Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2000, Blaðsíða 4
22
FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2000
Rosicky til Bayern?
Tomas Rosicky.
Tomas Rosicky, hinn
tvítugi leikmaður
Spörtu Prag og tékk-
neska landsliðsins, sem
er mjög eftirsóttur af
stórliðum í evrópskri
knattspyrnu, hefur lýst
því yfir að hann vilji
ganga til liðs við Bayem
Munchen. Hann segist
þekkja best til liðsins af
hinum stóru liðum og
að hann hafi verið
áhangandi þess frá
barnæsku.
Leikmaðurinn segist
hvergi banginn við að
spila í Bundesligunni og
segist hafa sýnt að hann
gæti staðið sig vel þar,
sérstakleg í meistara-
deild Evrópu. Viðræður
við félagið eru þó ekki
hafnar en kaupverðið
mun vera um 13 milljón-
ir punda (1,5 milljarðar
króna).
SandeQord-Haukar
um helgina:
Hvergi
bangnir
- segir Viggó Sigurðs-
son, þjálfari Hauka
íslandsmeistarar Hauka í
handknattleik halda utan til Nor-
egs í fyrramálið þar sem þeir
mæta Sandefjord á sunnudag í
siðari leik liðanna í EHF-keppn-
inni. Haukamir sigruðu 1 fyrri
leiknum með tíu marka mun,
34-24, sem var nokkuð óvænt nið-
urstaða miðað við að norska liðið
er efst og taplaust i norsku deild-
inni og að Haukarnir lentu í
nokkrum vandræðum gegn öðru
norsku liði, Bodo/Glimt, fyrir
skömmu en Bodo er í fjórða sæti
deildarinnar eftir 10 leiki, sex
stigum á eftir Sandefjord.
„Þessi leikur leggst ágætlega í
okkur við erum auðvitað með tiu
marka forskot en við ætlum okk-
ur ekki að fara þarna út til að
verjast heldur til að sækja og
spila eðlilegan leik,“ sagði Viggó
Sigurðsson, þjálfari Hauka, þegar
DV-sport hafði tal af honum í
gær. „Við gerum okkur fulla
grein fyrir því að Sandefjord var
að spila mjög slakan leik á
sunnudaginn og að þetta er miklu
betra lið heldur en þar kom
fram. Það er mikilvægast að falla
ekki í þá gildru að fara að verja
forskotið heldur spila bara eftir
eigin getu, þá klárum við þetta.
Þeir brotnuðu algjörlega í
leiknum en sýndu siðan klærnar
í smátíma í síðari hálfleik og
voru fljótir að hlaða inn mörkun-
um þegar þeir komu inn í hraða-
upphlaupum. Þeir eru mjög fljót-
ir og við vissum að þeirra aðall
væru hraðaupphlaupin. Þeir
spila hins vegar mjög stuttar
sóknir og ekki mjög skipulegan
sóknarleik sem er galli á liðinu.
Þeir eru hins vegar með mjög öfl-
uga leikmenn."
Mikið álag
„Auðvitað er þreyta í liðinu
eftir mikla leikjahrinu undanfar-
ið, álagið hefur verið mikið og
margir erfiðir leikir, eins og
núna síðast á móti Fram. Það sit-
ur að sjálfsögðu i okkur, það er
ekki spurning. Það voru einhver
smámeiðsli eftir leikinn á mið-
, vikudaginn og menn voru í með-
ferð hjá sjúkraþjálfara. Þau
meiðsli eru hins vegar ekki alvar-
leg og ekkert óeðlUegt í gangi,
þetta er bara álagið.
Það er mjög góður andi og mik-
ið sjálfstraust í liðinu þannig að
við erum hvergi bangnir og för-
um fullir sjálfstrausts í leikinn
úti í Noregi,“ sagöi Viggó. -ÓK
Vegna Korpu
Það er rétt að það komi fram
vegna skrifa um Korpu í gær í
veiðiþætti DV-Sport aö
leigutakarnir veiða ekki sjálfir í
ánni.
Stangveiðifélag Reykjavíkur
selur veiðileyfm í Korpu og allir
geta keypt þar veiðileyfi.
-G.Bender
Krakkarnir í Baldurshaga voru kuldalegir þegar DV-Sport leit við á æfingu á dögunum. Engin upphitun er í salnum og hitastigið fylgir nánast hitastiginu úti.
Það gefur því augaleið að oft veröur þarna skítakuldi að vetrarlagi og aðstaðan auðvitað langt frá því aö vera boöleg. DV-mynd Hilmar Þór
Krakkarnir æfa
inni í skítakulda
- döpur aðstaða frjálsíþróttafólks til æfinga innanhúss í
Reykjavík. Hitastigið oft við frostmark í Baldurshaga
Aðstaða frjálsíþróttafói;.- '" p 10 •
innanhúss í Reykja "• nánast engin
eða afar léleg o" v
götur frá því að ioku*.
hófst hérlendis.
Ástandið hefur þó sjaldan eða aldrei
verið jafnslæmt og nú. 1 Baldurshaga,
undir stúku Laugardalsvallar, er eina
aðstaðan i höfuðborginni þar sem hægt
er að æfa hlaup á tartanbraut sem er
lengri en 30 metrar. Raunar er hér um
að ræða „bestu" aðstöðuna á landinu
hvað þetta varðar. Brautin lafir
reyndar í því að teljast þokkaleg og
hefur komið sér vel fyrir þá fjöbnörgu
sem æfa frjálsar í Reykjavík.
Nú er staðan varðandi aöstöðuna
hins vegar verri en hún hefur áður
verið að vetrarlagi. Forkólfur innan
frjálsíþróttahreyfmgarinnar, sem DV-
Sport talaði við í gær, hafði ófagra
sögu að segja:
„Það er hrein hörmung að sjá hvern-
ig aðstaðan er. Þama æfa börnin i
skítakulda og þurfa að vera kappklædd
til að halda á sér hita. Salurinn í Bald-
urshaga er aldrei upphitaður og hita-
stigið inni fylgir nánast hitastiginu úti.
Um daginn var þriggja stiga hiti úti og
þriggja stiga hiti inni. Mér finnst þetta
fyrir neðan allar hellur. Krakkamir
hafa ekki gert mjög mikið af því að
kvarta. Það er hins vegar mín skoðun
að það sé hneyksli að bjóða þeim upp á
þessa aðstöðu. Einhverra hiuta vegna
hefur hitinn verið tekinn af Baldurs-
haga. Það er möguleiki að hafa hita-
blásara i gangi en til að það komi að
gag;, æflngum að kvöldlagi þarf að
kveikja á honum snemma dags. Það er
aldrei gert.“
Bílastæðið í Kringlunni eftir
lokun á kvöldin
Aðstaða fyrir íþróttafólk i Reykjavík
sem stundar frjálsar íþróttir og knatt-
spyrnu innanhúss að vetrarlagi hefur
lengi verið til hreinnar skammar í höf-
uðborginni. Nú horfa mál til betri veg-
ar fyrir knattspyrnuiðkendur en áfram
situr frjálsíþróttafólkið eftir.
Sérstaklega þeir sem æfa hlaup,
langhlaup eða spretthlaup.
Á sama tima og íslenskir afreks-
menn í frjálsum íþróttum eru í fremstu
röð í heiminum eykst áhuginn gríðar-
lega hér heima í kjölfar mikillar um-
fjöllunar Cölmiðla. Einkum og sér í
lagi fjölgar þá ungum iðkendum.
Það sem í boði er þegar aðstaðan er
annars vegar er ömurlegt og lítið að-
laðandi. Þar má nefna yfirbyggð bíla-
stæði Kringlunnar eftir lokun á
kvöldin og upphitaðar gangstéttir ef
þær flnnast. -SK
} DV - Þverholti 11
Heimilisfang ----------------------------------------------—----------—------------------------ j 105 Reykjavík