fina vöm, en aftur á móti voru
gestimir aldrei í takt við leikinn, og
tilraun þeirra til að komast inn í
leikinn hreinlega gekk ekki þó þeir
hefðu náð að stoppa Njarövíkinga á
köflum í þriðja leikhluta. Sóknar-
leikurinn var í molum, hver að
reyna í sínu homi og skotnýtingin
arfaslök. Niðurstaðan varð því stór-
sigur heimamanna og þeir því í 3.
sæti í jólafrí.
Heimamenn léku sterka vöm í
leiknum og sem dæmi náöi Kim
Lewis ekki að komast á blað. Logi
Gunnarsson var atkvæðamikill í
sókninni, en annars áttu allir góðan
leik hjá heimamönnum. Hansen var
sérstaklega öflugur í fyrri hálfleik,
Halldór átti skínandi leik, og þjálfar-
arnir voru að spila mjög góða vörn.
Hjá gestunum var fátt um fina
drætti. Það má eiginlega segja að
Dagur Þórisson hafi verið sá eini_
sem lék af eðlilegri getu, aðrir geta '
mun betur, jafiit í vörn og sókn.
Friðrik Ragnarsson, annar af
þjálfurum Njarðvíkinga, var ánægð-
ur í leikslok. „Við spiluðum okkar
besta vamarleik í vetur, og menn
rifu sig upp eftir áfallið í bikamum.
En vissulega er maður meðvitaður
um að Grindvíkingar voru að leika
langt frá sínu besta en við förum
með bros á vör í jólafríið.“
Pétur Guðmundsson, fyrirliði
Grindvíkinga, var að vonum von-
svikinn með leik liðsins: „Það var
ekki vöm til staðar, og í stað þess að
hugsa um að stoppa næst þá ætluðu
menn að redda sér með 3ja stiga
körfu. Þetta er ekki leiðin til að
koma sér á sporið aftur og þetta*
breytist ekkert hjá okkur nema
menn geri sér grein fyrir því.“-EÁJ
Ekki fyrir augað
Haukar sigruðu ÍR á Ásvöll-
um, 79-67, í leik sem var ekki
mikið fyrir augað. Bæði lið
léku illa í fyrri hálfleik þar
sem skotnýting beggja liða var
í algjöru lágmarki og mikið
var um mistök. Bragi Magnús-
son sá til þess að Haukar voru
yfir í hálfleik, 35-34, þegar
hann skoraði 10 stig á stuttum
kafla í öðrum leikhluta. Eitt-
hvað virtist leikurinn ætla að
hressast í byrjun seinni hálf-
leiks og skoruðu liðin á víxl.
En þá tóku Haukar völdin og
skoruðu 13 stig í röð og léku
fina vöm. Á þessum kafla
lögðu þeir grunninn að sigrin-
um og gestunum tókst ekki að
brúa bilið þrátt fyrir heiðar-
legar tilraunir.
Hjá Haukum var Jón Arnar
Ingvarsson bestur og stjórnaði
leik liðsins vel. Bragi var góð-
ur í öðrum og fjórða leikhluta
og Mike Bai-gen stóð fyrir
sínu. ÍR-ingar voru ekki likir
sjálfum sér í þessum leik og
vilja eflaust gleyma honum
sem fyrst. Eiríkur
Önundarson var mistækur og
Cedrick Holmes var rólegur.
Hreggviður náði sér ekki á
strik og sama má segja um Sig-
urð Þorvaldsson. ÍR-ingar geta
þó farið sáttir í jólafrí og halda
eflaust áfram að gera usla í
deildinni að fríi loknu.
-BG
Siguröur F. Sigurðsson,
leikmaöur Þórs, var maður
leiksins gegn Val.
Þetta hafðist
Fyrirfram var búist við auðveldum sigri Þórs á
Val/Fjölni þegar liðin mættust í gærkvöldi í
íþróttahöllinni á Akureyri. Fyrsti leikhluti var
mjög jafn og skiptust liðin á að hafa forystu. Lítið
var skorað í öðram leikhluta eða alls 27 stig. Bæði
lið náðu mikið af fráköstum en Þórsarar nýttu
skotin sín betur og fóru í hálfleik með átta stiga
forystu. í þriðja leikhluta náðu Þórsarar fljótlega
14 stiga forskoti en menn Vals/Fjölnis gáfust ekki
upp og minnkuðu muninn niður í eitt stig fyrir lok
þriðja leikhluta.
Valur/Fjölnir tók forystu strax í upphafi fjórða
leikhluta. Þórsarar gáfust ekki upp og náðu foryst-
unni fljótt aftur. Spennan var gífurleg undir lokin
og reyndu leikmenn Vals/Fjölnis eins og þeir gátu
að jafna. Þegar um mínúta var eftir náðu þeir að
minnka muninn niður í þrjú stig. Þórsarar náðu
þó að halda fengnum hlut.
„Þetta hafðist. Þetta var gríðarlega mikilvægur
leikur fyrir bæði lið. Við urðum að ákveða það
hvort við ætluðum að líta niður fyrir okkur eða
upp. Viö stefnum á úrslitakeppnina og gera betur
heldur en í fyrra. Við munum nýta jólafríið vel.
Við ætlum að bæta okkur. Ég er ósáttur við það
hvemig við höfum spilað. Við höfum verið að ná
góðri forystu og svo missum hana niður. Þetta ætl-
um við að bæta,“ sagði Ágúst Guðmundsson, þjálf-
ari Þórs, eftir leikinn i gær. -JJ